Morgunblaðið - 29.11.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1994 9
FRÉTTIR
Kópavogur eitt sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
sem er ekki með húsaleigubætur
Ekkí ástæða til að
óttast flótta leigjenda
Félagsmálaráðu-
neytið telur bóta-
kerfið ná til
70-80% leigu-
markaðarins
GUNNAR I. Birgisson, formaður
bæjarráðs í Kópavogi, telur að það
sé ekki nokkur ástæða til að óttast
flótta leigjenda frá Kópavogi í kjöl-
far þess að Kópavogur er eina sveit-
arfélagið á höfuðborgarsvæðinu
sem hefur ekki samþykkt húsa-
leigubætur, en lög þar að lútandi
taka gildi um áramót og greiðsla
samkvæmt þeim í janúar. Gunnar
segir að þetta hafi verið ákveðið til
eins árs í mótmælaskyni við lögin,
en þau séu svo flókin og fram-
kvæmd þeirra svo kostnaðarsöm að
hann sé sannfærður um að horfið
verði frá framkvæmd þeirra.
Forsenda þess að fólk geti notið
húsaleigubóta er að viðkomandi
sveitarfélag hafi samþykkt að taka
upp húsaleigubætur. Tuttugu og
níu sveitarfélög hafa ákveðið að
taka upp húsaleigubætur og telur
félagsmálaráðuneytið að bótakerfið
muni ná til 70-80% leigumarkaðar-
ins. Hins vegar hafa mörg stór
sveitarfélög, auk Kópavogs, utan
höfuðborgarsvæðisins hafnað upp-
töku húsaleigubóta. Það gildir um
öll sveitarfélögin á Suðurnesjum ef
Grindavík er undanskilin og mörg
stærri sveitarfélög út á landi, svo
sem Akureyri, Húsavík, Egilsstaði,
Akranes, Höfn í Hornafirði, Ólafs-
fj'örð, Siglurljörð og ísafjörð.
Flókið og kostnaðarsamt
Gunnar sagði að það væri með
ólíkindum að svona vitleysa kæmi
frá ríkinu eins og þetta húsaleigu-
kerfi. Kerfið væri flókið og erfitt í
útfærslu og kostaði mikinn mann-
skap að framfylgja því. Þegar hins
vegar öllu væri á botninn hvolft
væri útfærsla kerfisins kannski
meira og minna háð mati starfs-
manna. Kópavogur væri alls ekki á
móti húsaleigubótum en hefði alltaf
talið að þetta ætti að fara beint i
gegnum skattakerfið, eins og gilti
um vaxtabætur til dæmis.
Þá teldu þeir að leiga á almenn-
um markaði myndi hækka við upp-
töku kerfisins, þegar leigusalarnir
þyrftu að gefa upp leiguna sem
tekjur, þrátt fyrir að leigufjárhæð
að upphæð 300 þúsund væri skatt-
fijáls. Að auki teldu þeir að kerfið
fæli í sér mismunun þar sem það
næði einungis til almenna leigu-
markaðarins. Þeir sem væru í leigu-
íbúðum bæjarins fengju engar bæt-
ur og sama gilti um þá sem væru
í félagslegum eða almennum kaup-
leiguíbúðum. Fólk væri kannski að
kaupa sér íbúðir samkvæmt al-
mennri kaupleigu og borgaði 40
þúsund krónur vegna þess en fengi
engar bætur þrátt fyrir það.
tt útbob
issjóbs
mibvikudaginn 30. nóvember
Ríkisvíxlar ríkissjóbs:
23. fl. 1994
Útgáfudagur: 2. desember 1994
Lánstími: 3, 6 og 12 mánuðir
Gjalddagi: 3 mánaða: 3. mars 1995
6 mánaða: 2. júní 1995
12 mánaða: 8. desember 1995
FJningar bréfa: 1.000.000, 10.000.000,
50.000.000, 100.000.000 kr.
Skráning: Verða skráðir á Verðbréfaþingi íslands
Viðskiptavaki: Seölabanki íslands
Sölufyrirkomulag:
Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi.
Aðilum að Verðbréfaþingi íslands sem eru verðbréfafyrirtæki, bankar og
sparisjóðir og Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa gefst kostur á að gera tilboð
í ríkisvíxla samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu.
Abrir sem óska eftir aí> gcra tilboh í ríkisvíxla eru hvattir til ab
hafa samband vib framangreinda abila. Hjá þeim iiggja frammi
útboðsgögn, auk þess sem þeir annast tilboðsgerð og veita nánari upplýsingar.
Athygli er vakin á því að 2. desember er gjalddagi á 23. fl. ríkisvíxla sem gefinn
var út 3. desember 1993, 11. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 3. júní 1994 og
17. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 2. september 1994.
Öll tilbob í ríkisvíxla þurfa ab hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 á morgun, mibvikudaginn 30. nóvember. Tilboðsgögn og
allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 40 70.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, simi 91- 62 40 70.
Jón Viktor meistari
þriðja arið 1 roð
LOKIÐ er úrslitakeppni um íslands-
meistarartitil drengja og stúlkna 14
ára og yngri í skák.
í drengjaflokki urðu 3 jafnir og
efstir í mótinu sjálfu og háðu úrslita-
keppni um efsta sætið. Henni lauk
með sigri Jóns Viktors Gunnarsson-
ar sem hlaut 3 vinninga af 4. í 2.-3.
sæti urðu Bergsteinn Einarsson og
Björn Þorfinnsson með Vh af 4.
Þetta er þriðja árið í röð sem Jón
Viktor vinnur þennan titil.
Katrín stúlknameistari
í stúlknakeppni urðu þær Katrín
Þórarinsdóttir, Reykjavík og Harpa
Fönn Siguijónsdóttir, Húsavík, jafn-
ar og efstar í mótinu sjálfu. Þær
tefldu tveggja skáka einvígi og
skildu jafnar 1-1. Þá var tefld ein
úrslitaskák sem lauk með sigri Katr-
ínar sem er þar með íslandsmeist-
ari stelpna 1994.
SILFURSKEMMAN
Opið daglega frá kl. 13-18, laugardaga frá kl. 10-14
eða eftir samkomulagi.
Sími 91-628112
Miðbraut31, 170 Seltjarnarnesi,
Ný sending af peysum
TBSS
Neðst viö °Pið virk“ úaga
Duiiliaga,
síini 622230
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Ulpur — flíspeysur
skída- og kuldagallar
á alla fjölskvlduna
Cortína sport
Skólavörðustíg 20,
sími 21555.
Blúndu-, silki- og
satínsloppar
Svört flauelispils
Hverfisgötu 78,
sími 28980.
slípivörur og allt
lœtur undan
Sandpappír og aðrar slípivörur írá 3M eru margreyndar
og viðuxkenndar. Tré, járn, gler, stál cg ýmislegt fleira
verður að láta undan þessum öflugu vörum.
ÁRVÍK
ÁRMÚL11 • REYKJAVl'K • SÍMI 687222 • MYNDRITI 687295