Morgunblaðið - 29.11.1994, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORDISk
FILM-&TVJ
fOMD
Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn er fjármagnaður með samningi milli norrænu
ráðherranefndarinnar, níu norrænna sjónvarpsstöðva og norrænu kvikmyndastofnananna
fimm. Sjóðurinn er skrásett stofnun með aðsetur í Stokkhólmi. Nú er verið að leita að:
FORSTJÓRA
til næstu fjögurra ára frá og með 1. janúar 1995 með möguleika á fram-
lengingu til tveggja ára. Umsækjendur verða að geta lagt fram skriflega
staðfestingu á reynslu af undirbúningi, framleiðslu og markaðssetningu
kvikmynda/sjónvarpsefnis, góð alþjóðleg sambönd, almenn norræn tengsl
og góða tungumálakunnáttu. Forstjórinn mælir með til stjórnar þeim
verkefnum, sem hann telur eiga kost á mestu mögulegu fjármögnun
samkvæmt reglum sjóðsins.
í tengslum við að sjóðurinn muni bæta við sig verkefnum á sviði
markaðssetningar og dreifmgar er einnig leitað að:
MARKAÐS- OG UPPLÝSINGASTJÓRA
til þriggja ára frá og með 1. janúar 1995 með möguleika á framlengingu.
Viðeigandi menntun og víðtæk þekking/reynsla af markaðssetningu
menningarefnis og/eða kvikmynda/sjónvarpsefnis-dreifmgar er kostur.
Markaðs- og upplýsingastjórinn mun bera ábyrgð á markaðssetningar-
og upplýsingastarfi sjóðsins, þar á meðal styrkveitingum vegna dreifmgar
á kvikmyndum og sjónvarpsefhis innan Norðurlanda.
Um báðar stöðurnar gildir eftirfarandi: Laun og starfsbyrjun samkvæmt
samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Marianne Möller stjómarformaður, Helsinki,
í síma 90 358 0 62 20 300 eða einhver stjómarmanna:
Irigemar Leijonborg, Stokkhólmi, sími 90 46 8 76 47 700
Ulla Östbjerg, Óðinsvéum, sími 90 45 65 91 12 44
Jan Erik Holst, Osló, sími 90 47 22 42 87 40
Friðbert Pálsson, Reykjavík, sími 61 12 12
Einnig er hægt að nálgast nýjar samþykktir sjóðsins hjá þeim.
Umsóknir og fýlgiskjöl ásamt sjálfstæðu uppkasti að starfsáætlun fyrir
sjóðinn árin 1996-1998 verða að berast stjórnarformanni fýrir
mánudaginn 12. desember:
Heimilisfang: c/o Finlands filmstiftelse
Kanavakatu 12
FIN-00160 Helsinki
Símbréfi 90 358 0 62 20 30 50
Uppskríftir, heimsóknir, jólasiðir,
konfektgerð, fóndur, jólagjafir, pakkar og
margt fleira er í 64 síðna blaðauka sem
fylgir Morgunblaðinu nk. fimmtudag,
1. desember.
s JltagtittMaftifc
-kjarni málsins!
________AÐSEMDAR GREINAR_______
Opið bréf til mennta-
málanefndar Alþingis
Framhaldsskólalögin og starfsmenntir - 1. grein
FRAMHALDS-
SKÓLALÖG sem fram
til þessa hafa verið sett
hafa öll verið fagurlega
orðuð í upphafi.
Markmiðin víðsýn og
verk- og starfsmenntir
áttu að hljóta forgang
og örvun. Síðari grein-
ar laganna hafa hins-
vegar ávallt verið ann-
ars eðlis, þar voru
bremsuákvarðanirnar
settar niður og þar var
miðstýringarvaldinu
skipað til hásætis og
áhrifa á öll þau mál
sem einhverju skipta
varðandi þróun og framfarir. Hins
vegar voru aukaatriði svo sem sam-
setning skólanefnda gerð að tákni
um víðsýni og haldið á lofti af þeim
sem sömdu og túlkuðu lagatillög-
urnar. Núverandi lagasmíð er í engu
frábrugðin fyrri lögum hvað þetta
varðar. Helstu breytingarnar eru
fólgnar í nafnabreytingum á nefnd-
um og ráðum svo og tilfærslur í
aðild að skólanefndum. Miðstýring-
arvaldinu er hinsvegar viðhaldið
með þeirri viðbót að Reykjavíkur-
valdi átvinnurekenda og verkalýðs-
félaga er veitt aðstaða til að ráðsk-
ast með ákvarðanir starfsmennta,
ekki aðeins í Reykjavík heldur einn-
ig á landsbyggðinni.
Skólamál þurfa mikið fjármagn,
það er því brýnt að halda vel á fjár-
málastjórninni og skoða vel við
samningu laganna hvemig það
verður nýtt með sem skynsamleg-
ustum hætti. Það er óskynsamlegt
að setja jafnaðarmerki í milli fjár-
muna og árangurs, þar sem skipu-
lag stjórnunnar og eftirlit geta ráð-
ið miklu um hve mikið fæst fyrir
þá fjármuni sem varið er til mennta-
mála. Í þeirri úttekt má ekki gleyma
kostnaði heimilanna vegna skóla-
göngu barna sem að sjálfsögðu
skiptir verulegu máli í heildardæm-
inu.
Tökum einfalt dæmi. Setjum svo
að verknámsdeildir í málm- og tré-
iðnum í Ilafnarfirði væru lagðar
niður sökum þess að unnt væri að
sanna að ein stofnun í Reykjavík
væri rekstrarlega ódýrari en tvær,
þar sem önnur væri í Hafnarfirði.
Hver myndi kostnaður hafnfirskra
heimila verða af breytingunni. Far-
gjöld með strætisvögnum yrðu um
400 kr. á dag eða
2.000 kr. á viku; í 36
vikur yrði ferðakostn-
aður á nemanda
72.000 krónur. Sé mið-
að við að nemenda-
fjöldinn sé 80 þá er
kostnaðrauki hafnfir-
skra heimila 5.760.000
kr. á ári hverju fyrir
utan mikið óhagræði
vegna þess mikla tíma
sem fer í ferðir. Fjöl-
skyldur sem búa enn
fjær kennslumiðstöð
verða enn verr úti en
fram kemur í nefndu
dæmi. Hætt er við að
heimilin vildu firra sig slíkum kostn-
aðarauka og unglingamir því ör-
vaðir til að sækja í bóknámsdeildir
framhaldsskólans.
Engu af þessu hafa verið gerð
markverð skil og er þó ekki van-
þörf á að skoða fjármögnunar- og
arðsemisþátt skólakerfisins með til-
liti til íslenskra aðstæðna. Starfs-
hópur er taldi átján manns sat á
rökstólum í 800 daga til að móta
nýja stefnu í skólamálum og þrátt
fyrir að megin verkefni hennar
væri að efla starfsmenntir í fram-
haldsskólanum eru mestar líkur á
að aðeins verði um orðaleik að ræða
sem áður. Enda er miðstýringunni
viðhaldið og almennt frumkvæði
skólamanna og framsækinna at-
hafnamanna í byggðum landsins
íjötrað með reykvískum nefndum
ráðuneytismanna og framamanna í
félagsmálum.
Hvað þarf að
skoða betur?
í langan tíma hafa starfsmenntir
verið undir stífri stjórn mennta-
málaráðuneytis, nefnda og stórr-
áða, svo sem iðnfræðsluráðs og
sjávarútvegsráðs. Þrátt fyrir þessa
trúverðugu uppbyggingu hafa
starfsmenntir stöðugt verið á und-
anhaldi fyrir menntaskólalínunni
sem hefur fengið einokunaraðstöðu
á æðra námi. Ekki hafa verið skoð-
aðar ástæður þess að nefnd skipan
hefur ekki megnað að skapa virð-
ingu fyrir starfsnámi. Hér er eitt-
hvað alvarlegt að sem að mínu
mati er eftirtalið:
1. Yfirstjórn starfsmenntaskól-
anna, svo sem annarra fram-
haldsskóla, er í höndum starfs-
Starfsmenntir hafa
stöðugt verið á undan-
haldi, segir Steinar
Steinsson, þrátt fyrir
stífa stjómun ráðuneyt-
is og ýmissa stórráða.
fólks menntamálaráðuneytisins
og eru forustumenn þar allir með
bóknámsmenntun að baki og
hafa viðhorf sem einkennast af
því. Virðing þeirra fyrir starfs-
námi er aðeins í orði en ekki á
borði. Fjöldi starfsmanna ráðu-
neytisins hefur verið starfandi
þar í langan tíma og hefur misst
tengsl við nútíma atvinnulíf og
þá þróun sem þar á sér stað í
framleiðslu og þjónustuiðnaði.
2. Stórráðin hafa verið helstu ráð-
gjafar ráðuneytisins, en þau eru
skipuð mönnum sem eru tals-
menn ákveðinna hagsmuna og
er umræða þeirra lituð af þeirri
staðreynd. Þeir eru bundnir við
hagsmuni líðandi stundar og sér-
hagsmuna og snúa sér ekki að
framfarasinnuðum verkefnum á
meðan lögin gera þá að þrösurum
núdagsins. Arangursleysi stór-
ráðanna, í að efla verk- og starfs-
menntir á undaförnum áratug-
um, er hrópandi dæmi um gagns-
leysi þeirra.
3. Frumkvæði og samstarf fram-
farasinnaðra fyrirtælqa og skóla
í heimabyggðum starfsmennta-
skóla til þróunar og nýs náms-
framboðs er nær útilokað vegna
skorða sem settar eru í anda
forsjárhyggju.
4. Starfs- og verkmenntakennslan
hefur verið mjög einhæf og þróun
hæg. Er það verulegt umhugsun-
arefni, þar sem við skólana starf-
ar fjöldi mjög hæfra kennara sem
geta áorkað miklu hefðu þeir til
þess frelsi. Firring ábyrgðar í
kerfinu er áberandi og þangað
má rekja verulegan hluta af þeim
vanda sem gerir verknámið lítt
áhugavert.
Höfundur er fyrrverandi
skólameistari Iðnskólans í
Hafnarfirði.
© Husqvarna
250
slœrígegn!
Sœnsk gœðasaumavél með
13 nytjasaumum, 12 skrautsporum o.m.fl.
Rafeindastýrður mótor.
Taska og vinnuborð fylgja með
íþessu tilboði.
Verð 42.513- kr. stgr.
Smaragd 230 kostar aðeins 37.810- kr. stgr.
VÖLUSTEINNh.
Faxafen 14, Sími 889505
Steinar Steinsson