Morgunblaðið - 29.11.1994, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSIIMS
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1994 49
Er menning
óþarfa bruðl?
Örvænting Petrínu Baldursdóttur
Frá Sigríði Sigþórsdóttur:
ÞAÐ var þögull hópur listamanna
sem stóð í lemjandi rigningu í há-
deginu á mánudegi niðri við Sætún
og pakkaði inn
listaverki. Mark-
miðið var að vekja
athygli almenn-
ings á þeirri stað-
reynd að í nýju
fj árlagafrumvarpi
er gert ráð fyrir,
að það litla fjár-
framlag, þ.e. 12
milljónir kr. á ári,
sem veitt hefur
verið til List-
skreytingasjóðs ríkisins verði fellt
niður árið 1995.
Ég orðaði þetta við góðkunn-
ingja minn sem svaraði um hæl:
„Já, er þetta ekki bara óþarfa
bruðl?“ Fólkið í landinu er orðið
ónæmt fyrir því, þegar niðurskurð-
arhnífnum er sveiflað á lofti og
því skyldu listamenn ekki fá að
kenna á honum jafnt sem aðrir?
En málið snýst ekki bara um að
veita listamönnum vinnu, þó slíkt
væri góð röksemd út af fyrir sig.
Málið snýst um miklu stærri og
mikilvægari hluti. Þessi sjóður er
nefnilega liður í að þróa menning-
una í landinu sarnhliða öðrum þátt-
um, svo við íslendingar getum
haldið sjálfstæði okkar og reisn.
Á sama tíma og þær þjóðir sem
við viljum bera okkur saman við,
reka sérstök ráðuneyti til að ann-
ast málaflokkinn „menningu",
mætti halda að íslenska mennin-
garpólitíkin hafi verið lögð til hlið-
ar í skrifborðsskúffu í mennta-
málaráðuneytinu. Já, ég leyfi mér
að taka svo sterkt til orða, því sú
sorglega ákvörðun sem nú liggur
fyrir, er greinilega lítið ígrunduð,
en tekin af vanþekkingu á þeirri
starfsemi sem sjóðurinn hefur
staðið fyrir.
í nágrannalöndum okkar hafa
sambærilegir sjóðir eflst og styrkst
með þeirri umræðu, að heilbrigði
einstaklinga sé háð andlegri vellíða
og öryggi. Og að hið veraldlega
umhverfi eigi snaran þátt í þeirri
uppbyggingu. Arkitektar og lista-
menn eru hvattir til samvinnu við
að móta manneskjulegra og fjöl-
breyttara umhverfi, sem er um leið
hvetjandi fyrir þá sem þar vistast.
Þannig telja þessar nágrannaþjóðir
okkar arðbæra ijárfestingu í heil-
brigðu fólki. Á Norðurlöndunum
hefur t.d. sýnt sig að barnadeildir
sjúkrahúsa sem bera keim af heim-
ilum í stað stofnana skila mun
betri árangri, heldur en hefðbundn-
ar sjúkradeildir, eins og við þekkj-
um þær. Legutíma sjúklinga er
markanlega styttri. Á endurhæf-
ingadeildum sjúkrahúsa eru lista-
menn fengnir til að vinna með fag-
lærðu fólki í skapandi verkenum
með góðum árangri, svo dæmi séu
nefnd. Þessi afstaða er í örri þróun
umhverfis okkur og liður í að snúa
við blaðinu hvað varðar uppeldi á
heilbrigðari og hæfari einstakling-
um í flóknum samfélögum.
Listskreytingasjóður ríkisins
hefur aðallega veitt framlög til
fjárfestingar í listaverkum í opin-
berum byggingum eða svæðum
Notalegt útvarp
FM 94,3
Alla virka daga
kl. 12.45-19.00.
SÍGILTfm
Reykjavík
s.s. skólum, sjúkrahúsum og á
torgum. Núverandi stjórn hefur
haft að leiðarljósi að styrkja þau
verk sem eru hluti af umhverfinu,
m.a. með að hvetja til samvinnu
arkitekta og listamanna þegar í
upphafi verks, svo árangurinn
verði sem heilstæðastur. Mikið þró-
unarsstarf hefur verið unnið varð-
andi leiðir um val á listaverk-
um/listamönnum og mörgum
spennandi verkefnum hefur verið
ýtt út vör. Það er því sóun á fjár-
munum að stöðva slíkra þróun á
miðri leið og að gera um leið að
engu það starf sem þegar hefur
verið fjárfest í. Þær byggingar og
umhverfi sem nú eru í mótun og
framkvæmd bíða væntanlega ekki
eftir hugsanlegu framlagi úr List-
skreytingarsjóði ríkisins á komandi
árum. Er ekki viturlegra að endur-
skoða þesasr aðgerðir gegn List-
skreytingasjóði ríkisins með fram-
sýnu hugarfari, áður en hnífurinn
er látinn falla?
SIGRÍÐUR SIGÞÓRSDÓTTIR,
arkitekt og fv. fulltrúi AÍ í stjórn List-
skreytingasjóðs ríkisins.
Frá Kristjáni Péturssyni:
HINN 17. nóvember sl. birtist grein
í Morgunblaðinu eftir Petrínu Bald-
ursdóttur þingmann Alþýðuflokksins
í Reykjavík undir heitinu „Það hálfa
væri nóg“.
Grein Petrínu lýsir á afar einfaldan
og skýran hátt hugarheimi þess sem
örvæntingin hrjáir. Hún vænir Jó-
hönnu Sigurðardóttur alþingismann
m.a. um ábyrgðarleysi og að hafa
sparkað í félaga sína í flokknum þeg-
ar hún hafði tækifæri til. Það alvar-
legasta við ritsmíði Petrínu er að hún
skrifar þessa grein gegn betri vitund.
Ósannindi af þeim toga sem hér um
ræðir sýnir hvorutveggja í senn skort
á heilindum og siðferði.
Greinin ber með sér handbragð og
forskrift formannsins Jóns Baldvins,
hrokinn og vandlætingin á verkum
annarra er augljós. Petrína er tíðrætt
um að böm verð að lúta ákveðnum
reglum og taka tillit til annarra. Við
getum sjálfsagt verið sammála um
að mikilvægasta hlutverk uppeldislist-
ar er sköpun á heilbrigðum hugsunar-
hætti. Illvilji þarf að breytast í góð-
vild, heiftúð þar að snúast í víðtæka
mannúð. Gætu þessi sannindi átt ein-
hvem samnefnara með grein Petrínu?
Nei, því miður, heiftúð, ósannindi og
ótrúlega mikið dómgreindarleysi ein-
kennir hana.
Þegar fólk hættir að leita leiðsagn-
ar skynseminnar getur veruleikinn
orðið dapurlegt hlutskipti. Sá slæmi
vitnisburður sem Petrína gefur starfs-
hæfni og framgöngu Jóhönnu í stjóm-
málum á ekkert skylt við veruleikann.
Varla verður svona hugsýn til hjá
Petrínu af stuttri þingsetu og lítilli
stjómmálareynslu, fremur má ætla
að hún hafí orðið fyrir óæskilegum
áhrifum flokksformannsins. Afkasta-
geta þignmannsins á sviði jafnréttis-
og mannréttindamála er ekki sýnileg.
Ekki hef ég heldur greint framlag
hennar til leiðréttingar á launamis-
rétti né tillögur um nýsköpun í at-
vinnulífi og markaðsmálum. Ekki hef
ég heldur veitt athygli aðgerðum
hennar í skattsvikamálum og við-
skipta- og samkeppnisháttum.
Er ekki best, Petrína, að byija á
sinni eigin heimavinnu í stað þess að
fordæma verk annarra með ósannind-
um og níði? Allir sannir jafnaðarmenn
vita að Jóhanna Sigurðardóttir hefur
verið og er okkar besti leiðtogi og
boðberi hugsjóna jafnaðarstefnunnar
og hefur sýnt í verki óbilandi trú á
mannréttinda- og jafnréttismálum.
Dugnaður hennar sem ráðherra og
þingmanns er viðurkenndur af öllum.
í örvæntingu skrifar fólk og segir
ýmsa hluti sem betur væru ósagðir.
Petrína veit að hún á ekki endurkomu
á Alþingi undir merkjum Alþýðu-
flokksins, sem er að þurrkast út. Þetta
vissu Karl Steinar, Eiður og Jón Sig-
urðsson og létu flokksapparatið koma
sér í vænlegri stöður. Flokksformað-
urinn á væntanlega frátekna sendi-
herrastöðu, en Petrína verður vænt-
anlega „stikkfrí".
Nýr og sterkur jafnaðarmanna-
flokkur undir forystu Jóhönnu verður
stofnaður innan skamms tíma. Þar
ríkir góður andi og samstarfsvilji og
skoðanakannanir sýna 20% fylgi við
Jóhönnu á meðan tæp 5% fýlgja Al-
þýðuflokknum.
Málæðisvaðall formannsins Jóns
Baldvins virðist hafa uppljómað hug-
skot Petrínu og henni er nokkur vor-
kunn, fleiri sæmilega vitibomir menn
og konur hafa tímabundið týnt áttum
í návist hans. Formaðurinn er nefni-
lega lengi búinn að vera með ónýtan
kompás.
Stuðningsmenn Jóhönnu eru vel
meðvitaðir um hvers konar aðgerðum
andstæðingar munu beita gegn henni
í kosningabaráttunni. Ég trúi orðum
Sókratesar að „lygin verði aldrei lang-
líf“. Ég er líka þess fullviss að með
réttvísi, drenglyndi og friðsemd er
hægt að sigra hveija þraut. Við skul-
um sameinast um að skapa breiðfýlk-
ingu um Jóhönnu Sigurðardóttur í
komandi alþingiskosningum.
KRISTJÁN PÉTURSSON,
fyrrverandi deildarstjóri.
d tilboðsverði
Hagenuk ST 900 KX er þráðlaus sími
sem hentar vel við ólíkar aðstæður,
á heimilinu jafnt sem vinnustaðnum.
í honum er 20 númera skammvals-
minni, endurval, stillanleg hringing
og 24 stafa skjár. Hægt er að nota
Hagenuk símann
í rafmagnsleysi.
Tilboðsverð kr.:
Hagenuk MT 2000
GSM farsíminn er
traustur og fjölhæfur
en jafnframt einfaldur
í notkun. Skjárinn er
óvenju stór og
leiðbeiningarnar
birtast jafnóðum og
síminn er notaður.
Trompið er svo
innbyggður símsvari
sem tekur við
töluðum skilaboðum
eða talnaboðum, ef
hringt er í hann úr
tónvalssíma. Hægt er
að lesa eigið ávarp inn
á símsvarann.
Tilboðsverð kr.:
Á
' ' %
19.947,- 35.900,-
Staðgr. m. vsk.
Staðgr. m. vsk.
Traust viðgerða- og varahlutaþjónusta. Greiðslukjör.
& hagenuk
Söludeild Ármúla 27, sími 91-63 66 80.
Söludeild Kringlunni, sími 91-63 66 90. , —
Söludeild Kirkjustræti 27, sími 91-63 66 70 PÓSTUR
og á póst- og símstöðvum um land allt. OG SIMI
Sigríður
Sigþórsdóttir