Morgunblaðið - 09.12.1994, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
á góðum tækjum
Leiðtogar ísraels og PLO funda í Ósló um helgina
Reuter
YASSER Arafat, leiðtogi PLO, og Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, takast í hendur í gær
í upphafi fundar þeirra í Erez, á landamærum ísraels og Gaza.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 • SÍMI 69 15 00
Reyna að bjarga
friðarsamkomulagi
Erez, Damaskus, Jerúsalem. Reuter.
LEIÐTOGAR ísraels og Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO), sem
hljóta Friðarverðlaun Nóbels í Ósló
á morgun, laugardag, lýstu því yfir
í gær að þeir leituðu leiða til að
bjarga friðarsamkomulaginu sem
þeir undirrituðu fyrir fimmtán mán-
uðum. Munu Yitzhak Rabin, forsæt-
isráðherra ísraels, Yasser Arafat,
leiðtogi PLO og Shimon Peres, ut-
anríkisráðherra ísraels, eiga fund í
Ósló í tengslum við verðlaunaaf-
hendinguna.
Peres og Arafat áttu klukku-
stundarfund í gærdag í Erez, á
landamærum ísraels og Gaza, þar
sem þeir ræddu hyaða vandamál
stæðu nú helst í vegi fyrir því að
friðarsamkomulagið héldi.
Leggja ísraelar mesta áherslu á
öryggi landsins en Arafat er mjög
áfram um að kosningar verði haldn-
ar sem fyrst á hernumdu svæðun-
um. Það er hins vegar ekki hægt
fyrr en ísraelskar hersveitir hafa
verið fluttar frá Vesturbakkanum.
Eru ísraelar tregir til að draga úr
öryggisgæslu vegna nýlegra
hryðjuverka palestínskra öfga-
manna í ísrael.
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hélt fyrr
í gærdag frá ísrael. Fékk hann ísra-
elsk yfirvöld til að lofa því að knýja
ekki fram breytingar á samkomu-
laginu og Palestínumenn til að
standa gegn ofbeldi.
Hafna leynilegum viðræðum
Sýrlendingar höfnuðu í gær ósk
Rabins um leynilegar viðræður til
að Ieysa þann hnút sem friðarvið-
ræður landanna eru komnar í. Sagði
í al-Baath, málgagni stjórnarinnar,
að Sýrlendingar hefðu ekki rofið
friðarviðræðurnar og að þeir fögn-
uðu því ef friðsamlegt andrúmsloft
yrði raunin.
marmanna
PrófUj ör framsók
í Reykjaneslvjörclæmi
laugfardagfinn 10. des. fcl. 10 - 20.
Unnur í
'§ sætiá!
20 ára starf aá uppeldismálum
Öflugft starf innan í]iróttakreyfin gfarinnar
Trunaáarstörf og Jíingseta fyrir Framsófcnarflofckinn
Pólitísfc ák ersluatriái sem sfcipta alla þjóáina máli:
1. Jöfnuáur í tekjuskiptingu einstalelinga
2. Marleviss leit að nýjum störfum
3. Aukin ákersla á mennta- og í]iróttamál
1 4. Vistvæn ímynd lands og þjóðar
StyrUjum listann með Unni Stefánsdóttur.
Gerum 2. sætið - karáttusætið - að ])inésæii á nýjan leifc!
Skrifstofa stuðningsmanna Unnar er í Ilamrakorg 5, Kópavogi, sími 91-644633.
Veldi Ber-
lusconis
ógnað
Mílanó. Reuter.
ÚRSKURÐUR ítalska hættaréttar-
ins um að 15. grein útvarpsréttar-
laganna sé ógild olli miklum titringi
í gær. Ákvörðunin jafngildir fyrir-
skipun um að fjölmiðlaveldi Silvios
Berlusconis forsætisráðherra verði
leyst upp.
Jafnframt þykir líklegt að úr-
skurðurinn verði tilefni til upp-
stokkunar ríkisútvarpsins og ríkis-
sjónvarpsins RAI sem tapaði jafn-
virði 200 milljóna dollara, nær 14
milljörðum króna, í fyrra. Skuldir
fyrirtækisins nema rúmum milljarði
dollara.
Ifyrirtæki Berlusconis, Fininvest,
á þtjár sjónvarpsstöðvar, Canale 5,
Italia 1 og Rete 4. Bera þær ægis-
hjálm yfir aðrar einkareknar stöðv-
ar og áhorf á þær á landsvísu
mælist 45% eða örlitlu minna en
hjá ríkissjónvarpinu RAI.
Þrátt fyrir ákvörðun hæstaréttar,
sem bannar að sama fyrirtæki geti
fengið leyfi til reksturs margra
stöðva, geta sjónvarpsfyrirtækin
starfað óbreytt meðan starfsleyfi
þeirra er í gildi, eða fram á árið
1996.
Forstjóri Fininvest sagði þó í
gær, að það væri lítill léttir, því
með úrskurði hæstaréttar væri búið
að kippa lagalegum forsendum und-
an óbreyttri starfsemi stöðvanna.
Berlusconi gaf til kynna fyrir
hálfum mánuði að hann myndi
bjóða hluta hlutabréfa í stöðvunum
þremur til sölu. í ljósi úrskurðarins
þykir líklegt að það gerist fyrr en
seinna.