Morgunblaðið - 09.12.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 23
LISTIR
■
UNNUR Astrid Wilhelmsen, Arinbjörn Árnason, Sigrún Eðvalds-
dóttir, Kolbeinn Ketilsson og rússneski píanóleikarinn Irene
Moussatova eftir tónleika í tilefni lýðveldisafmælisins í Moskvu.
Hæfileikar íslenska
listafólksins heilluðu
Háska-
leikur
kemur út
í Japan
ÍSLENSK barnabók í nýrri jap-
anskri þýðingu var kynnt á
aðalfundu Japan-ísland vin-
áttufélagsins í Tókýó á sunnu-
daginn. Háskaleikur eftir Heiði
Baldursdóttur heitir Draugur-
inn í svarta kjólnum í jap-
anskri þýðingu Sari Ohyama.
Þetta er að sögn Sari spennu-
saga ætluð sjö til tíu ára og
forvitnileg fyrir japanska les-
endur vegna þess meðal annars
að hún gerist alla leið norður
undir heimskautsbaug.
„Japanar vita mjög lítið um
ísland“ segir Sari, „og þess
vegna er mjög spennandi að
gefa hér út íslenskar bækur.
Forseti vináttufélagsins, Junic-
hi Watanabe, er meðal þekkt-
ustu rithöfunda í Japan og hon-
um þykir vænt um að japönsk
böm kynnist íslenskum á síðum
þessarar bókar.
Sari er arkitekt að rnennt
og hefur verið búsett á Islandi
í tíu ár. Hún segir að dætur
hennar tvær, tíu og fjórtán
ára, vilji fremar vera í Reykja-
vík en Tókýó og ætlunin sé
þess vegna að búa áfram á ís-
landi. Aðspurð segist hún hafa
japönskukennslu að atvinnu og
ýmsa íhlaupavinnu.
Heiður Baldursdóttir hlaut
íslensku bamabókaverðlaunin
fyrir fýrstu bók sína, Álagadal,
árið 1989. Hún sendi síðan frá
sér Leitina að demantinum
1990, Leyndarmál í gamla hús-
inu 1991 og Háskaleik 1992.
Ári seinna kom út síðasta bók-
in, Galdur steinsins. Heiður lést
í fyrra.
ÍSLENSKIR listamenn komu fram
á tónleikum, sem sendiráð íslands
í Moskvu efndi til fyrir skömmu
í tilefni 50 ára afmælis lýðveldis-
ins og fengu þeir einkar vinsam-
lega dóma í rússneska vikublaðinu
Kúltúra.
Gunnar Gunnarsson, sendi-
herra í Moskvu sagði, að tónleik-
amir hefðu tekizt mjög vel. Marg-
ir gestanna hefðu haft orð á því,
að íslenzk tónlist hefði komið þeim
þægilega á óvart og bám þeir ein-
róma lof á íslenzku tónlistarmenn-
ina. Moskvubúar em gagnrýnir
og kröfuharðir áheyrendur enda
er Moskva háborg tónlistar. ís-
lenzku flyljendurnir gerðu greini-
lega meir en standast þær kröfur,
sagði sendiherrann.
A tónleikunum komu fram Sig-
rún Eðvaldsdóttir fiðluleikari,
Kolbeinn Ketilsson tenór, Arin-
björn Árnason píanóleikari, sópr-
ansöngkonan Unnur Astrid Wil-
helmsen, sem er af islensku og
norsku bergi brotin, auk rússn-
eska píanóleikarans Irene Mouss-
atova. Á efnisskránni vom aðal-
lega lög eftir íslensk tónskáld, svo
sem Sigvalda Kaldalóns og Pál
Isólfsson.
Æskueldmóður
Tónleikamir fóru fram 14. nóv-
ember í Shúvalova-tónleikasaln-
um í Moskvu og að sögn gagnrýn-
anda Kúltúra heilluðust tónleika-
gestirnir af fegurð íslenskrar tón-
listar og hæfileikum listafólksins.
„Og ég verð að segja að öll vom
þau unaðsleg.
Ungir, fallegir, hæfileikaríkir
og ljóshærðir afkomendur víkinga
sönnuðu að skilningur okkar á
„norrænu manngerðinni" er rang-
ur.
Píanóleikarinn, fiðluleikarinn,
tenórinn og sópransöngkonan
voru svo full af listrænni spennu
og æskueldmóði að þau áttu eink-
ar auðvelt með að smita tónlistar-
gestina, sem voru hámenntaðir og
alls ekki ungir að árum.“
Nýjar bækur
Sagði mér þögnin eftir
Kristin Gísla Magnússon
SAGÐI mér þögnin
nefnist ljóðabók
eftir Kristin Gísla
Magnússon. Þetta
er fyrsta bók hans.
Bókina tileinkar
hann minningu
móður sinnar,
Kristínar M; Frið-
riksdóttur. í bók-
inni eru 75 ljóð.
Kristinn G. Magnússon
Mörg ljóð höfundar hafa
birst í Lesbók Morgun-
blaðsins á undanfömum
árum. Þau eru prentuð í
bókinni ásamt nýjum áður
óbirtum ljóðum.
Sagði mér þögnin er 88
blaðsíður prentuð í Félags-
prentsmiðjunni. Útgefandi
er höfundur. Bókin kostar
1.500 kr.
Sjöfn sýnir
í Listhúsinu
SJÖFN Har opnar sýningu í List-
húsinu í Laugardal, laugardaginn
10. desember kl. 18. Á sýningunni
eru nýjar oliumyndir og myndir
unnar á handgerðan pappír með
bleki. Sýningin er í beinu fram-
haldi af sýningu Sjafnar í London
7.-19. nóvember sl. undir yfir-
skriftinni „Look North“ og var í
samvinnu við menningarskrifstofu
Sendiráðs íslands þar í borg.
Sýningin stendur til 31. desem-
ber og er opin daglega frá kl.
13-18 á laugardögum kl. 11-18
og á sunnudögum frá kl. 14-18.
Síðastasýn-
ingarhelgi
SAMSÝNINGU átta myndlistar-
manna sem sýna í aðalsölum Ný-
listasafnsins lýkur sunnudaginn
11. desember. Ennfremur lýkur
sýningun á verkum Joris Radema-
kers í Setustofu safnsins. Eftirfar-
^ndi listamenn taka þátt í sýning-
unni; Elsa D. Gísladóttir, Guðrún
Hjarðardóttir, Gunnar J. Straum-
land, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson,
Jón Bergmann Kjartansson, Pétur
Öm Friðriksson, Rob Hoekstra og
Sólveig Þorbergsdóttir. Sýning-
amar eru opnar frá kl. 14-18.
Einnig lýkur hljóðmyndasýn-
ingu Erlu Þórarinsdóttur og
Andrew McKenzie í Gerðubergi
um helgina. Þetta er samvinnu-
verkefni þar sem þau tefla saman
hljóði og mynd. Sýningin er opin
frá kl. 13-17.
Smámyndir
Eddu
NÚ stendur yfir sýning Eddu
Jónsdóttur á bleksprautu- og
vatnslitasmámyndum í Gallerí
Úmbru, Amtmannsstíg 1.
Sýningin stendur til 16. des.
Útgáfutónleik-
ar í Bústaða-
kirkju
í TILEFNI af nýrri geislaplötu
með söngkonunni Miriam verða
haldnir útgáfutónleikar í Bú-
staðakirkju í kvöld kl. 20.30.
Stór hljómsveit hljóðfæraleikara,
hópur bakraddasöngvara og
Gospelkórinn stíga þar á svið
með Miriam. Óskar Einarsson
annast allar útsetningar og
stjórnar hljómsveitinni.
Aðgangseyrir er 500 krónur
og 250 krónur fyrir skólafólk.
Geislaplatan „Miriam“ er gefin
út af Hjálpræðishernum og renn-
ur allur ágóði til hjálparstarfs
Hjálpræðishesins.
Morgunblaðið/Kristinn
Kertastjaka-
sýning
í Listhúsinu
NÚ stendur yfir kertastjakasýn-
ing 10 félaga Leirlistarfélagsins
í Listhúsinu í Laugardal. Á sýn-
ingunni eru margar tegundir
kertastjaka úr keramiki og post-
ulíni sem félagar Leirlistarfé-
Iagsins hafa unnið á undanförn-
um vikum.
Sýnendur eru; Steinunn Mar-
teinsdóttir, Kolbrún Kjarval,
Lára Samúelsdóttir, Guðrún
Indriðadóttir, Margrét Salóme
Gunnarsdóttir, Sigrún Gunnars-
dóttir, Elísabet Haraldsdóttir,
Ella Guðmundsdóttir, Jónína
Guðnadóttir og Arnfríður Lára
Guðnadóttir.
Sýningin er sölusýning og er
opið kl. 10-18 og í samræmi við
opnunartíma verslana í desember.
„Hín langa
lögun“
KATRÍN Sigurðardóttir opnar
sýningu á verki sínu „Hin langa
lögun“ í Galleríi Sævars Karls í
dag, föstudag. Verkið er innsetn-
ing og er þetta í annað sinn sem
hún sýnir í galleríinu.
Katrín er fædd 1967 og er við
nám í myndlist í Bandaríkjunum.
Gunnar Rafn
sýnir á
Húsavík
Húsavík. Morgunblaðið.
GUNNAR Rafn Jónsson, yfír-
læknir, opnaði málverkasýningu
í Safnahúsinu á Húsavík 1. des-
ember s.l. og sýndi þar um sjötíu
verka sinna gerð með vatnslitum.
Við opnunina léku dætur
Gunnars, Jóhanna og Sigurveig
á píanó og gítar.
Við kynnum meiriháttar margmiðlun
í dag og á morgun laugardag!
laúgárdágstiiboð:
fiound
Gestakynnir er hinn þekkti tónlistarmaður Þórir Baldursson.
Hann mun leika af fingrum fram báða dagana frá kl. 10.00 til 15.00.
CREÁTIVE
GR..TIV.
Geisladrifið Mitsumi
CD-ROM (2 spin)
+ ^^óðkort STe Edition)
aðeins kr. 29-900,- stgr. m. vsk.
Opið til ki. 16.00 á laugardögum í desember. Verið velkomin.
Tæknival
»
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664
HÓNNUN/