Morgunblaðið - 09.12.1994, Síða 39
1
MORGUNBLAÐIÐ___________
MINNINGAR
BJÖRN BRAGI
BJÖRNSSON
-4- Björn Bragi
■ Björnsson
fæddist í Reykja-
vík 18. júlí 1962.
Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 2.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar
hans eru Kristín
Sveinbjörnsdóttir,
f. 10. maí 1930,
búsett í Reykjavík,
og Björn Jakobs-
son, f. 8. júní 1924,
búsettur í Húna-
vatnssýslu. Al-
systkini hans eru:
Þórdís Björnsdóttir Cortell-
ino, búsett á Ítalíu, f. 1956,
Árni Haukur Björnsson, lög-
fræðingur, f. 1958, býr í
Reykjavík. Hálfsystkini sam-
mæðra eru: Björk Bjarkadótt-
ir, yfirfangavörður, býr í Mos-
fellsbæ, f. 1950, Stefán
Bjarkason, æskulýðsfulltrúi,
Njarðvík, f. 1952, og Svein-
björn Bjarkason, f. 1954,
Reykjavík.
Björn Bragi lauk prófi frá
Verslunarskóla íslands og
stundaði nám í hljóðsetningu
í San Francisco. Utför hans
fer fram frá Fossvogskirkju í
dag.
í GÆR var borinn hinsta spölinn
í þessari jarðvist vinur minn Björn
Bragi Björnsson. Bjössi var einn
af hugrökkum sonum Reykjavík-
ur, sem nú um mundir falla hver
af öðrum fyrir hræðilegum og ill-
vægum sjúkdómi, sem .er alnæmi.
Eg læt hugann reika til baka,
og hugsa til allra vina hans og
minna sem hafa þurft að lúta í
lægra haldi undanfarin ár fyrir
þessari veirusýkingu, sem ekki
einungis heggur djúp skörð í okk-
ar vinahóp með reglulegu millibili,
heldur er að verki um allan heim.
Hugrakkt og bjartsýnt ungt fólk,
sem er samkvæmt sjálfum sér og
tilbúið að berjast gegn viðteknum
hefðum og kröfum samfélagsins,
er slegið út af sjúkdómi sem af
óskiljanlegum átæðum hefur lagst
hvað þyngst á samkynhneigða
karla um allan heim. Það er hræði-
leg viðbót við þá erfiðu baráttu
sem samkynhneigðir þurfa að
heyja allt sitt líf fyrir tilverurétti
sínum og viðurkenningu á sínum
lífsstíl, að þurfa í ofanálag að
heyja oft vonlaust dauðastríð í
blóma lífsins, á yngri árum, þegar
árangri hefur loks verið náði í
baráttunni fyrir rétti sínum og til-
finningar og framtíðin blasir við,
full tækifæra til að láta gott af
sér leiða fyrir sjálfan sig og aðra
í sömu aðstöðu.
Bjössi var áberandi, og hafði
sterka nærveru innan síns hóps
alla tíð hér í litlu Reykjavík. Eftir
nokkurra ára námsdvöl í San
Francisco kom hann til baka og
miðlaði okkur hinum
af reynslu sinni frá
Mekka samkyn-
hneigðra í heiminum
og jók á baráttuþrek
okkar sem þreyjuðum
þorrann hér uppá
kalda landi ísa.
Síðasta árið sitt
sem hann hafði heilsu,
ákvað hann að dvelja
í Kaupmannahöfn og
njóta gestrisni, um-
burðarlyndis og víð-
sýni frænda okkar
Dana. Bjössi var ekki
einn um það að létta
sér erfiðan róður og hverfa af landi
brott þegar á bjátaði og einkenni
sjúkdómsins fór að gera vart við
sig. Það er umhugsunarefni okkar
sem nú stöndum eftir við gröf
hans, að hugrakkt fólk, sem er
samkvæmt sjálfum sér og tilbúið
að beijast fyrir tilverurétti sínum
og breyttu viðhorfi og annars kon-
ar lífsstíl og býður viðteknum venj-
um og fordómum samborgara
sinna byrginn, sé hrakið í útlegð
kynhvata sinna ogjafnvel veikinda
sinna vegna.
Elsku Bjössi (Bear), ég kveð
þig, og bið fyrir kveðju til strák-
anna í paradís. Guð geymi þig.
Ég votta vinum, fjölskyldu og
Peter mína dýpstu samúð.
Björgvin Gíslason.
Elsku Bjössi.
Ég fékk fregnir í dag um að
þú værir látinn. Þegar við töluðum
síðast saman í febrúar þá grunaði
mig ekki að það yrði í síðasta
skipti sem ég heyrði í þér. Þó svo
þú tjáðir mér að því sinni, að þér
liði ekkert alltof vel, þá lögðum
við á ráðin um að þú heimsæktir
mig fljótlega hingað til uppáhalds
borgar þinnar San Francisco. Þú
varst mér góður vinur á erfiðum
tímum í mínu lífi og takk fyrir
það.-Ég unni þér fyrir margt, en
efst er mér í minni endalaus gálga-
húmor þinn sem aldrei brást og
lífgaði upp á tilveruna. Miðað við
hvað ég er ungur maður þá hef
ég séð á eftir mörgum vinum og
kunningjum yfír móðuna miklu af
völdum þessa sjúkdóms. Maður
venst því ekki beint, að fá frengir
af mannsláti og þó sérstaklega nú
þegar svona mörg skörð eru kom-
in í vinahópinn, þetta er víst hluti
af raunveruleika okkar kynslóðar.
Elsku Bjössi, það er alveg
ábyggilegt að lífið verður ein-
manalegt án þín, en minningin lif-
ir þrátt fyrir allt of stutta viðveru.
Þinn vinur,
Stefán „Bertha“ Grygelko.
Fleiri minningargreina.r um
Björn Braga Björnsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BRAGI JÓNSSON
frá Norðfirði,
sfðasttil heimilis
á dvalarheimilinu Felli,
Skipholti,
andaðist í Borgarspítalanum 26. nóv-
ember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Margrét Bragadóttir, Kristján Arilfusson,
Hermann Bragason, Júlíana Gestsdóttir,
Ágúst Bragason,
Vilhjálmur Bragason, Fjóla Helgadóttir,
Ari Hallgrimsson, Sólveig Ingólfsdóttir,
Bragi Einarsson, Guðrún Stefánsdóttir,
Grétar Miller, Lilja Tómasdóttir
og aðrir aðstandendur.
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 39
LOTTÓ 5/38 - í fyrsta skipti í sögunni
fyrsti vinningur í
Landsleikurinn okkar!
Fimmfaldur
-
1