Morgunblaðið - 09.12.1994, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Einn úr hópnum er horfinn og
við, sem stöndum eftir harmi slegin,
spytjum hvers vegna.
Við vitum að svars er ekki að
vænta en að allt er lögmáli háð og
hefur sinn tíma og tiigang.
Hugurinn reikar til liðinna
stunda. Við Sóley störfuðum báðar
við Myndlsitarskólann í Reykjavík,
þar sem hún var kennari hátt í ára-
tug. Hún kenndi í ýmsum deildum
en aðallega leirmótun hjá ungling-
um.
Hún var tilfinningaríkur lista-
maður og góður kennari. Henni
veittist létt að vekja áhuga og hug-
arflug nemenda og halda þeim við
efnið, árangur var líka fádæma
góður. Sóley var snillingur á sínu
sviði og nemendur dáðu hana auk
þess var hún svo skemmtileg, kát
og þægileg í alla staði, hvers manns
hugljúfi frekar en nokkur annar.
Oft hugsaði ég að verst væri að
eiga ekki barn í hópnum svo ég
fengi eitthvað af leimum heim. Eða
þá, að mikið ætti það bam gott, sem
ætti hana að móður.
Svo fæddist Brynja og þær
mæðgur urðu samrýndari en títt er,
hún skildi bamið.
En hún Sóley varð aðeins 37 ára.
Ég hef velt því fyrir mér hvað marg-
ir snillingar hafa dáið á þeim aldri
en minningin um Sóleyju Éiríksdótt-
ur lifir í hugum þeirra, sem kynnt-
ust henni.
Ég votta Jóni Axel og Brynju,
foreldrum hennar og bróður og öðr-
um nánum samúð mína og kveð
hana með þökk og virðingu.
Katrín Briem.
í dag kveð ég vinkonu mína, hana
Sóleyju Eiríksdóttur, í síðasta sinn.
Við Sóley kynntumst fyrir nærri 20
árum, þegar þau Jón Axel byrjuðu
að vera saman.
Sóley var sérstaklega notaleg og
indæl manneskja sem gott var að
vera samvistum við, og í gegnum
árin áttum við margar góðar stund-
ir saman. Eitt af því sem einkenndi
Sóleyju var hversu traust hún var
og góður vinur vina sinna.
Lífssýn Sóleyjar var um margt
sérstök, hún hafði mjög gagnrýna
hugsun og tók hlutina ekki sem
sjálfgefna, starf hennar sem lísta-
manns tók um margt mið af því. í
starfi sínu sem listamaður var það
áberandi hve nákvæm hún var og
gagnrýnin á verk sín.
Það er minnisstætt þegar þau Jón
Axel sýndu saman á Kjarvalsstöðum
fýrir nokkrum árum, hve stór og
kraftmikil verk hennar þar voru, þar
sýndi hún skúlptúra unna úr leir sem
vöktu undrun og gleði. Líf lista-
manna er ekki dans á rósum nú
frekar en áður og Sóley eins og
margir aðrir listamenn þurfti að
sinna öðrum störfum með list sinni.
Fyrir nokkrum árum kenndi Sóley
í Myndlistarskóla Reykjavíkur, þar
kenndi hún litlum krökkum teikn-
ingu og málun og oft sagði hún frá
því starfi og hve gefandi henni þótti
það vera.
Sóley og Jón Axel voru mjög
náin og samrýnd, ekki það að þau
hafí alltaf verið samsinna um alla
hluti, heldur hitt að þar fóru saman
tveir sjálfstæðir einstaklingar, með
sömu lífssýn, sem bundnir voru
sterkum böndum vináttu og trausts
í garð hvor annars.
Þegar litið er yfir farinn veg er
margs að minnast í samskiptum við
Sóleyju og erfitt að taka eitt fram
yfír annað, það sem eftir stendur
eru góðar minningar sem lifa.
Sóley — þín er sárt saknað af
mörgum.
Öllum aðstandendum sendi ég
samúðarkveðjur og óska Jóni Axel
og Brynju velfarnaðar í nútíð og
framtíð.
Pétur Pálsson.
Hvað er hægt að skrifa um unga
konu sem deyr frá manninum sínum
og lítilli stúlku, sem hún elskar, frá
öllu fólkinu sínu og foreldrunum,
sem henni þótti svo ósköp vænt um.
Hún elskaði lífíð, með öllum sínum
tilbrigðum, hún unni náttúrunni og
landinu sínu. Hún sem var svo hrein,
það var það, sem einkenndi hna
mest, hún var alltaf svo sérstaklega
hrein, sama hvaða verk hún vann.
Hún var líka hreinskiptin og heiðar-
leg í samskiptum sínum við annað
fólk, kom til dyranna eins og hún
var klædd og maður vissi að hún
meinti það sem hún sagði. Hún var
svo glöð og kát og brosandi og
maður fór alltaf glaðari af hennar
fundi. Hún dansaði af lífsgleði.
Að koma heim til Sóleyjar og
Jóns var sérstakt, skelin í gamla,
fallega sykurkarinu, tandurhreina
borðið, allt svo snyrtilegt og öllu
raðað af smekkvísi. Steinarnir í
glugganum og myndlistin í kringum
þau.
Og svo varð hún veik, alveg voða-
lega mikið veik, en hresstist inn á
milli og þá gátum við hist, borðað
saman og glaðst saman, og hún
kyssti Brynju sína, sem hét samt
ótrúlega mörgum og skrýtnum
nöfnum hjá henni mömmu sinni.
Og þegar við vorum hjá Óla Gunn
og Élsu og hún fór að segja okkur
af draumunum sínum, um húsið og
landið sem hún vildi láta sig dreyma
um, hvað hún var þá falleg og hvað
hún töfraði okkur sem hlustuðum,
þessi kona, sem átti svo margt ógert
og ósagt. Svo deyr hún allt í einu,
og það er hræðilega óréttlátt og
óvænt, því við trúðum því, að hún,
þessi elskulega manneskja, sem
elskaði lífið svo heitt, myndi fá að
njóta þess lengur.
Ingveldur Róbertsdóttir
og Sigurður Orlygsson.
Fleiri minningnrgreinar um-
Sóleyu Eiríksdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
WtAW>AUGL YSINGAR
Ráðsmaður
óskast í sveit á Vestfjörðum í vetur.
Fjölskyldufólk gengur fyrir. Um gæti verið
að ræða áframhaldandi starf ef um semst.
Áhugasamir leggi inn svör á afgreiðslu
Mbl. fyrir 14. desember, merkt:
„Ráðsmaður - 15739“.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Þriðjudaginn 13. desember nk. fer fram framhaldsuppboð á eftirtal-
inni eign, sem haldiö verður á henni sjálfri:
Kl. 14.00 Sigtún 8, Vík I Mýrdal, þinglýstur eigandi Sigurjón Rúts-
son, að kröfum Samvinnulífeyrissjóðsins, íslandsbanka hf. og Mýr-
dalshrepps.
Sýslumaðurinn Vík í Mýrdal,
8. desember 1994,
Sigurður Gunnarsson.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættlsins í Hafnarstræti 1,
3. hæð, þriðjudaginn 13. desember 1994 kl. 14.00 á eftirfarandi
eignufn:
Aðalgata 47, Suðureyri, þingl. eig. Þorvaldur Þór Maríusson, geröar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Brautarholt 6, (safirði, þingl. eig. Kristján B. Guðmundsson, geröar-
beiðendur Búnaðarbanki Islands, Elías Gíslason, G.H. heildverslun,
Heildverslunin Edda hf., innheimtumaður rikissjóðs, Landsbanki fs-
lands, ísafirði, og Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Hafraholt 44, (safirði, þingl. eig. Agnar Ebenesersson og Sigríður
Ólafsdóttir, gerðarbeiöendur Byggingarsjóður ríkisins og innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Hliðarvegur 7, 0102, í.h. t.h., (safirði, þingl. eig. Húsnæöisnefnd
ísafjarðar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rlkisins.
Hlíðarvegur 7, 0201, 2.h. t.v., ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd
ísafjarðar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Hlíðarvegur 7, 0301, 3.h t..v., Isafirði, þingl. eig. Dröfn Snorradóttir
og Magnús Rafn Magnússon, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Mb. Sigurvon (S-500, þingl. eig. Fiskiöjan Freyja hf., gerðarbeiðandi
Landsbanki íslands, ísafirði.
Sundstræti 14, 0101, e.h., n.e., Isafirði, þingl. eig. Arnfinnur örn
Arnarson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Túngata 17, Suðureyri, þingl. eig. Sigríður Ólafsdóttir, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins og Vátryggingafélag (slands hf.
Túngata 19, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur, gerðarbeiö-
endur Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna.
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjáif-
um sem hér segir:
Aðalgata 43B, Suðureyri, þingl. eig. Lárus Helgi Lárusson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins, 16. desember 1994 kl. 11.30.
Sæból II, Mýrahreppi, þingl. eig. Elísabet A. Pétursdóttir og Ágúst
G. Pétursson, gerðarbeiðendur Grávara hf., Höfðafell hf. og inn-
heimtumaður rikissjóðs, 16. desember 1994 kl. 13.30.
Sýslumaðurinn á ísafirði,
8. desember 1994.
Laust lyfsöluleyfi
sem forseti íslands veitir
Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi
á Patreksfirði (Patreks Apótek)
Fráfarandi lyfsali gerir kröfur til þess, í sam-
ræmi við 11. gr. laga um lyfjadreifingu nr.
76/1982 og bráðabirgðalög nr. 112/1994 um
breytingu á lyfjalögum nr. 93/1994, að við-
takandi lyfsöluleyfishafi kaupi vörubirgðir,
búnað og innréttingar lyfjabúðarinnar.
Ennfremur kaupi viðtakandi leyfishafi hús-
eign þá, er lyfjabúðin ásamt íbúð fráfarandi
lyfsala er í. .
Væntanlegur lyfsali skal hefja rekstur frá og
með 1. mars 1995.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
lyfjafræðimenntun og lyfjafræðistörf, skal
senda ráðuneytinu fyrir 1. janúar 1995.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
6. desember 1994.
Auglýsing um deiliskipulag
sumarbústaðahverfis í landi
Úteyjar 1,
Laugardalshreppi
Samkvæmt ákvæðum í gr. 4.4. í skipulags-
reglugerð nr. 318/1985, með breytingum
1. júlí 1992, er hér með lýst eftir athuga-
semdum við tillögu að deiliskipulagi í landi
Úteyjar 1, Laugardalshreppi.
Skipulagstillagan nær til stækkunar í austur
frá núverandi sumarbústaðabyggð í landi
Úteyjar 1.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Laugar-
dalshrepps og hjá Skipulagi ríkisins, á skrif-
stofutíma, á Laugavegi 166, frá 9. desember
1994 til 13. janúar 1995.
Athugasemdum skal skila á skrifstofu Laug-
ardalshrepps fyrir 20. janúar 1995 og skulu
þær vera skriflegar.
Oddviti Laugardalshrepps.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Snyrtistofa eða þjónusta
20 fm herbergi til leigu í stóru sambýli fyrir
aldraða við Skúlagötu. Hentar t.d. fyrir snyrti-
fræðing eða slíka þjónustu.
Upplýsingar í síma 622991 á skrifstofutíma.
Lausafjáruppboð
Eftirtaldir munir verða seldir á uppboði í Tollhúsinu við Tryggva-
götu laugardaginn 10. desember 1994 kl. 13.30 að kröfu tollstjór-
ans í Reykjavík, Gjaldheimtunnar í Reykjavík og ýmissa lögmanna:
Snyrtivörur, auglýsingavörur, fatnaður, járnkrókar, vélskóflur, bús-
áhöld, kertastjakar, sjónvörp, spegilrammi, fatahengi, skófatnaður,
málminnréttingar, eldhúsinnrétting, rafmótor, varahlutir fyrir gröfu,
eldhúsbúnaður, lampahlutar, varahlutir fyrir húsgögn, hlutar fyrir
lýsingartæki, hamborgarapressur, húsgögn, speglar, snyrtivörur,
veski, albúm, plastvörur, pappírsvörur, vélar, seltsen, tölvuprentari,
málverk, hitaformunarvél, geislaspilari, tölva,' skrifstofuhúsgögn,
ikegami camera head, Sony upptökutæki, búðarkassi, faxtæki, Ijósrit-
unarvél, peningaskápur, skrifstofustóll, sófasett, vélklippur, loft-
pressa, tölvuvog, prentvél, líkamsræktartæki, útskorinn járnprófíll,
spónasög, kæliskápur, myndavél, bókalager, háþrýstiþvottatæki,
rafsuðuvél, flökunarvél, hjólsög, forrit, rennibekkur, hljómflutnings-
tæki, myndbandstæki, hitaborð, hljóðblandari, setningartölva,
saumavélar, frystiskápur, peningakassi, trésmíðavél, kæli- og frysti-
vélar, sandsparslvélar, myndeffectatæki, myndvinnslutæki, flygill,
kaffivélar, rjómaþeytari, ofn, hefskápur, kæli- og afgreiðsluborð,
uppþvottalína, skafískista, seglskúta, þurrhreinsivél ásamt áföstum
eimingarkatli, gámur innréttaður sem vinnuskúr, krítarmynd, gufu-
steikingarpottur, vefnaðarniðurlagningarvél, safetystitch automat,
frystivélasamstæða, eimsvali, frystiblásarar, kælimiðilsgeymir,
hljómborð, stólar, borð, skápar, bakaraofn, gashellur, þykktarhefill,
borðsög, bútsög, pappírsskurðarvél, hausaskurðarvél, spilakassar,
afgreiðslutæki, rafstöðvar, reiðhjól, járnpallar, málningarvinnustóll,
þvottavél, húsgögn, lagerinnréttingar, skrifstofubúnaöur, hillur,
klippisett, klippitölva, Cadilac-óskráður og ýmislegt fleira.
Avísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki sýslu-
manns eða gjaldkera hans.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
8. desember 1994.
I.O.O.F. 12 = 1761297* = S.sk
I.O.O.F. 1 = 1761298* = 9.0*
Utgáfutónleikar
með Miriam ásamt stórhljóm-
sveit og kór í Bústaðaklrkju f
kvöld kl. 20.30. Aðgangseyrir kr.
500 og kr. 250 fyrir skólafólk.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ingóltsstraeti 22
Áskríftarsfmi
Ganglera er
989-62070
Föstudagur
2. desember1994:
( kvöld kl. 21.00 heldur Vilhjálm-
ur Árnason erindi um siðfræði
lifs og dauöa í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22. Á laugardag
er opið hús frá kl. 15-17 með
fræðslu og umræðum f umsjá
Jóns Ellerts Benediktssonar.
Á fimmtudögum kl. 16-18 er
bókaþjónusta félagsíns opin
með mikið úrval andlegra bók-
mennta. Allir eru velkomnir og
aðgangur ókeypis.