Morgunblaðið - 09.12.1994, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
Stórskemmtileg gamanmynd með vafasömu ívafi með LARA
FLYNN BOYLE, STEPHEN BALDWIN og JOSH CHARLES í aðalh-
lutverkum.
Stuart er hrifinn af Alex,
Alex þráir Eddy og Eddy
er ekki með kynhvatir sínar á alveg á hreinu.
„Galsafengin og lostafull, með kynlíf á heilanum. Andrew Fleming lætur
allar óskir unga fólksins um kynlif rætast á
hvita tjaldinu og hrifur okkur með sér.
Samleikur þrieykisins er frábær."
David Ansen, NEWSWEEK
*** MORGUNPÓSTURINN
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun. Verðlaun:
Boðsmiðar á myndir í Stjörnubíói, geisladiskar og derhúfur úr
myndinni Threesome.
_______________________Verð kr. 39,90 mín._________________
ÞAÐ GÆTI HENT ÞIG
7 og 9.
Kr. 800 fyrir fullorðna.
Kr. 500 fyrir börn yngri en
12 ára. Sýnd kl. 5.
FLÓTTINN FRÁ
ABSALON
Sýnd kl. 11. B. i.16
Nýjar hljómplötur
Dyr standa opnar
BJARTMAR Guðlaugsson hefur
ekki láti í sér heyra í hálft þriðja
m ár, eftir að hafa verið áberandi í
íslensku tónlistarlífí alllengi sem
texta- og lagasmiður og flytjandi.
Skýring á þögn hans er einfaldlega
sú að hann flutti sig um set, flutt-
ist til Óðinsvéa, og stundar nú list-
nám. Það er þó langt í frá að hann
hafí hætt að fást við tónlist, eins
og sannast á plötunni Bjartmar,
sem hann tók upp með sænskum
tónlistarmönnum og gefín verður
út ytra eftir áramót.
Sneri við blaðinu
Bjartmar segir að eftir misjafnt
og sveiflukennt gengi hér heima
Undirfótfrd
Little K
Ný sending d
frábœru verði
Opið laugard. frá kl. 10-18
Snyrtislofa & snyrtivbruverslun
Engihjalla 8 (húsi Kaupgarðs),
Kópavogi, sími 40744.
Á plötunni Bjartmar sem
kemur út í dag lætur
Bjartmar Guðlaugsson
frá sér heyra eftir langt
hlé, en hann hefur haft í
nógu að snúast sem tón-
listarmaður í Skandinavíu
undanfarin ár.
hafi hann ákveðið að flytjast út og
snúa þar við blaðinu, „og snúa mér
alfarið að rokki og róli, óskiptur".
Bjartmar segist hafa ákveðið að
vinna með skólanum og hann hafí
í fyrstu unnið við byggingarvinnu
og annað sem til féll, en smám
saman hafí tónlistin náð yfirhönd-
inni og hann farið víða um Dan-
mörku að spila sem trúbadúr.
„Þetta var fljótlega miklu meira en
ég átti von á þegar ég flutti út,
eftir að hafa gengið frekar illa hér
á landi undir lokin, eftir mjög mis-
jafnt gengi. Það var kannski breytt-
ur mórall í mér sjálfum. Síðan var
Morgunblaðið/Sverrir
BJARTMAR Guðlaugsson
segist ekkert vera að
flýta sér heim.
ég valinn í samnorræna höfunda-
hljómsveit sem var sett saman fyrir
tilstilli útvarpsstöðva í Skandinavíu.
Þar kynntist ég Svíanum Steffan
Sundström, sem er þekktur trúbad-
úr í Svíþjóð, og við ákváðum að
vinna saman í framtíðinni. Hann
kom mér í samband í við útsetjar-
ann Johan Johansson og lánaði mér
hluta af sinni hljómsveit. Síðan fékk
ég liðsstyrk frá hljómsveitinni Bad
Liver í Gautaborg og var þar kom-
inn með brot úr tveim virkustu tón-
leikasveitum Svíþjóðar. Það má
segja að það hafi opnast fyrir mér
dyr í Svíþjóð og ég ætla að ganga
inn.“
Bjartmar segir að menn hafí hist
í Gautaborg til að undirbúa plöt-
una, æft sig það vel saman og svo
hafí verið haldið í hljóðver skammt
frá Gautaborg til að taka upp. „Við
tókum upp líkt og á tónleikum og
svo greiddum við atkvæði eftir
hvert lag um hvort það ætti að
standa eins og það var eða taka
þyrfti að upp aftur.
Önnur sýn á ísland
Bjartmar segir að lögin séu frá
undanförum árum, en textana hafí
hann flesta samið í sumar. „Við það
að vera í útlöndum fékk ég allt
aðra sýn á ísland, en segja má að
ég sé að skoða landið í tilefni af
fimmtíu ára afmæli lýðveldisins."
Allir textar á plötunni eru á ís-
lensku, en Bjartmar segir að þegar
hann hafi ferðast um Skandinavíu
með hljómsveitinni samnorrænu
hafí hann raddað með á dönsku og
sænsku, eftir því sem við átti, en
þegar hann söng hafi það verið á
íslensku, og sé ekkert feiminn við
það. „Skandinövum finnst íslenskan
hljóma mjög fallega og menn virð-
ast vera meðvitaðir um að hún sé
rótin að norrænu málunum. Það er
hinsvegar viss ókostur ef menn
skilja ekki textana og því er ég að
vinna textana yfir á sænsku og
þegar platan verður gefin út ytra
eftir áramót verður líklega helming-
ur hennar á íslensku."
í góðu formi
Bjartmar segir að það sé of lítill
tími til að fá sveitina hingað til
tónleikahalds, þó liðsmenn hennar
séu í startholunum ef til kæmi.
„Það er svo lítil tími, ég tók plötuna
upp í október og lauk við frágang
í lok nóvember," segir Bjartmar
sem hafi bytjað að spila nánast um
leið og hann kom til landsins. „Ég
er í góðu formi, enda hef ég verið
að spila á fullu úti undanfarið.“
Hann segir að platan, sem heitir
bara Bjartmar, sé ein af fáum plöt-
um sem „ég vil taka að sér í fyrstu
persónu; mér finnst að Svíarnir
hafí hjálpað mér að finna sjálfan
mig og mína línu.
Eg sem allt á íslensku, ég er
íslendingur og ræturnar eru ís-
lenskar, en textarnir eru orðnir víð-
sýnni og hafa almennari skírskotun,
en ég þarf að snúa þeim á dönsku
og sænsku eftir því sem við á í fram-
tíðinni,“ segir Bjartmar, en hann
segist eiga eftir tvö ár af myndlist-
arnáminu. „Ég ætla ekkert að flýta
mér heim þegar ég er búinn í skól-
anum, það opnuðust fyrir mér dyr
í Skandinavíu, eins og ég sagði, og
það tekur mig einhver ár að vinna
úr þeim möguleikum sem þar gef-
ast, líklega þijú/fjögur ár.“
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 -17. útdráttur
1. flokki 1990 -14. útdráttur
2. flokki 1990 -13. útdráttur
2. flokki 1991 -11. útdráttur
3. flokki 1992-6. útdráttur
2. flokki 1993-2. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. febrúar 1995.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess verða númer úr fjórum fyrsttöldu
flokkunum hér að ofan birt í DV föstudaginn
9. desember. Upplýsingar um útdregin húsbréf
liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT U • 108 REYKJAVlK • SlMI 69 69 00