Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 39
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
STJÓRN og framkvæmdastjóri Orkan hf. kynna áform félags-
ins á fréttamannafundi í gær. F.v. Óskar Magnússon, Jón Pálma-
son, Hörður Helgason framkvæmdastjóri og Jóhannes Jónsson.
Nýtt hlutafélag ætlar ad hefja sölu á
bensíni við stórmarkaði
Eldsneyti keypt
af Skeljungi
STOFNAÐ hefur verið hlutafélagið
Orkan hf. um sölu á bensíni hérlend-
is og hefur félagið í hyggju að hefja
í fyrstu sölu á þremur stöðum við
stórmarkaði á höfuðborgarsvæðinu.
Félagið er að 3/4 hlutum í eigu fjár-
festingarfélagsins Þors hf., sem er
í eigu Hofs sf., sem rekur m.a. Hag-
kaup hf. og ísaldi hf., sem er eigna-
haldsfélag Jóhannesar Jónssonar í
Bónus og fjölskyldu hans. Að 1/4
hluta er félagið í eigu Skeljungs hf.
Gerður hefur verið samningur við
Skeljung hf. um innkaup á eldsneyti
á heildsöluverði.
Forsvarsmenn félagsins kynntu
fyrirhugaða starfsemi þess á frétta-
mannafundi í gær. Þar kom fram
að tilgangurinn væri sá að hefja
bensínsölu á lægra verði en gert er
í dag. Áttu þeir fundi í gær með
borgarstjóranum í Reykjavík og
bæjarstjórunum á Seltjarnarnesi og
í Kópavogi og lögðu fram óskir um
heimild til að hefja bensínsölu á lóð-
um við verslanir Hagkaups og Bónus
við Holtagarða í Reykjavík, á Eiðis-
torgi á Seltjamarnesi og við verslun
Bónus á Smiðjuvegi í Kópavogi.
Óvíst hvenær starfsemin
getur hafist
í stjórn félagsins eru Jón Pálma-
son formaður, Jóhannes Jónsson og
Óskar Magnússon, forstjóri Hag-
kaups. Framkvæmdastjóri er Hörður
Helgason. Skeljungur á ekki fulltrúa
í stjórninni. Hlutafé félagsins er 60
millj. kr. með heimild til frekari
aukningar.
Stjórnarmenn og framkvæmda-
stjóri Orkan hf. vildu ekki upplýsa
á fréttamannafundi í gær á hvaða
verði félagið hygðist bjóða neytend-
um eldsneytið eða hvenær starfsemi
þess gæti hafist en stefnt væri að
því að það yrði innan ekki margra
mánaða. Umsóknir félagsins um
aðstöðu undir starfsemina eiga eftir
að fara fyrir skipulagsnefndir og
bæjarstjórnir í viðkomandi sveitarfé-
lögum og fyrir borgarstjórn og stofn-
anir Reykjavíkurborgar.
„Við höfum orðið vitni að því að
umsókn erlends olíufélags hefur ver-
ið tekið afskaplega vel og okkur
sýnist að í þessu skipulagsferli verði
henni hraðað þannig að við höfum
enga ástæðu til að ætla annað en
að við fáum samskonar þjónustu,"
sagði Óskar Magnússon.
Verður skoðað með
jákvæðum huga
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg-
arstjóri sagði að umsókn félagsins
yrði skoðuð með jákvæðum huga og
athugað yrði hvort borgin gæti með
einhverjum hætti komið til móts við
félagið en þetta mál þyrfti að fá sína
umfjöllun í borgarkerfinu því ströng
ákvæði væru í byggingar- og skipu-
lagssamþykktum um bensínaf-
greiðslur.
Borgarstjóri sagði að olíufélögin
hefðu fundið fyrir yfírvofandi sam-
keppni frá kanadíska olíufélaginu
Irving Oil og það væri eðlilegra að
bregðast við henni með þessum
hætti, og með þeirri lækkun á bens-
íni og olíu, sem olíufélögin hafa
kynnt, heldur en með kvörtunum og
tilraunum til að koma í veg fyrir
samkeppnina.
„Leppa bensínsölu fyrir
Skeljung“
Einar Benediktsson, forstjóri Olís,
segir að Olís hafi á síðustu mánuðum
verið að skoða breytt þjónustu-
munstur til að mæta kröfum við-
skiptavina um mismunandi þjónustu
og mismunandi bensínverð. „Það er
ljóst að við munum mæta þessari
samkeppi og vera áfram félag fólks-
ins og tryggja okkar viðskiptavinum
bestu kjör á hveijum tíma. Það vek-
ur hins vegar sérstaka athygli að
þarna eru tvær sterkustu viðskiptab-
lokkir landsins að taka höndum sam-
an og Hagkaup og Bónus að taka
að sér að leppa bensínsölu fyrir
Skeljung. Það hefur komið fram að
Skeljungur mun sjá um uppbygg-
ingu bensínstöðvanna og innflutning
á bensíni og því ljóst að Skeljungur
mun ráða ferðinni en ekki Hagkaup
og Bónus,“ sagði hann.
„Þó að Skeljungur finni sér annan
farveg til þess að keppa á markaðn-
um þá er ekkert við því að segja.
Þetta er bara það frelsi sem ríkir í
samkeppninni. Aðalatriðið er að það
sé farið eftir almennum reglum við
úthlutun lóða undir bensínstöðvar
og ekki sé um að ræða mismunun
á milli aðila á markaðinum,“ segir
Geir Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins hf.
Geir sagði að Olíufélagið hefði hins
vegar gagnrýnt að umsókn Irving
Oil um hafnaraðstöðu og lóðir undir
bensínstöðvar virtist hafa forgang
hjá borginni. „Þegar aðeins er um
að ræða innlenda samkeppni sem
byggð er á leikreglum sem eru í heiðri
hafðar og þeim samþykktum sem
gilda um hvert hverfi fyrir sig, þá
er ekkert við því að segja,“ sagði
hann.
„Mér líst alveg prýðilega á þetta.
Ég er fylgjandi fijálsri samkeppni
og er trúaður á að hún leiði til bættr-
ar þjónustu og lægra vöruverðs,"
sagði Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra.
Sighvatur taldi ekki ólíklegt að
áform Irving Oil hefðu haft áhrif í
þessa átt til aukinnar samkeppni í
sölu á bensíni og olíuvörum, en sú
samkeppni hefði ekki verið mikil til
þessa. „Reynsla okkar staðfestir að
aukin samkeppni er til hagsbóta fyr-
ir neytendur," sagði Sighvatur.
Dregið
í áramótagetraun
Morgunblaðsins
FJÖLDI innsendra lausna barst
í áramótagetraun Morgunblaðs-
ins. Getraunin skiptist í barna-
getraun, unglingagetraun og
fullorðinsgetraun. Þrenn verð-
laun eru veitt fyrir hvern flokk
auk þess sem allir vinningshafar
fá íþróttatösku merkta Morgun-
blaðinu. Morgunblaðið þakkar
lesendum sínum góða þátttöku í
áramótagetrauninni.
Barnagetraun
1. Björn Oskar Birgisson, 5
ára, Dalbraut 3, Grindavík. Adid-
as-íþróttavörur frá Sporthúsi
Reykjavíkur að andvirði 20.000
kr.
2. Brynja Dögg Guðmunds-
dóttir, 8 ára, Goðalandi- 11,
Reykjavík. Barnabækur að eigin
vali frá Vöku-Helgafelli að and-
virði 10.000 kr.
3. Úlfar A. Jónasson, 9 ára,
Stóragerði 24, Reykjavík. Geisla-
plötur að eigin vali frá Skífunni
að andvirði 5.000 kr.
Unglingagetraun
1. Guðný Björg Björnsdótt-
ir, 15 ára, Heiðarási 6, Reykja-
vík. Vöruúttekt að eigin vali frá
IKEA að andvirði 20.000 kr.
2. Þórey M. Ómarsdóttir, 14
ára, Hlíðargerði 6, Reykjavík.
Fataúttekt að eigin vali frá versl-
ununum Kókó/Kjallaranum að
andvirði 10.000 kr.
3. Nii\ja Sif Kristmundsdótt-
ir, 14 ára, Blönduhlíð 29,
Reykjavík. Geislaplötur að eigin
Morgunblaðið/Emilía
SYSTKININ Arna Sigrún og Ingþór Haraldsbörn draga út
nöfn vinningshafa.
vali frá Skífunni að andvirði
5.000 kr.
Fullorðinsgetraun
1. Halla Einarsdóttir, 37 ára,
Kögurseli 16, Reykjavik. Ævin-
týrabréf að Hótel Búðum á Snæ-
fellsnesi fyrir tvo. Innifalið:
Gisting í eina nótt, morgun-
verðarhlaðborð, þríréttaður
kvöldverður og hesta- eða báts-
ferð.
2. Anna Sigurjónsdóttir, 43
ára, Urriðakvísl 17, Reykjavík.
Bækur að eigin vali frá Vöku-
Helgafelli að andvirði 10.000 kr.
3. Jón Oddgeir Guðmunds-
son, 45 ára, Glerárgötu 1, Akur-
eyri. Geislaplötur að eigin vali frá
Skífunni að andvirði 5.000 kr.
Réttsvör við áramótagetraun
Barnagetraun, 5-11 ára
1. íslensku tvíburarnir Hlynur og
Marinó Sigurðssynir léku í Stein-
aldarmönnunum.
2. Lisa Marie Presley er eiginkona
Michaels Jacksons.
3. Aðalhátíðahöldin í tilefni 50 ára
afmælis íslenska lýðveldisins fóru
fram á Þingvöllum.
4. Magnús Scheving varð bæði
Evrópumeistari í þolfimi og í öðru
sæti á heimsmeistaramótinu.
5. Besti vinur Barbie heitir Ken.
6. Brasilíumenn urðu heimsmeist-
arar í knattspyrnu í sumar.
7. Það var sýning á verkum listmál-
arans Errós sem var sett upp á
Kjarvalsstöðum í sumar.
8. Leikritið Snædrottningin var
sett upp í Þjóðleikhúsinu í haust.
9. Nýr borgarstjóri Reykjavíkur
heitir Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir.
10. Myndasögur Moggans koma út
á miðvikudögum.
11. Hakeem Olajuwon var valinn
besti leikmaður NBA-deildarinnar í
körfuknattleik.
12. Björk Guðmundsdóttir vakti at-
hygli á tónleikum sínum með því
að svífa til jarðar með fallhlífar-
stökkvara.
Unglingagetraun 12-17 ára.
1. Umferðartafir voru ástæða þess
að þúsundir íslendinga urðu af há-
tíðarhöldum á Þingvöllum í tilefni
50 ára afmælis lýðveldisins.
2. Hljómsveitirnar sem voru
stofnaðar í kjölfar þess að Todmo-
bile lagði upp laupana heita Bong
og Tweety.
3. Nelson Mandela er fyrsti blökku-
maðurinn sem gengir embætti for-
seta Suður-Afríku.
4. Það var Baltasar Kormákur
sem leikstýrði söngleiknum Hárinu.
5. Tólf ára strákurinn sem var val-
inn borðtennismaður ársins annað
árið í röð heitir Guðmundur
Stephensen.
6. Kurt Cobain, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Nirvana, svipti sig lífi
á síðasta ári.
7. Stjórnmálasamtökin sem Jóhanna
Sigurðardóttir er í forsvari fyrir og
voru stofnuð í haust heita Þjóðvaki.
8. Maus bar sigur úr býtum í mús-
íktilraunum Tónabæjar.
9. Helgi Áss Grétarsson er heims-
meistari unglinga 20 ára og yngri.
10. íslenska spennuleikritið fyrir
unglinga, sem frumsýnt var á þessu
leikári, heitir Ófælna stúlkan.
11. Fyrrum ruðningskappinn O.J.
Simpson er sakaður um að hafa
orðið fyrrverandi eiginkonu sinni og
vini hennar að bana.
12. Það vakti athygli á tónleikum
Bjarkar Guðmundsdóttur á Listahá-
tfð að hún söng allt á íslensku.
13. Bandarísku skautadrottningarn-
ar Tonya Harding og Nancy Kerrig-
an eru fjandkonur vegna þess að
lífverðir Harding hugðust ráða
Kerrigan af dögum.
14. Það var Ásta B. Gunnlaugs-
dóttir sem var valin knattspymu-
maður ársins.
Fullorðinsgetraun, 18 ára og eldri
1. Síðujökull gengur úr Vatnajökli.
2. Matthias Á. Mathiesen var for-
maður þjóðhátíðarnefndar.
3. Leigubílstjórar hófu sölu á
smokkum að beiðni landlæknis-
embættisins.
4. Gamla kempan George Fore-
man varð aftur heimsmeistari í
þungavigt.
5. BarPar sló sýningarmet hjá Leik-
félagi Akureyrar.
6. Aðstoðarmaður Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgarstjóra heitir
Kristín A. Árnadóttir.
7. Um eitt þúsund manns fórust
með feijunni Estoniu.
8. Carlos Ferrer var vígður til þjón-
ustu í Kolfreyjustaðarprestakalli.
9. Karl Bretaprins viðurkenndi að
hafa haldið fram hjá konu sinni.
10. Skyndibitastaðurinn Subway
var opnaður í Reykjavík.
11. Um 1.400 konur fóru á kvenna-
ráðstefnuna í Turku í Finnlandi.
12. Skammstöfunin GSM stendur
fyrir Global System Mobile.
13. Tom Hanks fékk Óskarsverð-
laun fyrir leik sinn í Philadelphia.
14. Gæðingurinn Gýmir slasaðist
svo illa á landsmóti að aflífa þurfi
hann.
15. Tenórinn Ólafur Árni Bjarna-
son hafnaði í 4.-5. sæti í alþjóð-
legri tenórakeppni í Svíþjóð, sem
kennd er við Jussi Björling.
16. Efni bókarinnar Tundur dufl er
erótískar smásögur eftir ýmsa
höfunda.
17. Jóhannes R. Jóhannesson komst
í úrslit í heimsmeistarakeppni
áhugamanna í snóker.
18. Irving-feðgar komu til íslands
og vildu kaupa lóðir undir bensín-
stöðvar.
19. Grænfriðungar að mótmæla
kjarnorkucndurvinnslu í Sella-
field á Bretlandi urðu á vegi Sig-
hvats Björgvinssonar viðskiptaráð-
herra þegar hann sótti fund Norður-
landaráðs.
20. Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Italíu, varð ekki vært ( emb-
ætti vegna ásakana um að hafa
mútað skattaeftirlitsmönnum.
21. Keðjubréf þar sem viskí var
gjaidmiðillinn varð til þess að viskí-
sala hjá ÁTVR tók kipp í febrúar.
22. Ungur Bandaríkjamaður átti
ekki sjö dagana sæla í Singapúr
vegna þess að hann var hýddur
fyrir að krota á bíla og veggi.
23. Rússneski handboltamaðurinn
Dmitrí Filipov gekk til liðs við
Stjörnuna.
24. Til að koma í veg fyrir prófa-
svindl krafði Háskólinn próftaka
um persónuskilríki.