Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR EINAR VAGN BÆRINGSSON + Einar Vagn Bæringsson var fæddur á Höfða- strönd í Grunnavík- urhreppi 10. 1916. Hann lést I Borgarspítalanum 11. janúar síðastlið- inn. Hann var yngstur barna þeirra hjóna Vagn- fríðar Vagnsdóttur og Bærings Einars- sonar er þar bjuggu. Systur hans: Soffía, Júl- íana, Halldóra og Engilráð Ólína eru allar látnar en makar þeirra eru á lífi. Á Höfðaströnd hjá Vagnfríði og Bæring ólust einn- ig upp Svanhildur Maríasdóttir, húsmóðir í Hafnarfirði, Laufey Sæmundsdóttir, búsett í Banda- ríkjunum, og elsta barnabarn þeirra, sonur Soffíu, Gunnar Leósson, pípulagningameistari í Bolungarvík, er lést í sviplegu slysi á sl. ári. Eftirlifandi eiginkona Einars er Ásta Árnadóttir frá Hjalt- eyri í Eyjafirði, f. 19.8. 1916, er liggur nú á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykja- vík. Ásta var um árabil starfsmaður Hrafnistu (til starfsloka 1986) og vann að félagsmál- um í stéttarfélagi sinu, Starfsmanna- félaginu Sókn. Ásta og Einar voru barnlaus. Börn Ástu frá fyrra hjónabandi með Þórði Arnasyni skipstjóra er fórst með togaranum Júlí 1959 eru: 1) Pétur, f. 1944, d. 1981, var búsettur á Grundarfirði. Hann á fjögur börn. 2) Árni, f. 1947, rafvirki, búsettur í Kristian- sund í Noregi. Hann á tvö börn. 3) Hafdís, húsfreyja á Kollslæk í Hálsasveit, f. 1953. Hún á sex börn. Einar var áður kvæntur Rannveigu Hávarðínu Hjálm- arsdóttur frá Bolungarvík, f. 1907, d. 1980, en þau slitu sam- vistir 1947. Dóttir Einars og Hávarðínu er Ólöf Marín, f. 1944, skrifstofumaður í Reykja- vík. Hún á þijár dætur. Synir Rannveigar Hávarðínu: Ævar Jónsson, f. 1932, á 6 börn, og Pétur Ólafsson, f. 1935, úrsmið- ur og blaðamaður Mbl., dáinn 1966, barnlaus. Einar Vagn fór ungur að stunda þau störf er til féllu í heimasveit hans og sjóróðra með föður sínum og föðurfrændum. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur lærði hann pípulagnir hjá Tómasi B. Jónssyni pípulagningameistara og við Iðnskólann í Reykjavík. Hann stundaði iðn sína eftir það um árabil, sem sjálfstæður verktaki. Einar Vagn var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 18. janúar og jarðsettur í Gufuneskirkju- garði. FRÁ ÞEIM degi sem við kynnt- umst Einari Bæringssyni er hann tengdur góðum minningum í lífi okkar. Hláturmildur og einlægur vinur. Með velvild og hlýju viðmóti hafði hann slíka nærveru, að í minningunni eru allar stundir með honum skemmtilegar. Jólaboðin, afmælin, fermingarveislumar og aðrir slíkir viðburðir hjá fjölskyld- unni, alltaf var gaman að fá Einar í heimsókn. Hann var eins og besti frændi eða afi, stór og ómissandi hluti af fjölskyldunni. Nú er hlátur hans þagnaður, en við höfum minningarnar um árin sem við nutum samvista við yndis- legaii mann sem alltaf vildi láta gott af sér leiða. Hann var ánægð- astur þegar hann gat gert öðrum greiða og krafðist einskis á móti. Einar Bæringsson var einn af þeim mönnum sem er mannbæt- andi að vera í samvistum við. Við þökkum fyrir árin sem við þekktumst og kveðjum Einar með söknuði og hlýhug. Blessuð sé minning hans. Anja, Katrín, Birgir, Hjálmar, Ævar Oddur og Arnar. Kveðja til afa okkar Oft er fátt um orð þegar kemur að kveðjustund, sérstaklega þegar einhver nákominn er kvaddur eins og hann Einar afí. Við systurnar viljum þakka hon- um afa okkar fyrir þá hlýju sem hann sýndi okkur alla tíð. Áfí hafði þann sérstaka eiginleika að sýna okkur á einlægan hátt væntum- þykju án nokkurra skilyrða og vilj- um við þakka honum fyrir þá dýr- mætu gjöf, sem við búum alltaf að. Við munum minnast afa sem brosmilds manns þar sem hláturinn var alltaf skammt undan og alltaf höfðum við fullvissu um það að við áttum stað í hjarta hans. Það var gott að eiga hann sem afa og við kveðjum hann í þeirri von að nú líði honum vel. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Rannveig, Solveig og Helga Krístín. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd, síðan þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfír mér. (H.P.) Þegar litið er yfír farinn veg kemur margt upp í hugann, m.a. þakklæti fyrri þann tíma sem ég hef þekkt Einar og gæsku hans. Hann gekk mikinn hluta lífs síns með mömmu minni og þessi síðustu ár sem hún hefur átt við vanheilsu að stríða hefur hann stutt hana af heilum huga og mikilli elsku. Elsku Einar, hafðu þökk fyrir allt og allt. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil svo ég sofí rótt. (Þýð. S. Egilsson) Hafdís. RAÐAUGi YSINGAR i 4 Starfið fyrir Afríku Sjálfboðaliðar óskast til að starfa við uppbyggingarverkefni i Mosam- bík í samstarfi við „Þróunarhjálp frá þjóð til þjóðar" (Development Aid from People to People). Sem sjálfboöaliði vinnur þú í hóp með 12 öðrum, ungu fólki frá Evrópu, að eftirfarandi verkefnum: - 5 mánaða þjálfun í farandháskólanum (The Travelling Folk High School) í Danmörku. - 6 mánaða sjálfboðastarf, þar sem unnið er að uppbyggingu barna- skóla í litlum þorpum í norðurhluta Mósambík. - 1 mánaða upplýsingavinna I Danmörku. Starfið er sjálfboðavinna, en séð er fyrir fæði, húsnæði og vasapen- ingum í Afríku. Engrar sérstakrar kunnáttu er krafist. Kynningarfundur verður á íslandi 11. og 12. febrúar. Starfið byrjar 6.3. '95 eða 4.9 '95. Skrifið eftir nánarí upplýsingum til: DAPP-moc, Téstrup Valbyvej 122, DK-263S Ishoj, Danmörku, eða sendu okkur heimilisfang þitt í símbréfi 00 45 43 99 59 82. DevelopmentAid from People to People. Þú átt möguleika á að auka tekjur þrnar um 100.000 krónur á mánuði Óskum eftir sölumönnum til að selja mjög vandaða vöru. Þeir, sem ráðnir verða til verksins, hljóta þjálfun í sölumennsku. Vinnu- tími er á milli kl. 18.30 og 22.00 á kvöldin. Áhugasamir hafi samband í síma 562 5407 á milli kl. 14.00 og 17.00 í dag, sunnudag, og næstu daga. Fullum trúnaði heitið. Framsóknarvist Framsóknarvist verður haldin sunnudaginn 22. janúar kl. 14.00 í Hótel Lind. Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna. Finnur Ingólfsson, alþingis- maður, flytur stutt ávarp í kaffihléi. Aðgangs- eyrir er kr. 500 (kaffiveitingar innifaldar). Framsóknarfélag Reykjavíkur. Skíðadeild Víkings Fundur verður mánudaginn 23. janúar í Víkinni. Rætt verður vetrarstarfið. Seld verða afsláttarkort í rútu. Nýir félagar velkomnir. Rafstöðvar Til sölu lítið notaðar 15 KVa rafstöðvar, bensín eða diesel. Upplýsingar í síma 91-53594, fax 654636. Sjúkraliðar Námskeið í aðhlynningu mikið veikra sjúkl- inga, m.a. í heimahúsum, fyrir sjúkraliða verður haldið í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti dagana 13.-16. febrúar nk. og hefst alla dagana kl. 16.00. Innritað verður í síma 557 5600 dagana 23.-27. janúar frá kl. 9.00-15.00. Verð kr. 8.000. Skólameistari. Kjördæmisþing reykvískra sjálfstæðismanna verður (dag, laugardaginn 21. janúar, á Hótel Sögu, Átthagaspl. DAGSKRÁ: Kl. 13.15 Þingiö sett: Baldur Guðlaugsson, formaður Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Kl. 13.30 Alþjóðleg samkeppnisstaða og vaxtarmöguleikar íslensku þjóðarinnar. Framsögumenn: 1. Siguröur B. Stefánsson, hagfræðingur: Hvar þarf einkum að taka til hendi i fslensku þjóð- félagi til að standast alþjóðlegan samanburð og samkeppni? 2. Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri: Hvernig á að standa að því aö meta og nýta vaxtar- möguleka þjóðarinnar í næstu framtfð? Umræður. Kaffihlé. Kl. 15.30 Aöalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lögð fram til afgreiðslu tillaga kjörnefndar um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins I Reykjavík við næstu alþingiskosningar. 3. Ræða: Davíð Oddsson, forsætisráðherra. Þingforseti: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi. Þorrablóti sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem fyrirhug- að var um kvöldið, er frestað um óákveðinn tíma. Til sölu sólbaðs- og nuddstofan Sól & sæla, Hafnarfirði Upplýsingar í síma 654487 hjá Miðbæ Hafnarfjarðar hf. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, fimmtudaginn 26. janúar kl. 10.00 á eftirfarandi eign- um: Arnarklettur 1, Borgarnesi, þingl. eig. Ólafur Þór Jónsson, gerðarbeið- endur Húsnæðisstofnun ríkisins, Lífeyrissjóður verslunarmanna og sýslumaðurinn í Borgarnesi. Bær III, Andakílshreppi, þingl. eig. Margrét Kolbeinsdóttir, gerðar- beiðendur Húsnæðisstofnun ríkisins, Tryggingamiðstöðin hf. og ís- landsbankí hf. Böðvarsgata 12, efri hæð, Borgarnesi, þingl. eig. Hörður Jóhannes- son, gerðarbeiðendur Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar, sýslu- maðurinn í Borgarnesi og Vátryggingafélag íslands hf. Fiskeldisstöö, Húsafelli II, mannvirki, hitar., lagnir, þingl. eig. Fisk- eldisstöðin á Húsafelli hf., gerðarbeiðandi Framkvæmdasjóður ís- lands. Hríshóll úr landi Kjaranstaða, Innri-Akraneshreppi, þingl. eig. Sveinn Vilberg Garðarsson, gerðarbeiðendur, Gott mál, hf., Hitaveita Akra- ness og Borgarfjarðar, Húsnæðisstofnun rfkisins, Lind hf., sýslumað- urinn í Borgarnesi og Vátryggingafélag Islands. H. Kálfhólabyggðar 8, í landi Stórafjalls og Túns, þingl. eig. Pétur Steinn Sigurðsson, gerðarbeiöandi íslandsbanki hf. Kringlumelur, Skilmannahreppi, þingl. eign. Margréti Ingimundar- dóttir og Kjartan Þröstur Ólafsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna. Melgerði, Lundarreykjadalshreppi, þingl. eig. Friðjón Árnason og Kolbrún Elín Anderson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður verka- manna og sýslumaðurinn i Borgarnesi. Mið-fossar, Andakflshreppi, þingl. eig. Gísli Jónsson, gerðarbeiðend- ur Húsnæðisstofnun rikisins og sýslumaðurinn í Borgarnesi. Spilda úr landi Skálatanga, Innri Akraneshreppi, þingl. eig. Gunnlaug- ur Ingimundarson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki (slands. -----------------------------------------------------4_____ Spilda úr landi Hafnar i Leirár- og Melasveit, þingl. eig. Hafnarlax hf., gerðarbeiðandi Framkvæmdasjóður (slands. Sýslumaðurinn i Borgarnesi, 19. janúar 1995. Stefán Skarphéðinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.