Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR PRÓFKJÖR Traust kona - til forystu fallin Styðjum Guðmund Arna Stefánsson ÉG HEF átt því láni að fagna að hafa starfað með Rannveigu Guð- mundsdóttur félags- málaráðherra að ýmsum mikilvægum hagsmuna- málum fatlaðra á und- anfömum árum. Við störfuðum m.a. saman í nefnd á vegum félags- málaráðuneytisins, sem riíafði það verkefni að endurskoða lög um mál- efni fatlaðra. í þeirri vinnu kom margra ára reynsla Rannveigar sem sveitarstjómarmanns að góðum notum og gaf okkur samstarfsmönn- um hennar ómetanlega sýn inn í störf sveitarfélaganna og möguleika þeirra til að takast á við ný og aukin verkefni. Þá kom það einnig þama í ljós hversu vönduð og yfirveguð vinnubrögð Rannveig hef- ur tileinkað sér og hve auðvelt hún á með að segja sig í spor þeirra, sem málin snerta. Sumir stjómmálamenn em fyrir- ferðarmeiri í þjóðmálaumræðunni en 'aðrir og er athyglinni oftast beint að örfáum talsmönnum stjómmála- flokkanna. Því er þáttur þeirra sem Rannveig- hefur vakið aðdáun, segir Asta B. Þorsteinsdóttir, fyrir stillilega og heiðarlega framgöngu í ólgusjó ; stjómmálanna. ekki em stöðugt í kastljósi fjölmiðl- anna kannski ekki alltaf ljós, en árangur í stjórnmálum byggist ekki síst á þeirri vinnu, sem unnin er baksviðs. Störf sín hefur Rannveig leyst af hendi á hljóðlátan og hóg- væran hátt, en ávallt af ríkri réttlæt- iskennd, festu og ótrúlegri vinnu- semi. Rannveig Guðmundsdóttir félags- málaráðherra hefur með störfum sínum sem alþingismaður og for- maður félagsmála- nefndar Alþingis áunn- ið sér traust og virðingu allra sem til þekkja, m.a, fatlaðra og að- standenda þeirra. Á þeim stutta tíma, sem hún hefur gegnt emb- ætti félagsmálaráð- herra, hefur henni tek- ist að leysa ýmis brýn mál, sem biðu úrlausn- ar, á farsælan hátt. Sem dæmi má nefna að í mörg ár hafa heymariausir og dauf- blindir beðið eftir því, að möguleikar þeirra til samskipta væru tryggðir með réttindum til tálknmálstúlkunsr. Það mál er nú að komast í höfn fyrir tilstilli Rann- veigar. Málefni heimilanna á Kópa- vogshæli hafa svifið í algjöru tóma- rúmi frá því að ákvörðun var tekin um að breyta starfseminni og gera þar endurhæfingadeild fyrir Ríkissp- ítala. Á því máli hefur Rannveig nú tekið af mikilli festu, þannig að nú hyllir loks undir áþreifanlegar efndir á loforðum við þetta fóik og aðstand- endur þeirra um mannsæmandi lífs- kjör. Það er samræmi á milli orða og athafna hjá Rannveigu. Stjómmálaumræðan er oft óvægin og margir falla í þá gryíju að freista þess að ná frama með ógætilegum og léttúðugum ummælum um sam- ferðamenn, fremur en að treysta á eigin hugsjónir og baráttumál. Rann- veig hefur vakið aðdáun fyrir stilli- lega og heiðarlega framgöngu í ólgu- sjó stjómmálanna. Ég vil sjá fleiri slíka stjórnmálamenn á Alþingi. Henni treysti ég til þess að vera í fararbroddi. Hún leitar nú eftir stuðningi í 1. sæti á lista Alþýðu- flokks í Reykjaneskjördæmi. Þann stuðning verðskuldar hún. Höfundur er hjúkrunurfræðingur og formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Ásta B. Þorsteinsdóttir SENN líður að prófkjöri Alþýðu- flokksins í Reykjaneskjördæmi og verður hart barist um efstu sætin þar. Við Hafnfirðingar fögnum því að eiga þar að Guðmund Ama Stef- ánsson, sem stefnir á efsta sæti list- ans. Guðmundur hefur sýnt það á undanfömum árum að þar fer mað- ur sem þorir að framkvæma hlutina og vill hreinar línur i íslensk stjóm- mál. Guðmundur Árni berst ötul- lega fyrir þeim málum sem honum er trúað fyrir og hann gefst ekki upp þó á móti blási. Við Hafnfirð- ingar þekkjum það. Guðmundur hefur sýnt það að iítilmagninn á sér ötulan málsvara í honum og skemmst. er að minnast þegar hann sem ráðherra veitti fjár- styrk til fjölskyldu sem átti í mála- ferlum við sjúkrastofnun í Englandi Guðmundur Ámi er málsvari lítilmagnans, segir Ingi Hafliði Guð- jónsson, og hann vill hreinar línur í íslenzk stjórnmál. og hafði komið allsstaðar að lokuð- um dyrurm í kerfinu. Það væri hægt að nefna fjölmörg önnur dæmi úr Hafnarfirði þar sem Guðmundur aðstoðaði fólk í vandræðum sínum. Hann sýndi þá siðferðislegu ábyrgð að leggja sitt af mörkum til að halda uppi atvinnu á tímum kreppu og atvinnuleysis í stað þess að sitja með hendur í skauti og láta hlutina drabbast niður eins og er lenska hjá valdhöfum í dag. Fólk veit hvar það hefur Guð- mund Árna og veit líka að mál sem hann tekur að sér gleymast ekki í pípum kerfísins, heldur fá af- greiðslu bæði fljótt og vel. Guðmundur Árni kemur til dyr- anna eins og hann er klæddur og þolir ekkert hálfkák þegar vinna þarf hlutina og segir sína meiningu umbúðarlaust. Við höfum þörf fyrir mann sem bæði þorir að fram- kvæma hlutina, vill framkvæma hlutina og getur framkvæmt þá. Veljum sterkan mann til forystu. Guðmund Árna í fyrsta sæti. Höfundur er Hafnfirðingur. Maður sem tekur af skarið ÉG ER krati og mik- ill áhugamaður um framgang jafnaðar- stefnunnar. Ékki ein- vörðungu í mínu byggðarlagi, á Suður- nesjum, heldur á land- inu öllu. Ég vil því leggja mitt af mörkum að prófkjör Alþýðu- flokksins hér í kjör- dæminu gangi vel fram og niðurstöður þess verði til framdráttar Alþýðuflokknum. Besta niðurstaða þessa prófkjörs yrði_ sú, að Guðmundur Ámi Stefánsson alþingismaður og vara- formaður Alþýðuflokksins fengi glæsilega kosningu í 1. sæti list- ans. Þar fer sterkur og öflugur stjórnmálamaður, sem lætur ekki sitt eftir liggja, hvort heldur er í meðvindi eða mótvindi. Það hefur hann sýnt og sannað. í Hafnarfirði lyfti hann grettistaki á örfáum árum, þannig að fólk utan Hafnarfjarðar horfði þangað í leit að fyrirmyndum hvað varðar uppbyggingu og þjónustu við íbú- ana. Og í orrahríð fjöl- miðlanna sl. sumar og haust, þar sem árás- imar voru harðari og óvægnari en fyrr hafa þekkst, stóð hann beinn í baki og svaraði málefnalega og af yfir- vegun. Margir minni spámenn hefðu bogn- að, en ekki Guðmund- ur Árni. Hann kom ósár út úr þessum hamagangi, enda baráttumaður og fómaði eigin hagsmunum fyrir hagsmuni Al- þýðuflokksins. Ég tel að nú eigi allt flokksfólk að standa að baki kosningabaráttu hér í Reykjanes- kjördæmi með Guðmund Árna í farabroddi. Við Guðmundur Árni lékum sam- Bezta niðurstaðan er, að mati Ólafs Thord- ersen, að Guðmundur Árni Stefánsson fái glæsilega kosningu. an í liði Njarðvikur á árum áður, þegar hann þjálfaði liðið jafnframt. Ég minnist þess að hann barðist til síðustu sekúndu í hverjum leik, spil- aði fyrir liðið og opnaði færi fyrir meðspilara sína, en tók sjálfur af skarið, þegar þurfa þótti. Þessir eiginleikar á handboltavellinum nýtast líka í lífinu sjálfu, ekki síst í stjórnmálastarfi. Því segi ég við flokkssystkini mín og aðra jafnaðarmenn á Reykjanesi: Tökum þátt í prófkjör- inu og styðjum Guðmund Árna í 1. sætið. Höfundur er framkvæmdastjóri. Ólafur Thordersen Elín hefur vilja og þor VINKONA mín, uppalin og búsett í öðr- um heimshluta, spurði mig um daginn hvers vegna ég byggi á ís- landi. Hvort það væri gott að búa á Islandi. Mér finnast þessar spurningar eiga erindi við okkur öll, nú þegar kosningar nálgast. Er gott að búa á íslandi? Gæti verið betra að búa íslandi ef ein- hverju væri hér breytt í stjórn mála? Sé breyt- inga þörf, eins og ég tel reyndar vera á ýms- 'um sviðum, er enn mikilvægara en ella að rétt fólk haldi um stjómartaumana. Þess vegna er ástæða til þess, fyrir þig og mig, að ígrunda vel hvernig stillt er upp framboðslistum til komandi kosninga og hafa þar áhrif á. Hverjir eru í framboði? Oftast er það forsenda þess að geta verið í framboði að hafa tíma aflögu. Kynslóð mín á fáa fulltrúa á framboðslistum flokkanna og 'ÚSin færri eru þeir fulltrúar sem eru úr röðum kvenna. Skýringar- innar er að leita í því að fólk í þessum aldurshópi er of upptekið af brauðstritinu til að taka virkan þátt í stjómmálum. Þannig eiga fæstir þeirra sem verið gætu heit- ustu málssvara minnar kynslóðar orku aflögu til að koma sínum málefnum á framfæri. Þátttakendur í stjórn- málum era flestir fólk sem betur má sín í þjóðfélaginu og þekkir ekki nema hluta vand- ans. Þörf er á fulltrúa úr röðum þeirra sem vinna myrkranna á milli til að koma sér upp húsnæði, sjá fjöl- skyldu sinni farborða og leysa öll þau smærri mál sem leysa þarf til að gera hið fyrmefnda mögulegt. Hvaða raál snerta okkur mest? Það umræðuefni stjómmála- manna sem einna mest ber á um þessar mundir er innganga eða ekki innganga í Evrópusambandið. Mér er það ekkert launungarmál að aðild er mikilvæg en við megum ekki missa sjónar á því sem nær okkur stendur. Það er fleira mikil- vægt en viðskipti og samskipti við aðrar þjóðir. Þau mál sem skipta okkur mestu frá degi til dags eru öll í túninu heima, en hæst ber þar húsnæðismál, launamál og mál barnanna okkar. Húsnæðismál Það e_r afleitt að leigja sér hús- næði á íslandi. Leigumarkaðurinn er bæði of dýr og of ótryggur. Öryggi og stöðugleiki heimilisins eru sjálfsögð mannréttindi. Barna- Elín er jafnaðarmaður, af lífí og sál, segir María Kjaríansdóttir, sem mælir með henni í 3.-4. sæti A-lista á Reykjanesi. fólk er sá hópur sem þarf enn frek- ar en aðrir á stöðugleika að haída. Endurteknir flutningar heimilis eru ekki boðlegir börnum. Húsbréfa- kerfið var ótrúleg úrbót í því efni að gera fólki kleift að kaupa eigið húsnæði. Kerfið nær hins vegar ekki tilgangi sínum á meðan fyrir kemur að upphæð láns og útreikn- að greiðsluþol samræmist ekki raunverulegri greiðslugetu lántak- anda. Slíkt er villandi og gerir engum greiða. Þegar svo tenging launa- og lánskjaravísitölu gerir það að verkum að lán hækka jafn- vel milli ára, þrátt fyrir að staðið sé skil á greiðslum af þeim, beijum við fásinnu augum. Bætum hér úr. Launamál Það er smánarblettur á þjóðinni að hluti vinnuafls á íslandi fái greiddar undir 50.000 krónum í mánaðarlaun fyrir fullan vinnudag. Það er út í hött að hækkun launa eða jafnvel hækkun á opinbera gjaldi hækki greiðslubyrði af lán- um. Þetta er afleiðing úreltrar tengingar vísitalna, kerfis sem ekkert réttlætir lengur. Finna þarf • María Kjartansdóttir leið til þess að leiðrétta kjör þeirra sem lægst hafa launin. Það liggur í hlutarins eðli að það eru þeir hin- ir sömu og lægst hafa launin sem skuldsettir eru. Því þarf að vera tryggt að launahækkunin verði ekki aftur tekin í þyngri greiðslu- byrði af Tánum. Bætum hér úr. Börnin okkar, börnin Miðað við launakjörin í Iandinu þarf tvo til framfærslu vísitölufjöl- skyldunnar, ekki hvað síst vegna lána sem sífellt þyngjast. En þegar við stöndum öll á haus í vinnu, hvar eiga börnin að vera? Börn foreldra í sambýli eiga sjaldnast aðgang að heilsdagsvist- un í leikskóla. Þrátt fyrir að full ástæða sé til að létta undir með einstæðum foreldrum má ekki mis- muna öðrum bömum _eða foreldr- um á þeirri forsendu. Ég leyfi mér að halda því fram að ég þyki ekki eins eftirsóknarverður starfskraft- ur ef ég þarf að flengjast úr vinnu í hádegi til að þeyta barni eða börnum milli staða og kem svo slæpt og of sein til baka. Einnig er það umhugsunarefni hvers vegna barnið þarf að venjast þrenns konar mismunandi umönn- un, aðstæðum og reglum, þegar tvenns konar aðstæður ættu að duga. Heilsdagvistun fyrir yngri nemendur grunnskóla var brýnt mál en meira þarf til. Það er kom- inn tími til að gera einsetinn skóla að veruleika, skóla þar sem öllum þáttum andlegs og líkamlegs þroska er sinnt. Þá verður líka hægt að haga vinnudegi barna á skynsamlegri hátt. Eg spyr: Hvernig líður barni sem sett er í skóladagvistun snemma morguns og dvelur þar í erli fram að skóla- tíma, kringum hádegi. í skólanum er það síðan fram í myrkur. Hvern- ig er einbeiting þess og námsþrek? Krefjumst við ekki of mikils af börnum okkar? Er efcki til betri lausn? Áskorun Þessa dagana era stjórnmála- flokkar að stilla upp framboðslist- um. Alþýðuflokkurinn reið á sínum tíma á vaðið með prófkjör, sem þá var nýlunda. Aðrir flokkar fylgdu síðan í kjölfarið. Kjördæ- misráð Alþýðuflokksins á Reykja- nesi hefur ákveðið að enn skuli efnt til prófkjörs um efstu sæti list- ans til komandi Alþingiskosninga. Ljóst má vera að úrbóta er víða þörf í málefnum okkar íslendinga og vísa ég sérstaklega til mála sem varða launafólk og börnin okkar. Þar er mest ástæða til breytinga. í jafnaðarstefnunni felst að allir geti lifað mannsæmandi lífi, börn, fullorðnir, aldnir. í jafnaðarstefn- unni felst að leita betri leiða. Elín Harðardóttir, matsveinn og húsmóðir úr Hafnarfirði óskar eft- ir stuðningi í 3.-4. sæti í prófkjöri Alþýðuflokksins á Reykjanesi nú um helgina. Elín er fulltrúi þeirrar kynslóðar sém vinnur myrkranna á milli til að koma sér upp hús- næði og sjá ljölskyldu sinni far- borða. Hún er jafnaðarmaður af lífi og sál. Elín gerir sér grein fyr- ir því að úrbóta er þörf í málefnum okkar og hún hefur vilja og þor til að leita betri lausna. Höfundur er hagfræðingur Fiskifélags íslands og tveggja barna móðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.