Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 11 FRÉTTIR Kaup á slippum sam- þykkt í Hafnarstjórn HAFNARSTJÓRN Reykjavíkur hefur sam- þykkt að ganga til samninga við Stálsmiðj- una hf. um kaup á dráttarbrautum fyrirtækis- ins. Kaupverðið er um 70 milljónir króna. Hafnarstjórn leigir síðan Stálsmiðjunni slipp- ana og samkvæmt drögum að leigusamningi verða leigutekjur að lágmarki 7% en að há- marki 12% af kaupverðinu, eða á 'bilinu 4,9-8,4 milljónir króna á ári. Kaupverðið greiðist þannig að Hafnarstjórn yfirtekur lán Stálsmiðjunnar að upphæð um 25 milljónir króna, viðhaldsvinna við dráttarbrautirnar sem Stálsmiðjan lætur í té er metin til 25-30 milljóna króna af kaupverðinu og afgangur- inn, 15-20 milljónir króna greiðist með pen- ingum. Reykjavíkurhöfn samþykkti 16. septem- ber í fyrra að kaupa dráttarbrautir Stál- smiðjunnar að uppfylltum þeim skilyrðum að fjárhagsleg endurskipulagning færi fram, samkomulag tækist um endurleigu á drátt- arbrautunum, nýtt hlutafé að upphæð 40 milljónir króna og nýir eigendur og stjórn- endur kæmu að fyrirtækinu. Öll þessi skil- yrði eru nú uppfyllt en leigusamningur ófrá- genginn. Reykjavíkurhöfn átti 7-8% hlut í Stál- smiðjunni fyrir 40 milljóna króna hlutafjár- aukningu í fyrirtækinu. Hlutaféð var síðan skrifað niður um 75% í tengslum við endur- skipulagningu á Stálsmiðjunni og Reykjavík- urhöfn ákvað að nýta ekki forkaupsrétt sinn í nýju hlutafjárútboði. Eignarhlutur Reykja- víkurhafnar er því á bilinu 2-3% núna. Höfnin ekki að stækka hlut sinn Arni Þór segir að Reykjavíkurhöfn sé ekki með kaupunum á dráttarbrautunum að gerast stærri hluthafi. „Höfnin mun eiga þessi upptökumannvirki og síðan leigja þau aftur. Almenna reglan í höfnum landsins er sú að hafnarsjóðirnar eiga upptökumann- virkin,“ Árni Þór segir að ríkið mismuni óbeint höfnum landsins út frá samkeppnissjónarm- iðum með því að láta sumar þeirra hafa fjár- magn en aðrar ekki. „Ríkissjóður greiðir beint niður hafnarmannvirki með fjárveit- ingum í gegnum fjárlög. í fjárlögum eru settar verulegar upphæðir til hafnarmann- virkja sem er deilt út á einstakar hafnir. Reykjavíkurhöfn hefur aldrei fengið slíka styrki af opinberri hálfu. Hún verður því sjálf að standa undir sínum framkvæmdum, bæði í höfninni og öðru sem hún tekur sér fyrir hendur eins og kaupum á upptöku- mannvirkjum fyrir sjálfsaflafé hafnarinnar," sagði Árni Þór. Aðspurður um hvort verið væri að hygla einu fyrirtæki á kostnað annars með kaupum á dráttarbrautunum fyrir almannafé sagði Árni Þór að hinn möguleikinn sem borgin hefði staðið frammi fyrir hefði verið að láta þetta afskiptalaust og þar með hefði fyrir- tækið farið í gjaldþrot. Þar með hefðu farið forgörðum á annað hundrað störf í borginni og einnig væri þarna til staðar verkþekking sem hyrfi fljótt ef starfsemin yrði lögð niður. Nýjar leið- beiningar umframtal LEIÐBEININGAR Ríkisskattstjóra með skattframtali eru nokkuð breyttar frá síðasta ári. Bætt hefur verið við upplýsingum og framsetn- ing er breytt. Dreifíng skattfram- talanna er að hefjast. í upplýsingaritinu nú eru leið- beiningarnar tengdar beint við skattframtalið, þannig er til dæmis vísað frá einstökum reitum á launa- seðli inn á viðkomandi reiti í skatt- framtalinu. Eyðublöð birt Einstök eyðublöð eru birt og skýrð í ríkara mæli en áður hefur verið gert. Bætt er við upplýsingum og í lok leiðbeininganna er uppfletti- listi yfir allar mögulegar tekjur með stuttum skýringnm. Prófkjör Alþýðu- flokksins á Reykjanesi TALNING í opnu prófkjöri Alþýðu- flokksins á Reykjanesi sem fram fer um helgina hefst síðdegis á morgun, sunnudag, og er áætlað að birta fyrstu tölur á milli klukkan 21 og 22 um kvöldið. Reiknað er með talning standi fram á nótt. Kjörstaðir eru í tíu kaupstöðum og eru þeir opnir klukkan 13 til 18 í dag og 10 til 20 á sunnudag. ■ Á VEGUM Pýramídans og Lífsskólans verður bæna- og helgi- athöfn haldin í húsakynnum Pýr- amídans, Dugguvogi 2, Reykja- vík, laugardaginn 21. janúar kl. 14-16. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson mun lesa bænastund- ina. Margt heilunarfólk mun sam- einast í hópheilun. Öllum þeim sem eiga um sárt að binda er boðin aðstoð. ÁMHUGUR IVERKI Faðir ljósanua, lífsins rósanna, lýstu landinu kalda. Vertu oss í’áum, fátækum, smáum líkn í lífsstríði alda. Sálmaliók 523: 4 Matlhías Jocliumsson HRINGDU í SIMA Símamidstöð sötiuinarinnar er opin: l.augard. 21. jan. kl. 10.00-22.00 Sunuiul. 22. jan. kl. l().()0-22.()() 1>« tilgrclnir |>:i pcnitigafiárlucö sciu þú \ilt láta sctja scm Iraitilag þitt til lijálpar I jhlskyliluin í Stiöavik - á grciiislukort cöa á licimscmlan gíniscöit. LAN DSSÖFNU N VEGNA NÁTTÚ RU HAMFARA í SÚÐAVÍK Þjáning og sorg íbúa í Súðavík og gífurlegt eignatjón kalla á skjót viðbrögð okkar allra þeim til hjálpar og stuðnings. 800 50 50 eða leggðu l'ratnlag þitl inn á baiikareikiiing nr. U17'26-800 í Sparisjóði Súðavíkur. llægt er að leggja inii á reikninginn í ölluin sparisjóðum. bönkum og pósthúsum á laniliiiu. Sjóösijm n lamf.s.sii(iniiiariiinar cr skipuö lulllrúiim Kauöa kross íslantls. Súiö 1 llyli’jan Kíkisutvarpiö Kikissjiiiivarpiö FM l)S," Aöalsliiöin \-iö lljálparstoliuinar kirkjunnai’, opinbcna aölla og l'jóðklrkiunnar. Brosiö Mþýöuhlaöiö Dagur l>\ Mortpiulilaöiö Morgiinpóstiiriiin Timiiin Fjárgatsluaöili siií'nunarinnar cru sparisjóölrulr á tslandi. I’óstur og sími Itauöi kross íslands lljálparstoliiuu kirkjunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.