Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 5
Rás 6 verður aðal útsendingarrás Stöðvar 2 á höfuðborgarsvæðinu
Á höfuðborgarsvæðinu eru nokkur skuggasvæði fyrir sjónvarpsmóttöku. Endursendar fyrir
þessi svæði eru á sömu stöðum og áður, sjá mynd.
Staðsetning sendis Útsend- ingarrás Minnisrás á myndlykli
Aðalsendir Vatnsendi VHF06 01
Endursendar Gamli garður UHF40 14
Ásholt UHF42 16
Borgarspítali UHF 39 13
Digranesskóli UHF43 17
Mosfellsbær / Víðines UHF4I 15
Á nýju útsendingarrásinni er merki Stöðvar 2
efst í hægra horninu
Hjá langflestum áskrifendum dugar sá loftnetsbúnaður sem þeir nú hafa til
að ná nýju útsendingarrás Stöðvar 2. í einstaka tilvikum geta áskrifendur þó
þurft að bæta, breyta eða endurnýja loftnetsbúnað.
Með því að stiila sjónvarpstækið á nýju útsendingarrás Stöðvar 2 (sjá töflu)
geta áskrifendur sem ekki hafa fengið nýjan myndlykil gengið úr skugga um
hvort þeir nái nýja útsendingarmerkinu. Á nýju útsendingarrásinni er
dagskrá Stöðvar 2 send út með græna tvistinum, merki Stöðvar 2, efst í
hægra horninu.
Allir áskrifendur verða búnir
að fá nýjan myndlykil
fyrir 13. mars
Afhending á nýjum myndlyklum er í fullum
gangi og nú þegar hafa yfir 12.000
áskrifendur á höfuðborgarsvæðinu fengið
nýjan myndlykil. Viku áður en við komum
heim til áskrifanda fær hann í pósti bækling
um nýjan og betri myndlykil, ítarlegar
upplýsingar um afhendingu á honum og
nýjan áskriftarsamning.
nýr og betri
Mynd/yk///
handa þér og heim til þín
frá 13. mars
verður aðeins
að horfa á læsta dagskrá
Stöðvar 2 með
nýja myndlyklinum.
Eftir að dagskrá Stöðvar 2 lýkur mánudaginn 13. mars verður útsendingu á „gamla“
myndlyklakerfinu hætt og eftir það næst læst útsending Stöðvar 2 aðeins með nýja myndlyklinum.
Ekki verður hægt að horfa á læsta dagskrá Stöðvar 2 með gamla myndlyklinum.
Upplýsin gasími 676040, svarað alla daga frá kl. 8.00 til kl. 23.00.