Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FRÉTTIR Nýt velvilja í kerfinu Edward Derwinsky hefur tekið við starfí aðalræðismanns Islands í Chicago. Hann var áður mjög hátt settur í utan- ríkisráðuneytinu bandaríska og þingmaður í 24 ár. Derw- insky og Urður Gunnarsdóttir ræddu um starfíð, banda- ríska pólitík og stöðu Clintons forseta ÞETTA er hvorki um- | fangsmikið né tíma- * frekt starf. Ég reyni að vera stjórnvöld- um og almenningi til aðstoðar í fæðingarborg minni. Þá hef ég boðið stjórnvöldum að leita til mín ef þau vilja ræða stjómmálaástandið í Banda- ríkjunum, ég hef verið stjóm- málamaður í 36 ár og ætti að geta verið þeim innan handar," segir aðalræðismað- ur Islands í Chicago, Edward Derwinsky. Hann var þing- maður í fulltrúadeild Baneda- ríkjaþings í 24 ár, háttsettur embættismaður í utanríkis- ráðuneytinu í sex ár og fór með málefni uppgjafaher- manna í stjórn George Bush frá 1989-1993. Derwinsky er nú á eftirlaunum en rekur lít- ið ráðgjafafyrirtæki á sviði utanríkismála. Sendiráð Islands í Wash- ington fór fram á það við Derwinsky fyrri hluta síðasta árs, að hann tæki að sér stöðu aðalræðismanns í Chicago, þar sem hann er fæddur og býr nú, eftir langa dvöl í höfuðborginni. Derwinsky sættist á þetta eftir nokkra umhugsun og tók við síðari hluta árs. „Ástæða þess að ég var beðinn um þetta er sú að er ég starfaði í utanríkisráðuneytinu, vann ég að nokkrum málum sem mönnum þótti íslendingar komast vel frá, m.a. deila um skipa- flutninga fyrir vamarliðið. Ég á marga vini í íslenska stjómkerfinu og nýt velvilja þar,“ seg- ir Derwinsky. Hann var þingmaður fyrir repúblikana í full- trúadeildinni í 24 ár og hefur kynnst fjölmörgum íslenskum þingmönnum og embættismönnum í utanríkisráðuneytinu. Hann hefur verið harður stuðningsmaður veru vamarliðsins hér á landi og hefur komið hingað nokkrum sinnum, í fyrsta sinn 1969. Segir Derwinsky að síðustu atburðir í Rússlandi, t.d. innrásin í Tsjetsjníju hafa auk- ið mikilvægi herstöðvar á íslandi að nýju. Hann segist enn vera að setja sig inn í mál- in, kynnast íslendingum og ræða við aðra kons- úla í borginni, sem em 70 talsins. Hér á landi hefur hann m.a. fundað í utanríkisráðuneytinu og Útflutningsráði, þar sem hann hefur kynnt sér á hvaða sviðum útflutnings hann kynni að geta aðstoðað. Segir hann það helst vera kynn- ingu á fiski, ull, ullarafurðum og jafnvel vodka. Af pólskutn ættum Derwinsky er fæddur árið 1926 og er af pólskum ættum en mikill fjöldi fólks sem flutti til Bandaríkjanna frá Póllandi, Úkra- ínu, Eystrasaltslöndunum og fyrrum Júgóslavíu er búsettur í borginni. Hann segir uppruna sinn hafa ýtt undir áhuga á utanríkismálum og hann hafi sérhæft sig í málefnum Austur-Evrópu. Derwinsky var sendur í herinn í heimsstyijöldinni síðari en að stríði Ioknu fór hann í háskóla þar sem hann lauk prófi í sagn- fræði. Hann starfaði hjá sambandi sparisjóða og ijárfestingafélaga þar til hann var kjörinn á þing Iilinois-ríkis. Þar sat í tvö ár áður en hann tók sæti á þinginu í Washington. Hann lýsir sjálfum sér sem hörðum íhaldsmanni en hann starfaði á sínum yngri árum með andkommún- ískum félögum. Það sem höfði fyrst og fremst til hans í stjómmálum sé það að vinna með fólki og að geta aðstoðað það. Alþjóðlega sinnaðir repúblikanar í sex ár, frá 1983-1989 var Derwinsky fjórði æðsti maður í utanríkisráðuneytinu en George P. Shultz var þá utanríkisráðherra. Shultz þótti skeleggur ráðherra, rétt eins og eftirmaður hans, James Baker. Er Derwinsky var spurður hver væri skýring þess að repúblikanar virtust mun meira áberandi í utanríkismálum en demó- kratar, sagði hann hana iíklega þá að flokkur sinn væri mun alþjóðlegar sinnaður en demó- kratar, sem segja mætti að væru einangrunar- sinnar. „Nýjustu dæmin um þetta eru deilurnar um viðskiptasamningana GATT og NAFTA sem mun fleiri repúblikanar studdu en demókratar. Verkalýðsfélögin, sem eru mjög áhrifamikil í Demó- krataflokknum, eru andvíg þessum samningum þar sem þau óttast að þeir hafí í för með sér atvinnuleysi. Repú- blikanar eru hins vegar tals- menn fijálsra viðskipta. Frá fimmta áratugnum hefur flokkurinn verið mun harð- ari andstæðingur Sovétríkj- anna og fylgismaður hærri útgjalda til varnarmála en demókratar. Það er einfaldlega póli- tískt slys að síðustu tveir forsetar demókrata hafa verið ríkisstjórar lítilla ríkja og reynslulausir í utanríkis- málum. Nixon, Reagan og Bush höfðu hins vegar allir sérstakan áhuga á utanrík- ismálum." Gyðingar áhrifamestir Derwinsky segir að Clinton hafi, þrátt fyrir reynsluleysi sitt, verið duglegur að sækja fundi og ráðstefnur, en honum séu innanríkismálefni mun kærari. „Christopher [utanríkisráðherra Bandaríkjannaj er hæfur sérfræðingur en hann er ekki kraftmikill og það fer lítið fyrir honum. Margir telja því að þeir séu ekki nægilega sterk- ir leiðtogar á alþjóðavettvangi. Hins vegar má ekki gleyma því að þegar áhrifamikill Banda- ríkjaforseti og öflug utanríkisstefna fara sam- an, þykir bandamönnum okkar við vera of ráð- ríkir. Þegar utanríkisstefna Bandaríkjanna er óljós og kraftlítil kvarta þeir sömu yfir því að Bandaríkjamenn séu ekki við stjómvölinn. Bandaríkjamenn sjálfir hafa, rétt eins og aðrir, mestan áhuga á innanlandsmálum; skött- um, menntun, atvinnutækifærum, lögum og reglu, framtíð barnanna, lífskjörum osfrv. Þeir sem eru ættaðir annars staðar frá hafa mun meiri áhuga á utanríkismálum en hinn „venju- legi“ Bandaríkjamaður vegna tengslanna við föðurlandið. T.d. hefur aröbum fjölgað mjög og þeir fylgj- ast grannt með málefnum Mið-Austurlanda. Þeir hafa hins vegar ekki staðið þétt saman, þar sem þeir koma svo víða að, andstætt gyðing- um, sem eru mun samheldnari, stærri og áhrifa- meiri hópur. Gyðingar eru sá hópur sem hefur mest áhrif á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. -Efasemdarraddir um hlutverk Atlantshafs- bandalagsins (NATO) gerast æ háværari. Er klofningur á milli Bandaríkjamanna annars veg- ar og Evrópubúa hins vegar hvað varðar örygg- ismál og utanríkisstefnu? „Nei. Það sem deilt er um í Banda- ríkjunum er hvernig og hvenær eigi að stækka NATO, ekki hvort.'Repú- blikanar eru mjög áfram um það að þjóðir Austur-Evrópu, sem voru svipt- ar frelsi sínu, eigi rétt á því öryggi sem felst í inngöngu í NATO. Demó- kratar leggja ekki eins mikið upp úr þessu, þeir óttast það að ögra Rússum.“ Kosningar marka vatnaskil -Telur þú að kosningasigur repúblikana í þingkosningunum í nóvember marki vatnaskil í bandarískum stjómmálum? „Já, þetta var merk og vart fyrirsjáanleg niðurstaða. Bandaríska þjóðin greiddi atkvæði gegn of stóru og dýru ríkisapparati, skrifræði, ónauðsynlegri afskiptasemi ríkisins." -Hefur sigurinn í för með sér varanlegar breytingar? „Bandarískur almenningur greiddi atkvæði sitt stefnumálum repúblikana um frjálst fram- tak. Þetta á við um þingið og ríkin. Meira að segja í fjölmörgum Suðurríkjum urðu repúblik- anar ríkisstjórar. Það var ekki slysni og ég held að það muni ekki breytast svo glatt. Hvað gerist í næstu kosningum er hins vegar ómögu- Iegt að segja. Kosningar snúast jafnt um persón- ur sem málefni og ómögulegt að segja til um hvort meirihluti repúblikana í fulltrúadeildinni helst áfram.“ -Hvað með leiðtoga repúblikana á þingi, Bob Morgunblaðið/Júlíus EDWARD Derwinsky, aðal- ræðismaður Islands í Chicago og margreyndur stjórnmála- maður, er af pólskum ættum. Hann segir það hafa vakið áhuga sinn á utanríkismálum. „Harður íhaldsmaður sem vill vinna með fólki og aðstoða" Dole og Newt Ginrich, hvers er að vænta af þeim? Mun annarhvor eða báðir komst í Hvíta húsið? „Það sem greinir þá m.a. að er aldurinn. Dole er 71 árs, Gingrich 51 árs. Aldurinn gæti orðið Dole fjötur um fót og kosningarnar 1996 eru síðasta tækifæri hans til að fá útnefningu flokksins í forsetaframboð og ná kjöri. Sumir myndu jafnvel segja að hann væri nú þegar of gamall en hann er vel þekktur og nýtur vin- sælda. Það verður forvitnilegt að fylgjast með Gingrich. Hann hefur verið áberandi í fjölmiðlum en hispurslaus og því vinsælt að hafa beint eft- ir honum. Það verður gaman að sjá hvort þetta breytist eitthvað. Ekki er líklegt að hann fari í framboð 1996, til þess hefur hann of mikið að gera í nýju starfi. Árið 2000 verður hann aðeins 57 ára og sýni hann úthald sem forseti fulltrúadeildarinnar, er hann vissulega líklegur forsetaframbjóðandi." -Gingrich virðist óvarkár í tali? „Vandamál hans er það hversu mikill keppn- ismaður hann er. Honum hefur verið líkt við bolabít, þykir þrár en kraftmikill. Eins og mörg- um öðrum kennurum hættir honum til að telja sig vera klárastan og greindastan allra. Gingrich hikar ekki við að tjá sig um málefni, ekki einu sinni þau sem hann hefur lítið sem ekkert velt fyrir sér. Hann er afar flokkshollur. Það mun smám saman draga úr þessum eindregnu ein- kennum og ég tel hann góðan leiðtoga fyrir repúblikana. Hann er aðalóvinur demókrata en það verður að breytast ef hann vill verða for- seti, hann verður að vera reiðubúinn til að sætt- ast á málamiðlanir öðru hveiju. Stjórnmálasaga okkar ber hins vegar vott um það að forsetar okkar hafa flestir verið afar flokkshollir en ekki ósveigjanlegir. Því má ekki gleyma að flest- ir flokksbræður hans þakka honum fremur en mörgum öðrum ótrúlegan kosningasigur repú- blikana." Mörg mistök Clintons -Clinton forseti hefur ekki átt sjö dagana sæla í embætti. Telur þú hann eiga möguleika á endurkjöri eða munu kosningarnar marka endalok á hans pólitíska ferli? „Hann á vissulega möguleika en ég tel hins vegar ólíklegt að hann verði endurkjörinn. Hann hefur gert mörg mistök, meðal annars hvað varðar utanríkisstefnu og mannahald. Kom með ungt, kraftmikið en óreynt lið með sér. Starfs- fólk hans hefur ekki alltaf sýnt heilbrigða skyn- semi og það skortir skilning á því hvernig hlut- irnir ganga fyrir sig í Washington. Stærð og umfang embættismannakerfisins virðist hafa komið Clinton í opna skjöldu. Hann og eiginkona hans mísreiknuðu sig þegar þau kynntu svokallaðar umbætur í heilbrigðismál- um. Þau töldu að þau gætu smíðað frumvarp, sent demókrötum það og skipað þeim að koma því í gegnum þingið. Málið er hins vegar ekki svo einfalt, Clinton skildi ekki hlutverk minnihlutans á þingi. Forset- inn hefur vissulega lært nokkuð en að öllum líkindum of lítið og of seint. Ég get nefnt eitt málefni, sem dæmi um mistök Clintons. Það er hvort leyfa eigi bæna- hald í skólum. Clinton hefur skipt svo oft um skoðun á þessu máli að allir eru á endanum óánægðir. Hann hefur fengið orð á sig fyrir óákveðni, menn telja að ef þeir þrýsti nógu mikið á hann, muni hann snúast á sveif með þeim. Bestu stjórnmálamennirnir eru taldir þeir sem sýna sannfæringarstyrk og standa við sitt. Fjölmiðlamenn eru flestir sammála um að Clinton skorti hugmyndafræði. Hann virðist sí- breytilegur, veiklundaður og fá litlu áorkað. Mál á borð við ákæru Paulu Jones á hendur forsetanum um kynferðislega áreitni skaða hann lítið. Svokallað Whitewater-mál gæti reynst honum skeinuhættara en ekkert þó í líkingu við stefnumál, eða öllu heldur stefnuleysi hans.“ Clínton gegn Dole? Derwinsky, sem þekkir Gingrich vel, segir ólíklegt annað en að Clinton verði forsetafram- bjóðandi demókrata, ekki verði um raunverulegt mótframboð að ræða. Of snemmt sé að spá um repúblikana. Dole sé líklegur, svo og nokkrir ríkisstjórar t.d. í Kalifomíu, Michigan og Wisc- onsin. Dan Quayle fari í framboð en tapi líklega. -Hverjir eru þá líklegir árið 2000, varaforset- inn Al Gore og Newt Gingrich? „Það er líklegt og í raun auðveldara að spá um það. Gore mun tæpast bjóða sig fram gegn Clinton, en tapi Clinton næst er hann vissulega líklegur. Gore er að mörgu leyti reyndari stjóm- málamaður en Clinton þar sem hann hefur átt sæti bæði í fulltrúadeildinni og öldungadeild- inni. Standi Gingrich sig vel sem forseti fulltrúa- deildarinnar kemur hann vel til greina.“ Langbylgjusendir Sam- komulag um fjár- mögnun RÍKI leggur til 200 milljónir og rík- isútvarp 100 milljónir til kaupa og uppsetningar á 300 kílóvatta lang- bylgusendi á Gufuskálum á Snæ- fellsnesi. Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra, segir að tekið verði lán fyrir framlagi ríkisins. Lánið greið- ist á fimm árum. Eyjólfur Valdi- marsson, framkvæmdastjóri tækni- sviðs ríkisútvarpsins, segir að öflug- ur langbylgjusendir auki öryggi í vályndum veðrum, bæti samband við óbyggðir á vestanverðu landinu og á hafsvæðum, t.d. undan Vest- ur-, Suðvestur- og Norðvesturlandi. Davi'ð Oddsson sagði að ákveðið hefði verið að ríkisútvarpið tæki við mastri Bandaríkjamanna á Gufu- skálum. „Þar verði 300 kílóvatta sendir sem verði mjög öflugur fyrir Vestur-, Norðvestur- og Suðurland. Ríkisútvarpið leggi til 100 milljónir króna eða hið sama og það þyrfti að kosta til ef Vatnsendasendirinn yrði endurnýjaður sem búast má við að þyrfti að gerast ella fjótlega. En síðan myndi ríkisvaldið að öðru leyti leggja fram 200 milljónir króna og taka til þess lán sem myndi greiðast á fimm árum. Með því yrði tryggt að mjög öflugur langbylgjusendir yrði til staðar á þessu landsvæði,“ sagði Davíð. Hann sagði að útvarpsstjóri væri sáttur við niðurstöðuna og útvarpið hefði fengið grænt ljós á að hefja framkvæmdir þegar í stað. Ekki einsdæmi að sendingar detti út Eyjólfur Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri tæknisviðs Ríkisút- varpsins, segir kosti öflugra lang- bylgjusendinga einkum þrjá. Með þeim sé í fyrsta lagi hægt að tryggja valkost og ákveðið öryggi við að- stæður að borð við náttúruhamfar- irnar á Vestfjörðum undanfama daga. Öflugur sendir nái í öðru lagi ekki aðeins til allra byggðra bóla, eins og núvemandi dreifikerfi, held- ur um allar óbyggðir á vestanverðu landinu. Að lokum verði með send- inum hægt að tryggja betra sam- band við ákveðin hafsvæði, t.d. undan Vestur-, Suðvestur- og Norð- vesturlandi. Eyjólfur sagði því miður ekki einsdæmi að FM-sendingar dyttu út á einstökum svæðum eins og gerst hefði fyrr í vikunni. Hann rakti bilunina til þess að eftir sífelld- ar rafmagnstruflanir hefði startari í vararafstöð fyrir endurvarpstöðina á Arnarnesi við Skutulsfjörð bilað. Afleiðingamar hefðu orðið þær að ekki hefðu náðst FM-sendingar í Súgandafirði, Önundarfirði og Dýrafírði frá því klukkan 9 á mánu- dagskvöld til klukkan 13 á þriðju- dag. Hins vegar hefðu sendingar frá Bæjum á Snæfjallaströnd náð til Súðavíkur og ísafjarðar. Sjón- varp hefði ekki náðst á Súganda- firði á miðvikudagskvöld vegna bil- unar í vararafstöð á 'Botnsheiði en unnið var að viðgerð síðdegis 1 í gær. Langbylgjusendir á Vatnsenda nær að sögn Eyjólfs í Amarfjörð en skilyrði eru ekki góð. Dreift um ljósleiðara Ásmundur Einarsson, mynd- tæknistjóri hjá íslenska útvarpsfé- laginu, segir að sendingar Bylgj- unnar og Stöðvar 2 hafi haldist í hendur við rafmagn á stöðunum. Sendingarnar fari um ljósleiðara og detti ekki út nema rafmagn á dreifi- stöðum detti út eins og hafi gerst tímabundið á nokkrum stöðum, t.d. á ísafirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.