Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Listasafn Islands
Sýningin Stofngjöfin til 5. febrúar.
lýarvalsstaðir
Yfirlitssýning um íslenska leirlist í 65
ár og myndir Jóhannesar Kjarvals úr
eigu safnsins.
Ásmundarsafn
Samsýning á verkum Ásmundar
Sveinssonar og Jóhannesar S. Kjarval
tii 14. maí.
Norræna húsið
Ljósmyndasýning til 29. janúar.
Gallerí Birgis Andréssonar
Halldór Ásgeirsson sýnir út janúar.
Gallerí Sólon íslandus
Ljósmyndasýning Davíðs Þorsteinsson-
ar til 24. janúar.
Galleri Stððlakot
Grafíksýning Þórdísar Elínar Jóelsdótt-
ur til 22. janúar.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Einar Garibaldi Eiríksson sýnir til 22.
janúar.
Galleri Úmbra
Kristján Kristjánsson sýnir til 1. febr-
úar.
Gailerí Fold
Daði Guðbjörnsson sýnir til 29. janúar.
Gerðuberg
Hafdís Helgadóttir sýnir til 12. febrúar.
Café 17
Dósla sýnir til 14. febrúar.
Gallerí Sævars Karls
Kristinn Már Pálmason sýnir til 2. febr-
úar.
Hafnarborg
Vatnslitaverk eftir þekkta rússneska
málara til 30. janúar.
Nýlistasafnið
17 ár, samsýning 125 félagsmanna í
safninu til 22. janúar.
Mokka
Ljósmyndasýning Jónasar Hallgríms-
sonar til 26. janúar.
II hæð, Laugavegi 37
Roger Ackling sýnir til febrúarloka,
opið síðdegis á miðvikudögum eða eftir
samkomulagi._______________________
TONLIST
Laugardagur 21. janúar
Szymon Kuran fiðluleikari, Reynir Jón-
asson harmonikkuleikari og Guðni
Franzson klarinettuleikari halda tón-
leika í listasafni Kópavogs - Gerðar-
safni. Guðrún Birgisdóttir flautuleikari,
Martial Nardeau flautuleikari og Pétur
Jónasson gftarleikari á tónleikum í
Keflavtkurkirkju kl. 17. Afmælistón-
leikar i Gerðubergi - Aldarminning
Davíðs Stefánssonar kl. 17._______
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Oleanna sun. 22. jan., mið., lau.
Fávitinn lau. 28. jan.
Snædrottningin sun. 22. jan. kl. 14.
Gauragangur fim. 26. jan.
Gaukshreiðrið lau. 21. jan., fós.
Á meðan blómin anga - Aldarafmæli
Davfðs Stefánssonar, opið hús f Þjóð-
leikhúsinu lau. 21. jan. kl. 15.
Borgarleikhúsið
Söngleikurinn Kabarett sun. 22. jan.,
mið., fös., lau.
Leynimelur 13 iau. 21. jan., fim.
Óskin (Galdra-Loftur) fös. 27. jan.
Ófælna stúlkan lau. 21. jan. kl. 16.,
mið., fim.
Leikfélag Akureyrar
Á svörtum fjöðrum eftir Erling Sigurð-
arson. Frums. lau. 21. jan. kl. 20.30.,
sun. 22. jan. kl. 16. og ki. 20.30.
Óvænt heimsókn fos. 28. jan. kl. 20.30.,
lau.
Frú Emilía
Kirsubeijagarðurinn lau. 21. jan kl. 20,
aukasýn. sun. 22. jan. kl. 15.
Leikfélag Mosfellssveitar
Mjallhvít og dvergamir sjö lau. 21. jan.
kl. 15., sun. kl. 15.
Kaffileikhúsið
Skilaboð til Dimmu fös. 27. jan., lau.
Sápa lau. 21. jan.
Möguleikhúsið
Trítiltoppur sun. 22. jan. kl. 13.30. og
kl. 15.30., lau. 28. jan. kl. 14.___
LISTAKLÚBBUR
Leikhúskjallarinn
Á flótta undan kertastjaka. Upplestur
á smásögum eftir Anton Tjekhov kl.
20.30. ______
KVIKMYNDIR
Norræna húsið
Kvikmyndasýning fyrir böm; Lad
isbjomene danse kl. 14.
MIR
„Kátir félagar" (Vésjolfe rebjata) kl. 16.
Úmsjónarmenn listastofnana og sýn-
ingarsala!
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar veiói í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega fyrir kl.
16 á miðvikudögum merktar: Morgun-
blaðið, menning/listir, Kringlunni 1,
103 Rvk. Myndsendir: 91-691181.
_______LISTIR______________
Sinfónískur sorgaróður
TONLIST
Sinfóníutónlcikar í
Iláskóiabíói
TÓNLIST EFTIR JOONAS
KOKKONEN, IGOR
STRAVINSKÍJ OG EDW-
ARD ELGAR
Einleikari: Gary Hoffman. Stjórn-
andi Osmo Vanska. Fimmtudagur
19. janúar 1995.
FYRSTA viðfangsefni tónleik-
anna var sinfónía nr. 4 eftir Kokk-
onen. Þetta er alvarlegt tónverk,
mjög vel samið, þar sem unnið er
úr tónhugmyndum og leyst úr nú-
tímalegri hljómskipan, oft á klass-
ískan máta. Þannig ríkir ákveðið
jafnvægi á milli eldri og nýrri
vinnuaðferða, einhvers konar fag-
urfræðileg sátt, sem mörgum kann
að þykja stuðla að ákveðnu svip-
leysi eða að verkið vanti þess vegna
KVIKMYNPIR
Sagabíó/IIáskóiabíð
ÓGNARFLJÓTIÐ „
THE RIVER WILD“ ★ ★ Vi
Leiksljóri: Curtis Hanson. Aðalhlut-
verk: Meryl Streep, David Strath-
airn, Kevin Bacon og Joseph Mazz-
ello. Universal. 1994.
NÝJASTA mynd spennuleik-
stjórans Curtis Hanson, Ógnar-
fljótið eða „The River Wild“, er
óbyggðatryllir svosem eins og hver
annar þar sem sakleysingjar eru á
ferð um hættulegt og ólgandi fljót,
bófar gera þeim lífið leitt og stór-
hættulegar flúðir boða dauða og
limlestingu. Dugði Burt Reynolds
vel í gamla daga og væri gott efni
fyrir hasarmyndahetju dagsins,
Keanu Reeves. En hasarmyndun-
um hefur borist enn nýr liðsauki.
LEIKHÓPURINN Perlan sýnir leik-
verkið Síðasta blómið í skóginum
og Mídas konung í Perlunni, Öskju-
hlíð, sunnudaginn 22. janúar kl. 15.
Perlan er leiksýningarhópur skip-
aður þroskaheftu fullorðnu fólki og
hefur sýnt meira og minna frá árinu
1982, undir leikstjórn Sigríðar Ey-
þórsdóttur. Leikhópurinn hefur sýnt
víða, bæði hér á landi og í útlönd-
um. Perlan hefur þegið boð um að
sýna í Þýskalandi í sumar.
Sýning Perlunnar í Perlunni er
öllum opin. Búninga „Síðasta
dirfð þess sem hafnar fortíðinni.
Verkið var ágætlega leikið undir
frábærri stjórn Vánská.
Koss álfkonunnar, sem var ann-
að viðfangsefni tónleikanna og eft-
ir Stravinskíj, er sömuleiðis vel
samið verk, einkum er varðar sam-
skipan hljóðfæranna en rúið þeim
ferskleika, sem geislar af öðrum
og betri verkum þessa snillings.
Þama ræður mestu, að Stravinskíj
sækir tónefni sitt að miklu leyti
til Tsjajkovskíj og nær ekki að
gera því eins góð skil og tónefni
það sem hann sótti til Pergolesi, í
öðm og frægu hljómsveitarverki.
Þetta balletverk var ágætlega leik-
ið og áttu nokkrir hljómsveitarfé-
lagar fallega leiknar einsleikslínur.
Eftir hlé minntist hljómsveitin
þeirra sem létust í náttúmhamför-
unum á Vestfjörðum og lék hljóm-
sveitin Dauða Ásu, eftir Grieg.
Leikur sveitarinnar var frábær og
svo vel mótaður af hálfu hljóm-
Ein helsta skapgerðarleikkona
bandarísku kvikmyndanna í tvo
áratugi situr við árar, mundar
byssu og lemur á bófum. Meryl
Streep hefur leikið margt bitastæð-
ara á sínum ferli en hér sýnir hún
að hún getur verið æði röggsamur
hasarmyndaleikari.
Streep setur óneitanlega sitt
mark á formúluna. Ógnarfljótið er
ekki eintómur hasar því í bak-
granni leynist fjölskyldudrama:
Streep og mótleikari hennar David
Strathairn fara niður ána í gúmmí-
bát með syni sínum og ætla að
treysta slitin fjölskylduböndin í
leiðinni þegar á vegi þeirra verða
ræningjar sem fá þau til að lóðsa
sig niður ána. Þar með er kominn
í gang hasar sem í leikstjóm Han-
son („The Hands that Rocks the
Cradle“, önnur mynd um fjölskyldu
í hættu) er jafn ábyggilegur og
blómsins" hannaði Anna Birgis og
saumaði ásamt öðrum Perluvinum.
Búningana í „Mídasi konungi" sáu
Dominique Poulin og Þórunn E.
Sveinsdóttir um. Tónlist samdi Ey-
þór Arnalds og sá um upptökur.
Handrit og leikstjórn er í höndum
Sigríðar Eyþórsdóttur. Kynnir á
sýningu Perlunnar í Perlunni verður
Felix Bergsson leikari.
Með sýningunni vill leikhópurinn
Perlan minnast Guðnýjar Ólafsdótt-
ir, eins Perlufélaga er lést 26. des-
ember sl.
sveitarstjórans, Osmo Vánská, að
undirritaður man ekki eftir áhrifa-
meiri stund á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands.
Tónleikunum lauk með sellókon-
sert eftir Edward Elgar, sem er
eitt af allra bestu verkum tón-
skáldsins. Einleikari var banda-
rískur sellósnillingur, Gary Hoff-
man, og var leikur hans einkar
áhrifamikill, sérstaklega í hæga
þættinum, Sellókonsertinn eftir
Elgar þykir vera sérlega sorglegur
og mun hann hafa hugsað verkið
sem sorgaróð til minningar um þá
er féllu í nýafstaðinni heimsstyij-
öld (1914-18), enda er hægi þátt-
urinn einkar áhrifamikil og sorgleg
íhugun. Það sem gerði flutning
verksins eftirtektarverðan, var
samvinna hljómsveitarstjóra og
einleikara, er náði mestri reisn í
hæga þættinum, sem er sannkall-
aður sinfónískur sorgaróður.
Jón Ásgeirsson.
hann er útreiknanlegur; fjölskyld-
an þjappar sér saman, bófarnir
sýna klærnar og áin beljar undir.
Þess vegna er gaman að þeirri
nýlundu að sjá Streep fást við
gömlu tugguna. Hún setur ferskan
svip á hana í hlutverki hinnar
áhyggjufullu en kjörkuðu móður
sem gæti þurft að sjá á eftir syni
sínum og eiginmanni og sjálf týnt
lífí. Kevin Bacon veitir henni harða
samkeppni í hlutverki óþokkans,
sem ætlar að sleppa niður ána með
feng sinn. Hann tekur þetta gjör-
nýtta hlutverk traustum tökum og
aðrir leikarar standa sig með prýði.
En Ógnarfljótið er aðeins form-
úluafþreying með góðum leikara-
hópi. Það vill teygjast á sögunni
og spennan er ekki meira en viðun-
andi. Streep og félagar bjarga
miklu og enn sýnir þessi fína leik-
kona að hún getur leikið allt.
Arnaldur Indriðason
Listaklúbbur
Leíkhúskjallarans
Áflótta
undan
kertasljaka
LEIKARAR munu lesa sjö smásög-
ur eftir Anton Tjekov mánudaginn
23. janúar. Dagskrá þessi er fengin
frá Leikhúsi Frú Emilíu og var flutt
í Héðinshúsinu í nóvember sl. í kjöl-
far frumsýningar á Kirsubeijagarð-
inum eftir Tjekov.
í kynningu segir: „Smásögumar
eru gamansamur leikur höfundarins
að tilteknum hugsunarhætti, hé-
gómagirnd og smáborgarabrag.
Hann skopast að því hvernig ein
hugsun fæðist af annarri og afhjúp-
ar með því þann beiska sanneika
um líf persónanna sem oftast leyn-
ist vandlega hulinn undir yfírborði
hversdagsleikans." Leikaramir sem
lesa upp eru Árni Tryggvason, Edda
Heiðrún Backman, Harpa Arnar-
dóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Jóna
Guðrún Jónsdóttir og Kristbjörg
Kjeld.
Dagskráin er í umsjón Ásdísar
Þórhallsdóttur og hefst kl. 20.30.
Vegna hinna hörmulegu atburða
í Súðavík var dagskrá Listaklúbbs-
ins sl. mánudagskvöld frestað. Dag-
skráin bar yfirskriftina Hvað er list?
Það var Páll Skúlason heimspeking-
ur sem ætlaði að ræða þessa spurn-
ingu og efna til viðræðna um hana
og Einar Clausen og söngkvartett-
inn Út í vorið að syngja íslensk lög.
AÐSEIUT
Hvers er
Sjálfstæðis-
flokkurinn
megnugur?
Sjálfstæðisflokkurinn leggur á
næstunni fram stefnu sína fyrir kom-
andi Alþingiskosningar. Stefna
flokksins mun skipta miklu máli eins
og ævinlega. í því umróti sem fram-
undan er er mikilvægt að hafa öfluga
kjölfestu í íslenzku þjóðfélagi. Slík
kjölfesta getur Sjálfstæðisflokkurinn
verið. Innan flokksins gætir margra
sjónarmiða, en fólk hefur borið gæfu
til að ná samkomulagi um þau flest.
Aðeins þannig getur hann vænzt
þess að njóta þess fylgis sem til þarf.
Svo virðist sem straumhvörf séu
að verða í íslenzkum stjórnmálum.
Ef til vill leiðir núverandi óróleiki og
klofningur
annarra
flokka til
þess, að
hægt verði
að mynda
mun víð-
tækari
samstöðu
meðal
fólks, og
Sjálfstæð-
isflokkur-
inn þarf
með stefnu
sinni að ná
til mun
fleiri en
hann gerir
nú. Tveggja eða þriggja flokka kerfí
hefur í för með sér öllu skýrari línur
fyrir kjósandann, myndun ríkis-
stjórnar byggir siður á hrossakaup-
um og málamiðlunum og stjórn
landsins yrði markvissari en í fjöl-
flokka stjóm. Við núverandi fyrir-
komulag er útlokað að sjá fyrir hvaða
flokkar muni stjóma landinu, jafnvel
þegar talið hefur verið upp úr kjör-
kössunum.
Framsókn vegur salt,
Kvennalisti er í uppnámi og
kratar skiptast í tvo hópa.
Þetta er rétti tíminn að
mati Katrínar Fjeldsted,
til þess að sýna hvers
Sj álfstæðisflokkurinn
er megnugur.
Sjálfstæðisflokkurinn einkennist
af mikilli breidd í skoðunum. Fijáls-
hyggjan er þar á öðrum pólnum, og
hefur reyndar um skeið sett mark
sitt mjög á umræðuna. Nú er tími
harðrar einkavæðingarstefnu liðinn.
Fyrstu merki þess var stefnubreyting
(póiitísk U-beygja) fyrir borgar-
stjómarkosningar vorið 1994. Þótt
heldur kæmi hún seint varð hún þó
líklega til þess, að flokkurinn fékk 7
menn kjörna af 15 í stað þeirra 5
sem spáð hafði verið mánuðum sam-
an.
Kjósendur Sjálfstæðisflokksins
eru samt að stærstum hluta til fólk
sem styður mennta- og velferðar-
kerfíð, en vill jafnframt frelsi ein-
staklingsins. Flokknum hefur bara
ekki tekizt að sýna að frjálst framtak
getur verið uppistaða veiferðar en
er ekki andstæða við hana.
Nú þegar Framsóknarflokkurinn
vegur salt milli borgaralegra afla og
vinstrimennsku, Kvennalistinn er í
uppnámi út af forvalsmistökum og
kratar skiptast í sósíalkrata og fijáls-
hyggjumenn, er rétti tíminn til þess
að Sjálfstæðisflokkurinn sýni svo
ekki verði um villzt hvers hann er
megnugur. Þess vegna verða áherzl-
ur við stefnumörkun nú að vera skýr-
ar. Stöðugleiki í efnahagsmálum,
lægri skattar, hiklaus stuðningur við
skynsamlega rekið velferðarkerfi,
öflug menntun, vestrænt samstarf
um lýðræði og vamir. Einstaklings-
framtak, umhverfisvænir atvinnu-
vegir, mannúðarstefna í hávegum
höfð. Látum það sjást í verki.
Höfundur er læknir.
Lífróður ofurmömmunnar
LEIKHÓPURINN Perlan sýnir leikverkin „Síðasta blómið í skóg-
inum“ og „Mídas konung“ í Perlunni á sunnudag.
Leikhópurinn Perlan
Síðasta blómið í skóg-
inum og Mídas konungnr
Katrín Fjeldsted