Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Austurlandskj ördæmi Óánægja með uppröðun á lista Alþýðubandalags Einbúar við Arnarfjörð Síðbúinn jólapóstnr með varðskipi „HÖFUÐÁSTÆÐA þess að ég tek ekki sæti á lista Alþýðubandalags- ins er sú, að ég tel mig ekki falla inn í hópinn, sem er í framvarðar- sveit flokksins á Austurlandi," sagði Einar Már Sigurðarson, sem hefur verið varaþingmaður Hjör- leifs Guttormssonar í Austurlands- kjördæmi, en gefur ekki kost á sér á lista flokksins í komandi kosning- um. Þá hefur Snorri Styrkársson, virkur Alþýðubandalagsmaður í Neskaupsstað til margra ára, sagt skilið við flokkinn og gengið til liðs við Þjóðvaka. Einar Már sagði að ekki hefði verið unnið af heilindum innan flokksins. „Hjörleifur Guttormsson hefur haft aðrar hugmyndir um skipan flokksins en að hafa mig sér við hlið. Þetta hefur hann þó ekki rætt beint við mig, en ef við eigum að geta unnið náið saman verða að vera heilindi í því sam- starfi. Svo hefur ekki verið. Ef menn eru ekki tilbúnir til að koma hreint fram næst að sjálfsögðu ekki að stilla saman strengi fyrir kosningabaráttu.“ Pólitískt orlof Einar Már sagði aðspurður að hann hefði ekki ákveðið hvort hann gengi úr Alþýðubandalaginu, en algengt væri að fólk innti hann eftir því hvort hann ætlaði að ganga til liðs við Þjóðvaka. „Ég hef svarað þeirri spurningu á þann hátt, að nú stefni ég að því að fara í pólitískt orlof, hversu langt sem það svo verður." Hjörleifur fulltrúi sérkennilegra sjónarmiða Snorri Styrkársson hefur verið varamaður í miðstjóm Alþýðu- bandalagsins, á sæti í bæjarmála- ráði flokksins í Neskaupsstað og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörf- um á hans vegum. Snorri hefur nú sagt sig úr Alþýðubandalaginu og gengið til liðs við Þjóðvaka. Um ástæður þess sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann gæti með engu móti staðið að því enn á ný að Hjörleifur Guttormsson kæmist inn á Alþingi íslendinga. „Hann er í mínum huga fulltrúi mjög sérkennilegra sjónarmiða, sem samrýmast ekki hagsmunum íslenskrar alþýðu. Þá var aðferða- fræðin á bak við uppstillingu listans í Austurlandskjördæmi fyrir neðan allar hellur," sagði Snorri í samtali við Morgunblaðið í gær. „Önnur veigamikil ástæða er sú, að átök innan Alþýðubandalagsins undanf- arið hafa verið þannig að ég treysti þeim flokki ekki lengur til að standa fyrir jafnaðarmennsku á þarni hátt sem ég kýs. Ég á erfitt með að standa fyrir utan pólitík og ætla að reyna að taka þátt í og vonandi móta starf Þjóðvaka." Snorri kvaðst vilja taka skýrt fram, að hann væri mjög sáttur við störf Alþýðubandalagsfólks á Nes- kaupstað. EINBÚAR á býlunum Hrafna- björgum og Lokinhömrum við Arnarfjörð fengu jólapóstinn sinn með varðskipinu Tý í gær. Björgunarsveitir á Þingeyri hafa flmm sinnum reynt að koma pósti og vistum á bæina undanfarinn mánuð, en ávallt orðið frá að hverfa vegna ófærðar og illviðr- is. Síðast komust menn á Þing- eyri til bæjanna í byrjun desem- ber. Símasambandslaust hefur verið við báða bæina alla vikuna. Á Hrafnabjörgum býr Sigríður Ragnarsdóttir og á Lokinhöm- rum Sigurjón Jónasson, en bæði eru þau á áttræðisaldri. Höskuld- UNGT fólk í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið sig saman og ætlar að standa fyrir samkomu í Háskólabíói í kvöld til styrktar Súðvíkingum sem eiga um sárt að binda eftir náttúruhamfarir þær sem áttu sér stað að morgni mánudagsins 16. janúar. Allur að- gangseyrir rennur óskiptur til söfn- unarinnar Samhugar í verki. Á samkomunni verða flutt atriði frá flestum framhaldsskólum á höf- uðborgarsvæðinu. Má þar nefna ljóðaupplestur, dansatriði, frum- samin tónlistaratriði og kórsöng. Hljómsveitin Fluga frumflytur lagið Missi, sem var sérstaklega samið vegna atburðanna í Súðavík. Aðrir ur Skarphéðinsson, skipherra á Tý, sagði að varðskipið hefði siglt að ströndinni í gær og tekist hefði að koma jólapóstinum í land með gúmbát og ganga úr skugga um að ekkert amaði að einbúunum. „Það er hér töluverður vindur, en ekki slæmt í sjóinn. Við áttum leið hér um og ákváðum að koma póstinum til Sigríðar og Sigur- jóns, auk þess sem menn á Þing- eyri vildu ganga úr skugga um að þau væru heil á húfi, þar sem ekkert simasamband hefur verið við bæina í vikunni," saðgi Hös- kuldur. Höskuldur sagði að engar snjó- flytjendur sem koma fram eru Twe- ety, Kolrassa krókríðandi, Maus, Bubbleflies, Raddbandið Kósí, Rut Reginalds, Birgir Már Benediktsson og fleiri. Dagskráin hefst kl. 20 og stend- ur til kl. 23. Miðasala verður í Kringlunni í dag frá kl. 10 og í Hinu húsinu frá hádegi. Miðaverð er 1.000 krónur. Allir sem koma fram á samkom- unni gefa vinnu, aðstöðu og lána tæki. Eftirtöldum aðilum eru færð- ar sérstakar þakkir: Extón hf. sem lánar ljósabúnað, Háskólabíói, Hinu húsinu og fjölda annarra aðila, sem lagt hafa hönd á plóg til að gera þessa samkomu mögulega. hengjur væri að sjá ofan við bæ- ina tvo, svo ekki væri að búast við snjóflóðum þar. Norðurlandamót í skólaskák Hlynur og Guðjón tefla fyrir Island HLYNUR Hafliðason og Guðjón Heið- ar Valgarðsson verða fulltrúar íslands í flokki 10 ára og eldri á Norðurlanda- mótinu í skólaskák sem fram fer 9.-12. febrúar nk. á Laugarvatni. Hlynur, sem er 9 ára, sigraði í úr- slitum í undankeppni um rétt til að keppa á Norðurlandamótinu í skóla- skák og hlaut 8V2 vinning af 9 mögu- legum. 1 2.-3. sæti urðu Gunnar Daní- el Sveinbjömsson og Ingibjörg Edda Birgisdóttir með 7 vinninga. í 4.-8. sæti með 6 vinninga urðu Emil Hjör- var Petersen, Jens Harðarson, Vil- hjálmur A. Þórarinsson, Hilmar Þor- steinsson og Stefán Guðmundsson. Ungt fólk til hjálpar Samkoma til styrkt ar Súðvíkingum Þingsályktunartillaga um mótun opinberrar fjölskyldustefnu kynnt Aðgangur fjöl- skyldna að ráð- gjöf ekki nægur FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA kynnti í gær þingsályktunartillögu um mótun opinberrar fjölskyldu- stefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar og einnig könnun á högum barna og foreldra á íslandi sem Landsnefnd um ár fjölskyldunnar stóð fyrir. Lagt er til að undirbúin verði lagasetning um stofnun fjölskylduráðs annars vegar og sjóðs um fjölskylduvemd hins vegar. Rannveig Guðmundsdóttir, fé- lagsmálaráðherra, kveðst telja það afar mikilvægt að Alþingi samein- aðist um tillögur um aðgerðir í málefnum fjölskyldunnar sem marki lok árs fjölskyldunnar. „Þama er verið að marka nýja sýn og leggja áherslu í verki á fjöl- skylduna sem hornstein samfélags- ins. Ég mun ennfremur leita leiða til að fá hljómgrunn í ríkisstjórn fyrir alþjóðasamþykkt Sameinuðu þjóðanna um starfsfólk með fjöl- skylduábyrgð, en um hana er nokk- ur ágreiningur. Engin ríkisstjóm íslands hefur mótað skýra stefnu í þessum málum fyrr en nú, þótt ýmsir hafi auglýst eftir slíkri stefnu, og mér er mjög í mun að hún verði að veruleika enda um nokkur tíma- mót að ræða,“ segir Rannveig. Stefnt að 18 millj. framlagi Hún kveðst telja ljóst að mikið skorti á að fjölskyldur eigi aðgang að nauðsynlegri þjónustu, einkum á sviði fjölskylduráðgjafar. Því hafi verið ákveðið að veija fé til að stofna fjölskylduráðgjöf í tilrauna- skyni í Reykjavík, Mosfellsbæ og á Eyjafjarðarsvæðinu, sem verður á vegum viðkomandi sveitarfélaga. Slík ráðgjöf hafi lent á milli í verka- skiptingu sveitarfélaga og ríkis, og þótt að hlutverk félagsmálastofn- ana í hveiju sveitarfélagi sé meðal annars að sinna málefnum fjöl- skyldunnar, vekji nafn félagsmála- stofnana oft neikvæð viðbrögð í hugum fólks. Lögð verði áhersla á faglegt sjálfstæði fjölskylduráð- gjafarinnar. Alls er um að ræða 18 milljónir króna, sem skiptast þannig að 13 milljónir renni til verkefnisins á höfuðborgarsvæðinu en 5 milljónir renni til verkefnisins á Norður- landi. Heildarkostnaður sé áætlaður á þriðja tug milljóna króna, sem meðal annars verði varið í að ráða 6-7 sérfræðinga í málefnum ljöl- skyldunnar sem starfi að ráðgjöf. Miðað við heildarsýn í þingsályktunartillögunni er meðal annars lögð áhersla á mikil- STYRKJA á stöðu fjölskyldunnar og kanna hagi foreldra og barna á íslandi. vægi fjölskyldunnar sem grunnein- ingar sámfélagsins. Vakin er at- hygli á að af þeim sökum verðskuld- ar hún að stjórnvöld hlúi að henni með skipulögðum hætti í formi stefnu í málefnum hennar. Lögð er áhersla á að gerð fjölskyldna er ólík og að stjórnvöld geri ekki upp á milli fjölskyldugerða og að þær njóti jafnræðis. Bragi Guðbrandsson, formaður Landnefndar um Ár íjölskyldunnar, segir að í tillögunni sé reynt að fjalla um þau málefni sem nefndin telji einkar mikilvæg við mótun fjöl- skyldustefnu samtímans, frá sjón- arhóli heildarsýnar. í Landsnefnd um ár fjölskyldunnar sitja 30 ein- staklingar, tilnefndir af ýmsum fé- lagasamtökum og stofnunum. Meðal annars lúta tillögur að því að styrkja fjölskylduna til að sinna verkefnum sínum, ekki síst þau er varða börn; að atriðum sem beinast að því að treysta farsæld fjölskyld- unnar, einkum öryggi og afkomu; að stuðningi við fjölskyldur sem verðskulda að þeim sé gefinn gaum- ur vegna sérstakra þarfa, svo sem fjölskyldum fatlaðra, nýbúa eða samkynhneigðra. Einnig er fjallað um þá þætti sem ógna velferð fjöl- skyldunnar eða einstakra fjöl- skyldumeðlima, svo sem vegna samskiptaörugleika, ofbeldis eða fíkniefnaneyslu. Loks er rætt um að efla skilning á mikilvægi fjöl- skyldunnar, virðingu fyrir ólíkum fjölskyldugerðum og þörf fyrir rannsóknir í fjölskyldumálum. Fráskildir feður ósáttir Könnun á högum foreldra og barna á íslandi er ekki lokið að fullu, en fyrstu niðurstöður leiða til dæmis í ljós að sá hópur sem sem virðist eiga erfiðast uppdráttar fjárhagslega og hafa lakast hús- næði, sé skipaður fráskildum mæð- rum með forsjá barna. Sá hópur sem virðist búa við minnstan stuðn- ing fjölskyldu og er ósáttastur við aðstæður sínar, ekki síst tengsl við börn sín, eru fráskildir feður án forsjár. Sá hópur sem virðist hafa mestu tengsl og bestan stuðning frá upprunafjölskyldu og vera sátt- astur við aðstæður sínar, eru ein- hleypir foreldrar með forsjá barna sinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.