Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX HORFT upp í hlíðina fyrir ofan Súðavík, þaðan sem snjóflóðið féll á þorpið. Skarðið í byggðina sést greinilega hægra megin.. Athafnalíf á ísafirði að komast í lag ísafirði. Morgunblaðið. „ÉG HEF ekki farið úr húsi í fimm daga,“ sagði Jónas Magnússon, fullorðinn maður sem býr við Pól- götu á ísafirði, við Morgunblaðið þegar óveðrinu sem gengið hefur yfir Vestfírði slotaði. Hann og aðrir ísfírðingar voru önnum kafnir í gær að moka frá húsum sínum og huga að bílum og öðrum eignum. Enn er snjóflóða- hætta í Hnífsdal. Dísilrafstöðvar voru keyrðar á öllum þéttbýlisstöð- um á Vestfjörðum í gær, en reikn- að er með að bráðabirgðaviðgerð ljúki í dag. Óshlíðarvegur stórskemmdur Veður var skapiegt á ísafirði í gær og fyrradag. Snjóruðningstæki unnu við að moka götur og koma samgönguæðum í lag. Víða voru bflar á kafi í snjó. Ekki er vitað til þess að miklar skemmdir hafi orðið á eignum í veðurhamnum. Snjóflóð féll á sumarbústað við Grænagarð á Isafírði sem beið þess að verða fluttur inn í Tungudal. Flóðið féll líka á Steinsmiðjuna og komst snjór inn í húsið. Óverulegar skemmdir urðu innan dyra. Þá féll snjóflóð á fjárhús við Skíðaveg. Nokkrar kindur drápust í flóðinu. Mikil vinna er framundan við að koma Óshlíðarvegi milli ísafjarðar og Bolungarvíkur í lag. Stórt skarð hefur myndast í veginn við innsta vegskálann. Gert var við veginn til bráðabirgða með því að ryðja snjó- flóðavörn í burtu. Vörubíll, sem vann við að fylla í skarðið, valt á hliðina í fyn-akvöld. Enginn slasað- ist við óhappið. Ljósleiðari fór í sundur þar sem skarðið myndaðist og eins fór rafmagnslína fyrir götu- ljósin í sundur. Fjöldi viðgerðarmanna unnu að því að koma rafmagnslínum í lag í gær, en gífurlegt tjón hefur orðið á raflínum í óveðrinu. Mest er tjón- ið í Dýrafirði þar sem þrjár línur sópuðust á haf út þegar um 500 metra breitt snjóflóð féll á þær. Staura rak á land hinum megin fjarðarins. Dísilrafstöðvar keyrðar á öllum stöðum Dísilrafstöðvar voru keyrðar á öllum þéttbýlisstöðum á Vestfjörð- um í gær. Síðdegis tókst að koma rafmagni á suðurfirðina. Vonast er eftir að viðgerð í Dýrafirði ljúki í dag og að þá verði hægt að hætta rafmagnsskömmtun á Isafirði. Snjóflóðahættu hefur ekki verið aflýst í Hnífsdal. Enn er bannað að fara í þau 11 hús sem voru yfir- gefin sl. mánudag. Fyrri hluta dags í gær var hitastig yfir frostmarki á ísafírði, en við þær aðstæður eykst snjóflóðahætta. Síðdegis var farið að frysta aftur. Engin kennsla var í skólum á ísafírði í þessari viku, en gert er ráð fyrir að skólahald hefjist á ný á mánudag. Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu hafa haft aðsetur í barnaskólanum og þess vegna var ákveðið að hefja ekki kennslu þar þrátt fyrir að veður væri orðið gott. Björgun heldur áfram í Súðavík Snjóruðningsmenn luku við að ryðja snjó af veginum til Súðavíkur í fyrrinótt. Fjöldi snjóflóða hafði fallið á veginn. Snjóflóðahættan er enn til staðar. Lögreglan lokaði veginum til Súðavíkur og hleypti engum í gegn nema með leyfí al- mannavamanefndar. í Súðavík eru nú að störfum hópur iðnaðar- manna, sem vinnur að því að veija eignir í bænum frá frekari skemmdum. í hópnum eru pípu- lagningarmenn, húsasmiðir, raf- virkjar o.fl. Snjóruðningstæki voru einnig að störfum í þorpinu í gær. Snjóflóð um allan Vest- fjarðakjálka SNJÓFLÓÐ hafa fallið í byggð um allan Vestfjarðakjálkann í óveðrinu sem geysaði á þessum slóðum fyrri hluta vikunnar. Einn- ig hafa fallið flóð á Norðurlandi Snjóflóðin hafa kostað 15 mannslíf. Búfénaður hefur drepist og verulegt tjón hefur orðið á fasteignum. Nærri sjöhundruð manns á þessu svæði hafa orðið að yfirgefa íbúðir sínar vegna snjóflóðahættu. Rafmagnslaust hefur verið meira og minna á öllum Vestfjörðum, á sumum svæðum í marga daga, eftir að snjóflóð hafa slitið raflín- ur. A kortinu hér að ofan sjást þeir staðir þar sem snjóflóð hafa fallið í vikunni samkvæmt upplýsingum Almannavarna og hvar fólk hefur þurft að yfirgefa hús sín vegna snjóflóðahættu. Bolungarvik: 30 hús rýmif, um 100 manns Hnifsdalur: 16 hús rýmd, um60manns Yfirlit yfir helstu snjófióð síðustu daga og fólksflutninga vegna snjóflóðahættu Snlállóð á Flaleyri, ollu litlum skemmdum 34 hús rýmd, um 90 manns Snjóflpð á veginn milli Isafjarðar og Hnltsdals Snjóllóð á Núpi í Dýratirði, eyði- leggur íbúðarhús Snjóflóð við sleil rallínur Þingeyrar- ogl Mýranreppar: \ 5 hús rýmd Bolungarvíka Hnífsdalur Rörður, Snjóllóð á á Súðavik 114 manns tórust, 22 hós ónýt eða skemmd Drangsnes: /| /ymcfaVHS \ 7húsrýmd, 16manns \ Þingeyri^ , Snjóíióð innan við Isaljörð, skemmdi sumarbústað 1 hús rýmt, 2 menn Lítil snjóllóð, skemmdir á rallínum / 1 Blönduós: 1 hús rýmt, 5 manns Patreksfjog Bíldudalur: 31 húsrýmt, um 90 manns Snjóllóð innan við Palreksljörð, ollu ekki skemmdum 109 hús rýmd, um 300 manns Snjóllóð í Djúpadal í Reykhólahreppi, óvísl um skemmdir Snjóllóð á Grund í - /\ Reykhólasveil. \ Ejnnmaðurlórsl. Utihús i rúst og um 200 fjár og 20 nautgr. drápust. Drangsnes Samúðar- kveðjur berast víða að f FORSETA íslands og forsæt- | isráðherra hafa í gær og S fyrrádag borist samúðar- kveðjur vegna afleiðinga snjó- flóðanna á Vestfjörðum frá Margéti II Danadrottningu, Jóhannesi Páli II páfa, Poul Nyrup Rasmussen forsætis- ráðherra Danmerkur, Willy Claes aðalframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og frá stjórnvöldum í Japan og Póllandi. Þá bárust síðdegis í gær samúðarkveðjur frá stjórn- völdum í Kanada og Slóveníu. Kveðja frá Lögþinginu Marita Petersen forseti lög- þingsins í Færeyjum hefur sent forseta Alþingis, Salome Þorkelsdóttur, og íslensku þjóðinni dýpstu samúðar- kveðjur vegna atburðanna í Súðavík. Kirkjur senda samúðarkveðjur Biskupi íslands hafa borizt samúðarkveðjur vegna at- burðanna í Súðavík frá bisk- upnum á Grænlandi, erkibis- kupnum í Uppsölum í Svíþjóð og Heimssambandi lúthersku kirkjunnar. Kveðja frá íslendingum í Namibíu Hópur íslendinga sem dvel- ur í Lúderitz í Namibíu hefur sent samúðarkveðjur vegna slyssins í Súðavík. Segir í skeyti frá íslendingunum að hugurinn dvelji hjá þeim sem eiga um sárt að binda vegna snjóflóðanna. íslendingar í Lúxemborg safna fé Félag íslendinga í Lúxem- borg gengst fyrir söfnun með- al Islendinga og íslandsvina í Lúxemborg og nágrenni til styrktar Súðvíkingum. Söfn- unarféð rennur óskipt til söfn- unarinnar Samhugar í verki. Söfhunin hefst á mánudag og stendur til föstudags. Reikningsnúmer hennar er 30-037917-29-1 í Banque Generale du Luxembourg. Reikningseigandi er Assoc- iation d’Islandais - Samhugur í verki. í lok vinnudags á föstudag verður söfnunarféð sent óskipt til íslands. Stuðningur Seltirninga Á fundi bæjarstjórnar Sel- tjamarness 18. þ.m. voru eftirfarandi bókanir sam- þykktar samhljóða: „Þeir hörmulegu atburðir sem átt afa sér stað á Súða- vík hafa snert okkur öll á djúpan og tilfinningalegan hátt. Fyrir hönd íbúa Seltjamar- ness vill bæjarstjórn Seltjarn- arness votta Súðvíkingum samúð sína og biður algóðan guð að styðja og styrkja þá sem misst hafa ástvini sína í þessum hamförum líðandi daga.“ Ennfremur: „Bæjarstjóm Seltjarnarness samþykkir að styðja Súðavíkurhrepp með kr. 225.000, vegna gífurlegra skemmda er urðu í snjó- flóðunum 16. og 17. janúar sl. Upphæðin svarar til 50 kr. framlags hvers íbúa Sel- tjarnarness.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.