Morgunblaðið - 24.01.1995, Side 8

Morgunblaðið - 24.01.1995, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Meirihlutinn i bæjarstjórn Hafnarfiarðar endurreistur Jóhann víkur á meðan 'rM viðskipti eru athuguð m Þið getið sparað ykkur þetta strákar. Hann verður geymdur hjá fótanuddstækinu, litla ljósálfinum, hljómborðinu og hinu draslinu fram yfir kosningar . . . Atvinnuleysi í okt., nóv. og des. É1994 Hlutfall atvinnulausra af heildarvinnuafli Á höfuðborgarsvæðinu standa 3ýi 3.665 atvinnulausir á bak við töluna 4,8% í desember og fjölgaði um375fráþví í nóvember. Alls voru 7.166 atvinnulausir á landinu öllu í desember og hefur fjölgað um 1.665 fráþvíí nóvember LANDS- BYGGÐIN VEST- FIRÐIR AUSTUR- LAND 2,9% 0 N Ð NORÐURLAND VESTRA , 0 N D I NORÐURLAND í EYSTRA VESTURLAND LANDIÐ ALLT 5,6% 0 N D HÖFUÐBORGAR SVÆÐIÐ : SUÐURLAND SUÐURNES Minna atvinnuleysi í desember en árið áður ATVINNULAUSUM fjölgaði um 30,5% frá nóvember til desember i vetur. Atvinnuleysi hefur að jafnaði aukist um 45% milli áðurnefndra mánuða. Atvinnulausir í desember voru hins vegar 10,9% færri en í desember í 1993. Skráðir atvinnu- leysisdagar í desember jafngilda því að 7.166 menn hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðin- um. Af þeim eru 3.629 karlar og 3.537 konur. Tölurnar jafngilda 5,6% af áætluðum mannafla á vinnumark- aði, 4,8% hjá körlum og 6,6% hjá konum. Upplýsingarnar koma fram í yfirliti Vinnumálaskrifstofu félags- málaráðuneytis um atvinnuástandið. Aðurnefnt hlutfall þýðir að um 1.665 fleiri hafí verið atvinnulausir í desember en í mánuðinum á undan en um 880 færri en í desember árið áður. Ástæður aukins atvinnuleysis nú eru fyrst og fremst hefðbundin lokun margra fískvinnslustöðva seinni hluta desember og stöðvun stórs hluta bátaflotans á þessum ■ árstíma. Miðað við desember 1993 vegur hins vegar aukin eftirspum og minni samdráttur í öðrum grein- um upp nokkuð minni fiskafla en á sama tíma í fyrra. Mest fjölgun á Austurlandi og Vestfjörðum Atvinnuleysið eykst nokkuð alls staðar á landinu í desember. Atvinnu- leysi eykst hlutfallslega langmest á Austurlandi og Vestfjörðum. Atvinnu- leysi er nú minna en í desember í fyrra á öllum atvinnusvæðum nema á Vestfjörðum og Suðurnesjum. Að meðaltali voru í desember um 51% atvinnulausra á höfuðborgar- svæðinu og 49% á landsbyggðinni. Á Norðurlandi eystra voru 14% at- vinnulausra, 9% á Suðurlandi, 8% á Suðumesjum, 6% á Austurlandi, 5% á Norðurlandi vestra og á Vestur- landi og 3% á Vestfjörðum. Atvinnuleysi karla eykst mun meira en atvinnuleysi kvenna. í des- embermánuði fjölgaði atvinnulausum konum að meðaltali um samtals 675 á landinu en körlum fjölgaði hins vegar um 990. Vísbendingar í janúar Atvinnuástandið versnar að jafn- aði mikið í janúar. Gera má ráð fyr- ir rúmlega 30% árstíðarsveiflu að jafnaði en hún var rúm 18% 1993 og 3% árið 1992. Með tilliti til minna atvinnuleysis í desember miðað við desember árið áður ætti atvinnuleysi í janúar að verða minna en í fyrra, en þá var það um 7,5%. Ekki er þó búist við að fiskvinnsla fari mikið í gang fyrr en líða tekur á janúar auk þess sem iðnaðarmönnum, verslunar- fólki, bifreiðarstjórum og verkafólki fjölgar jafnan mikið á atvinnuleysis- skrá í janúar. Samkvæmt þessu má búast við að atvinnuleysi aukist nokkuð í janúar og verði líkast til á bilinu 6,3% til 6,8%. Samhugur í verki Söfnunarfé ráð- stafað í samráði við heimamenn Jónas Þórisson FYRSTU fjóra söfnun- ardagana í söfnun- arátaki ijölmiðl- anna, Rauða krossins og Hjálparstofnunar kirkjunn- ar vegna náttúruhamfar- anna í Súðavík söfnuðust samtals 205.316.840 krón- ur. Inn á bankareikning nr. 800 í Sparisjóðnum í Súða- vík höfðu borist samtals 6.496 framlög og 21.481 framlag hafði borist í gegn- um símanúmer landssöfn- unarinnar, 800 5050. Bak við hvert framlag eru ein- staklingar, hópar eða fyrir- tæki. Hægt verður að leggja framlög inn á reikn- inginn í Sparisjóðnum í Súðavík fram til 3. febrúar næstkomandi, og símanúm- erið 800 5050 verður einnig opið áfram fyrir þá sem vilja fá upplýsingar um landssöfnunina eða setja framlög á greiðslukort. Söfnunarfé mun renna óskert til víðtækrar fjölskylduhjálpar á Vestfjörðum hjá þeim mörgu sem eiga um sárt að binda eftir at- burði síðustu viku. Sérstök sjóðs- stjórn mun ráðstafa söfnunarfénu og skipa hana Pétur Kr. Hafstein, hæstaréttardómari, Sigrún Árna- dóttir, framkvæmdastjóri RKÍ, Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, Magnús Erlingsson, sóknarprestur á Isafirði og Súðavík, og Þorbjörn Sveinsson, framkvæmdastjóri deildar Rauða krossins á ísafirði. Jónas Þórisson sagði í samtali við Morgunblaðið að vandasamt verkefni biði sjóðsstjórnarinnar við úthlutun söfnunarfjárins, en hann lagði ríka áherslu á að ráðstöfun yrði öll í samráði við heimamenn á Súðavík. - Hvað firwst þér um viðbrögð almennings í söfnunarátakinu? „Mér finnst þau hreint og beint ótrúleg. Það er varla hægt að lýsa ineð orðum þeim áhrifum sem maður verður fyrir þegar svona gerist, og þessi niðurstaða er fram- ar öllum hugmyndum þeirra sem að þessu koma. Menn gerðu sér í upphafí raunverulega enga grein fyrir því hvað myndi safnast og höfðu ekki sett neitt markmið, en sjálfur er ég mjög hógvær í vænt- ingum og var ég svona með sjálf- um mér að gera mér í hugarlund að kannski myndu safnast um 50 milljónir, án þess þó að hugsa neitt alvarlega um eina einustu tölu. Þetta er örugglega það mesta sem nokkru sinni hefur komið inn í almennri söfnun á íslandi." - Hefur þessi samhugur ein- hver víðtækari áhrif að þínu mati? „Eg vona að þetta sé upphaf þess að menn vakni varanlega við og sýni samhug og sam- hyggju með meðbræð- rum sínum bæði nær og fjær, og jafnframt að einmitt sú reynsla hversu sælt eða gott það getur verið að fá að leggja lið og sú ánægja sem því fylgir, að hún verði til þess að í framtíðinni vilji fleiri leggja hjálparstarfi al- mennt lið, ekki bara hér á landi heldur einnig erlendis. Þar er líka mikil neyð og margt hægt að gera sem kemur öðrum vel. Okkar lóð á vogarskálarnar vegur mikið þar, sérstaklega ef vel er haldið á spöð- unum t.d. í þróunarverkefnum og öðru fyrirbyggjandi starfi. Reynsl- an hefur sýnt að þó við séum Jítil þjóð þá getum við gert ýmislegt.“ - Hvenær mun sjóðsstjórnin byrja að ráðstafa fénu sem safnast hefur? ► Jónas Þórisson er fæddur 7.8. 1944 á Akureyri, sonur hjón- anna Huldu Stefánsdóttur og Þóris Björnssonar vélfræðings. Jónas lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar og síðan kennaraprófi frá KÍ 1971, og 1966 til 1967 var hann við nám í Biblíu- og kristniboðs- skólanum Fjellhaug í Ósló. Hann var erindreki í hlutastarfi hjá Sambandi íslenskra kristni- boðsfélaga 1967-1972, og 1973-1987 var hann við kristni- boðs- og hjálparstörf fyrir sama félag og lúthersku kirkjuna í Eþíópíu. Jónas var skrifstofu- sljóri á aðalskrifstofu Sam- bands íslenskra kristniboðsfé- laga og KFUM & K 1987-1990, en síðan hefur hann verið fram- kvæmdasljóri Hjálparstofnun- ar kirkjunnar. Eiginkona Jón- asar er Ingibjörg Ingvarsdóttir og eiga þau sex börn. „Sá hluti stjórnarinnar sem er hér í Reykjavík mun hittast seinni- part þriðjudagsins [í dag] til þess að byija að fara yfir málin. Vænt- anlega munum við svo fara við fyrsta tækifæri vestur þar sem tveir fulltrúar í sjóðsstjórninni eru og ræða þar við heimamenn. Ég hef lagt á það mikla áherslu, og ég veit að við gerum það öll í þess- ari nefnd, að ráðstöfun þessa fjár verði í nánu samstarfi og samvinnu við heimamenn. Við ætlum ekki að skipa þeim fyrir verkum, heldur verður reynt að sinna þessari fjöl- skylduaðstoð eins sagt var í upp- hafí söfnunarinnar. Það verður gert í samráði við heimafólk. Sam- kvæmt vilja Súðvíkinga verður einnig reynt að sinna þeirri neyð sem varð í Reykhólasveit og þeirri hjálp sem þar er þörf. Þetta er vandasamt verk framundan, og þá ekki síst vegna þess hve upphæðin er há. Stjómin mun auðvitað líta til þess hver viðbrögð stjórnvalda verða í þessum málum, og reynt verður að samræma þær aðgerðir sem væntanlegar eru af hálfu stjórnvalda. Til söfnunarinnar var stofnað í því skyni að sinna því sem opinberir sjóðir og stjórnvöld munu ekki sinna. Hvað varðar varanlega aðstoð þá munum við sjá hvað tryggingar bæta og hver verða viðbrögð stjórnvalda, og koma svo á móts við fólkið eftir að það verður ljóst. Þar fyrir utan er svo auðvitað sú neyðaraðstoð sem þegar er hafin bæði á vegum Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauða krossins." Viðbrögð al- mennings ótrúleg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.