Morgunblaðið - 24.01.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 9
FRETTIR
D-listinn í Reykja-
vík ákveðinn
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík við næstu
Alþingiskosningar var ákveðinn á
aðalfundi Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík síðastliðinn
laugardag. Var tillaga kjörnefndar
um skipan framboðslistans sam-
þykkt samhljóða á fundinum. Þá
var Baldur Guðlaugsson, lögmaður,
einróma endurkjörinn formaður
Fulltrúaráðsins.
Á fundinum flutti Baldur Guð-
laugsson skýrslu stjórnar fyrir
síðastliðið ár. Sagði hann að starfið
hefði einkennst af miklum erli
vegna tveggja prófkjara sem haldin
voru í janúar og október og borgar-
stjórnarkosninga í maí. Síðastliðið
ár hefði því verið sannkallað kosn-
ingaár fyrir reykvíska sjálfstæðis-
menn. Baldur fjallaði nokkuð um
ósigur sjálfstæðismanna í borgar-
stjórnarkosningunum og sagði að
vissulega hefði áfallið verið þungt
en ekki þýddi að láta hugfallast
heldur þyrfti strax að hefja mark-
vissa vinnu til að endurheimta borg-
ina í næstu kosningum. Stjórnar-
andstaða sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn þyrfti að vera einbeitt en
málefnaleg og í því skyni hefði
stjórn fulltrúaráðsins ákveðið að
koma á fót sjö málefnahópum um
borgarmál og munu þeir hefja störf
innan tíðar. Baldur hvatti sem flesta
sjálfstæðismenn til að hafa sam-
band við skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins og skrá sig í málefnahóp.
Baldur fjallaði einnig um starf full-
trúaráðsins á næstunni og sagði að
þar bæri hæst starf vegna væntan-
legra Alþingiskosninga. Hvatti
hann sjálfstæðifólk til að láta ekki
sitt eftir liggja í starfinu fyrir þær.
Björn Bjarnason, alþingismaður,
hvatti fulltrúaráðsmenn einnig til
dáða fyrir komandi Alþingiskosn-
ingar og sagði það afar mikilvægt
að Sjálfstæðisflokkurinn ynni þar
góðan sigur. Það umrót sem ætti
sér nú stað á vinstri væng stjórn-
málanna ítrekaði sundurlyndi
vinstri flokkanna en vekti jafnframt
athygli á einingu og samhug sem
ríkti meðal sjálfstæðismanna. Sjálf-
stæðisflokkurinn hlyti því að vera
skýr valkostur í hugum þeirra kjós-
enda sem vildu ekki stefna áunnum
stöðugleika og batnandi efnahagi
þjóðarinnar í voða.
Skipan lista í samræmi við
niðurstöður prófkjörs
Skipan ellefu efstu sætanna á
framboðslistanum er í samræmi við
niðurstöður prófkjörs sem fram fór
í október síðastliðnum en í heild er
listinn skipaður þannig:
1. Davíð Oddsson,
forsætisráðherra.
2. Friðrik Sophusson,
fjármálaráðherra.
3. Björn Bjarnason,
alþingismaður.
4. Geir H. Haarde, alþingismaður.
5. Sólveig Pétursdóttir,
alþingismaður.
6. Lára Margrét Ragnarsdóttir,
alþingismaður.
7. Guðmundur Hallvarðsson,
alþingismaður.
8. Pétur H. Blöndal,
stærðfræðingur.
9. Katrín Fjeldsted, læknir.
10. Markús Órn Antonsson,
fyrrv. borgarstjóri.
11. Ari Edwald,
aðstoðarmaður ráðherra.
12. Ásta Möller, formaður
félags hjúkrunarfræðinga.
13. Kristján Guðmundsson,
húsasmiður.
14. Hanna Birna Kristjánsdóttir,
stjórnmálafræðingur.
15. Helgi Árnason, skólastjóri.
16. Ellen Ingvadóttir,
löggiltur skjalaþýðandi.
17. Helgi Steinar Karlsson,
form. múrarafélagsins.
18. Þórdís Sigurðardóttir,
flugumferðarstjóri.
19. Kristinn Gylfi Jónsson,
svínabóndi.
20. Marta María
Ástbjömsdóttir, sálfræðingur.
21. Sigurður Kári
Kristjánsson, laganemi.
22. Ingvar Helgason, forstjóri.
23. Dagur Sigurðsson,
handknattleiksmaður.
24. Málhildur
Angantýsdóttir, sjúkraliði.
25. Jónas Bjarnason,
efnaverkfræðingur.
26. Helgi Skúlason, leikari.
27. Þórunn Guðmundsdóttir,
hæstaréttarlögmaður.
28. Þorvaldur Þorvaldsson,
bifreiðastjóri.
29. Þuríður Pálsdóttir,
söngkennari.
30. Guðmundur H. Garðarsson,
fyrrv. alþingismaður.
31. Már Jóhannsson,
skrifstofustjóri.
32. Vala Thoroddsen, húsmóðir.
33. Ragnheiður Hafstein,
húsmóðir.
34. Erna Finnsdóttir, húsmóðir.
35. Eyjólfur Konráð Jónsson,
alþingismaður.
36. Auður Auðuns, fyrrv.
ráðherra og borgarstjóri.
BARNAKOT AUGLYSIR
NÝ VERSLUN í BORGARKRINGLUNNI
Opnum með frábærar vörur
30-70% afsláttur
Dœmi:
Leggings
Peysur
Aður
1.195,-
1.995,-
Jogginggallar 2.995,-
Skyrtur 1.995,-
Nú
695,-
995,-
1.995,-
995,-
Barnafataverslunin Barnakot,
Borgarkringlunni, sími 881340.
Nýtt útbob
ríkissjóbs
mibvikudaginn 25. janúar
ÁRVÍK
ÁRMÚL11 ■ REYKJAVlK • SÍMI 687 222 • TELEFAX 687295
ECU-tengd
spariskírteini ríkissjóbs
1. fl. D 1994, 5 ár.
Útgáfudagur: 14. október 1994
Lánstími: 5 ár
Gjalddagi: 5. nóvember 1999
Grunngengi ECU: Kr. 83,44
Vextir: 8,00% fastir
Einingar bréfa: 500.000,
1.000.000,
10.000.000 kr.
Skráning: Skráö á Verðbréfa-
þingi íslands
Viðskiptavaki: Seðlabanki íslands
Verbtryggb
spariskírteini ríkissjóbs
1. fl. D 1994, 5 og 10 ár.
Útgáfudagur: 10. febrúar 1994
Lánstími: 5 ár og 10 ár
Gjalddagi: 5 ár: 10. febrúar 1999
10 ár: 10. apríl 2004
Grunnvísitala: 3340
Vextir: 4,50% fastir
Einingar bréfa: 100.000, 1.000.000,
10.000.000 kr.
Skráning: Skráð á Verðbréfa-
þingi íslands
Viðskiptavaki: Seðlabanki íslands
Sölufyrirkomulag:
Spariskírteinin verða seld með tilboðsfyrirkomulagi. Aðilum að Verðbréfaþingi
íslands, sem eru verðbréfafyrirtæki, bankar, sparisjóðir og Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, gefst einum kostur á að gera tilboð í skírteinin samkvæmt tiltekinni
ávöxtunarkröfu.
Aðrir sem óska eftir aö gera tilboö í ofangreind spariskírteini eru hvattir til að
hafa samband við framangreinda abila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og
veita nánari upplýsingar.
Öll tilboð í spariskírteini þurfa aö hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14.00
á morgun, mibvikudaginn 25. janúar. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru
veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
- kjarni málsins!
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 562 4070.