Morgunblaðið - 24.01.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 11
FRÉTTIR
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur gerir ráð fyrir 227 millj. til byggingar leikskóla
1,3 milljarð-
ar til dag-
vistarmála
í FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja-
víkurborgar er gert ráð fyrir rúm-
um 1,3 milljörðum til dagvistar-
mála og er það 2% hækkun miðað
við síðastliðið ár. Til bygginga
nýrra leikskóla er áætlað að verja
227 milljónum, til kaupa og breyt-
inga á húsnæði 80 milljónum, til
viðbygginga á eldra húsnæði 61
milljón og til annarra ótilgreindra
leikskóla 41 milljón. Til lóðafram-
kvæmda við leikskóla er áætlað
að verja 41 milljón. Tillögur Sjálf-
stæðisflokksins gera ráð fyrir um
1,2 milljarði til reksturs leikskóla
og 280 milljónum til byggingar-
framkvæmda.
Hærri styrkur til einka-
rekinna leikskóla
Borgargstjóri sagði við fyrri
umræðu um fjárhagsáætlun borg-
arinnar að ákvörðun hafi verið tek-
in um að hækka rekstrarstyrki til
einkarekinna leikskóla og verður
hann framvegis 12 þús. á mánuði
fyrir barn í heilsdagsvistun. Fram-
kom að um 500 foreldrar nýttu sér
á síðasta ári 6.000 króna greiðslu
með hverju barni fyrir að vera
heima með börnum sínum. Engin
ákvörðun hefur verið tekin um hvort
greiðslurnar verða lagðar niður.
65 leikskóladeildir vantar
Fram kom að könnun hafi verið
gerð á óskum foreldra barna á
aldrinum sex mánaða til fimm ára
um leiksk.ólaþörf og bárust svör
frá 30% foreldra með böm á leik-
skólum en frá 45% foreldra barna
utan leikskóla. Umsóknarblað fyrir
heilsdagsvist fylgdi könnunarblað-
inu og var öllum foreldrum gefínn
kostur á að sækja um fyrir böm
sín. Verður áhersla lögð á vist fyr-
ir börn á aldrinum 3ja til 5 ára
fyrst um sinn en niðurstaða könn-
unarinnar benti til að 65 leikskóla-
deildir vantaði í Reykjavík til að
uppfylla óskir foreldra um leik-
skólavist. Talið er að stofnkostnað-
ur gæti orðið 1,7 milljarður ef um
nýbyggingar yrði að ræða, sagði
borgarstjóri.
I máli borgarstjóra kom fram
að á þessu ári verða framlög til
stofnkostnaðar leikskóla meira en
tvöfölduð eða úr 223,5 milljónum
í 450 milljónir. Reiknað sé með að
á kjörtímabilinu öllu verði varið
samtals 1,5 til 1,7 milljarði til að
fjölga rýmum á leikskólum auk
annarra úrræða. Öllum foreldrum
verður gefinn kostur á leikskóla-
rými en í fyrstu atrennu verður
lögð áhersla á að börnum þriggja
ára og eldri verði gefinn kostur á
heilsdagsvistun og haustið 1996
verður athygli beint að tveggja til
þriggja ára börnum, sagði borgar-
stjóri.
Þrír nýir leikskólar
Jafnframt kom fram að hafnar
yrðu framkvæmdir við þijá fyög-
urra deilda leikskóla, sem rúma
80 börn hver í heilsdagsvistun.
Gert væri ráð fyrir að tveir þeirra
við Laufrima og Laugarnesskóla
yrðu nær fullbúnir á árinu en þriðji
skólinn yrði að öllum líkindum full-
búinn 1996. Ráðist verður í við-
byggingar við Kvistaborg, Brákar-
borg, Brekkuborg og Gullborg og
hafist handa við byggingu leik-
skóla í samvinnu við Félagsstofnun
stúdenta. Ætla má að með upp-
byggingunni fjölgi heilsdagsrým-
um um 350 á árinu.
Tillögur Sjálfstæðisflokks
í tillögu sjálfstæðismanna í dag-
vistarmálum segir að í samræmi
við yfirlýsta stefnu flokksins sýni
áætlun þeirra hvernig unnt sé að
útrýma biðlistum eftir leikskólum
2ja til 5 ára barna á næstu 2 árum.
Gert sé ráð fyrir að á þeim árum
bætist við 900 ný leikskólarými
fyrir þennan aldurshóp, þar af
fjórðungur sem heilsdagsrými.
Lagt er til að opnaðar verði 12
deildir og samkvæmt því er gert
ráð fyrir að rekstrarkostnaður á
árinu yrði um 1,3 milljarðar eða
rúmlega 127 þúsund fyrir hvert
barn í Reykjavík.
Þá er gert ráð fyrir byggingu
þriggja fjögurra deilda leikskóla í
Grafarvogi, Laugarnesi og í Bú-
staðahverfi auk áframhaldandi
aukinnar þjónustu við eldri skóla
og viðbyggingar við leikskólanna
við Brekkuhús í Grafarvogi og
Gullborg í Vesturbæ.
Skákþing Reykjavíkur
Þröstur
efstur með
6V2 vinning
SJÖUNDA
umferð af ell-
efu var
sunnudaginn
22. janúar sl.
og urðu helstu
úrslit eftirfar-
andi:
Þröstur
Þórhallsson
vann Júlíus
Friðjónsson,
Arnar E. Gunnarsson vann Magn-
ús Pálma Örnólfsson, Páll Agnar
Þórarinsson vann Boga Pálsson,
Arnar Þorsteinsson vann Braga
Þorfinsson, James Burden vann
Ögmund Kristinsson, Jón G. Við-
arsson vann Halldór Garðarsson,
Hörður Garðarsson vann Pétur
Gíslason, Jóhann Helgi Sigurðsson
vann Jón Viktor Gunnarsson og
Kristján Eðvarðsson vann Heimi
Ásgeirsson.
Staða efstu manna:
1. Þröstur Þórhallsson, 6V2 vinn-
ing af 7, 2.-3. Arnar E. Gunnars-
son, 6, 2.-3. Páll Agnar Þórarins-
son, 6, 4.-6. Júlíus Friðjónsson,
5'/2, 4.-6. Arnar Þorsteinsson, 5‘/2,
4.-6. James Burden, 5lh, 7.-12.
Magnús Pálmi Ömólfsson, 5,
7.-12. Bogi Pálsson, 5, 7.-12. Jón
G. Viðarsson, 5, 7.-12. Hörður
Garðarsson, 5, 7.-12, Jóhann
Helgi Sigurðsson, 5, 7.-12. Krist-
ján Eðvarsson, 5.
Næsta umferð verður tefld mið-
vikudaginn 25. janúar nk. kl.
19.30.
Þröstur Þórhallsson
DALEIÐSLA
HÆTTU AÐ REYKJA
Á FJÓRUM TÍMUM
Á aðeins fjórum tímum
losnar þú við alla löngun og
vöntun gagnvart reykingum.
Fjöldi takmarkast við átta manns
á hvert námskeið.
NÁÐU STJÓRN Á MATARÆÐINU
Á FJÓRUM TÍMUM
Með dáleiðslu er miklu auðveldara
að ná fullkominni stjórn á mataræðinu.
Skjótur og varanlegur árangur.
Fjöldi takmarkast við átta manns á hvert námskeið.
HVAÐ SEGJA ÞAU UM DALEIÐSLUMEÐFERÐINA?
Sölvi Magnússon:
Ég reykli tvo og hálfen
pakkaádag en 11.
september 1991 íörég
til Priðriks. Síðanþá
hdur ekki hvarflað að
mér að reykja.
Jónína
Gunnarsdóttir:
Ég hætti að reykja í
janúar 1992 og
þakka dáleiðslu hjá
Friðriki Páli hversu
auðvelt það var fyrir
mig að hætta.
Guðmundur
Sigurgeirsson:
Þann 6. janúar
1992 hætti ég
að reykja með
hjálp dáleiðslu
hjá Friðriki Páli.
Friörik Páll Ágústsson
R.P.H., C.Ht
I iann er sérraenntaður í
dáleiðslumeðferð og hefur
fengið viðurkenningar fyrir störf
sín bæði hér á landi og erlendis.
Friðrik hefur unnið víða um
heim við dáleiðslu.
Viöurkenndur af International Medical
and Dental Hypnotherapy Association.
UPPLÝSINGAR í SÍMA 5870803
Einnig bjóðast einkatfmar í dáleiðslumeðferð við ýmsum kviilum.