Morgunblaðið - 24.01.1995, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLA.ÐIÐ
PRÓFKJÖR ALÞÝÐUFLOKKSINS í REYKJANESKJÖRDÆMI
Metþátttaka í prófkjöri Alþýðuflokks á Reykjanesi
Rannveig hlaut rúm
52% í efsta sæti
1. 2. 1.-2. 3. 3.-4. 4. alls % sæti % alls af rildum atkv.
Rannveiv Guðmundsdóttir 4535 1731 6266 693 6959 568 7527 52,02 86.34
Guðmundur Árni Stefánsson 3701 97R 4679 638 5317 610 5927 42,45 67.99
Petrína Baldursdóttir 233 2707 2940 2143 5083 1438 6521 2,67 74.80
Hrafnkell Óskarsson 171 1475 1646 1704 3350 1696 5046 1,96 57.88
Elín Harðardóttir 30 536 566 1521 2087 1746 3833 0,34 43.97
Gissur Gottskálksson 26 785 811 1143 1954 1300 3254 0,29 37.32
Garðar Smári Gunnarsson 21 505 526 880 1406 1358 2764 0,24 31,70
Alls kusu 8791. Gild atkvæði voru 8717, auðir og ógildir voru 74.
Rannveig Guðmundsdóttir
Gefur mér
sterkt vægi í for-
ystusveitinni
RANNVEIG Guðmundsdóttir, fé-
lagsmálaráðherra, hlaut rúm 52%
atkvæða og bindandi kosningu í 1.
sæti framboðslista Alþýðuflokksins
í Reykjaneskjördæmi við komandi
alþingiskosningar í prófkjöri sem
haldið var um helgina. Guðmundur
Ámi Stefánsson, varaformaður
flokksins og alþingismaður, varð í
öðru sæti og hlaut 834 atkvæðum
færra en Rannveig í 1. sætið, sem
hann sóttist einnig eftir. Fjórir efstu
menn hlutu bindandi kosningu í
prófkjörinu, sem 8.791 kjósandi tók
þátt í en um 3.500 kusu í prófkjöri
flokksins fyrir alþingiskosningarnar
1987.
í þriðja sæti í prófkjörinu varð
Petrína Baldursdóttir, alþingismað-
ur og Hrafnkell Óskarsson, læknir
í Keflavík hlaut fjórða sæti.
Rannveig Guðmundsdóttir hlaut
4.535 atkvæði í 1. sæti og 7.527
atkvæði alls, sem er 86,34% af gild-
um atkvæðum. Guðmundur Arni
hlaut 3.701 atkvæði í fyrsta sæti,
42,45%, og 5.927 atkvæði alls, sem
er 67,99% gildra atkvæða. Petrína
Baldursdóttir hlaut alls 6.521 at-
kvæði, eða 74,80% og þar af 5.083
atkvæði í 1.-3. sæti. Hrafnkell Ósk-
arsson hlaut alls 5.046 atkvæði eða
57,88% greiddra atkvæða.
Sjö tóku þátt í prófkjörinu. í
fimmta sæti varð Elín Harðardóttir,
sem hlaut 3.833 atkvæði, sjötti
varð Gissur Gottskálksson, með
3.254 atkvæði og í sjöunda sæti
varð Garðar Smári Gunnarsson,
sem hlaut 2.764 atkvæði.
Fjögur efstu hlutu bindandi kosn-
ingu en til þess þurfti frambjóðandi
að hljóta 25% þess atkvæðamagns
sem Alþýðuflokkurinn í kjördæminu
hlaut í síðustu kosningum, að sögn
Sigþórs Jóhannessonar, formanns
kjörstjórnar.
Við kosningarnar 1991 hlaut
Alþýðuflokkurinn 9.025 atkvæði í
Reykjaneskjördæmi. Því þurfti
2.257 atkvæði í hvert sæti til að
kosningin teldist bindandi. Allir sjö
frambjóðendurnir voru vel yfir því
marki en aðeins kosninga fjögurra
efstu telst bindandi en kjósendur
áttu að velja fjóra frambjóðendur
og raða þeim í sæti.
Þátttakan nálgast kjörfylgi
síðast
Eins og fyrr sagði tóku 8791
kjósendur þátt í prófkjörinu og
nálgast þátttakan því kjörfylgi
flokksins í síðustu kosningum. Rétt
til þátttöku höfðu allir stuðnings-
menn Alþýðuflokksins í kjördæm-
inu sem öðlast kosningarétt fyrir
18. apríl og einnig flokksbundnir
ungir jafnaðarmenn sem náð hafa
16 ára aldri.
Metþátttaka í Kópavogi
í Hafnarfirði voru kjósendur
2.824, 2.479 Kópavogsbúar tóku
þátt og er það mun meira en dæmi
eru um í fyrri prófkjörum flokks-
ins, en innan við 1.000 Kópavogsbú-
ar tóku þátt í prófkjöri vegna bæjar-
stjómarkosninganna í vor. 1.248
Keflvíkingar greiddu atkvæði í
prófkjörinu, 751 Grindvíkingur tók
þátt, 538 Garðbæingar, 424 íbúar
Njarðvíkur, 167 greiddu atkvæði í
Sandgerði, 147 á Seltjamarnesi,
140 í Mosfellsbæ og 73 i Vogum.
„ÉG er afar ánægð með þennan
kosningasigur og það að skipa efsta
sætið í Reykjanes áfram. Það að
hafa fengið til þess svona afgerandi
stuðning mun gefa mér mjög sterkt
vægi í forystusveit flokksins," sagði
Rannveig Guðmundsdóttir, sigur-
vegari prófkjörs Alþýðuflokksins á
Reykjanesi.
„Þetta er sterkur listi og við vor-
um staðráðin í því að prófkjörið og
prófkjörsbaráttan yrði upphafið að
kosningabaráttu okkar og Reykja-
nes hefur stóru hlutverki að gegna
í Alþýðuflokknum. Við munum frá
og með þessari helgi stefna á mikla
sókn og ég er sannfærð um að þessi
mikla þátttaka í prófkjörinu er vís-
bending um að Alþýðuflokknum
mun takast að koma til skila hvað
hann hefur verið að fást við og
fyrir hvað hann stendur,“ sagði
Rannveig.
Guðmundur Árni á framtíð
fyrir sér
„Þrátt fyrir að Alþýðuflokkurinn
hafi legið lágt í skoðanakönnunum
hefur staðan í Reykjaneskjördæmi
verið mjög góð. Ég er sannfærð um
að við erum þar í sókn og er staðráð-
in í að hafa þar mjög sterk áhrif
og mikil ítök hvernig mál verað
lögð fram.“
Spurð um hvort hún teldi að í
próflcjörinú hefðu kjósendur fellt
dóm sinn yfír Guðmunda Áma Stef-
ánssyni um þau mál sem hann hef-
ur tengst og snerta Hafnarfjarð-
arbæ og aðdraganda afsagnar hans
úr ráðherraembætti sagði Rannveig
að það væri erfitt fyrir stjórnmála-
mann að vera með umdeild mál í
farteskinu þegar þeir gengju til
kosninga, ekki síst í prófkjöri þegar
menn legðu sjálfa sig undir.
„Engu að síður tel ég en Guð-
mundur Árni hafi skilgreint mjög
vel sín mál. Hann hefur gert það
sem hefur ekki verið áður gert þeg-
ar hann sagði af sér vegna þeirrar
gagnrýni sem hann fékk. Mér hefur
fundist að hann hafi hafi rétt sig
vel af eftir þau áföll sem hann varð
fyrir. Ég held að hann eigi mikla
framtíð fyrir sér í íslenskum stjórn-
málum og er sannfærð um að okk-
ar listi er sigurstranglegur eins og
hann kemur út úr þessu prófkjöri."
Aðspurð um skýringar á meiri
kosningaþátttöku í Kópavogi en
dæmi væru um sagði Rannvegi að
frá 1978 og þar til hún tók sæti á
þingi fyrir 6 árum hefði enginn
Kópavogsbúi setið á Alþingi. Þótt
hún teldi ekki að hún sjálf hefði
fengið öll atkvæði í 1. sæti þar í
bæ og Guðmundur Árni öll atkvæði
Hafnfirðinga þá teldi hún að í kjöl-
far umræðu í fréttum um að Kópa-
vogur væri slakur prófkjörsbær
hefði eitthvað gerst í bænum enda
hefðu bæjarbúar talið þýðingamikið
að eiga fulltrúa á þingi og ljóst virt-
ist að Rannveig væri eini Kópavogs-
búinn sem ætti möguleika á þing-
sæti í næstu kosningum. „Ég túlka
það sem viðurkenningu Kópa-
vogsbúa á því að þeim þyki góður
kostur að Rannveig Guðmundsdótt-
ur verði áfram á Alþingi," sagði
hún.
Guðmundur Árni Stefánsson
Hrein vakning jafnaðar-
manna í Kópavogi
Petrína
Baldursdóttir
Mjög sátt
við út-
komuna
ÉG sóttist eftir 2.-3. sæti og
taldi mig eiga raunhæfar vonir
um að ná þriðja sætinu og ég
er mjög sátt við þá útkomu sem
ég fékk,“ sagði Petrína Bald-
ursdóttir, alþingismaður, sem
varð í 3. sæti í prófkjöri Al-
þýðuflokksins á Reykjanesi.
„Þátttaka í prófkjörinu var
gífurlega góð og er mikill
styrkur fyrir flokkinn," sagði
Petrína, sem sagðist mjög sátt
við listann eins og hann liti út
eftir prófkjörið og teldi hann
mjög sigurstranglegan.
Petrína sagðist fyrst og
fremst þakka mikilli vinnu
stuðningsmanna sinna það hve
góða útkomu hún hefði fengið
í prófkjörinu. „Ég hef líka talið
að mín staða innan flokksins
væri þannig að ég gæti vænst
þess að flokksfélagar mínir
vildu sjá mig ofarlega á Iista,“
sagði Petrína Baldursdóttir.
„AUÐVITAÐ eru það ákveðin von-
brigði að ég skuli ekki hafa náð
því markmiði sem ég miðaði að'en
á hinn bóginn undirstrikar þessi
árangur minn styrk minn og Al-
þýðuflokksins í kjördæminu,“ sagði
Guðmundur Ámi Stefánsson, eftir
að fyrir lá að hann hafði hlotið 2.
sætið í prófkjöri Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi en ekki 1. sæt-
ið sem hann sóttist eftir. „Það vek-
ur auðvitað sérstaka athygli að það
hefur orðið feykileg uppsveifla hjá
Alþýðuflokknum í Kópavogi og ef
litið er til þátttöku þar sýnist mér
að Alþýðuflokkurinn hljóti að skila
ekki aðeins þremur heldur fjórum
þingmönnum í kosningunum í
apríl.“
„Umfram allt þá er þátttaka í
kjördæminu öllu mikil og góð. Hér
í Hafnarfirði var hún hefðbundin
og í samræmi við það sem verið
hefur áður enda er hér traustasta
fylgi í kjördæminu og landinu öllu.
í Kópavogi vekur það hins vegar
athygli og ánægju hvílík upp-
sveifla þar virðist vera hjá Alþýðu-
flokknum," sagði Guðmundur
Árni.
Aðspurður hveija hann teldi
skýringuna á að hann hefði ekki
náð því markmiði að hreppa fyrsta
sætið sagði Guðmundur Ámi. „Það
gefur augaleið að þessi nýja vakn-
ing jafnaðarmanna í Kópavogi er
skýringin á því að ég verð undir í
baráttu við Rannveigu Guðmunds-
dóttur. Þar hefur orðið hrein og
klár vakning.
Að öðru leyti er ég ánægður með
með minn hlut eftir alla þá orra-
hríð sem hefur gengið gegn mér á
hinu pólitíska sviði á umliðnum
mánuðum og ekki síst í [Morgun-
blaðinu] undanfarna daga gagn-
vart Hafnarfjarðarmálum. Þar hef-
ur ekki gengið á öðru en að níða
niður Hafnarfjörð og Hafnarfjarð-
arkrata fyrst og síðast. Tilgangur-
inn hefur oft helgað meðalið í því
efni og Morgunblaðið brugðið sér
í.sitt gamla líki,“ sagði Guðmundur
Árni.
Um það hvort hann liti á niður-
stöðuna sem dóm kjósenda í þeim
málum sem upp hafa komið í kring-
um sveitarstjórnarmál í Hafnarfirði
og aðdraganda afsagnar sinnar úr
ráðherraembætti sagði Guðmundur
Árni: „Dómur kjósenda er skýlaus.
Kjósendur undirstrika þúsundum
saman að ég eigi að leiða þennan
lista þrátt fyrir linnulausan áróður
fjölmiðla. 3.700 atkvæði er tvöfalt
það fylgi sem oddviti Sjálfstæðis-
flokksins fékk í þessu kjördæmi.
Það er ljóst að þeir sem styðja mig
gera það heils hugar og augljóst
að menn taka svarthvíta afstöðu
til stjómmálamannsins Guðmundar
Árna þannig að mitt fylgi er
traust.“
Guðmundur Árni sagðist telja
það gefa augaleið að eins og kosn-
ingareglur væru ætti 2. sæti Al-
þýðuflokks á Reykjanesi að vera
öruggt þingsæti.
Líst vel
á listann
„MÉR líst mjög vel á þann lista
sem kemur út úr prófkjörinu. Ég
skal ekki leggja mat á sjálfan mig
en ég held að þetta sé mjög sterkt
og líst vel á baráttuna framund-
an,“ sgaði Hrafnkell Óskarsson,
Iæknir í Keflavík, sem hlaut 4.
sæti í prófkjöri Alþýðuflokksins á
Reykjanesi.
„Ég er mjög ánægður með mína
útkomu, sem er betri en menn
þorðu að vona. Ég sóttist eftir 3.
sætinu og ég held að flestum hafi
þótt nógu frekt af mér sem nýliða
að vilja komast í 4. sætið á eftir
þingmönnunum. Ég kom seint inn
í þetta; bæði er ég nýliði í starfinu
og kom ekki inn í þennan slag fyrr
en í desember. Umfjöllunin um
þessar kosningar er nær engin af
ýmsum ástæðum auk þess sem við
samþykktum að halda kostnaði og
auglýsingaflaumi niðri sem gerir
þeim sem ekki eru þekktir að þing-
mennsku eða öðru erfitt fyrir. Eg
átti mjög gott fylgi á Suðurnesjum
og held að ég hafi verið í 2. eða
3. sæti á flestum atkvæðaseðlum
þaðan,“ sagði Hrafnkell Óskarsson.