Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
SH tryggir 80 störf hald
ist viðskiptin við ÚA
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna, SH er tilbú-
in til að tryggja samtals 80 störf á Akureyri
verði viðskipti með afurðir Útgerðarfélags Akur-
eyringa ekki flutt frá SH auk þess sem í athug-
un er að flytja enn fleiri störf til Akureyrar.
Um er að ræða sérstaka stofnun SH á Akur-
eyri með 31 starf, stofnun fyrirtækis um um-
búðavinnslu með 38 störf, 10 störf í flutningam-
iðstöð Eimskips og 1 starf með stofnun prófess-
orsembættis við Háskólann á Akureyri. Fulltrúar
í stjórn SH kynntu tilboð sitt til eflingar atvinnu-
lífs á Akureyri á fundi í gær með viðræðuhópi
Akureyrarbæjar sem skipaður var til að ræða
við þá aðila sem sýnt hafa áhuga á kaupum á
53% hlut bæjarins í Útgerðarfélagi Akureyringa.
Jón Ingvarsson formaður stjómar SH sagði
að loknum fundinum í gær að tilboðið væri ijór-
þætt, að SH flytji umtalsverðan hluta starfsem-
in sinnar til Akureyrar, að SH beiti sér fyrir því
að efla atvinnustarfsemi í bænum með ýmsum
hætti, að SH stuðli að bættri aðstöðu til að
gera Akureyri að miðstöð flutninga til og frá
landinu með því að þar verði mikilvæg inn- og
útflutningshöfn og að lokum að taka þátt í að
efla Háskólann á Akureyri.
Heilsársstörf hjá SH eru að jafnaði milli 80
og 90 talsins og er i tilboð SH til Akureyrarbæj-
ar gert ráð fyrir að þriðjungur þeirra eða um
30 störf verði unnin á Akureyri. Þetta eru störf
á sviði markaðsmála, afskipunar, skjalagerðar,
flutningamála, innkaupadeildar, skoðunarstofu,
vörulagers auk vöruþróunar og rannsókna. Þá
myndi hluti yfirstjómar SH verða á Akureyri.
Verði gengið að tilboði SH mun Umbúðamið-
stöðin stofna til atvinnurekstrar á Akureyri, um
yrði að ræða alls 38 störf í þremur deildum með
samtals veltu upp á 435 milljónir á ári.
Meirihluti í Slippstöðinni
Jöklar hf. dótturfyrirtæki SH, raf-
eindafyrirtækið DNG í Glæsibæjarhreppi og
Málning hf. í Reykjavík hafa tryggt sér kaup á
meirihluta hlutabréfa í Slippstöðinni og líta
SH-menn á kaupin sem mikilvægan þátt í að
bregðast við beiðni Akureyringa um aukin
umsvif í bænum.
Aukin verkefni vegna viðkomu millilandaskipa
em einnig nefnd í tilboði SH, en slíkt skapi
möguleika á aukinni viðhaldsþjónustu og
gámaviðgerðum. Þá er nefnt að útflutningsmagn
frá Akureyri gæti tvöfaldast í kjölfar þess að
beinar viðkomur millilandaskipa Eimskips
aukist, en gert er ráð fyrir í tillögunum að á
vegum Eimskips yrðu til 10 ný störf á Akureyri.
Prófessorstaða við
Háskólann á Akureyri
Þá býður SH Háskólanum á Akureyri að setja
á stofn og kosta eina prófessorsstöðu t.d. í
markaðsfræðum sjávarafurða. Þá er SH
reiðubúin til að standa fyrir forkönnun á því
með hvað hætti Háskólinn gæti orðið alþjóðlegur
sj ávarútvegsskóli.
Auk þess er unnið að athugun þess Jöklar
hf. hvort fýsilegt sé að Jöklar hf. flytir starfsemi
sína til Akureyrar en þar starfa að jafnaði 27
manns og þá hefur SH beitt sér fýrir samstarfi
íslenskra ígulkera í Njarðvíkum og Hafsólar á
Svalbarðseyri sem felur í sér aukna vinnslu
ígulkera við Eyjafjörð.
Tillögur SH til eflingar atvinnulífs á Akureyri
eru byggðar á þeirri forsendu að SH og ÚA fái
áfram að starfa saman að útflutnings- og
markaðsstarfsemi ÚA. „Við kynntum okkar
tilboð og fengum ágætar viðtökur,“ sagði Jón
Ingvarsson.„Eg er bjartsýnn á að, það sem við
bjóðum upp á dugi til að viðskipti okkar við ÚA
haldist óbreytt."
Brýnt er að taka
upp kvöldþjónustu
fyrir aldraða
BÆJARRAÐ
Akureyrar gerir
ekki athugasemd
við að félags-
málaráð taki upp
kvöldþjónustu
rúmist kostnaður
innan ramma
fj árhagsáætlun-
ar ársins. í fjáv-
hagsáætlun fyrir
árið 1995 er tek-
in inn ný fjárveit-
ing upp á 1,5
milljónir króna til
að auka heima-
þjónustu en eftir-
spurn jókst mjög
eftir heimaþjón-
ustu á Iiðnu ári.
Heilsugæslustöð-
in á Akureyri
hætti í desember
síðastliðnum að
veita heimahjúkr-
un að kvöldlagi
en nú liggja fyrir
beiðnir frá heilsugæslulæknum
um kvöldþjónustu fyrir nokkra
aldraða einstaklinga.
„Félagsmálaráð telur ákaf-
Flotkví austan
við skemmu
Slippstöðvarinnar-
Odda
AÐ áliti þýsks prófessors er
möguleiki á að koma flotkví
þeirri sem Akureyrarhöfn hefur
keypt frá Litháen fyrir austan
við stóru skemmu Slippstöðvar-
innar-Odda. Gangi sú hugmynd
upp þarf ekki að byggja grjót-
garð eins og fyrirhugað hafði
verið og lækkar það mjög kostn-
að við aðstöðuna sem skapa
þarf fyrir flotkvína. Á vegum
Lloyd’s í Þýskalandi er nú unnið
að útreikningum sem nauðsyn-
legir eru til að taka ákvörðun
um staðsetningu kvíarinnar og
er gert ráð fyrir að endanlegrar
niðurstöðu í málinu megi vænta
eftir um hálfan mánuð að sögn
formanns hafnarstjórnar.
lega brýnt og
hagkvæmt að nú
verði tekin upp
kvöldþjónusta
innan ramma
heimaþjón-
ustunnar. Ráðið
óttast að verði
þessari viðbót-
arfjárveitingu
varið til að hefja
kvöldþjónustu
muni fjárveiting
dagþjónustunn-
ar vart endast
út árið.
Hér er því
mikill vandi á
höndum," segir í
bókun fundar fé-
lagsmálaráðs en
þar er málinu
vísað til bæjar-
ráðs og óskað
hollra ráða þess,
m.a. um það
hversu með skuli
fara ef allt veltur á verri veg
og fé til heimaþjónustu þverr
fyrir áramót vegna tilkomu
kvöldþjónustunnar.
Kínverjar óska
eftir samvinnu
við hafnargerð
í Kína
FULLTRÚAR vinabæjar Akur-
eyrar í Kína, Cangzhou í Hebei
fylki, hafa ritað Akureyrarhöfn
bréf þar sem gerð er grein fyr-
ir fyrirhuguðum framkvæmd-
um við höfn þar í borg og spurst
fyrir um áhuga Akureyrarhafn-
ar á samvinnu á sviði tækni og
eða fjármála.
Einar Sveinn Ólafsson fo-
maður hafnarstjórnar sagði að
Akureyrarhöfn ekki eiga mögu-
leika á að leggja fram fé til
hafnargerðar í Kína en væntan-
lega yrði í svarbréfi bent á
ágætar verkfræðistofur í bæn-
um varðandi samvinnu á tækni-
sviðinu.
Innbrot í
Myndbanda-
höllina
BROTIST var inn í Mynd-
bandahöllina og skyndibita-
staðinn Jón Sprett um helgina
en innbrotið var tilkynnt til
lögreglu á sunnudagsmorgun.
Þeir sem voru þar að verki
brutu upp rúðu til að komast
inn.
Stolið var skiptimynt, vindl-
ingum, myndböndum og sæl-
gæti. Málið er í rannsókn.
Lögregla var tvívegis kölluð
á vettvang vegna vatnsleka
um helgina, fyrst í íbúðarhús
við Eiðsvallagötu en síðan í
Bókabúðina Eddu við Hafnar-
stræti 100, en þar hafði snjór
á svölum bráðnað með þessum
afleiðingum. Samkvæmt upp-
lýsingum varðstjóra lögregl-
unnar varð ekki stórvægilegt
tjón af völdum vatnslekanna.
Harður árekstur varð á Ak-
ureyri í gærdag á mótum
Hrafnagilsstrætis og Mýrar-
vegar. Engin meiðsl urðu á
fólki en bílarnir stórskemmdust
og voru fluttir á brott með
kranabíl.
Morgunblaðið/Hermína
DALVÍKIN G AR hafa eignast nýjan snjótroðara, en uppbygging skíðasvæðisins
í Böggvisstaðafjalli hefur verið ört vaxandi síðustu ár.
Nýr snjótroðari
tekinn í notkun
Dalvík. - Á Dögunum tók Skíð-
afélag Dalvíkur í notkun nýjan
snjótroðara í Böggvisstaðafjalli.
Troðarinn er nýlegur og lítið
notaður og er keyptur frá ítölsku
verksmiðjunum Leitner, en hann
er sömu gerðar og eldri troðari
skíðafélagsins. Upphaflega var
hann keyptur til Japans þar sem
hann hafði aðeins verið I notkun
í um 300 klukkustundir en hing-
að komin kostar hann 7,650 millj-
ónir með virðisaukaskatti.
Dalvíkurbær fjármagnar
kaupin ásamt Skíðafélagi Dalvík-
ur með því að leggja fram 2
milljónir króna, skíðafélagið tek-
ur síðan lán fyrir afganginum
sem Dalvíkurbær gekkst í
ábyrgð fyrir.
Mikíl uppbygging
síðustu ár
Uppbygging Skíðafélagsins í
Böggvisstaðafjalli hefur farið ört
vaxandi síðustu ár. Þar eru nú
tvær lyftur, alls um 1.200 metra
langar, sem bjóða upp á mikla
möguleika til skíðaiðkunar í fjall-
inu. Þá hafa Dalvíkingar tekið
að sér æ fleiri skíðamót á síðustu
árum og m.a. haldið alþjóðlegt
skíðamót. Nýleg þjónustumiðstöð
hefur breytt allri aðstöðu skíða-
fólks á staðnum og ekki síst
þeirra sem starfa í fjallinu. Þar
er boðið upp á gistingu og fæði
eftir því sem óskað er og léttar
veitingar þegar skíðasvæðið er
opið.
Aukin aðsókn heimamanna og
aðkomufólks síðustu ár kallar á
auknar kröfur til skíðasvæðisins
en eftir tilkomu nýrrar sundlaug-
ar rétt neðan skíðasvæðisins hafa
þessi íþróttamannvirki tengst
saman með skemmtilegum hætti,
en gott gönguskíðasvæði er í
hólunum á milli sundlaugarinnar
og skíðalyftnanna.
Sjálfboðavinna
Skiðasvæðið fer óðum stækk-
andi og umsvifin aukast en eftir
sem áður fer þar fram mikil sjálf-
boðavinna sem léttir mjög rekst-
ur slíks svæðis og gerir það að
verkum að reksturinn hvílir ekki
eins þungt á bæjarfélaginu og
ætla mætti.
Guðbjartur
Ellert fram-
kvæmdastjóri
Glits
GUÐBJARTUR Ellert Jónsson
viðskiptafræðingur á Akureyri
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóiá keramikfyrirtæk-
isins Glits í Ólafsfirði.
Fyrirtækið var keypt úr
Reykjavík síðla á liðnu ári og
hefst starfsemi þess í Ólafsfirði
eftir nokkrar vikur, en fram-
kvæmdastjórinn hefur þegar
tekið til starfa.
Guðbjartur Ellert starfaði að
markaðs- og sölustörfum hjá
Gúmmívinnslunni á Akureyri
og þá var hann við svipuð störf
hjá Niðursuðuverksmiðju K.
Jónssonar á Akureyri áður.
Eiginkona hans er Anna Lára
Finnsdóttir og eiga þau tvö
börn.
Kyrrðarstund
KYRRÐARSTUND verður í
Glerárkirkju í hádeginu á morg-
un, miðvikudaginn 25. janúar
frá kl. 12.00 til 13.00. Orgelleik-
ur, helgistund, altarissakra-
menti og fyrirbænir. Léttur
málsverður að stundinni lokinni.