Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 15 I I Tólf snjóflóð hafa fallið í Gilsfirði síðustu daga Miðhúsum - Vegurinn frá Múla að Gilsfjarðarbrekku er hættusvæðj hvað varðar snjóflóð og hálku. í þessu veðri sem nú hefur geisað hafa fallið 12 snjóflóð í Gilsfirði. Mest er vitað um 13 flóð. Gilsíjörður er nú lokaður vegna snjóflóðahættu. 17 þ.m. féll snjóflóð yfir útihús á bænum Grund á Reykjanesi og þar fórst bóndinn Ólafur Sveinsson og sonur hans Unnsteinn Hjálmar liggur á gjör- gæslu í Reykjavík. Snjóflóðið tók hlöðu, fjós og ijárhús og drápust um 200 fjár, en um 50 ær eru nú á lífi. Aflífa þurfti margar slasaðar kindur. Allir nautgripir drápust en þar munu hafa verið um 20 kýr og kelfdar kvígur. Hins vegar björguð- ust 6 kálfar. Tveir hestar drápust, öll verkfæri eru meira og minna skemmd og öll hænsni og endur drápust. Snjóflóðið var um 3 metrar á þykkt og um 250 m breitt. Hlíðin fyrir ofan Grund er um 306 metra há og allbrött. Hátt í þrjátíu manns unnu að Grund við afar erfiðar aðstæður því ekki var stætt í verstu hryðjunum. Þijá bæi varð að rýma aðfaranótt sunnudags vegna ótta við snjóflóð. Snjóflóð féll milli Skerðingsstaða og Miðjaness og tók þijá rafmagns- staura svo að rafmagnslaust varð á bæjum utan Reykhóla. Snjóflóð féll einnig á sumarbústað á Miðja- nesi og eyðilagði hann. Rafmagns- laust var í Gufudalssveit í nær viku en er nú komið á. Hins vegar hefur starfsmönnum Orkubúsins tekist vel að sinna viðgerðum í nær óstæð- um hríðarveðrum. Helmingur fjárhúsanna á Höllu- stöðum fauk en þau voru fjárlaus. Þak og viðir fuku í Bæ í Króksfírði en hægt var að koma fénu í hús á næsta bæ. Rúður brotnuðu í íbúðar- Endurbótum á sjúkrahús- inu lokið Iívammstangi - Gagngerar endur- bætur hafa verið gerðar á Sjúkra- húsi Hvammstanga, sem varð 75 ára á liðnu ári. Þessum tímamótum var fagnað með hátíðarsamkomu 7. janúar. Húsið var opið almenn- ingi til sýnis sunnudaginn 8. jan- úar. Heimir Ágústsson, formaður bygginganefndar, lýsti fram- kvæmdum sem hann sagði hafa kostað um 55 milljónir króna. Hlut- ur ríksins var um 44 milljónir en heimamanna um 11 milljónir. Þá skýrði Heimir frá nýrri fram- kvæmd við stofnunina, sem er 822 fm nýbygging á tveim hæðum. Verkið er hafið og á að ljúka í október 1997, frágengnu að utan og 1. hæð fullbúin. Þessi fram- kvæmd mun kosta 64,6 milljónir króna. Sjúkrahúsinu bárust margar góðar gjafir og árnaðaróskir á þessum tímamótum og sóknar- grestar sýslunnar, sr. Guðni Þór Ólafsson og sr. Kristján Björnsson, blessuðu framkvæmdir og starf- semi hússins. Fulltrúar heilbrigðis- málaráðuneytis og landlæknis voru viðstaddir og fluttu kveðjur, einnig þingmenn, sveitarstjórnarmenn og fleiri. Að athöfn lokinni nutu gestir veglegra kaffiveitinga og var boðið að skoða húsið. Þar mátti m.a. sjá ýmis lækningatæki frá fyrri árum sjúkrahússins, en þessi búnaður verður í framtíðinni í sýningar- skápum í húsakynnunum. húsi á Mávatúni en bóndinn tók hurðir af fataskápum og hillur úr stofuskápum og negldi fyrir. Samgöngur lamaðar Eins og gefur að skilja lamast allar samgöngur og er innansveitar varla hægt að komast á mili bæja nema gangandi. Rúta Vestfjarða- leiðar er búin að vera hér veður- teppt á aðra viku. Læknislaust er á Reykhólum og það tók hjúkrunar- konuna okkar um 18 klst. að kom- ast í Reykhóla frá sínum heimabæ, Garpsdal í Geiradal. Allir vita sem hana þekkja að hún dregur hvergi af sér. Hins vegar var Kristín Ingi- björg Tómasdóttir forstöðukona Barmahlíðar þarna og hjálpaði þeim sem hjálp þurftu. Núna er Karlsey, skip Þörunga- verksmiðjunnar, í förum milli Reyk- hóla, Skarðsstöðvar og flutt eru farþegar, mjólk, matvæli og tæki. Veginum um Fellsströnd í Dala- sýslu er haldið opnum. Morgunblaðið/Ámi Helgason Kosningar undirbúnar ALLIR frambjóðendur D-listans á Vesturlandi hittust 7. janúar sl. í Stykkishólmi og skipulögðu kosningabaráttuna. Þeir heimsóttu fyrirtæki og stofnanir í Hólminum og fóru m.a. og skoðuðu St. Fransiskusspítalann og tóku systurnar á móti þeim og kynntu starfsemina sem þar fer fram. Var myndin tekin við það tældfæri. Árangur af samstarfí Hjartaverndar, Krabbameinsfélagsins, Manneldísráðs og Vöku-Helgafells: F.I5E/ (S'LAiNí'D { iVi', [ i: l\ - OG ALUR HOLLHU Matreiðslubókin Af bestu lyst hefur algjöra sérstöðu meðal matreiðslubóka á íslenskum markaði. Hér er afsönnuð sú kenning að það sem er hollt sé lítt spennandi! Aðgengílegar leiðbeíníngar um matreiðsluna, stig af stigi. Fallegar litmyndir af öllum réttum. Upplýsingar um hitaeininga- fjölda og magn mettaðrar og ómettaðrar fitu fylgja hverrí uppskrift. Uppskriftir að hollum og Ijíffengum rétbim Bfi E Bókía tr gefta úl í samriMU rið Hjartarerai, Krabbamáasféíagíð og Maaadinráð. VAKÁ-HELGAFELL "" Með matreiðslubókina AF BESTU LYST við höndina geturðu búið til girnilega, holla og góða rétti sem allir á heimilinu munu kunna að meta! Stórglæsileg matreiðslubók á gjafverði - aðeins 1.680 krónur! VAK4-HELGAFELL Síðumúla 6, 108 Rcykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.