Morgunblaðið - 24.01.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 19
FRÉTTIR: EVRÓPA
Santer tekur við af Delors
Hagsýnn en
lítill hug-
sjónamaður
Brussel. Reuter.
JAQUES Santer tók formlega við
embætti forseta framkvæmda-
stjórnar ESB í gær af Jacques Del-
ors, sem gegnt hefur starfinu und-
anfarin tíu ár. Athöfnin fór fram í
höfuðstöðvum sambandsins í Bruss-
el og tókust þeir Delors og Santer
í hendur fyrir framan bláan fána
með gylltum stjörnum en Delors
gerði hann að tákni ESB í valdatíð
sinni. Skömmu síðar gekk Delors í
burtu og sagði við Santer: „Gangi
þér vel“.
Fyrr um daginn höfðu utanríkis-
ráðherrar ESB setið á fundi og
gengið frá síðustu formsatriðunum
áður en framkvæmdastjórn Sant-
ers, gat tekið við völdum.
Nýja framkvæmdastjórnin verð-
ur við völd í fimm ár og mun und-
irbúa alla lagasetningu fyrir Evr-
ópusambandið. Stærsta verkefnið
framundan er ríkjaráðstefnan á
næsta ári en þar verður Maastricht-
samkomulagið endurskoðað.
Santer hefur lýst því yfir að hann
telji að á þeirri ráðstefnu verði ESB
að taka „risavaxið stökk" fram á
við en með því á hann við að efla
beri samrunaþróunina til muna.
Búist er við að Santer muni fylgja
svipaðri stefnu og Delors en hann
er þó mun minni hugsjónamaður
en forverinn. Stuðningsmenn Sant-
ers segja hann vera hagsýnan
stjórnanda þó að hann hafi ekki
sömu útgeislun og Frakkinn Delors.
Skipun Santers var málamiðlun
sem náðist eftir að Bretar höfnuðu
belgíska forsætisráðherranum Je-
an-Luc Dehaene í embættið. Hann
var þar til á föstudag forsætisráð-
herra Lúxemborgar.
Tuttugu manns skipa nýju fram-
kvæmdastjórnina, fimmtán karlar
og fimm konur. Hún hefur aldrei
verið jafnfjölmenn enda bættust
þijú ný aðildarríki við um áramótin.
HAR & FÖRÐUN
^xunaaD,
NONAME
COSMETICS —
Erla Magnúsdóttir
hárgreiðslumeistari
Mjöll Daníelsdóttlr
hárgreiðslumeistari
Iðunn H. Gylfadóttir
hárgreiðslumeistarí
Grensásvegi 50
sími 885566
I ------
Um leið og við þökkum
viðskiptavinum okkar
frábærar viðtökur
frá opnun stofunnar
þann 3. maí sl.
viljum við minna á:
t* Fría ráögjöfum hár og
umhirðu þess.
t Sérstök þjónusta fyrir bníöi.
t Árshátíöargreiðsla.
$ Förðun Kristín Stefánsdóttir.
t Opið á laugardögum
- sama verð.
Guðný Björk Sveinlaugsd.
hárgreiðslunemi
Opið mánud.-miðvikud. 9-18
fimmtudaga 9-20
föstudaga 9-19
laugardaga 10-16
FÖRÐUNARNÁMSKEIÐ
Skráning er nú hafin í hin
geysivinsælu förðunarnámskeið
Kristínar Stefánsdóttur.
# Eitt kvöld $ Persónuleg rá&gjöf
t* Dag- og t Aðeins 8 í hóp
kvöldfórðun
Kristín Stefánsdóttir
snyrti- og förðunar-
meistari.
Nýjung
Hágreiöslumeistari frá Prima
Donnu veitir hverri og einni
persónulega rábgjöf um eigið
hár og umhiröu þess.
Innritun og nánari upp-
lýsingar í síma 886525,
Ármúla 38, 2. hæb.
Reuter
SANTER og Delors í höfuðstöðvum ESB í gær.
Godal segir hagsmuni Noregs óbreytta
Samstarfið við ESB
verði mjög náið
ÁRVISS ræða norska utanríkisráð-
herrans, Bjoms Tores Godal, um
utanríkismál fjallaði að þessu sinni
nær eingöngu um Evrópumál. God-
al sagði í ræðu sinni á fimmtudag
að hagsmunir Noregs hefðu ekkert
breytzt þótt þjóðin hefði hafnað
aðild að Evrópusambandinu í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Norðmenn
hefðu áfram hagsmuni af sem nán-
ustu samstarfi við ESB-ríki, og
stefna ríkisstjórnar Verkamanna-
flokksins væri að það yrði sem allra
nánast.
Utanríkisráðherrann benti hins
vegar á að með því að Noregur
stæði nú utan ESB, hefði ríkið færri
möguleika til að hafa áhrif á al-
þjóðavettvangi og gæta hagsmuna
sinna. Þess vegna yrðu Morðmenn
að leggja meira fé og fyrirhöfn í
rekstur utanríkisstefnu sinnar en
áður. Samstarfið við Norðurlöndin,
sem væru innan ESB, væri mikil-
vægt og Norðmenn myndu íjölga
fólki í sendiráðum sínum þar.
Godal fjallaði talsvert um EFTA
og samninginn um Evrópskt efna-
hagssvæði. Hann benti á að enn
hefði ekki samizt um tollamál vegna
inngöngu Finnlands, Svíþjóðar og
Austurríkis í ESB. Það væri dæmi
um að EES-samningurinn tryggði
ekki hagsmuni Norðmanna.
Minna mark tekið á EES
Godal sagði að þegar aðeins ísland
og Noregur væru eftir EFTA-megin
á Evrópska efnahagssvæðinu, færi
ekkert á milli mála að Evrópusam-
bandið tæki minna mark á samningn-
um. Til lengri tíma litið gæti þetta
ójafnvægi haft áhrif á það, hvemig
EES-samstarfíð þróaðist.
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 5. febrúar nk. fylgir blaðauki sem heitir
Fjármál fjölskyldunnar. í þessum blaðauka verða ítarlegar upplýsingar sem nýtast
lesendum við útfytlingu skattaframtalsins, breytingar frá síðasta ári og bent á leiðir tii
lækkunar skatta. Einnig verður hugað að þeirri fjármálaþjónustu sem stendur
heimilunum til boða, og skoðaðar ýmsar sþamaðarieiðir, t.d. kaup á hlutabréfum og
öðrum verðbréfum. Þá verður fjallað um tryggingar og aðra útgjaldaliði heimilisins.
Þeim, sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekið er við
auglýsingapöntunum til kl. 17.00 mánudaginn 30. janúar.
Nánarí upplýsingar veitir Rakel Sveinsdóttir, sölufulltrúi í auglýsingadeild,
í síma 56911 71 eða með símbréfi 56911 10.
- kjarni málsins!