Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 25
I
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 25
Börn og sorg
BISKUP hefur hvatt alla
sem sinna börnum að huga
vel að viðbrögðum þeirra við
þeim atburðum sem átt hafa
sér stað á Vestfjörðum.
Okkur langar að koma
með leiðbeiningar sem gætu
orðið einhverjum að liði sem
annast og umgangast börn
í leikskólum, hjá dagmæðr-
um og í skólum en helst
vonumst við til að geta ver-
ið foreldrum stuðningur.
Þessi grein er ekki hugsuð
fyrir þau böm sem standa
næst sorginni. Þau börn og
aðstandendur þeirra þurfa
miklu meiri stuðning en hin
sem fjær standa.
Margt í greininni á ekki aðeins
við um börn heldur um okkur öll.
Sem foreldri eða kennari þörfn-
umst við sjálf að fá að tjá tilfinn-
ingar okkar og það getum við
gert að hluta til með börnunum
en við getum einnig þurft að fá
tækifæri til að ræða við aðra full-
orðna um sorg okkar og þau við-
brögð sem börnin sýna í sorg. Það
er vont að vera einn með sorg sína
og þess vegna er gott að finna
nálægð frá öðrum og vera saman,
finna gott handtak, faðmlag og
stuðning með nærveru.
Nálægð segir meira
en mörg orð
Börn á leikskólaaldri" gera sér
ekki alltaf grein fyrir dauðanum,
þau sjá hann ekki sem endanleg-
an. Þau eru aftur á móti mjög
opin fyrir líðan þeirra sem í kring-
um þau eru. Þess vegna er nauð-
synlegt að vera opin fyrir við-
brögðum þeirra og spurningum,
þannig að þau geti tjáð sorg sína
á sinn hátt. Aðferðir barns til að
tjá sorg sína eru oft leikur, teikn-
ing o.þ.h.
Það getur verið freistandi að
gera lítið úr dauðanum með því
að tala um hann „undir rós“, en
þá vekjum við falskar vonir hjá
börnunum t.d. um að sá sem er
dáinn komi aftur, lifni við. Þess
vegna er engin ástæða til þess að
ræða ekki við börnin um vitneskju
okkar um dauðann. Best er að
segja satt frá og horfast saman í
augu við það sem ekkert okkar fær
að fullu skilið.
Viðbrögð barna
Börn á grunnskólaaldri tjá oft
sorg sína og viðbrögð við sorgarat-
burðum með orðum og spyija
margs. „Hvers vegna, af hveiju?“
Slíkar spurningar verða mjög erf-
Guðný
Hallgrímsdóttir
Ragnheiður
Sverrisdóttir
Við getum bent barninu
á að snúa sér til Guðs
í vanlíðan sinni, segja
Guðný Hallgríms-
dóttir og Ragnheiður
Sverrisdóttir, og biðja
hann um styrk.
iðar andspænis sorgaratburðum.
Börnin skynja það óréttláta og til-
gangslausa í slíkum atburðum.
Þeim er þess vegna mjög eðlilegt
að skella skuldinni á Guð. „Hvers
vegna lætur Guð slíkt koma fyr-
ir?“ Það er mikilvægt að börnin
finni að við sem fullorðin erum,
skiljum slíkt ekki heldur, erum
jafn felmtri slegin og þau og síð-
ast en ekki síst að vilji Guðs er
ekki hið vonda og sorglega. Við
verðum að láta þau heyra að Guð
er góður. Hann er nálægur, hann
er til og hann stendur með okkur
þegar okkur líður illa. í stað þess
að ásaka Guð getum við bent bam-
inu á að snúa sér til Guðs í vanlíð-
an sinni og biðja hann um styrk.
Styrkurinn felst einnig í nálægð
okkar og samheldni.
Ef böm hafa upplifað sorg áður
er mjög líklegt að hún rifjist upp
við nýja sorgaratburði. Þá finnur
barnið oft hjá sér þörf til að ræða
um gömlu sorgina í tengslum við
þá nýju. Ef við sem fullorðin emm,
treystum okkur ekki til að hjálpa
barninu verðum við að leita að-
stoðar fagfólks, vina og ættingja.
Við þurfum ekki að skammast
okkar fyrir það að fá hjálp frá
öðrum. Hins vegar getum við öll
hlustað hvert á annað og verið til
staðar án þess að segja svo margt.
Hvað getum við gert?
Hér á eftir fara nokkur
atriði sem gott er að hafa í
huga ef við viljum nálgast
börnin og spurningar þeirra
í sorgaraðstæðum:
- Nálægð/samhugur
- Hlusta á börnin
- Sitja saman í hring við
kerta Ijós, haldast í
hendur
- Lesa saman úr Biblíunni
t.d. 23. Davíðssálm
— Hlusta á fallega tónlist
- Umræður um lífið og
dauðann
- Sögur — reynslusögur
- Hafa kveikt á kerti í
skóla stofunni/heimilinu
- Fá prest í heimsókn
- Utbúa sameiginlega
helgi stund/bænastund
- Fara saman í kirkju
Við vonum að þessar línur verði
einhveijum til gagns á þessum
erfiðu tímum sorgar meðal þjóðar-
innar. Að lokum viljum við benda
á nokkrar bækur sem fjalla um
sorg og sorgarviðbrögð barna sem
og hina fullorðnu.
Bækur um sorg og
sorgarviðbrögð:
Bragi Skúlason: Sorg barna,
Kjalarnesprófastsdæmi, 1994
Hallen og Evenshaug: Barn á
þroskabraut, Skálholtsútg., 1993
Karl Sigurbjörnsson:
Hvað tekur við þegar ég dey?,
Skálholtsútg., 1993
Til þín sem átt um sárt að binda,
Skálholtsútg., 1990
Kúbler Ross, Elisabet: Er dauð-
inn kveður dyra, Skálholtsútg.,
1989
Lars Áke Lundberg: Þrastar-
unginn Efraím, Skálholtsútg.,
1991
Þessar bækur fást allar í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, svo og í
mörgum öðrum bókabúðum.
Höfundar eru fræðslufulltrúar á
fræðslu- og þjónustudeild
kirkjunnar, Biskupsstofu.
PMHuiiF'.iiU mm
e nt 'i
•r-n
-LL
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Við sendmn þér bækling óskir þú þess
með myndrnn af fjölbreyttu úrvali okkar af
þessum vinsælu bréfabindum okkar. Síðan
getur þú pantað það sem hentar fyrirtæki þínu
og færð sendinguna.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 68 84 76 eða 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
EGLA bréfabindi
KJÖLFESTA
ÍGÓÐU
Pegar Kemur aö innlausn
spariskírteina 10. febrúar.
!