Morgunblaðið - 24.01.1995, Síða 29

Morgunblaðið - 24.01.1995, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 29 nnbogadóttir, og Davíð Oddsson, SÚÐVÍKINGAR við athöfnina. ingarathafnarinnar á laugardag. ggingu við minningarathöfnina á ísafírði 'IR salinn í íþróttahúsinu á tsafirði á meðan á minningarathöfninni stóð á laugardag. Bömin í Súðavík byijuð í skóla ísafirði. Morgunbiaðið. GRUNNSKÓLI Súðavíkur hóf starfsemi sína á Isafirði í gær eftir viku hlé. Skólinn hefur feng- ið aðstöðu í húsnæði Húsmæðra- skólans á ísafirði. í dag mun leik- skóli Súðavíkur hefja starfsemi að nýju. Tæplega 40 börn eru í grunnskólanum og innan við 10 í leikskólanum. Þrír sálfræðingar og prestur eru komnir til Isafjarðar til að fylgjast með börnum og aðstoða þau við að hefja eðlilegt líf að nýju. Ingþór Bjarnason skólasál- fræðingur sagði að börnin hefðu komið glöð í skólann. Þau virtust ánægð með að hafa fengið skól- ann sinn aftur. Hann sagði að hefðbundin kennsla færi hægt af stað. Til að byrja með yrði lögð áhersla á tjáningu og hreyfingu, en börnin hafa mikið verið við leik í íþróttasal hjá Stúdíói Dan. Ingþór sagðist gera ráð fyrir að sálfræðingarnir og presturinn, séra Bragi Skúlason, yrðu á Isafirði út þessa viku og að þau kæmu aftur síðar. Hann sagði að mikil áhersla hefði verið lögð á að undirbúa kennarana fyrir kennsluna og uppfræða þau um eðlileg viðbrögð barnanna við sorginni. Atta börn fórust i snjó- flóðinu, þar af fimm á grunn- skólaaldri. Grunnskóli Súðavíkur var ekki eini skólinn á ísafirði sem hóf starfsemi í gær. Bæði Framhalds- skóli Vestfjarða og Grunnskóli ísafjarðar hófu starfsemi í gær að nýju, en engin kennsla var í skólunum í síðustu viku. Guðmann Guðmundsson veit hvað það er að vera við dauðans dyr Tvisvar bjargað mannslífi tsafirði. Morgunblaðið. GUÐMANN Guðmundsson, sjómaður á ísafirði, hefur kynnst því að það er stutt á milli lífs og dauða. Hann hefur tvisvar tekið þátt í að bjarga mannslífi og þrisvar hefur hann sjálf- ur naumiega bjargast úr sjávarháska. Guðmann var einn af þeim sem tók þátt í að grafa Elmu Dögg Frostadótt- ur úr fönn þegar snjóflóð féll á Súða- vík 16. janúar og hann fann Harry Eddom þegar Ross Cleveland sökk á Skutulsfirði í febrúar 1968. Guðmann var í hópi sjálfboðaliða sem fór með Stefni frá ísafirði til Súðavíkur, en þangað var hann kom- inn um kl. 16. Hópúrinn fékk ékki að fara til leit- ar strax vegna þess að ekki voru til nægilega margar snjóflóðaýiur, en enginn fékk að fara út á hættusvæðið nema vera með þetta öryggis- tæki á sér. Kallaði á mömmu sína „Um kl. 6 vorum við "sendir til leitar í rústum húss Frosta Gunnars- sonar. Við vorum þrír sem tókum við að moka, en þeir sem voru á undan Guðmann okkur fóru niður í frysti- Guðmundsson hús til að hvflast. Með mér voru Víðir, vélstjóri á Guðbjörg- inni og Kristján Rafn, ökukennari á ísafirði. Þá var búið að finna Frosta og konu hans, Björgu Valdísi. Dóttir þeirra, Elma Dögg, var hins vegar ófundin. Við tókum til við að grafa inn und- ir þak hússins eða það sem við töldum vera þakið. Leitarhundurinn gaf okk- ur ákveðna vísbendingu um að Elma Dögg væri þarna undir. Það var fleira en snjór sem við þurftum að moka burt. Þarna var t.d steyptur millivegg- ur, brotinn. Við þurftum að tína brot- in í burtu. Þetta voru svona 40-50 sm hellur. Við komum niður á rúm, sem við töldum fyrst að væri hennar, en það reyndist ekki vera. Um tíma héldum við að hundurinn hefði ruglast og við fengum hann aftur. Hann var alveg ákveðinn og krafsaði áfram inn. Við héldum því áfram að grafa þarna inn. Aðstæðumar ------------ voru erfiðar. Við þurftum að grafa á fjórum fótum og moka öllu frá okkur. Þetta var þannig að Víðir var innstur, ég mokaði frá honum og Kristján Rafn frá mér. Við höfðum að visu nokkurt skjól af þak- inu. Um kl. 9 vorum við orðnir ljós- lausir, en við vorum bara með tvö vasaljós, Kristján Rafn fór þá niður í hús til að ná í ljós. Um svipað leyti heyrði Víðir eitthvert hljóð. Við fórum að hlusta og þá heyrðum við í stúlk- unni. Hún kailaði: „Mamma.“ Töldum okkur vera leita að látinni manneskju Ég fór ög lét vita að við hefðum heyrt í henni og þá komu fleiri til að grafa. Hún virtist liggja í rúminu og við náðum að lýsa þannig að hún sá ljósið. Við héldum áfram að moka snjó og brak ofan af henni. Fyrst sáum við í annan fótinn. Það lá spýta við bakið á henni sem meiddi hana þannig að við urðum að fara varlega við að tína ofan af henni. Við drógum hana að lokum fram á rúmdýnunni. Hún var ótrúlega hress miðað við Þrisvar komist í lífsháska að vera búin að liggja þama allan þennan tíma. Hún var hins vegar orðin talsvert köld. Föt úr fataskáp og rúmdýnan skýldu henni þó fyrir snjónum að hluta til. Það var farið með hana niður í Frosta til aðhlynn- ingar. Þá var kl. sennilega um hálf tíu. Hún var þá búin að liggja þarna í flóðinu í um 15 tíma.“ Hvernig tilfínnig er það að eiga þátt í að bjarga mannslífi? „Þetta er ólýsanleg tilfmning. Við áttum alls ekki von á því að fínna hana á lífi. Ég held að við höfum allir farið út með það í huga að við værum að fara að leita að dáinni manneskju. Innst inni vonaði maður kannski að hún væri á lífi, en við áttum ekki von á því að finna hana á lífi. Það er ekki hægt að lýsa því þegar við heyrðum í henni og sannfærumst um að hún væri lifandi. Manni hvarf öll þreyta.“ Bjargaði Harry Eddom Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þú átt þátt í að bjarga mannslífi „Nei, ég fann Harry Eddom þegar Ross Cle- veland fórst á Skutuls- firði í febrúar 1968. Það er margsinnis búið að segja þá sögu. Ég var þá 14 ára gamall, að fara til þess að hleypa út kindum eins og við gerðum gjarnan þegar var gott veð- ur. Ég rakst á hann þar sem hann hímdi við sumarbústað í botni Seýðis- fjarðar. Harry var orðinn mjög kaldur en sennilega hefur hann bjargast vegna þess að þennan dag sem hann rak að landi hlýnaði talsvert í veðri. Ég studdi hann heim að túni og þar kom faðir minn á móti okkur og hjálpaði mér að koma honum inn í bæ. Hann var síðan háttaður niður í rúm. Síðar um daginn komu menn frá ísafirði og fóru með hann. Hann var þá farin að hressast mikið. Hefur þrisvar bjargast úr lífsháska Guðmann hefur ekki aðeins kynnst þeirri tilfinningu sem fylgir því að bjarga mannslífi. Hann hefur einnig kynnst tilfinningum þess sem er við dauðans dyr því hann hefur þrisvar lent í sjávarháska og bjargast við ________ illan leik. Fyrir rúmu ári rak bát hans, Dröfn frá ísafirði, vélarvana upp í fjöru inn við Folafót í Seyðis- fírði. Hann komst lifandi frá borði ásamt félaga sínum. Snemma árs 1992 sökk undan Guðmanni bátur í góðu veðri þar sem hann var einn á siglingu i Isafjarðardjúpi. Talið er að gat hafi komið að bátnum þegar hann rakst á ís. Guðmann sagðist einu sinni hafa verið í meiri lífshættu en í bæði þessi skipti. „Það atvik er hins vegar á fárra vitorði. Ég held ég sé ekkert að tala um það nú. Ég segi kannski frá þvi þegar ég skrái ævisögu mína.“ Guðmann hefur kynnst því að það er stutt á milli lífs og dauða. En er hann ekkert hræddur á sjó eftir þetta? „Nei, það er ég ekki.“ Og konan, er hún ekkert hrædd um þig? „Nei, það held ég ekki. Hún segir að ég hafi níu líf eins og kötturinn.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.