Morgunblaðið - 24.01.1995, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Hörmum ummæli Bif-
reiðaskoðunar Islands
f UMMÆLUM Bif-
reiðaskoðunar íslands
hf. um Aðalskoðun
sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins h. 15. jan.
sl. er sagt að Aðalskoð-
un hafí ekki byijað sinn
rekstur á heiðarlegan
hátt, hafi haft uppi
rakalaus ósannindi,
dylgjur og ómerkilegar
lygar. Þungi ásakana er
mikill og því verðum
við, lítið og ungt fyrir-
tæki, að reyna að bera
hönd fyrir höfuð okkar
og teljum því rétt að
kynna okkar sjónarmið.
Aðalskoðun hf. hefur
alla tíð lýst því yfir að
kröfur stjórnvalda gagnvart rekstri
skoðunarstofu væru strangar en samt
sem áður ekki óyfirstíganlegar. Aðal-
skoðun hf. hefur uppfyllt kröfumar
og er fyrirtækinu heimilað að skoða
ökutæki.
Þrátt fyrir þetta er ekkert sem
bannar okkur að láta í ljós álit okkar
á einkaleyfi Bifreiðaskoðunar íslands
hf. (BSKI) á mörgum umsýsluþáttum
í skoðun og skráningu ökutækja. Við
erum ekki einir um að láta slíkar
skoðanir í ljós því á síðasta ári gerðu
Samkeppnisráð annarsvegar og Hag-
sýsla ríkisins hinsvegar grein fyrir
slíku í álitsgerðum.
Samkeppnisstaða ójöfn
í álitsgerð Samkeppnisráðs kemur
m.a. fram að talið er að samkeppnis-
staða skoðunarfyrirtækja verði ójöfn
þar sem ekki hefur verið fellt niður
einkaleyfi BSKÍ á nýskráningum, eig-
endaskiptum, umsýslu númera,
rekstri ökutækjaskrár, sérskoðun tor-
færubifreiða o.fl. Þessir liðir hafa
skilað BSKÍ umtalsverðum tekjum á
síðustu árum. Rétt er þó að geta
þess að þegar þetta er skrifað hefur
BSKI boðið heiðursmannasamkomu-
lag gagnvart þeim þjónustuþætti að
Aðalskoðun geti sótt fyrir sína við-
skiptavini númer til BSKÍ sem hafa
verið innlögð eða afklippt. Þetta hef-
ur þó verulegt óhagræði og kostnað
í för með sér fyrir hvorutveggja Aðal-
skoðun og viðskiptavini þess enda
ekki hægt að stýra rekstri þessa þátt-
ar eins vel og ella hefði orðið þar sem
viðskiptavinir Aðalskoðunar eru háðir
t.d. gjaldskrá BSKÍ vegna innlagnar
númera, en meirihluti númera liggur
inni lengur en 1 mánuð og þarf því
að greiða úttektargjald hjá BSKÍ.
Næsta skref hlýtur þó að verða það
að finna leiðir til lausnar á því að
Aðalskoðun og viðskiptavinir þess
þurfi ekki að vera háðir samkeppnis-
aðilanum. Á það ber einnig að líta
að neytendur eru almennt vanir að
geta fengið hjá skoðunarfyrirtæki
alla almenna þjónustu er varðar skoð-
un og skráningu ökutækja, enda hef-
ur svo sannarlega reynt á það á fyrstu
starfsdögum Aðalskoðunar og erfítt
að gera sér grein fyrir hvert við-
skiptavinir fyrirtækisins á lands-
byggðinni snúa sér á næsta ári þegar
kröfur verða uppfylltar um að taka
þátt í framkvæmd skoðana þar sem
og á höfuðborgarsvæðinu.
I áliti Samkeppnisráðs er m.a. fjall-
að um þessi atriði og telur ráðið að
enn skorti nokkuð á að mögulegum
samkeppnisaðilum BSKI í skoðun bif-
reiða séu sköpuð þau samkeppnisskil-
yrði að fyrirtækin geti keppt við
BSKÍ á jafnréttisgrundvelli, því þau
geti ekki boðið upp á allar tegundir
ökutækjaskoðunar eins og BSKÍ, s.s.
sérskoðun breyttra bifreiða, skrán-
jngarskoðun nýrra eða notaðra bif-
reiða o.fl.
Skoðunarmiðar
Aðalskoðun hf. var tjáð af dóms-
málaráðuneytinu að skráningardeild
BSKÍ yrði ekki í samkeppni við okkur
og myndi því verða falið að annast
dreifingu á skoðunarmiðum og verð
taki aðeins mið af gerð þeirra og
yrði það sama og BSKI greiðir, af-
greitt frá prentsmiðju.
Skráningardeild sendi Aðalskoðun
hf. bréf hinn 11. jan. ’95
sem svar við fyrirspum
okkar dagsettri 18. des.
’94, þar sem gert er ráð
fyrir að við fáum miðana
afgreidda fyrst um sinn
af lager skráningar-
deildar BSKÍ gegn stað-
greiðslu og hluti af
gjaldinu vaeri 10% þókn-
un til BSKÍ. Þegar mið-
amir voru sóttir lá fyrir
reikningur frá skoðun-
ardeildinni, þrátt fyrir
yfirlýstann fjárhagsleg-
an aðskilnað deilda hjá
BSKÍ!
Vísað var til gjald-
skrár prentsmiðju sem
er breytileg eftir íjölda
prentaðra miða. Við skiljum sjónar-
mið prentsmiðjunnar enda er mun
dýrara að prenta lítið framleiðslu-
magn en mikið miðað við einingaverð
miðanna. Þó er ekki hægt að líta fram
hjá því að BSKl nýtur góðs af því
að geta tekið okkar miðapantanir
inni í sína stórpöntun enda er ljóst
strax í upphafi hvers árs hversu
mörg ökutæki verða skoðuð á lands-
vísu og hafa þeir einir tök á því að
velja prentsmiðju og njóta því allrar
viðskiptavildar varðandi kaup á þess-
ari rekstrarvöru okkar. Við teljum
Þungi ásakana Bifreiða-
skoðunar Islands er
mikill segir, Gunnar
Svavarsson, og því
verðum við, lítið og ungt
fyrirtæki, að reyna
að bera hönd fyrir
höfuð okkar.
eðlilegt að aðilar sitji við sama borð
í þessum efnum og ef stjómvöld leyfi
ekki skoðunarfyrirtækjum að semja
sjálf um sín miðakaup að það 3é þá
gert sameiginlega eða skoðunarmið-
amir séu seldir af óháðum aðila eins
og t.d. Umferðarráði.
í útvarpsviðtali 20. þ.m. segir
framkvæmdastjóri BSKÍ: „Það er
samkomulag á milli Aðalskoðunar og
Bifreiðaskoðunar uin það að Að-
alskoðun geti ef þeir vilja farið bara
sjálfir í prentsmiðjuna og samið þar
sjálfir og þeir geta ef þeir vilja boðið
boðið miðana út sem að þeir þurfa
að nota og fengið nokkrar prentsmiðj-
ur til að bjóða í prentunina."
Vissulega er það svo að Aðalskoð-
un hf. fagnar slíkri yfirlýsingu, en
þó hefði verið eðlilegra að okkar
mati að slíkt samkomulag lægi fyrir
áður en reynt er að gera lítið úr
málflutningi Aðalskoðunar hf. á öld-
um ljósvakans og höfum við því ein-
dregið óskað eftir því að slíkt sam-
komulag, sem við eigum að hafa tek-
ið þátt í, sé kynnt okkur áður en það
er kynnt opinberlega.
Ökutækjaskráin
Eitt af skilyrðum stjómvalda er
að skoðunarfyrirtæki skili niðurstöðu
skoðunar til ökutækjaskrár. Skráin
er opinber og nýtist mörgum aðilum,
s.s. lögreglu, sýslumönnum, bifreiða-
sölum o.fl. BSKI annast rekstur og
uppfærslu skrárinnar. í áliti Sam-
keppnisráðs segir að með ökutækja-
skrá séu BSKI tryggðar fastar tekj-
ur, sem samkvæmt ársreikningi 1993
námu 143,6 millj. kr. í álitinu segir
ennfremur „með hliðsjón af háu hlut-
falli tekna af skráningum, [er] það
fyrirkomulag að Bifreiðaskoðun ís-
lands hf. sjái um rekstur og upp-
færslu bifreiðaskrár ... til þess fallið
að skapa tortryggni og hættu á að
samkeppnisstöðu hugsanlegra sam-
keppnisaðila í skoðun ökutækja verði
raskað.”
Á það ber einnig að líta að þar sem
öðmm skoðunarfyrirtækjum en BSKÍ
er ekki heimilt að veita aðra lög-
bundna þjónustu gagnvart skoðun og
skráningu ökutækja, en aðal- og end-
urskoðun þá hefur BSKÍ markaðslega
yfirburði á að fylgjast daglega með
rekstrartekjum sinna samkeppnisað-
ila.
Samkeppnisráð telur eðlilegt að
með hliðsjón af stjórnsýslutengdu
hlutverki ökutækjaskrár sé æskilegt
að rekstur og uppfærsla hennar verði
falin aðila sem ekki er háður við-
skiptalegum hagsmunum. „Að öðmm
kosti verði ekki að fullu komið í veg
fyrir tortryggni mögulegra sam-
keppnisaðila sem í eðli sínu leiðir til
aðgangshindrana.” Á fyrstu starfs-
dögum Aðalskoðunar hefur svo sann-
arlega reynt á þetta því fjöldi neyt-
enda hefur orðið fyrir óþægindum
vegna þess að ekki er hægt að skrá
neinar færslur í ökutækjaskrá, mót-
taka né fullvinna gögn s.s. eigenda-
skiptatilkynningar, nýskráningar-
gögn o.þ.h.
Heiðarleikinn
í sunnudagsblaði Morgunblaðsins
h. 15. jan. er haft eftir Karli Ragn-
ars, framkvæmdastjóra BSKÍ, að
Aðalskoðun hf. hafí ekki byijað sinn
rekstur á heiðarlegan hátt, hafí haft
uppi rakalaus ósannindi, dylgjur og
ómerkilegar lygar.
Það hefur verið eitt af mörgum
markmiðum Aðalskoðunar hf. að
uppfylla víðtækar hæfniskröfur
stjómvalda til þess að geta hafíð
starfsemi og boðið bifreiðaeigendum
góða þjónustu.
Á þróunartíma fyrirtækisins hefur
ekki verið kastað rýrð á samkeppnis-
aðilann BSKÍ og frekar en hitt látið
koma fram í fjölmiðlum að þar hafí
margt gott verið gert, enda þykir
okkur eðlilegt að temja sér rétta við-
skiptasiðfræði.
Við teljum að BSKÍ hafí látið þung
orð falla í hita leiksins og við komum
ekki til með að erfa þau orð. Sam-
keppnin átti aldrei og má aldrei bitna
á tæknilegum kröfum stjómvalda til
ökutækjaskoðunar, heldur einungis
snúast um þjónustu og verð.
Verð á aðal- og endurskoðun er
bundið við hámarksverðskrá dóms-
málaráðuneytisins og hefur BSKÍ
boðið hámarksverð allan þann tíma
sem fyrirtækið hefur verið eitt á
markaði. Aðalskoðun hf. kom inn á
markaðinn með lægra verð og við
teljum að það sé óraunhæft hjá BSKÍ
að draga það fram að það séu bund-
ið af þjónustu við landsbyggðina og
eigi því erfíðara um vik að lækka.
Því má ekki gleyma að BSKÍ hefur
umtalsverðar tekjur af einkaleyf-
isþáttum sínum og hefur á síðustu
árum getað komið sér upp vænlegri
eiginfjárstöðu eða eins og segir í áliti
Samkeppnisráðs: „Þrátt fyrir að það
hafí ekki verið ætlunin í upphafí að
efna til samkeppni á þessu sviði verð-
ur ekki fram hjá því litið að þessi
eiginfjármyndun, sem varð í stórum
hluta til í skjóli einkaleyfis, raskar
stöðu mögulegra samkeppnisaðila og
styrkir enn frekar yfírburðastöðu
BSKÍ.“
Fagleg og hlutlaus skoðun
Þrátt fyrir að skoðunarfyrirtæki
eins og Áðalskoðun leggi meginá-
herslu á þjónustu og faglega hæfni
til að skoða ökutæki þá megum við
ekki gleyma því að skoðun ökutækja
hefur það að markmiði að draga svo
sem mest má verða úr umferðar-
óhöppum sem orsakast af ófullnægj-
andi ástandi ökutækja og að minnka
mengun frá ökutækjum. Sú aðferð
sem stjómvöld hafa valið til að
tryggja gott ástand ökutækja er árleg
skoðun þeirra, með undantekningum
eft.ir aldri og notkun. Lögbundin ör-
yggisskoðun á sér langa hefð og sú
leið stjómvalda að fela þjónustuna
óháðum og hlutlausum skoðunarstof-
um, sem hafa engra viðskiptalegra
hagsmuna að gæta gagnvart fram-
kvæmd skoðana, hlýtur að vera öllum
neytendum til hagsbóta, svo fremi
sem jöfn samkeppnis- og þjónustu-
skilyrði séu tryggð.
Höfundur er stjórnarformuður
Aðalskoðunar hf.
Gunnar
Svavarsson
Snjófióða-
vamir
ENN einu sinni hafa
Islendingar orðið fyrir
þungum búsifjum af
völdum náttúruhamf-
ara. Harmleikurinn í
Súðavík og víðar hlýt-
ur að vekja upp fjöl-
margar spumingar
varðandi það hvernig
þjóðin er í stakk búin
til að takast á við þann
vanda sem við er að
etja á ýmsum stöðum
á landinu og á ég þá
ekki aðeins við hættu
af völdum snjóflóða
heldur einnig af öðrum
toga svo sem jarð-
skjálfta, skriðuföll o.fl.
Hér á eftir verður þó aðeins
rætt um þann vanda sem við stönd-
um frammi fyrir af völdum snjó-
flóða, hvar við stöndum og hvað
hugsanlega er til ráða.
Víða er hætta
Ljóst er að á nokkrum stöðum
á landinu er hætta á tjóni af völd-
um snjóflóða ekki minni enn í
Súðavík. Það er því ekki spurning
um hvort, heldur hvar og hvenær
næst verður slys af völdum þess-
ara náttúruhamfara ef ekki er
gripið til róttækra varnaraðgerða.
Hver er staðan? Hvað
er til ráða?
Á undanfömum árum hefur
einkum verið lögð áhersla á tvo
þætti vandans, þ.e. upplýsinga- og
eftirlitsþáttinn (þegar reynt er að
kanna og fylgjast með vandanum
með það í huga að geta rýmt hús
þegar hætta skapast) og svo björg-
unarþáttinn (viðbrögð eftir að slys
er orðið) en hinsvegar hefur gerð
og viðhaldi varanlegra varnar-
mannvirkja lítt eða ekki verið
sinnt.
Mikilvægustu atriðin varðandi
snjóflóðavandamál em þessi:
Upplýsinga- og gagnasöfnun,
eftirlit
Hér er einkum átt við eftirfar-
andi:
Upplýsingar um þekkt flóð.
Veðurfarsaðstæður.
Könnun snjósöfnunar.
Þversniðsmælingar.
Eftirlit með aðstæðum í Ijöllum
o.fl.
Segja má að þessi þáttur sé
kominn nokkuð áleiðis hér á landi
en þó er það mjög misjafnt.
Nauðsynlegt er að efla þetta
starf veralega.
Mat á hættusvæðum
Það virðist ljóst að forsendur era
að veralegu leyti brostnar og að
endurmat er nauðsynlegt. Því er
mikilvægt að sem allra fyrst verði
unnið nýtt hættumat fyrir landið
allt og þá ekki aðeins fyrir þéttbýl
svæði heldur alla byggð svo og
mikilvægar samgönguleiðir,
íþróttamannvirki, orkumannvirki
o.fl. Samkvæmt núverandi lögnm
er gerð hættumats í höndum Al-
mannavarna ríkisins.
Ég tel að þetta mat eigi að vinna
undir yfirstjórn erlendra sérfræð-
inga í samvinnu við innlenda aðila
(Veðurstofu, tæknimenn o.fl.) og
kynna fyrir heimamönnum á
hættusvæðum. Á þessu sviði tel
ég Norðmenn fremsta meðal jafn-
ingja enda eru veðurfarslegar og
landfræðilegar aðstæður í Noregi,
a.m.k. sumstaðar, ekki ólíkar því
sem við búum við hér á landi.
Björgunarþátturinn
Sennilega stöndum við einna
best að vígi á þessu sviði. Leggja
þarf sérstaka áherslu á þjálfun
björgunarhunda til
leitar í snjó. Þeir eru
lykilatriði þegar slys
verða. Einnig er
áfallahjálp afar mikil-
væg eftir að slys hafa
orðið.
Núverandi byggð -
varnarmannvirki
Saga þéttbýlis á ís-
landi er mjög stutt og
því eru upplýsingar af
skomum skammti um
flóð sem áður kunna
að hafa fallið á svæði
þar sem nú er byggð.
Skráðar heimildir
greina af eðlilegum
ástæðum nær eingöngu frá flóðum
sem valdið hafa tjóni á mönnum,
fénaði eða mannvirkjum. Varðandi
núverandi byggð hlýtur grundvall-
armarkmiðið að vera það að leggja
niður byggð á hættusvæðum nema
reist verði varnarvirki sem að mati
sérfróðra aðila eru talin tryggja
viðunandi öryggi byggðarinnar. Sé
ekki talið unnt að veija núverandi
byggð á ákveðnum svæðum verði
leitað leiða til að kaupa upp fast-
Stórt skref þarf að
stíga, segir Þórarinn
Magnússon, til að
tryggja öryggi þeirra
sem búa við aðstæður
snjóflóðasvæða.
eignir á matsverði og flytja byggð-
ina. Á svæðum þar sem ætla má
að snjóflóð geti fallið verði engin
frekari byggð leyfð nema að undan-
gengnu hættumati sem sýni fram
á að slíkt sé óhætt, hugsanlega
eftir að reist hafa verið varnarvirki.
Erlendis er algengt að miða mat
á hættusvæðum við mestu flóð sem
talið er að geti fallið á 300-500 ára
fresti. Eins og áður segir er saga
þéttbýlis hér á landi stutt og veldur
það erfiðleikum við öflun upplýs-
inga sem máli skipta.
Ymsar gerðir mannvirkja til
varnar byggð eru þekktar og má
sem dæmi nefna:
Jarðvegskeilur.
Jarðvegsgarðar.
Steyptir vamarveggir.
Grindverk til að halda snjóþekju
fastri.
Mannvirki til að stýra snjósöfn-
un.
Önnur dæmi um varnaraðgerðir
sem nefna má eru t.d.:
Að sprengja niður snjóhengjur.
Hlerar fyrir glugga.
Styrking húsa o.fl.
Að sjálfsögðu er það mjög mis-
munandi eftir aðstæðum hvaða
aðgerðir skila bestum árangri.
Hér á landi hefur mjög lítið ver-
ið gert á þessu sviði og er ástæðan
augljóslega sú að þetta era yfirleitt
fjárfrekar aðgerðir.
Skipulagsmál
Til þess að hægt sé að grípa til
markvissra skipulags- og varna-
raðgerða þarf stjórnkerfið að vera
skilvirkt. I dag er það allt of flókið.
Ég tel það nánast grundvallarat-
riði að eitt ráðuneyti hafi yfirum-
sjón með og beri ábyrgð á þessum
málum og að mínu mati er rökrétt
að það sé ráðuneyti umhverfis-
mála.
Undanskilinn er þá björgunar-
þátturinn sem eðlilegt er að áfram
verði í höndum dómsmálaráðu-
neytis. Allar skipulagsbreytingar
taka nokkurn tíma en benda má á
Þórarinn
Magnússon