Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 39 '
Þröstur tók
forystuna
SKAK
Rcykjavík —Gausdal
SKÁKÞING REYKJA-
VÍKUR 1995. - OPIÐ MÓT
f GAUSDAL1NOREGI
ÞRÖSTUR Þórhallsson, alþjóðlegur
meistari, vann Júlíus
Friðjónsson í sjöundu
umferðinni á Skákþingi
Reykjavíkur og er efst-
ur þegar fjórar umferð-
ir eru eftir. Tveir ungir
skákmenn, Amar E.
Gunnarsson og Páll
Agnar Þórarinsson, eru
í öðm sæti, hálfum
vinningi á eftir Þresti.
Skák þeirra Júlíusar og
Þrastar var afar spenn-
andi. Júlíus fann væn-
lega mannsfórn en lék
af sér í framhaidinu.
Arnar og Páll tefla báð-
ir frísklega og era í
mikilli framför, en það
er svo annað mál hvort
það dugi á Þröst.
Staðan á mótinu er þessi:
1. Þröstur Þórhallsson, 6Vi v.
2. -3. Arnar E. Gunnarsson og Páll
Agnar Þórarinsson, 6 v.
4.-6. Júlíus Friðjónsson, Arnar
Þorsteinsson og James Burden,
5Vi v.
7.-12. Magnús Pálmi Ömólfsson,
Bogi Pálsson, Jón G. Viðarsson,
Hörður Garðarsson, Jóhann Helgi
Sigurðsson og Kristján Eðvarðs-
son, 5 v.
13.-27. Einar Hjalti Jensson, Björa
Þorfinnsson, Sævar Bjarnason,
Ögmundur Kristinsson, Gunnar
Gunnarsson, Atli Antonsson, Frið-
rik Öm Egilsson, Halldór Pálsson,
Kjartan Guðmundsson, Sverrir
Norðfjörð, Bragi Þorfinnsson,
Bjarni Magnússon, Björa Freyr
Björnsson, Bergsteinn Einarsson
og Valgarð Ingibergsson, 4‘A v.
o.s.frv.
í sjöttu umferð mættust m.a.
Bjami Magnússon, 73 ára, og Guðjón
Valgarðsson, 9 ára, en þeir höfðu þá
báðir þrjá vinninga. Aldursmunurinn
var 64 ár, eitt fyrir hvem reit á skák-
borðinu. Eftir snarpa viðureign vó
reynslan þyngra og Bjami hafði sigur.
Við skulum líta á athyglisverða
skák úr sjöttu umferð Skákþings
Reykjavíkur. Jón G. Viðarsson, næst-
stigahæsti keppandinn á mótinu,
byggir stöðuna hægt og rólega upp,
en leikur einum öryggisleik of mikið.
Það nægir ungum andstæðingi hans,
Arnari E. Gunnarssyni, 16 ára, til
að hrifsa til sín fram-
kvæðið í skákinni. Hann
teflir síðan afar hvasst
og skemmtilega og
sleppir því aldrei!
Hvitt: Jón G. Viðars-
son
Svart: Arnar E. Gunn-
arsson
Spánski leikurinn
I. e4 - e5 2. Rf3 -
Rc6 3. Bb5 - a6 4. Ba4
- Rf6 5. De2 - b5 6.
Bb3 - Bc5 7. 0-0 -
0-0 8. d3 - h6 9. c3 -
He8 10. Rbd2 - d6 11.
h3?!
Hvítur hefur teflt of
hægfara. Betra var 11.
a4.
II. - Rh5! 12. d4 -
Rf4 13. De3 - Bb6 14. Hdl - g5!
15. Rfl - d5!
stöðuna, en hún þolir það vegna
slæmrar stöðu hvítu drottningarinn-
ar.
16. Rg3 - Ra5!?
Ræðst gegn best staðsetta manni
hvíts, biskupnum á b3, en það er
ekki fyllilega rökrétt að fara með
mann í burtu frá miðborðinu. Þessu
hefði hvítur nú átt að svara með 17.
Bc2. Aðrir möguleikar svarts voru
að fara á peðaveiðar með 16. - exd4
17. Rxd4 - Rxd4 18. cxd4 - dxe4
og að auka enn þrýstinginn á mið-
Þröstur
Þórhallsson
borðið með 16. - Bb7 og 17. Rf5 -
Df6! er mjög gott á svart.
17. Del?! - Rxb3 18. axb3 - exd4
19. Rxd4 - Df6 20. b4 - Bb7
Svarta biskupaparið er nú orðið
allsráðandi í stöðunni.
21. f3 - Had8 22. Be3 - dxe4 23.
fxe4 - Bxe4 24. Df2 - Bb7! 25.
Bxf4 - Dxf4 26. Dxf4 - gxf4 27.
Rh5 - He2
Endataflið er nú vonlaust á hvítt.
28. Rxf4 - Hxb2 29. Hacl - Bxd4+
30. cxd4 - Hxb4 31. Hxc7 - Hdxd4
32. Hxd4 - Hxd4 33. Rh5 - Be4
34. Rf6+ - Kg7 35. Re8+ - Kg6
36. Ha7 - Ha4 37. Rc7 - b4!
og hvítur gafst upp.
Úrslit í unglingaflokki
Aukakeppni þarf til þess að skera
úr um það hver verður unglinga-
meistari Reykjavíkur 1995. Tefldar
vora 7 umferðir, umhugsunartíminn
var hálftími á skákina. Ejórir urðu
jafnir og efstir:
I. -4. Davið Kjartansson, Bragi
Þorfinnsson, Jón Viktor Gunnars-
son og Einar Hjalti Jensson, 5V2 v.
5. Bergsteinn^ Einarsson, 5 v.
6. -10. Davið Ó. Ingimarsson, Sig-
urður Páll Steindórsson, Stefán
Kristjánsson, Davið Guðnason og
Arnar Freyr Óskarsson, 4 Vi v.
II. -12. Hjörtur Daðason og Egg-
ert Ólafsson, 4 v.
Helgi Áss heillum horfinn
Helgi Áss Grétarsson, stórmeist-
ari, átti ekki sjö dagana sæla á opnu
móti í Gausdal í Noregi sem lauk á
sunnudaginn. Hann náði sér aldrei á
strik eftir að hafa tapað tveimur
fyrstu skákunum og endaði um mið-
bik mótsins með fjóran og hálfan
vinning. Það er greinilegt að Helgi
Áss þarf að vera rétt stemmdur til
að ná árangri og nær ekki sínu besta
nema þegar mikið er í húfi. Á meðan
þetta breytist ekki ætti hann líklega
að láta opin mót með lágum verð-
launum eiga sig.
Tveir kunnir stórmeistarar urðu í
efstu sætunum:
1. Rogers, Ástralíu, 7 v.
2. deFirmian, Bandaríkjunum, 6V2
v.
3. -6. Engquist, Svíþjóð, Kristens-
en, Danmörku, Kinsman og Ward,
Englandi, 6 v.
7. -9. Voskanjan, Armeníu, A.
Martin og Coleman, Englandi, 5V2
v.
10.-12. Lejlic, Svíþjóð, Tisdall og
Fyllingen, Noregi, 5 v.
13.-21. Helgi Áss Grétarsson,
Schmittdiel og Trabert, Þýska-
landi, Ernst, Svíþjóð, Westerinen,
Finnlandi, Giddins og Burgess,
Englandi, Gausel og Gullaksen,
Noregi, 4V2 v.
Margeir Pétursson
Morgunblaðið/Arnór
SVEIT VÍB, Reylqavíkurmeistarar í sveitakeppni 1995. Talið frá ^
vinstri: Ásmundur Pálsson, Örn Arnþórsson, Hörður Arnþórsson,
Karl Sigurhjartai-son og Guðlaugur R. Jóhannsson. Þess má geta
að þetta var í þriðja sinn í röð sem Ásmundur verður Retykjavík-
urmeistari í sveitakeppni.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Sveit VÍB öruggur
Reykjavíkurmeistari
SVEIT Verðbréfamarkaðar íslands-
banka sigraði með yfirburðum í úr-
slitaleik VÍB og Landsbréfa um
Reykjavíkurmeistaratitilinn í brids
1995 en undanúrslitaleikirnir og úr-
slitaleikurinn fóru fram nú um helg-
ina. Lokatölumar urðu 176 gegn 83.
í sveit VÍB spiluðu Guðlaugur R. Jó-
hannsson, Öm Amþórsson, Ásmund-
ur Pálsson, Karl Sigurhjartarson og
Hörður Amþórsson.
í undanúrslitum spilaði VÍB gegn
Jóni Stefánssyni og gerði VÍB út um
leikinn í fyrstu lotu 56-4 og sigraði
161 gegn 54. Sveit Landsbréfa spil-
aði við Tryggingamiðstöðina og vann
fyrmefnda sveitin allar loturnar.
Lokastaðan 148 gegn 40.
í úrslitaleiknum vann VÍB fyrstu
lotuna 35-20 en gaf síðan Landsbréf-
um náðarhöggið í annarri lotu með
skorinni 64-8. Þriðja lota fór 46-24
og lokalotan 31-31. Lokastaðan: VÍB
176. Landsbréf 83.
Sveit Jóns Stefánssonar kom nokk-
uð á óvart í úrslitakeppninni. Þeir
félagar settu punktinn yfir i-ið þegar
þeir unnu Tryggingamiðstöðina í 32
spila leik um 3. sætið í mótinu. Loka-
tölur Jón Stefánsson 90. Trygginga-
miðstöðin 67.
Þá var einnig spilað skv. reglugerð
um þrjú sæti í undankeppni Islandss-
mótsins. Sex sveitir spiluðu. Vinir og
vandamenn unnu með 99, Kjötvinnsla
Sigurðar fékk 96 og Rúnar Einarsson
78.
Keppnisstjóri var Kristján Hauks-
son en Sigtryggur Sigurðsson formað-
ur Reykjavíkursambandsins afhenti
verðlaun.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Kópavogi
Spilaður var tvímenningur föstu-
daginn 13. janúar. 16 pör mættu
og urðu úrslit þessi: 1
Július Ingibergsson—Jósef Sigurðsson 245
BaldurÁsgeirsson-ValdimarLárusson 238
Eysteinn Einarsson - Sigurieifur Guðjónsson 233
EggertEinarsson-KarlAdolfsson 224
Meðalskor 210
Spilaður var tvímenningur
þriðjudaginn 17. janúar. 22 pör
mættu, spilað var í tveimur riðlum.
Úrslit í A-riðli:
Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufdai 201
Sigríður Páldóttir - Eyvindur V aldimarsson 183
Eysteinn Einarsson - Sigurleifur Guðjónsson 180
Bergur Þorvaidsson - Þórarinn Ámason l?fr -
Meðaiskor 165
B-riðill:
Ásthildur Sigurgísladóttir - Láms Amórsson 129
Eggert Kristjánsson - Þorsteinn Sveinsson 120
HannesAlfonsson-EinarElíasson 114
Ásta Sigurðardóttir - Margrét Sigurðard. 109
Meðalskor 108
Bridsfélag Suðurfjarða
Úrslit í tvímenningi hjá Bridsfé-
lagi Suðurfjarða, 11. janúar 1995.
HilmarGunnþórsson-MagnúsValgeirsson 89
HákonHákonarson-ViðarJónsson 83
GuðmundurÞorsteinsson-VignirHjelm 83
Meðalskor 72
skólar/námskeið
ýmislegt
■ Lærið vélritun
Vélritun er undirstaða tölvuvinnslu.
Kennum blindskrift og almennar uppsetn-
ingar. Kvöldnámskeið byrjar 25. janúar.
Innritun og upplýsingar í símum 28040
og 36112.
Vélritunarskólinn,
Ánanaustum 15.
■ PHOENIX námskeið veróur haldió
dagana 7., 8. og 10. febrúar á Hótel
Loftleiðum.
maður og leiðbeinandi Brian Tracy nám-
skeiða á íslandi, Fanný Jónmundsdóttir,
í síma 91-5671703.
Klúbbfundur verður haldinn á Hótel
Loftieiöum 30. janúar 20.00.
■ Bridgeskólinn
Byrjendanámskeið hefjast 26. og 30. jan.
Uppl. og innritun í síma 812607.
tölvur
STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS
OG NÝHERJA
69 77 69 <Q>
62 1 □ 66 NÝHERJI
Windows/Word/Excel
Windows 27. og 30. janúar.
Word 6.0 30. jan.-2. feb. kl. 13-16.
Excel 31. jan.-3. feb. kl. 9-12.
Excel framhald hefst 14. feb. kl. 13-16.
CorelDraw myndvinnsla
6.-9. feb. kl. 13-16.
Tölvunám fyrir byrjendur
Mjög gagnlegt námskeið.
Kvöldnámskeið hefst 24. janúar.
Síðdegisnámskeið 6.-9. febrúar
kl. 16.10-19.10.
AutoCad 12
Byrjendanámsk. 14.-16. febrúar
kl. 16.10-19.10.
VisualBasic forritun
20. feb.-15. mars kl. 19.30-22.00
(mánud.og miðvikud.).
Internet alþjóðanetið
Grunnnámskeið 30. janúar
kl. 16.10-19.10.
Windows 3.1/DOS 6.2 uppsetning
og umsjón
21. febrúar-7. mars kl. 19.30-22.00
(þriðjud. og fimmtud.).
PowerPoint glæruvinnsla
20. og 21. feb. kl. lé.10-19.10.
STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS
OG NÝHERJA
69 77 69 <Q>
62 1 □ 66 NÝHERJI
■ Tölvuskóli í fararbroddi
ÖU hagnýt tölvunámskeið.
Fáðu senda námsskrána.
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1.
- Word fyrir Windows og
Macintosh.
- WordPerfect fyrir Windows.
- Excel fyrir Windows og
Macintosh.
- PageMaker fyrir Windows/
Macintosh.
- Paradox fyi;ir Windows.
- Tölvubókhald.
- Novell námskeiö fyrir netstjóra.
- Word og Excel framhaldsnámskeió.
- Bamanám.
- Unglinganám.
- Windows forritun.
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
í síma 616699.
Tölvuskóli Revkiauíkur
k VV,, i Borgartúni 28, sími 616699
handavinna
■ Silkimálun
Ýmsar aðferðar kenndar. Gufufestir
litir. Kvöld- og dagtímar.
Upplýsingar í síma 74439.
■ Ódýr saumanámskeið
Sparið og saumið fðtin sjálf.
Mest 4 nemendur í hóp.
Faglaerður kennari.
Upplýsingar í síma 17356.
myndmennt
■ Keramiknámskeið
Námskeiðin á Hulduhólum, MosfeUsbæ,
hefjast 12. febrúar. Byrjendanámskeiö
og framhaldsnámskeið.
Upplýsingar í síma 666194.
Steinunn Marteinsdóttir.
■ Málun - myndlist
Dag- og kvöldtímar fyrir byrjendur og
lengra komna.
Málað með vatns- og olíuUtum.
Uppl. og innritun eftir kl. 13 alla daga.
Rúna Gísladóttir, listmálari,
sími 611525.
■ Bréfaskólanám í myndmennt
Fjórtánda starfsár skólans.
Fáið sent kynningarrit án kostnaðar.
Pantanir í síma 562-7644
eða í HMÍ, pósthólf 1464,
121 Reykjavík.
tungumál
■ Enskunám í Englandi
Við bjóðum enskunám við einn virtasta
málaskóla Englands.
Skólinn sér þér fyrir fæði og húsnæði
hjá enskri fjölskyldu.
Um er að ræöa:
AlhUða ensku, 18 ára og eldri, 2ja tU
11 vikna annir.
Unglingaskóla, júlí og ágúst, 13-17 ára,
4ra vikna annir.
Viðskiptaensku, 2ja og 4ra vikna annir.
Allar nánari upplýsingar gefa:
Jóna Maria Júlíusdóttir og
Helgi Þórsson, Núpasíðu 10F,
603 Akureyri, í síma 96-23625,
frá kl. 18.00.
■ Námskeið hjá
Málaskólanum Mími
ENSKA - ÞÝSKA - SPÆNSKA -
VIÐSKIPTAENSKA
Hraðnámstækniaðferðir sem skUa marg-
fðldum árangri. Almenn tungumálanám-
skeið hefjast í vikunni 23.-27. janúar.
Námskeið fyrir fyrirtækjaliópa eöa fjöl-
skyldu/vinahópa hefjast aó ósk kaup-
enda.
Upplýsingar í síma 10004.
Sjábu
hlutina
í víbara
samhengi!