Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Kærðu þig- kollóttan
um þá ... þeir eru
bara dónalegir!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
MERKILEGUR
LÆKNIR
Frá Þorfinni Ómarssyni:
KÆRI Sigurður Halldórsson.
í bréfi þínu til Morgunblaðsins
19. þessa mánaðar sakar þú Dagsljós
um einhliða umfjöllun um tilvísana-
kerfí í heilbrigðisþjónustu. Ég trúi
því að þú hafir einfaldlega ekki haft
athyglina í lagi þegar efnið var sýnt
viku áður, aðrar eðlilegar ástæður
geta ekki legið að baki. Og ég trúi
því líka að einhver mistök hafi átt
sér stað þegar fyrirsögn var valin á
grein þína í Mogganum — yfírskrift-
in „Omerkilegur sjónvarpsþáttur"
var hvergi rökstudd í greininni.
Hver sá sem opnar Morgunblaðið
gerir sér grein fyrir því að það geis-
ar stríð um tilvísanakerfið — á milli
heilbrigðisráðherra og hóps heilsu-
gæslulækna annars vegar og hóps
sérfræðinga hins vegar.
Skiptar skoðanir
I bréfi þínu kemur glögglega fram
að þú ert fráleitt hlutlaus í því stríði
og kannt því augljóslega illa þegar
aðrar skoðanir en þínar fá að koma
fram. Hafir þú horft með athygli á
umfjöllun Dagsljóss þá veistu jafn
vel og ég og aðrir áhorfendur að þar
fengu bæði sjónarmið að koma vand-
lega fram — með og á móti. Sighvat-
ur Björgvinsson, heilbrigðisráðherra,
ítrekaði ágæti tilvísanakerfis, en
Auðólfur Gunnarsson, kvenlæknir,
fann á því ýmsa vankanta. Eitthvað
virðist þú móðgast yfir því ekki var
talað við heimilislækni, en það hefur
ekkert með hlutleysi að gera. Ég
ræddi við fjölda heimilislækna í síma,
en þeir vildu ekki koma í viðtal af
ótta við að ýfa deilur á milli starf-
stétta — töldu m.ö.o. vænlegra að
Sighvatur svaraði fyrir tilvísanakerf-
ið. Semsagt, það sem máli skiptir:
það var rætt við fulltrúa með og á
móti tilvísanakerfi.
Þú bætir reyndar við efasemdum
um hlutleysi okkar þegar rætt var
við fólk á læknastofum. Staðreyndin
var sú að á þessum tyeimur lækna-
stofum, sem báðar hafa á að skipa
fjölda heimilislækna og sérfræðinga,
voru 20-30 manns og skoðanir
þeirra voru afar einhliða: gegn tilvís-
anakerfi. Auk þess var önnur kvenn-
anna sem rætt var við á leið til heimil-
islæknis en hin leitaði til sérfræð-
ings, sem breytti þó ekki samstiga
skoðun þeirra (fleiri vildu ekki fyrir
nokkum mun opinbera þörf sína á
læknisþjónustu og ber að virða það).
í bréfi þínu segir þú að aðal-
ástæða fyrir því að þú kallir Dagsljós
ómerkilegan • sjónvarpsþátt sé
„hræðsluáróður" Auðólfs Gunnars-
sonar um að það gæti verið lífshættu-
legt að hafa ekki beinan aðgang að
sérfræðingum. Hér þykir mér deila
ykkar heimilislækna og sérfræðinga
hafa tekið undarlega stefnu. Á nú
að kenna einum fjölmiðli um það að
önnur skoðun en ykkar heimilislækna
komi fram, jafnvel þótt ráðherrann
hafi svarað þeirri gagnrýni af fullum
þunga?
Báðar hliðar sýndar
Að lokum þetta: Það hlýtur að
vera göfugasta hlutverk fjölmiðla að
upplýsa almenning um málefni líð-
andi stundar á hlutlausan hátt og
sýna jafnan báðar hliðar á deilumál-
um. Sjálfur hef ég heyrt nokkur lang-
lokuútvarpsviðtöl við aðeins annan
deiluaðila í tilvísanamálinu síðustu
tvær vikur, en ummælum þínum um
einhliða umfjöllun í Dagsljósi er hér
með vísað algerlega á bug.
Það er alþekkt að stjórnmálamenn,
sem renna til á hinu pólitíska svelli,
saka gjaman fjölmiðla um ofsóknir.
Sá sem stendur í hringiðu deilumála
sér oft ekki nema aðra hlið á málinu
og nægir þá ekki að hún komi fram,
heldur skulu aðrar skoðanir brott-
rækar úr umræðunni. En eins og ég
sagði í upphafi trúi ég að svo hafi
ekki verið í þínu tilfelli, heldur býst
ég frekar við að þú hafir einfaldlega
ekki séð eða heyrt allt efnið. Ef svo
er skal ég senda þér það um hæl.
í mestu vinsemd,
ÞORFINNUR ÓMARSSON,
Dagsljósi.
Bensínstöð
á Elliðaárbakka?
Frá Birnu Bjarnleifsdóttur:
ÉG LÝSI hér með mótmælum mínum
við byggingu á fyrirhugaðri bensín-
stöð við Stekkjarbakka þ.e. á bökk-
um Elliðaánna. Fyrir u.þ.b. áratug
mótmælti ákveðinn hópur fólks hér
í borg byggingu brúar yfir Elliðaárn-
ar. Það segir sig sjálft að byggingu
bensínstöðvar á árbakkanum er
miklu áhættumeira uppátæki út frá
sjónarmiði umhverfisverndar.
Eins og umferð er nú um Stekkj-
arbakka eiga íbúar í Stekkjahverfi í
töluverðum erfiðleikum með að kom-
ast akandi út úr hverfinu. Bygging
bensínstöðvar á þessum stað myndi
ekki bæta úr þeirri umferðarteppu
sem oft verður, sérstaklega á morgn-
ana og síðdegis.
Ég tek ekki afstöðu til þess hvort
leyfa eigi erlendu fyrirtæki að reisa
bensínstöðvar í Reykjavík, en ég
undrast stórlega að nokkrum manni
skuli detta í hug áð ætla bensínstöð
stað á bakka Elliðaánna, þessari
perlu Reykvíkinga sem varla á sinn
líka í heiminum. Auk þess er bensín-
stöð í aðeins 100 m fjarlægð frá
þeim stað sem þessi erlenda stöð er
fyrirhuguð.
Ég skora á borgaryfirvöld að
hætta við úthlutun lóðar fyrir bens-
ínstöð við Stekkjarbakka. Ég skora
einnig á íbúa í Stekkjahverfi að senda
skrifleg mótmæli til skrifstofu borg-
arverkfræðings að senda skrifleg
mótmæli til skrifstofu borgarverk-
fræðings fyrir 22. janúar nk.
BIRNA BJARNLEIFSDÓTTIR,
Brúnastekk 6, Reykjavík.
Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.