Morgunblaðið - 24.01.1995, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 43
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Opið bréf til þín
Frá Guðrúnu G. Jónsdóttur:
HÖRMULEGIR atburðir hafa gerst,
lítið sjávarþorp hefur á örskömmum
tíma orðið fyrir óbætanlegum áföllum
af náttúruhamförum, sömu sögu er
að segja frá Grund í Reykhólasveit.
Víða annars staðar bíður fólk milli
vonar og ótta
meðan óveður
ganga yfir og
þorp og kauptún
klúka utan í
fjallshlíðum ljós-
laus í skamm-
degismyrkrinu.
Þetta sker í
hjörtu allrar þjóð-
arinnar.
Bréfritari hef-
ur eins og aðrir
landsmenn, fylgst
grannt með frásögnum af þessum
voðaatburðum og telur sig hafa getað
lesið ákveðin aðalatriði milli línanna.
í fyrsta lagi ótrúlegt þrek og æðru-
leysi heimamanna og sannast þar hið
fomkveðna: „Mikilla sanda, mikilla
sæva, mikil eru geð guma.“
í öðru lagi stór hópur sérþjálfaðs
fólks úr hjálparsveitum sem leggur á
sig líkamlegt og andlegt erfiði til að
bjarga mannslífum.
í þriðja lagi sjómennimir sem komu
til hjálpar skipunum sínum, og reynd-
ar era alltaf í meiri hættu en aðrir
við_ vinnu sína.
í fjórða lagi hópur fólks sem nefn-
ist áfallahjálp og sinnir andlegum
áföllum fólks sem verður fyrir sáram
missi og hjálparsveitarfólki sem verð-
ur fyrir þeirri beisku reynslu á stund-
um að ekki er hægt að bjarga manns-
lífum þó allt sé reynt sem hægt er.
Fjölmiðlafólk hefur einnig staðið sig
mjög vel.
Ríkisstjómin hefur nú í fyrsta sinni
það ég veit, sent þakklæti til þeirra
er taka þátt í björgunarstörfum, með
orðum.
Er nú ekki tímabært að orðum
fylgi athöfn?
Hjálparsveitir þurfa mikinn og
dýran útbúnað bæði í stofnkostnaði
og viðhaldi. Hver einstaklingur í
sveitunum þarf einnig sérstakan út-
búnað sem duga þarf við misjafnar
aðstæður. Það er einnig sjaldan
minnst á það að útköll hjálparfólks
era flest á kostnað vinnuveitenda
þeirra sem vinnutap.
Bréfritari hefur reyndar heyrt
suma vinnuveitendur telja sér til gild-
is að hafa slíkt fólk í þjónustu sinni.
Nýliðin era áramót. Það er gaman
okkar hér á landi að skjóta upp flug-
eldum og hafa áramótabrennur,
stemmningsstundir sem engu líkjast.
Smásálarlegar raddir nöldurskjóða
heyrðust tala um hvað hægt væri að
gera fyrir milljónirnar sem væra
sprengdar í loft upp.
Hjálparsveitir margar hafa um
áratuga skeið haft flugeldasölu sem
einu fjáröflun sína og þeir sem þar
versla geta ánægðir glatt sig við að
hafa lagt ómissandi starfí lið.
Ráðamenn ættu nú að sjá sér leik
á borði og koma því í kring að hjálpar-
sveitir fái einar að sitja að þessari
fjáröflun.
Bréfritari minnist bernsku sinnar
og æsku í litlu sjávarþorpi ekki ýkja
langt frá Súðavík, og telur sér reynd-
ar til gildis að vera fædd og uppalin
í slori og físki. Minnist leikja barna
á grænum grundum og í skeljafjöru
við bláan fjörð, einnig ógna skamm-
degis sem vara í næstum fimm mán-
uði á ári án þess að sjáist til sólar,
minnist andvökunátta þegar óveður
hvein í ijöllunum og sjómennirnir
voru í hættu, minnist foreldra sinna
og forfeðra sem kunnu að þreyja
þorrann og góuna af æðruleysi, minn-
ist samstöðu fólks og samhjálpar
þegar eitthvað bjátaði á, er þakklát
fyrir að vera afkomandi fólks sem
„lifði af“.
Skrifað á andvöku óveðursnótt.
GUÐRÚN G. JÓNSDÓTTIR
(Edda).
Upplýsmgar um
Internettengingu
við Morgunblaðið
Vegna fjölda fyrirspurna
varðandi Internet-tengingu
við Morgunblaðið, skal eftir-
farandi áréttað:
Tenglng vlA heimasíðu
Morgunblaðsíns
Til þess að tengjast heima-
síðu Morgunblaðsins, sláið
inn slóðina:
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar
upplýsingar um blaðið, s.s
netföng starfsmanna, upplýs-
ingar um hvernig skila á
greinum til blaðsins og helstu
símanúmer.
Morgunblaðið á Internetinu
Hægt er að nálgast
Morgunblaðið á Internetinu á
tvo vegu. Annars vegar með
því að tengjast heimasíðu
Strengs hf. beint með því að
slá inn slóðina:
http://www.strengur.is eða
með því að tengjast heimasíðu
blaðsins og veya Morgunblað-
ið þaðan.
Þessi þjónusta er endur-
gjaldslaus til 1. febrúar nk.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að
senda efni til blaðsins um Int-
ernetið noti netfangið
mb/@céntrum.is. Mikilvægt
er að lesa vandlega upplýs-
ingar um frágang sem má
finna á heimasíðu blaðsins.
Það tryggir öruggar sending-
ar og einnig að efnið rati
rétta leið í blaðið. Senda má
greinar, fréttir, auglýsingar
og myndir eins og fram kem-
ur á heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar við
Internet
Þeir sem hafa Netscape/
Mosaic-tengingu eiga hægt
um vik að tengjast blaðinu.
Einungis þarf að slá inn þá
slóð sem gefin er upp hér að
framan.
Þeir sem ekki hafa
Netscape/Mosaic-tengingu
geta nálgast þessar upplýs-
ingar með gopher-forritinu.
Slóðin er einfaldlega slegin
inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota
a.m.k.14400 baud-mótald fyr-
ir Netscape/Mosaic tenging-
ar. Hægt er að nota afkasta-
minni mótöld með Gopher-
forritinu.
- kjarni málsins!
Jockey THERMAL nærfötin eru úr
tvöföldu efni. Innri hluti efnisins er til
helminga úr polyester og viscose en
ytri hlutinn er úr hreinni búmull. Þetta
tryggir THERMAL nærfötunum einstaka
einangrun og öndun. Athugid. Fást nú
einnig langerma.
lHniÉMiil
Söluaðilar:
Andrés Skólavördustíg • Ellingsen Ánanaustum
Fatalinan Skeifunni • Herrahúsið Laugavegi
Ragnar herrafataverslun Laugavegi
Fjarðarkaup Hafnarfirði • Kaupfélag Suðurnesja
Miðvangi Hafnarfirði • Vöruland Akranesi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Apótek Ólafsvíkur • Kaupfélag Vestur-
Húnvetninga Hvammstanga • Vísii Blönduósi
Kaupfélag Þingeyinga Húsavík
Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum
Viðar Sigurbjörnsson Fáskrúðsfirði
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Höfn Hornafirði
Grund Flóðum • Vöruhús K Á Selfossi
Palóma Grindavík
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jónsson & Co. hf. sími 91-24333
UOCKEV
lcewear
(2&teiL
vegna flutninga
Allar Coral bómullarpeysur seldar á kr. 900,-
Eldri lagerar af ýmsum vörum á mjög hagstæðu verði kr. 100-2.000.
Útsalan stendur aðeins dagana 24. janúar- 1. febrúar.
OPNUM í DAG
lcewear, Smiðsbúð 9, 212 Garðabæ
[SlSBíH^p^^VnnTSxiiiBniili
Opnunartími kl. 12.00-18.00 - laugard. kl. 10.00-16.
(J) Komib og gerib fróbær kaup