Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ a Viltu auka afköst í starfi um alla ffamtíð? £0 Vihu margfelda afköst í námi um alla fiamtíð? 0 Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju? Ef svar þitt er jákvætt við einhverri ofangreindra spuminga skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestramámskeið sem laust er á. Skráning I símum 564-2100 og 564-1091 IIRAÐI JESmRARSKÓL JNN Tónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói fimmtudaginn 26. janúar kl. 20.00. Einleikarapróf: Sigurður Bjarki Gunnarsson, sellóleikari, Sigurgeir Agnarsson, sellóleikari, Stefán Ragnar Höskuldsson, flautuleikari, og Una Sveinbjarnardóttir, fiðluleikari. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Miðaverð kr. 500, kr. 250 fyrir nemendur. Sala aðgöngumiða á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitar íslands, Háskólabíói við Hagatorg, og við innganginn. Fjölskyldu- kvöld áPi zza Hut Þriðjudagskvöld kl. 18:30 - 21:00 Hlaðborð rneð þremur tegundum af pizzurn, heitum pastarétti, brauðstöngum og salatbar. Verð kr. 790 ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Góð þjónusta í Sautján OFT er haft á orði að ís- lendingar séu lítt þjónustu- lundaðir. Fólk getur geng- ið á milli verslana án þess að afgreiðslufólk sýni vott af áhuga á að aðstoða það á nokkum hátt. Einkum hefur þetta verið nefnt þegar afgreiðslufólk tísku- verslana ber á góma. En sem betur fer eru til undantekningar á því sem öðru. Langar mig að nefna sem undantekningu af- greiðslufólk verslunarinn- ar Sautján, bæði á Lauga- vegi og í Kringlunni. Sl. haust ætlaði undirrit- uð að kaupa sér alklæðnað og tölti því með dóttur sinni niður á Laugaveg til að líta í verslanir. Undan- tekningarlaust var af- greiðslufólk áhugalaust með öllu eða hafði eitthvað betra annað að gera en að aðstoða okkur. Ætlaði ég að hætta við allt saman en að áeggjan dótturinnar var þó farið inn í verslunina Sautján. Bar þá allt í einu við að einstak- lega ljúft afgreiðslufólk var tilbúið til að aðstoða á allan máta. Þegar ég hafði sagt hvað ég hafði í huga var allt tínt til sem til greina kom, og ef flíkin passaði ekki nákvæmlega var mér tjáð að hún yrði saumuð til þar til hún pass- aði. Þetta endaði með því að út var farið með þó nokkra poka fulla af föt- um. Síðan þá hef ég beint mínum viðskiptum til þess- arar verslunar, bæði á Laugavegi og í Kringlunni, og höfum við mæðgur allt- af fundið eitthvað við beggja hæfi. Undirrituð hefur ekkert legið á þessum upplýsing- um við vini og ættingja sem sumir hveijir búa úti á landi og hafa þeir einnig beint sínum viðskiptum til þessarar ágætu verslunar með góðum árangri. Sér- staklega langar mig til að þakka Gyðu sem starfar í Sautján í Kringlunni fýrir Ijúft viðmót. Verslunareigendur ættu að hafa það í huga, að vilji þeir fá fólk til að versla við sig er lágmark að þeir taki eftir viðskiptavinun- um. Anægður viðskiptavinur Gæludýr Köttur á þvælingi SVARTUR og hvítur kött- ur hefur verið á þvælingi í Greni- og Furubyggð í Mosfellsbæ sl. viku. Kann- ist einhver við gripinn er hann vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 666821. Kettir SVÖRT og hvít tveggja mánaða svört og hvít læða og ársgamall fressköttur fást gefíns á góð heimili. Þau eru bæði falleg og góð. Upplýsingar í síma 627398. Trýna er týnd TRÝNA er grá og hvít eins ár læða sem fór á heiman frá sér 13. nóvember sl. Þeir sem geta gefið upp- lýsingar eða vita eitthvað um afdreif hennar eru beðnir að hafa samband við Ragnildi í síma 676675 eða upp í Kattholt í síma 672909. Hefur nokkur séð Brand? BRANDUR er ógeltur brún/drapplitur högni, bröndótt- ur með hvítt bijóst og hvíta sokka. Hann fór að heim- an 2. janúar sl. og er sárt saknað. Allar upplýsingar eru vel þegnar í síma 666880 eða 666885. Stöðumynd 39. - Rf4! (Glæsileg- j ur vinningsleikur) 40. gxf4 - gxf4 (Með þre- ' faldri hótun! 40. - . » . • . , „ „ Bxg4, 40. - Rg5 og 40. skákina af Nigel Short og í - fxe3. Hvítur ræður ekki fyrri skák Rússanna Evgenís við allt þetta.) 41. Hg2 — Barejevs og Aleksanders Kha- Rg5, 42. De2 - Hxh3+ 43. lifmans hafði sá fyrmefndi Kgl - Bxg4 44. Dxg4 - betur. skák Umsjðn Margeir Pétursson ÞESSI staða kom upp á Ho- ogovens útsláttarmót- Hollandi sem nú stendur • yfir. Rússinn Brodsky (2.535) var með hvítt 7 en hollenski stórmeist- arinn Jeroen Piket (2.670) hafði svart og • átti leik. Hxe3 (Hvítur er tveimur peð- um undir með gertapaða stöðu en tefldi samt nokkra leiki til viðbótar:) 45. Dd7+ - Df7 46. Dxb5 - Da7 47. Khl - Hxc3 48. Hh2 - Haa3 og hvítur gafst upp. í undanúrslitum á mótinu vann Rússinn Aleksei Drejev fyrri HÖGNIHREKKVÍSI Víkveqi skrifar... Athyglisverð frétt birtist í Tím- anum sl. laugardag. Þar sagði frá því, að risnukostnaður Reykjavíkurborgar hafí lækkað á síðari hluta ársins um 6 milljónir króna frá fyrri hluta ársins. Þessi kostnaður hefði numið 11 milljón- um króna á síðari hluta ársins en 17 milljónum á fyrri hluta þess. Þá kom einnig fram, að kostnaður við blómasendingar hefði lækkað úr 820 þúsund krónum á fyrstu sex mánuðunum í 340 þúsund krónur. Þegar fjölmiðlar eða almenning- ur gerir athugasemdir við kostnað- arliði af þessu tagi hefur það verið föst regla hjá stjórnmálamönnum að segja sem svo, að þetta séu hvort sem er svo lágar tölur, að þær skipti engu máli í heildar- myndinni. Þetta sögðu ráðherrar og þingmenn úr öllum flokkum t.d. um ferða- og risnukostnað ríkisins þar til í ljós kom, að þessi kostnað- arliður nam hátt á annan milljarð króna. Lækkun á þessum útgjöldum Reykjavíkurborgar er fjöður í hatt R-listans og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, borgarstjóra, vegna þess að ætla má, að þeir sem fara vel með „litlar" upphæðir af þessu tagi geri það einnig, þegar um stærri tölur er að ræða. Ríkið, önnur sveitarfélög, opinberar stofnanir og fyrirtæki ættu að taka þessar sparnaðaraðgerðir vinstri meirihlutans í Reykjavík sér til fyrirmyndar. Jafnframt verður mjög eftir því tekið, hvort hinum nýju valdamönnum í Reykjavík tekst að halda þessum niðurskurði út lqörtímabilið. xxx að er mjög almenn skoðun, að fjölmiðlanávígið, sem stjórn- málamenn standa í stytti „pólitískt æviskeið" þeirra til muna. Fólk verði einfaldlega þreytt á þeim, sem sí og æ eru í fjölmiðlum. Þetta á ekki sízt við um ljósvakamiðlana. En þetta vandamál stjómmála- manna er einnig umhugsunarefni fyrir aðra þá, sem gegna störfum og trúnaðarstöðum í félagsmála- hreyfíngum, sem beina athygli fjöl- miðla að þeim. Fólk á að varast að vera of mikið í fjölmiðlum. Umhverfíð verður mjög fljótt þreytt á sömu andlitunum. Menn geta eytt „innistæðum" sínum á ótrúlega skömmum tíma með því að baða sig um of í sviðsljósinu. xxx Sígilda útvarpsstöðin, sem Jó- hann Briem og Markús Öm Antonsson settu á stofn fyrir nokkrum mánuðum og sendir nú út allan sólarhringinn er merkileg viðbót við þá útvarpsstarfsemi, se'm hér var fyrir. Það verður fróð- legt að sjá, hvemig útvarpsstöðin kemur út í hlustendakönnunum. Alla vega er ljóst, að Ríkisútvarpið hefur hér fengið harðari keppinaut en einkareknu útvarpsstöðvamar hafa verið hingað til og er þá átt við „gömlu gufuna". Vonandi átta auglýsendur sig á því, að þeir geta náð til annars konar hóps með því að auglýsa á sígildu útvarpsstöð- inni. Þeir félagar hafa hins vegar markað ákveðin þáttaskil í út- varpsstarfsemi hér með þessu framtaki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.