Morgunblaðið - 24.01.1995, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 5.3
ÍÞRÓTTIR UNGLIIMGA
Léku tennis í 57 klukkustundir
íslandsmótið í innanhússknattspyrnu:
53 félög med lið í
TENNISSPILARAR á stór-Reykjavíkursvæðinu komu
saman í Tennishöllinni í Kópavogi til að leika mara-
þontennis. Markmiðið var að komast f heimsmeta-
bók Guiness og safna áheitum til styrktar íþróttafé-
lagi fatlaðra. Skemmst er frá því að segja að krakk-
arnir sem voru á aldrinum átta til sextán ára léku
tennis í 57 klukkustundir frá klukkan 13:30 mánu-
daginn 14. janúar til klukkan 22:30 þess sextánda.
37 unglingar tóku þátt í þessu maraþoni og margir
fóru ekki heim til sín í tvo og hálfan sólarhring
heldur lögðust til hvílu annað veifið í svefnpokum
í Tennishöllinni en yfirleitt var leikið á tveimur til
þremur völlum samtímis. Aftari röð frá vinstri: Jos-
eph Henriques þjálfari, Kolbeinn Tumi Daðason,
Davíð Halldórsson, Bjarni Einarsson, Ingi Þór Ein-
arsson, Erla M. Hermannsdóttir, Kristín Gunnars-
son, Katrfn Atladóttir, Júlíanna Jónsdóttir, íris
Staub, Stella Rún Kristjánsdóttir, Alexandra Kjeld.
Fremri röð frá vinstri: Garðar I. Jónsson fram-
kvæmdastjóri Tennishallarinnar, Anna Podolskaia
aðstoðarþjálfari, Kári Pálsson, Ásdís Snævarr, Freyr
Pálsson, Þrándur Kristjánsson, Arnar Sigurðsson,
Jón Axel Jónsson, Kolbrún Stefánsdóttir og Hrafn-
kell Sighvatsson. Á minni myndinni má sjá þau
Kára Pálsson átta ára og Ásdísi Snævarr tíu ára
en þau voru yngstu þátttakendurnir.
BADMINTON/UNGLINGAMEISTARAMOT TBR
Badmintonspllar&r frá TBR voru í efstu sætunum í plltaflokki á Unglingameistaramóti TBR. Frá
vlnstrl eru þeir Haraldur Guðmundsson og Orri Öm Árnason en þeir sigruðu þá Svein Loga Sölva-
son og Bjöm Jónsson.
Spennandi úrslitaleikir
í mörgum aldursflokkum
Unglingameistaramót TBR var
haldið fyrir skömmu í salar-
kynnum TBR í Gnoðavogi. Þátttaka
var góð en keppendur frá níu félög-
um kepptu á mótinu. Eins og svo
oft áður voru keppendur úr TBR
atkvæðamiklir, sérstaklega í elstu
flokkunum en margir úrslitaleikj-
anna voru mjög spennandi.
Hnokkar og hnátur
Óli Þ. Birgisson UMSB vann
Guðlaug Axelsson UMSB 11:6 og
11:8.
Ragna Ingólfsdóttir TBR sigraði
Bryndísi Sighvatsdóttur BH 11:7,
11:12 og 11:9.
Óli Þ. Birgisson og Guðlaugur
Axelsson UMSB sigruðu Baldur
Gunnarsson og Óla P. Ólafsson Vík-
ingi 15:3, 14:17 og 15:5.
Ragna lngólfsdóttir og Hrafnhild-
ur Ásgeirsdóttir TBR sigruðu Láru
Hannesdóttur og Halldóru Elínu Jó-
hannsdóttur 15:2 og 15:6.
Guðlaugur Axelsson UMSB og
Bryndís Sighvatsdóttir BH unnu
Baldur Gunnarsson og Tinnu Helga-
dóttur Víkingi 18:13, 12:15 og 15:10.
Sveinar og meyjar
Pálmi Hlöðversson BH sigraði
Helga Jóhannesson TBR 11:10 og
11:9.
Sara Jónsdóttir TBR sigraði
Oddnýju Hróbjartsdóttur TBR 11:8
og 11:8.
Bjöm Oddsson og Pálmi Hannes-
son BH unnu Helga Jóhannesson og
Birgi Haraldsson TBR 18:17 og 15:7.
Katrín Atladóttir og Aldís Páls-
dóttur úr TBR sigruðu Elísu Viðars-
dóttur og Þóm Helgadóttur BH 15:5
og 15:4.
Helgi Jóhannesson og Katrín Atla-
dóttir TBR unnu Pálma Hlöðversson
og Elísu Viðardóttur 15:11 og 15:8.
Drengir og telpur
Magnús Helgason Víkingi sigraði
Pálma Sigurðsson Víkingi 15:9 og
15:7.
Anna L. Sigurðardóttir TBRvann
Katrínu Atladóttur TBR 11:3, 7:11
og 11:3.
Emil Sigurðsson UMSB og Bjami
Hannesson ÍA unnu Magnús Helga-
son og Pálma Sigurðsson Víkingi
7:15, 15:11 og 15:11.
Piltar og stúlkur
Haraldur Guðmundsson TBR sigr-
aði Svein Sölvason TBR 15:6 og
15:12.
Vigdís Ásgeirsdóttir TBR sigraði
Brynju Pétursdóttur ÍA 11:7 og 11:1.
Haraldur Guðmundsson og Orri
Ámason TBR unnu Svein Sölvason
og Björn Jónsson TBR 15:6 og 15:8.
Vigdís Ásgeirsdóttir TBR og Mar-
grét Dan Þórisdóttir unnu Brynju
Pétursdóttur og Birnu Guðbjarts-
dóttur ÍA 15:8, 11:15 og 15:5.
Haraldur Guðmundsson og Vigdís
Ásgeirsdóttir sigruðu Orra Árnason
og Margréti Dan Þórisdóttur 15:4
og 15:4.
fimnvta flokki karia
RIÐLAKEPPNI íslandsmótsins
i innanhússknattspyrnu hjá
yngri aldursflokkum er viðast
hvar í fullum gangi en leikir í
riðlakeppni fara nú fram út um
allt land.
Góð þátttaka er í flestum flokk-
um og til að mynda era 53
félög með lið í fimmta flokki karla.
Leikið er í 2. - 5. flokki karla og
2. - 4. flokki kvenna og hófust
fyrstu leikimir þann 14. þessa mán-
aðar en riðlakeppninni á síðan að
vera lokið fyrir fyrsta febrúar.
í karlaflokkunum þar sem lið era
fleiri er leikið í átta riðlum og kemst
sigurlið hvers riðils í úrslitakeppn-
ina sem fram fer í síðari hluta febr:
úar eða í byijun marsmánaðar. í
stúlknaflokkunum era hins vegar
riðlamir sex talsins og komast sex
lið áfram. Leikið er með sama fyrir-
komulagi eins og í meistaraflokki,
fjórir útileikmenn era í liði auk
markvarðar.
ÍSA.'Vj'
w
. " 91
9
ÉÍ||||l ■ \ i'V '•
s
Morgunblaðið/Frosti
Barátta um knöttinn í leik Vikings og Selfoss í 3. flokki kvenna
á sunnudag í íslandsmótlnu í innanhússknattspyrnu. Víkings-
stúlkurnar unnu sannfærandi sigur en máttu síns lítils gegn lið-
um KR og ÍA en KR hefur tryggt sér sæti í úrslltakeppninnl. Vík-
ingur vann hins vegar sannfærandi sigur í sínum riðli í 3. flokk!
karla.