Morgunblaðið - 05.02.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.02.1995, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR GRÉTAR INGIMUNDARSON, Hrafnakletti 2, Borgarnesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 27. janúar síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Borgar- fjarðar. Ingigerður Jónsdóttir, Margrét Grétarsdóttir, Bjarni Guðjónsson, Ingimundur Einar Grétarsson, Björk Ágústsdóttir, Sigurbjörn Jóhann Grétarsson, Elfn Bára Karlsdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR H. HJARTARSON rannsóknarfulltrúi, Einholti 7, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. febrúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Landssamband hjartasjúklinga. Guðbjörg Guðjónsdóttir, Hjörtur Jóhannsson Guðmundfna Guðmundsdóttir, Margrét G. Einarsdóttir, Baldur Þ. Jónasson, Guðrún ína Einarsdóttir, Rúnar H. Hermannsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GOTTSKÁLK GUÐMUNDSSON, sem andaðist á Hrafnistu Hafnarfirði þann 31. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. janúar kl. 15.00. Ingigerður Gottskálksdóttir, Bragi Jónsson, Aðalsteinn Gottskálksson, Frfða Björk Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær og elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og tengdafaðir, GUNNAR GUÐLAUGSSON, Hjallavegi 33, Reykjavík, lést á heimili sínu aðfaranótt 25. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hafdfs Magnúsdóttir, Magnús Gunnarsson, Jóhanna Friðbjörg Sigurjónsdóttir, Dagný Gunnarsdóttir, Sígríður Gunnarsdóttir, Gabrfela Jónsdóttir. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför KOLBEINS GÍSLASONAR Eyhildarholti. Systkinin og systkinabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, PÉTUR GUÐJÓNSSON rakari, Grundarlandi 10, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 6. febrúar kl. 10.30. Hjördfs Ágústsdóttir. Anna Sigrfður Pétursdóttir, Magnús Ólafsson, G. Ágúst Pétursson, Hulda Björg Sigurðardóttir, Sturla Pétursson, Rósa Þorvaldsdóttir, Bryndfs Pétursdóttir, Pétur Pétursson og barnabörn. PÉTUR GUÐJÓNSSON + Pétur Guðjóns- son fæddist í Reykjavík 23. ágúst 1924. Hann Iést á gjörgæsludeild Landspitalans þriðjudaginn 31. janúar sl. Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson, fisksali, og Þuríður Guðfinna Sigurðardóttir, hús- móðir. Systkini Pét- urs sammæðra voru Erlingur og Kjartan Ólafssynir, alsystk- ini Siguijón, látinn, Anton og Rósa. Hinn 13. októ- ber 1951 kvæntist Pétur Hjör- disi Agústsdóttur og eignuðust þau fimm börn. Þau eru: 1) Anna Sigríður, gift Magnúsi Ólafssyni og eiga þau þijú börn. 2) G. Ágúst, kvæntur Huldu Björgu Sigurðardóttur og eiga þau þijú börn. 3) Sturla, kvæntur Rósu Þor- valdsdóttur og eiga þau þijú börn. 4) Bryndís, ógift. 5) Pétur, ógiftur. Pétur hóf rekst- ur rakarastofu árið 1951 á Skólavörðu- stíg 10 og starf- rækti til dauða- dags. Hann var jafnframt um ára- bil umboðsmaður margra lands- kunnra skemmti- krafta og hljóm- sveita. Hann var lengi formaður Meistarafélags hárskera og var heiðursfélagi þess. Hann starfaði jafnframt í Lions-hreyfingunni og frímúr- arareglunni og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á vegum þeirra. Útför Péturs fer fram frá Bústaðakirkju á morgun. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls, og brugðist getur lánið frá morpi til kvelds. (MJoch.) Enginn veit hvað hann hefur átt fyrr en misst hefur. Elsku afí minn, ég á svo margar góðar minningar um þig og allar þær stundir sem ég átti með þér voru góðar. Þú varst oftast svo glaðlyndur og góður við mig. Við fórum saman ásamt ömmu og Bryndísi til Benidorm en þar kynntist ég þér en betur og varst þú mér frekar eins og vinur en afí. Þar stunduðum við minigolf af kappi og var ómögulegt að vinna þig. Þú varst duglegur að hreyfa þig og gekkst á hveijum morgni og rölti ég stundum með þér. Það var erfiður dagur 18. janúar sl. þegar mamma sagði mér að þú hefðir lent í alvarlegu slysi og værir mjög mikið slasaður. Ég vildi ekki trúa því að þér myndi ekki batna. Þú fórst án þess að kveðja því þú komst aldrei til meðvitundar. Ég held að þý hafir þurft að sinna mikilvægari verkefnum. Kannski er það eins og litla systir mín sagði: „Það vantar góðan rakara í himna- ríki.“ Ég kveð þig afi minn og óska þér góðrar heimkomu. Petra Dís. Það er margt sem myrkrið veit, minn er hugur þungur. Oft ég svartan sandinn leit svíða grænan engireit. I jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fijótt meðan hallar degi skjótt, að mennimir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Sipijónsson.) Til minningar um hann afa minn, en hann söng þetta fallega ljóð svo oft fyrir mig þegar ég var lítil og vil ég minnast hans með þessum erindum. Þú varst mér alltaf svo góður afi. Ég gleymi þér aldrei meðan minningin í hjarta mínu lifir og þakka þér fyrir samveruna. Það er heimska að rækta ekki það sem maður á meðan tfmi er nógur því enginn veit hvenær síðasta kallið kemur og það eina sem eftir er, eru minningamar. Elsku amma, ég bið algóðan guð að styrkja þig í þinni sorg. Ég kveð afa minn með virð- ingu og þakklæti fyrir allt. Ólafur Pétur. Hjartans þakkir færum við þeim fjölmörgu, sem hafa sýnt okkur samúð, vináttu og hlýhug við fráfall okkar ástkæru mæðgna, BELLU VESTFJÖRÐ og PETREU VESTFJÖRÐ. Hlýhugur ykkar, stuðningur og hjálpsemi hefur verið okkur ómetanleg. Guð blessi ykkur öll. Wieslawa Lupinska, Tomasz Lupinski. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærr- ar eiginkonu minnar, móður okkar, dótt- ur, systur og tengdamóður, BJARKAR THOMSEN, Tunguvegi 20. Auðun Sæmundsson, Arndís Hulda Auðunsdóttir, Dögg Baldursdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Lfsa Thomsen, Bragi Björnsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGUNNAR EIRÍKSDÓTTUR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Engihlíð 12, Svanhildur Ólafsdóttir, Haraldur Jónasson, Guðrún Ólafsdóttir, Guðmundur Jóhann Ólafsson, Brynja Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kveðja frá íbúum við Grundarland 16 Á morgun verður kvaddur hinstu kveðju Pétur Guðjónsson rakari, Grundarlandi 10. í raun þekkti ég Pétur Guðjónsson ekki mikið, en kannast þó vel við hann allt frá minni bamæsku. í mínum huga var Pétur Guðjónsson heiðursmaður. rakari og Valsari. í umhverfinu í kringum mig hafa orðið breytingar. Gatan mín er orðin snauðari, því skyndilega er vegferð góðra granna lokið, þeir voru Pétur Guðjónsson, Grundarlandi 10, og Pétur Gíslason, Grundarlandi 9, þeir hurfu svo snögglega með þriggja mánaða millibili. Því sannast enn, að enginn ræður sínum næturstað. Sumir samtíðarmenn seija meiri svip á umhverfí sitt en aðrir, þannig var um þessa heiðursmenn. Þeir voru frumbyggjar í hverfinu mínu og voru nokkurs konar „verndarar" og „búálfar“ götunnar. Gæddu hana lífi og sál, þeir rótuðu í moldinni og mótuðu umhverfið, breyttu minnsta fræi í fegurstu blóm og runna. I þessu fallega umhverfi hittust ná- grannamir og ræddu m.a. um lífsins amstur og fótbolta og litu eftir vor- komunni og hækkandi sól. Um leið og ég þakka þeim nöfnum ánægju- lega samfylgd, votta ég fjölskyldum þeirra samúð mína. Nú andar næturblær um bláa voga. Við bleikan himin daprar stjömur loga. Og þar, sem forðum vor í sefi söng, nú svífúr vetramóttin dimm og iöng. Og innan skamms við yfirgefum leikinn. Nú æska gengur, sigurdjörf og hreykin, af sömu blekking blind, í okkar spor. Og brátt er gleymt við áttum líka vor. (Tómas Guðmundsson.) Grundarlandið prúðir prýddu, Pétur á 9 og Pétur á 10. Arni Njálsson. Okkur langar með nokkrum fá- tæklegum orðum að kveðja vin, sem okkur var kær. Pétur Guðjónsson var hárskeri af lífi og sál. Hann sýndi okkur það með því að koma upp í Iðnskóla til okkar og miðla af þekkingu sinni með gestakennslu, þá einkum í rakstri sem hann var snillingur f. Pétur hafði ávallt frá mörgu að segja og var hafsjór af fróðleik og skemmtilegum sögum. Hann bar sterkar taugar til hársnyrtifélagsins og vildi veg þess sem mestan. Pétur var skemmtilegur persónuleiki og setti svip á borgina með rakarastofu sinni. Nú hefur þessi mikli meistari ver- ið kvaddur yfir á annað tilverustig. Við kveðjum hann með þakklæti og miklum söknuði. Við vottum ættingjum hans okkar dýpstu samúð. Kennarar við hársnyrtideild Iðnskólans í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.