Morgunblaðið - 05.02.1995, Page 44
póst gíró
Ármúla 6 • 150 Reykjavík
© 563 7472
KJÖRBÓK
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLADID, KNNGLAN 1, 103 REYKJAVlK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Uppeldisstöðvar fiskistofna í Laxá 1
Aðaldal skemmast vegna sandburðar
Vilja verja 100
milljónum til
að hefta áfok
árfélaginu, sem leigir ána af land-
eigendum, Landsvirkjunar og
bænda frá Laxá neðanveröri hitt-
ust til að sameina krafta sína.
Vistkerfi árinnar
hefur skemmst
Sandurinn, sem kemur úr Vatna-
jökli, berst í ána úr Kráká, einkum
frá Krákárbotnum og hafa sveitar-
félög í grenndinni, Landgræðslan,
Landsvirkjun og veiðifélögin unnið
skipulega að því að stemma stigu
við áfokinu frá 1986. Segir Vigfús
Jónsson á Laxamýri í Suður-Þing-
eyjarsýslu, formaður Veiðifélags
Laxár, að tuttugu milljónir á ári
þurfi til að ljúka því verki fyrir
aldamót. „Fundurinn var haldinn
til að sameina kraftana og voru
fundarmenn sammála um að halda
verkefninu áfram og beijast til
sigurs." Sýna eldri mælingar að
sandburður í ána er um 30.000
tonn á ári.
Vigfús segir vistkerfi árinnar
hafa skemmst því sandurinn í ánni
hafi fyllt upp í veiðistaði og eyði-
lagt hrygningarstöðvar. „Við erum
að reyna að taka fyrir þetta og
til dæmis er stefnt að því að enda-
punkturinn sé sá að hækka stífl-
una í Laxárvirkjun. Þannig megi
ná tökum á þessu því sandurinn
botnfalli og því hægt að dæla hon-
um upp til að hreinsa ána.“
Minna náttúruklak
„Það er greinilegt að náttúru-
klakið er minna fyrir þetta. Við
sleppum miklu af sjógönguseiðum
sem eru alin upp í stöð og höfum
haldið veiðinni uppi með því. Einn-
ig höfum við þurft að sleppa aukn-
um flölda seiða fyrir það að áin
elur ekki eins mikið upp af seiðum
og hún gerði og ætti að gera.“
Formaður Alþýðuflokks um aðgerðir vegna kjarasamninga
Lækkun á opinberri
þjónustu athuguð
Meiddist í
árekstri
lögreglubíla
LÖGREGLUMAÐUR slasaðist í
árekstri tveggja lögreglubíla í
fyrrinótt. Meiðsl hans eru ekki
talin alvarleg. Áreksturinn varð
þegar verið var að handtaka
unglinga á stolnum bil.
Að sögn lögreglu hafði núm-
erslausum bíl verið stolið við Bif-
reiðaskoðun íslands við Hestháls.
Fjórir unglingar voru í bílnum
og lauk ökuferðinni þegar ekið
var á vegrið við brúna yfir Korpu.
Unglingarnir hlupu á brott og
lögreglumenn á eftir þeim en lög-
reglubíll var þá skammt undan.
Annar lögreglubíll var sendur á
staðinn til að aðstoða við að hafa
upp á fólkinu úr bílnum en öku-
maður hans missti vald á honum
á svelli þannig að hann rann á
lögreglubílinn sem fyrir var á
vettvangi.
Sá var mannlaus en lögreglu-
maður í farþegasæti hins bílsins
meiddist á baki. Báðir lögreglu-
bílamir skemmdust nokkuð.
Lögreglumenn hlupu uppi pilt
og stúlku sem verið höfðu á
stolna bílnum og gisti pilturinn
fangageymslur.
JÓN Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, sagði í setning-
arræðu á aukaflokksþingi Alþýðu-
flokksins í gær, að nýta bæri efna-
hagsbatann til kjarajöfnunar og
þjóðarbúið hefði a.m.k. 10 milljarða
til ráðstöfunar til kjarabóta á þessu
ári. Jón Baldvin sagði að vel kæmi
til greina að ríkisstjómin setti á
laggirnar samstarfsnefnd með aðil-
um vinnumarkaðarins til að finna
leiðir til að lækka framfærslukostn-
að heimilanna samhliða skynsamleg-
um kjarasamningum.
„Þar kemur einkum til álita að
skoða ríkjandi verðmyndun varðandi
orkuverð, símakostnað, flutnings-
kostnað, fargjöld og trygging-
arkostnað. Allt eru þetta svið sem
búa við einokun eða fákeppni og
halda uppi óhagkvæmum rekstri í
skjóli þess. Allir vega þessir út-
gjaldaliðir þungt í framfærslu heim-
ilanna. Láta mun nærri að þeir vöru-
og þjónustuflokkar, sem nú hafa
verið nefndir, myndi beint og óbeint
um 15% af einkaneyslu venjulegrar
fjölskyldu, sem samkvæmt útgjalda-
mynstri vísitölufjölskyldunnar mætti
meta á 250-300 þúsund krónur á
ári. Hvert 1% í lækkun á fyrrgreind-
um liðum jafngildir því 2.500-3.000
krónum á ári,“ sagði Jón Baldvin.
Þá sagði hann skynsamlegt að
samið verði um krónutöluhækkanir
í kjarasamningum og að þeir sem
hafi laun undir 90 þús. kr. á mán-
uði fái sérstaka viðbótarhækkun.
Tollfijálsan innflutning
kjúklinga og e.t.v. eggja
Jón Baldvin sagði að ríkisvaldið
gæti haft frumkvæði að aðgerðum
til lækkunar framfærsluvísitölu og
til álita kæmi að opna fyrir tollfijáls-
an innflutning á kjúklingum og e.t.v.
eggjum. Ein leið væri að heimila
lágmarksinnflutning og ríkjandi
markaðsaðgang fyrir unnin matvæli
á lágum tollum.
„Þess er að vænta að forystumenn
launþegasamtakanna beiti sér af
alefli gegn áformum landbúnaðar-
ráðherra um ofurtolla á matvælainn-
flutning, í blóra við tilgang GATT-
samningsins.
Þessir ofurtollar eru svo háir að
verð innfluttrar matarkörfu hjá vísi-
tölufjölskyldunni yrði nær þrefalt
hærra en innlenda búvöruverðið er
nú. Ef Hagkaupskarfan kostar nú
1.000 krónur myndi innflutta matar-
karfan kosta 2.690 krónur, á því
verði sem hlýst af tillögum landbún-
aðarráðherra, það er 169% hærra
en innlenda verðið. Velflestar mat-
vörur yrðu um þrefalt dýrari,“ sagði
Jón Baldvin.
Þá sagði hann að stjórnvöld ættu
að taka jákvætt undir framkomnar
tillögur um breytingu og jafnvel af-
nám lánskjaravísitölunnar.
UPPELDISSTÖÐVAR fiskistofna
í Laxá í Aðaldal hafa skemmst
vegna sandburðar úr Kráká og
vilja hagsmunaaðilar að varið
verði 20 milljónum króna á ári til
aldamóta svo hefta megi sand-
skrið og áfok á vatnasvæðínu.
Óformlegur fundur var haldinn
á Akureyri síðastliðið fimmtudags-
kvöld þar sem fulltrúar úr Lax-
Morgunblaðið/lngvar
LÖGREGLUMAÐUR meiddist á baki og var fluttur á slysadeild eftir árekstur lögreglubíla í hálku
og éljaveðri á Vesturlandsvegi við Korpu í fyrrinótt.
Flugleiðir verða í vor fyrsta reyklausa flugfélag Evrópu
Bannað að reykja
í Ameríkuflugi
FLUGLEIÐIR verða fyrsta reyk-
lausa flugfélagið í Evrópu frá og
með gildistöku sumaráætlunar 26.
mars. Niðurstöður viðhorfs-
könnunar hafa leitt í ljós að um
90% farþega eru hlynntir reykinga-
banni. Tæpir tveir þriðju hlutar
reykingamanna fella sig við bann-
ið. Öllum helstu viðskiptalöndum
félagsins verður kynnt ákvörðunin
á mánudag.
Innanlandsflug félagsins hefur
verið reyklaust frá árinu 1984 og
Evrópuflug félagsins hefur verið
reyklaust frá 1993. Reykingabann
í flugi milli íslands og Bandaríkj-
anna, frá og með 26. mars, er í
samræmi við nýútgefna reglugerð
samgönguráðuneytisins. Gert er
ráð fyrir að nokkur af stærri flug-
félögum í Evrópu fylgi í kjölfar
Flugleiða innan skamms.
Aukið öryggi og heilsu-
samlegt umhverfi
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, segir að ákvörðunin sé
í samræmi við stefnu fyrirtækisins
um að stuðla að betra og heilnæm-
ara umhverfi fyrir farþega og
starfsmenn. Fyrirtækið gekkst fyr-
ir viðhorfskönnun um reykingar í
vetur. Niðurstöður hennar leiða í
ljós að mjög lítill minnihluti far-
þega er andvígur reykingabanni í
alþjóðaflugi og athygli vekur að
hér um bil tveir þriðju reykinga-
manna fella sig við bannið. Niður-
stöðurnar eru mjög í takt við fyrir
skoðanakannanir Flugleiða meðal
íslenskra og erlendra farþega fyrir-
tækisins.
-
Wm
% mM
Reykingar hafa verið bannaðar
í styttra innanlandsflugi í Banda-
ríkjunum en 6 tíma. Bandarísk
þingnefnd hefur samþykkt að
leggja fyrir þingið tillögu um að
allt farþegaflug til Bandaríkjanna
verði reyklaust og ýmis af stærri
flugfélögum í Evrópu hafa farið
þess á leit að fá að koma slíku
banni á fyrir eigið frumkvæði
fremur en að sæta opinberri laga-
setningu.
Allsheijarbann
ÞRÓUNIN í alþjóðaflugi hefur
verið í átt til reykingabanns und-
anfarin ár, að sögn Einars Sig-
urðssonar, blaðafulltrúa Flug-
leiða. ICAO, Alþjóðaflugmála-
stofnunin, hefur mælsttil þess að
allt farþegaflug í heiminum verði
reyklaust frá og með júlí 1996.
Rökin eru tvíþætt, aukið öryggi
og heilsusamlegt umhverfi fyrir
þá farþega sem ekki reykja.