Morgunblaðið - 18.02.1995, Page 1
80 SIÐUR LESBOK/C/D
41.TBL. 83.ÁRG.
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Spyrja
Rússa um
kjama-
kljúfana
NORSK stjómvöld reyndu í gær að
komast að því hvað hæft væri í orð-
rómi um að Rússar hygðust geyma
kjarnakljúfa úr 200 úreltum kafbát-
um í leynilegum berggöngum undir
Araflóa á Kolaskaga, aðeins um 160
km frá norsku landamærunum.
Ingvard Havnen, talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins í Ósló, sagði í
samtali við Aftenposten að haft hefði
verið samband við héraðsyfirvöld í
Múrmansk og varnarmálaráðuneytið
í Moskvu. Norðmönnum hefði verið
tjáð að engin ákvörðun hefði verið
tekin í þessum efnum og ekkert vit-
að hvenær hún yrði tekin. Að sögn
biaðsins hefur verið deilt um það
árum saman hvernig leysa eigi
geymsluvandann.
Fredric Hauge, ieiðtogi norsku
umhverfisvemdarsamtakanna Bell-
ona, sem komust yfir upplýsingar
um málið hjá rússneskum embættis-
mönnum, sagði ólíklegt að rússnesk
stjórnvöld myndu staðfesta opinber-
lega að áætlanirnar hefðu verið
gerðar.
-----» ♦..-♦---
Takaáný
upp dauða-
refsingu
New York. The Daily Telegraph.
DAUÐAREFSING verður tekin upp
aftur í New York-ríki í næsta mán-
uði, 33 ámm eftir að síðasta aftakan
fór fram í Gamla gneista eins og
rafmagnsstóllinn var kallaður. Sam-
kvæmt nýjum lögum verður opinber
aftaka að fara fram með banvænni
sprautun.
Báðar deildir þingsins í New York
og ríkisstjórinn hafa náð samkomu-
lagi um frumvarp um endurupptöku
dauðarefsingar og gæti það orðið
að lögum 1. mars nk. Á hverju ári
eru framin 2.300 morð í New York
og telja lögfróðir menn, að dauða-
refsing geti átt við í 20% tilfellanna.
í frumvarpinu segir, að dauðarefs-
ing geti komið til álita í sumum
morðmálum, til dæmis tengdum
hryðjuverkastarfsemi og fjöldamorð-
um; þegar lögreglumaður er myrtur
og þegar morð er framið að undan-
gengnum pyntingum. Ekki er þó
búist við, að dauðarefsingu verði
beitt næsta áratuginn vegna þess,
að andstæðingar hennar ætla að
áfrýja ákvörðuninni á öllum stigum
dómskerfísins.
Dauðarefsing í 38 ríkjum
New York verður 38. ríki Banda-
ríkjanna til að taka upp dauðarefs-
ingu síðan Hæstiréttur úrskurðaði
1976 að hún bryti ekki í bága við
stjórnarskrána. Tveir ríkisstjórar
demókrata, Hugh Carey og Mario
Cuomo, beittu neitunarvaldi gegn
endurupptöku hennar í 18 ár, en það
var eitt af kosningaloforðum núver-
andi ríkisstjóra repúblikana, George
Patakis, að leiða hana í lög.
Mandela telur að stríð sé hafið gegn stjórnleysisöflum í Suður-Afríku
Reuter
NELSON Mandela við þingsetninguna ásamt
frænku sinni, Zanenai Mandela Dlamini.
Rúmenskur
prestur ofurölvi
Jarðsöng
í stað þess
að gifta
Búkarest. Reuter.
RÚMENSK brúðhjón réð-
ust nýlega á prestinn, sem
ætlaði að fara að gefa þau
saman, og lúskruðu dug-
lega á honum. Var ástæðan
sú, að hann var útúrdrukk-
inn og fór með vitlausan
texta, ,jarðsöng“ unga
fólkið í stað þess að blessa
samneyti þess fyrir guði
og mönnum.
Rúmenska fréttastofan
Rompres skýrði frá þessu
og sagði, að presturinn,
sem býr í þorpinu Tisau,
hefði áður orðið sér til
skammar með drykkju-
skap og látum. Var söfnuð-
urinn orðinn langþreyttur
á prestinum sínum en
hjónavígslan, sem snerist
upp í jarðarför, var kornið,
sem fyllti mælinn. Voru
fréttamenn þá kallaðir til
og þeim sagt allt af létta
um framferði guðsmanns-
ins.
Segir ábyrgð
fylgja frelsi
Höfðaborg. Reuter.
NELSON Mandela, forseti S-Afríku, setti þingið í gær með harðorðri ræðu
og hótaði að taka herskáa blökkumenn og hvíta öfgamenn, sem andvígir
eru afnámi aðskilnaðarstefnunnar, engum vettlingatökum. Sagði hann, að
sumir þeirra hefðu misskilið frelsið og teldu, að í skjóli þess væri allt leyfilegt.
„Látum engan velkjast í vafa um,
að stríðið gegn stjórnleysisöflunum
er hafið,“ sagði Mandela í ræðu sinni
og lagði áherslu á, að stöðugleiki
yrði að ríkja, jafnt í efnahags- sem
þjóðfélagsmálum. Sagði hann, að
ekki væri til fé til að verða við óskum
allra fórnarlamba aðskilnaðarstefn-
unnar áður fyrr.
„Við verðum að losa okkur við þá
fírru, að ríkisstjómin liggi á gullinu
eins og ormur. Mótmæii og aðrar slík-
ar aðgerðir munu engu bæta við
þjóðarauðinn," sagði Mandela en til-
kynnti jafnframt, að gripið yrði til
raunhæfra aðgerða í atvinnu-, hús-,
næðis- og heilbrigðismálum síðar á
árinu.
Bitlingahefðin
Margir blökkumenn eru óánægðir
með, að hagur þeirra skuli ekki hafa
vænkast meira en raun ber vitni þrátt
fyrir afnám aðskilnaðarstefnunnar og
kenna Mandela um. Hann sagði aftur
í ræðu sinni, að það tæki sinn tíma
að leysa úr þeim miklu vandamálum,
sem við blöstu í Suður-Afríku.
Mandela gerði líka að umtalsefni
„bitlingahefðina" meðal blökkumanna
og sagði, að spillingin yrði upprætt
hvenær sem hennar yrði vart.
Þrælahald
afnumið
Jackson, Mississippi. Reuter.
ÞING Mississippi samþykkti í
vikunni samhljóða að banna
þrælahald með því að sam-
þykkja staðfestingu á 13.
grein bandarísku stjómar-
skrárinnar, 130 ámm eftir að
greinin tók gildi.
Atkvæðagreiðslan er að-
eins táknræn en öldunga-
deildarþingmaðurinn Hillman
Frazier sagði hana engu að
síður mikilvæga. Nauðsynlegt
væri að sýna umheiminum að
Mississippi-ríki hefði sagt
skilið við fortíðina.
Mississippi var eitt af síð-
ustu ríkjunum til að fella úr
gildi lög sem kváðu á um
aðskilnað kynþátta en það var
gert á sjöunda áratugnum.
Þá hefur ríkið oftlega verið
sýnt sem heimahagar Ku
Klux Klan-samtakanna í bók-
um og kvikmyndum.
Vopnahléð fram-
lengt í Tsjetsjníju
Lagt að Clinton að hætta við
leiðtogafund í Moskvu
Sleptsovsk, Washington. Reuter.
YFIRMENN heija Tsjetsjena og
Rússa samþykktu í gær að fram-
lengja vopnahléð í Tsjetsjníju þar til
á morgun, sunnudag. Oánægja er
meðal bandarískra þingmanna með
hemaðaraðgerðir Rússa í uppreisn-
arhéraðinu og þeir leggja nú að Bill
Clinton Bandaríkjaforseta að hætta
við fyrirhugaða Moskvu-ferð sína.
Fundur yfírmannanna stóð í fjórar
klukkustundir og þeir náðu ekki
samkomulagi um að skiptast á föng-
um og líkum fallinna í dag eins og
stefnt var að. Þess í stað sömdu
þeir um að skiptast á listum yfir
fanga í Grosnf, höfuðstað Tsjetsjníju.
„Þetta er sigur“
„Nú hefur liðið annar dagur án
bardaga og blóðsúthellinga. Þetta er
sigur,“ sagði Shamfl Basajev, yfir-
maður tsjetsjenska hersins. Ummæli
Basajevs voru í mótsögn við frétt frá
rússnesku fréttastofunni Interfax um
að komið hefði til bardaga milli stór-
skotaliðssveita á svæði sunnan við
höfuðstaðinn í fyrrinótt.
Yfirmenn heijanna
höfðu áður samið um
vopnahlé sem féll úr
gildi í gærkvöldi. Sam-
komulag náðist um að
framlengja það til
klukkan 15 á morgun.
Óánægja í
Bandaríkjunum
Stefnuræðu Borísar
Jeltsíns Rússlandsfor-
seta á þinginu í fyrra-
dag var misjafnlega
tekið á Vesturlöndum. í ræðunni
boðaði Jeltsín uppstokkun í hernum
og gagnrýndi yfírstjórnina en varði
hernaðaraðgerðirnar í Tsjetsjníju.
Hann fordæmdi leiðtoga uppreisnar-
manna og líkti þeim við eiturlyfja-
baróna í Kólumbíu.
Bandarískir embættismenn létu í
ljós óánægju, sögðu að Bandaríkja-
stjórn hefði vonast til þess að Jeltsín
sleppti því að veitast að leiðtogum
Reuter
RUSSNESK kona, sem býr í Grosní, höfuð-
stað Tsjetsjníju, sýnir rússneskt vegabréf
sitt og grátbiður embættismenn um aðstoð.
uppreisnarhéraðsins og legði þess í
stað áherslu á friðsamlega lausn
deilunnar og sættir.
Bandarískir þingmenn gagnrýndu
einnig ræðuna og hvöttu Clinton
forseta til að taka harðari afstöðu
gegn hernaðaraðgerðunum, hætta
jafnvel við fyrirhugaðan fund með
Jeltsín í Moskvu í maí nema rúss-
neski forsetinn reyndi að leysa deil-
una með viðræðum.