Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 23 4lut Grand Cherokee Laredo '93 til sölu, upphækkaður, blásanseraður, ný dekk, dráttarkúla. Bíll í toppstandi. Skipti möguleg á ódýrari. Góð greiðslukjör í boði. Staðgreiðsluverð 3,2 millj. Upplýsingar í símum 91-20160 og 91-39373, Karl, í dag og næstu daga. Saxófón- kvartett í Listasafni * Islands HINN danski Rascher Saxophone Quartet heldur tónleika í Lista- safni Islands mánudaginn 20. febrúar. Tónleikamir hefjast klukkan 20.30 og á efnisskránni eru verk eftir Per Norgárd, Atla Heimi Sveinsson Hans Kox, Steve Reich og Tristan Keuris. Rascher Saxophone Quartet var stofnaður 1969 af Sigurd Rascher. í upphafi ferils Sigurd í kringum 1930 var varla til tón- verk fyrir saxófón. Hann einsetti sér að auka verkaskrána fyrir hljóðfærið og fékk til liðs við sig tónskáld eins og Haba, Hindem- ith, Martin, Cowell, Ibert og Glaz- unov. Þegar Rascher kvartettinn var stofnaður var ástandið svipað og því hvöttu þeir samtimatónskáld til að semja fyrir saxófónkvart- ett. Nú þegar em til 200 tónverk, sem em tileinkuð Rascher kvart- ettinum af tónskáldum eins og Berio, Bialas, Denhoff, Donatoni, Firsowa, Halffter, Haubenstock- Ramati, Keuris, Sandström, Schweinitz, Tertzakis, Urbanner, Wernick, Wuorinen, Xenakis, Nnrgárd, Gubaidulina, Zechlin o.fl. Rascher kvartettinn spilar á upprunalega gerð saxófóna, sem gefur hljómnum sérstakan blæ. Þýski tónvísindamaðurinn Ulrich Dibelius skrifaði eftirfarandi um þennan Adolphe Sax tón: „Þegar Rascher kvartettinn spilar Bach er það eins og að orgelið og strengjakvartettinn hafi verið sameinaðir." fyrstu tónleikana 24. október. Hljóm- sveitin er arftaki Kammerhljómsveitar Akureyrar sem hafði starfað frá haust- inu 1986. Hún hefur flutt barokktónl- ist og nútímatónlist og allt þar á milli. í haust hófst nýtt starfsár með því að flutt voru verk 20. aldar tónskáld- anna Berio, Milhaud og Ibert en á öðrum tónleikum voru verk eftir Vi- valdi, Mozart og Britten. í janúar var leikin tónlist eftir Mozart, Ravel og Falla og nú eru íslenskum tónskáldum gerð skil. Framundan eru síðan óperu- tónleikar með Kristjáni Jóhannssyni og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur í apríl. Stjómandi á tónleikunum og jafn- framt aðalstjómandi Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands er Guðmundur Óli Gunnarsson. Um kvöldið verða síðan tónleikar í hinni nýju Digraneskirkju í Kópavogi. Þar koma fram þrír bamakórar frá jafnmörgum sveitarfélögum á höfuð- borgarsvæðinu og flytja íslensk lög fyrir bamakóra. Kóramir em Skólakór Kársness, undir stjóm Þórunnar Bjömsdóttur, Gradualekór Langholts- kirkju, undir stjóm Jóns Stefánssonar, og Kór Öldutúnsskóla, en stjómandi hans er Egill R. Friðleifsson. Eftiisskrá- in er fjölbreytt og verða m.a. frum- flutt „Maríuóður" eftir Hildigunni Rún- arsdóttur, „Vökuró“ eftir Hróðmar I. Sigurbjömsson, „Næturró" eftir Fjölni Stefánsson, „Drottningin stár“ eftir Jón Ásgeirsson og „Bamagælur" eftir Jómnni Viðar. Aðrir höfundar em Páll ísólfsson, Sigfús Einarsson, Mist Þorkelsdóttir, Þorkell Sigurbjömsson, Hjálmar I. Ragnarsson, Atli Heimir Sveinsson, Jón Þórarinsson, Jón Nordal og Sveinbjöm Sveinbjömsson. Ókeypis: Eftirréttur og Tonima og Jenna klaki fyrir börnin 2. SÝNING á Bangsímon verður í dag kl. 15. Skólakór Kársness Gradualekór Langholtskirkju laugardag og sunnudag Síðasta sýn- ingarhelgi Hallsteins HALLSTEINN Sigurðsson mynd- höggvari opnaði sýningu á jámmynd- um í Listasafni ASÍ 4. febrúar sl. Á sýningunni eru 13 jámmyndir, allar gerðar árið 1994. Verkin eru unnin út frá pýramídum, skelja- og keilu- formum. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14 til 19. Sýningunni lýkur sunnu- daginn 19. febrúar. -----» ♦ »---- Taktu lagið, Lóa! Uppselt á næstu fimmtán sýningar UPPSELT er á næstu fímmtán sýn- ingar eða fram yfír miðjan næsta mánuð á leikritið, Taktu lagið, Lóa! sem fmmsýnt var á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í upphafí mánaðar- ins; I kynningu segir: „Gífurleg aðsókn hefur verið að leikritinu og stendur yfir sala á allar fyrirhugaðar sýning- ar í marsmánuði. Auk þess verður reynt að hafa einhveijar aukasýning- ar þau kvöld sem kostur er og em ósóttar pantanir seldar daglega." Leikfélag Selfoss Sýningar að hefjast á „Bangs- ímon“ NÚ ERU hafnar sýningar á barnaleikritinu Bangsímon sem félagar í Leikfélagi Selfoss hafa verið að æfa að undanförnu. Frumsýnt var í gær og verður 2. sýning í dag, laugardag, kl. 15 og 3. sýning á morgun kl. 15. í kynningu segir: „Leikritið er gert af Peter Snickars eftir barna- sögu A.A. Milne og flallar um Jakob, dreng sem lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum, þeim Tígra, Gríslingi, Kaninku, Asnanum og auðvitað Bangsím- on. Saman fara þau í rannsóknar- leiðangur í skóginum, gera tilraun til að veiða Skolladynk og reyna að hressa Asnann við, en hann er í fýlu eins og venjulega, jafnvel þótt hann eigi afmæli.“ Þýðandinn, Sigríður Karlsdótt- ir, og leikstjóri sýningarinnar; Katrín I. Karlsdóttir, eru félagar í Leikfélagi Selfoss og er þetta frumflutningur á íslandi. Miðaverð er 700 krónur, bæði fyrir börn og fullorðna og fylgir hveijum aðgöngumiða barmmerki með mynd af Bangsímon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.