Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ + Anna Hjartar- dóttir fæddist á Hanhóli i Bolungar- vík hinn 26. maí 1935. Hún lést á Fj órðungssj úkra- húsinu á Isafirði 8. febrúar sl. Foreldr- ar hennar voru Arndís Jónasdóttir f. 19. maí 1904, dáin 30. des. 1947 og Hjörtur Sturlaugs- son, f. 7. apríl 1905, dáinn 30. júlí 1985. Anna átti þijú al- systkini, þau Sverri, f. 16. maí 1931, Bemharð, f. 10. maí 1932 og Hjördísi, f. 12. maí 1939. Hjörtur kvæntist Guðrúnu Guð- mundsóttur 1950 og eignaðist með henni þrjú böm, þau Amd- ísi, f. 16. nóv. 1950, Einar, f. 18. maí 1953 og Guðbjörgu, f. 29. mars 1955. Guðrún var í DAG kveðjum við Hlífarkonur eina af okkar tryggustu og duglegustu félagskonu, en fyrir viku kvöddum við einnig ástsæla félagskonu, svil- konu hennar, Guðrúnu Ásgeirsdótt- ur, sem vann mikið fyrir félagið allt fram á síðasta dag. Blessuð sé minn- ing hennar. Við kveðjum Önnu Hjartar með söknuði og finnum til vanmáttar, hvers vegna var röðin komin að henni? Með óbilandi vilja og dugnaði barðist hún við ólæknandi sjúkdóm sl. tvö ár. Við lifðum alltaf í voninni að hún næði sér en því miður, stað- reyndin lá fyrir. I síðustu heimsókn minni til hennar var hún að spyija eftir hvemig gengi með samsætið okkar, því alltaf var hugur hennar hjá okkur. Hennar síðasta starf með okkur var í nóv. sl. við hlutaveltuna, en þá var hún sæl og ánægð eftir velhéppnaða ferð með vini sínum til Madeira. Þegar svona stórt skarð er höggv- ið í raðir okkar litla félags stöndum við sem eftir erum ráðþrota og ligg- ur við að okkur fínnist að starfí okkar sé einnig lokið. En nú þessa dagana erum við einmitt að vinna að okkar árlega stóra verkefni, „Hlífarsamsætinu" og er það okkur hvatning að minnast Ónnu og vinna í hennar anda við það starf. En það er þá sem við söknum Önnu okkar hvað mest. Hún var áhaldavörður okkar og sá til þess að allir okkar hlutir væru komnir á réttan stað fyrir réttan tíma. Þar naut hún dyggrar aðstoðar sona sinna og vina þeirra, skátanna, sem stóðu henni hvað næst. í gegnum tíðina hefur Málara- blokkin, eins og við köllum það, ver- ið miðstöð okkar Hlífarkvenna, þar sem þijár félagskonur bjuggu og þeir bræður aðstoðuðu þær eftir bestu getu. Anna gekk ung til liðs við Kven- félagið Hlíf og lét af stjómarstörfum eftir margra ára setu vorið 1994. Anna var gift Sigurði Guðmunds- syni málarameistara sem lést fyrir ■tíu árum. Þau eignuðust þijá syni, Hjört, Pétur og Gunnar Þór. Pétur er giftur Kristínu Böðvarsdóttur og eiga þau tvo drengi, augasteina ömmu sinnar, þá Sigurð og Svein- bjöm. Félagskonur í Kvenfélaginu Hlíf þakka Önnu af alhug allt hennar starf við félagið og votta aðstand- endum hennar dýpstu samúð. Bless- uð sé minning hennar. Krisljana Sigurðardóttir. Hjónin Guðmundur Sæmundsson -og Margrét Pétursdóttir, tengdafor- eldrar Önnu, byggðu ásamt sonum sínum Kjartani, Níelsi og Sigurði, húsið Aðalstræti 17 og 19 á ísafírði. Var það bæði atvinnu- og íbúðarhús- næði. Sæmundur yngstur þeirra bræðra var þá unglingur. Um 1954 hefst flutningur fjöl- skyldnanna úr Tangagötu 17 í nýja ■»húsið sem þá átti langt í land að ekkja þegar hún giftist Hirti og átti þijá syni, þá Sva- var, Kristján og Guðmund. Árið 1955 giftist Anna Sigurði Ás- geiri Guðmunds- syni, málarameist- ara á ísafirði, f. 3. feb. 1935, dáinn 15. des. 1984. Synir Önnu og Sigurðar eru: Hjörtur Arnar, f. 6. júlí 1957, bú- settur á Isafirði, Pétur Sigurgeir, f. 28. desember 1958, búsettur á ísafirði. Eiginkona hans er Kristín Böðvarsdóttir og eiga þau tvo syni, Sigurð, f. 6. nóv. 1984 og Sveinbjöm, f. 30. nóv. 1988. Gunnar Þór, f. 16. jan. 1964, búsettur á ísafirði. Útför Önnu fer fram frá ísafjarðarkapellu í dag. verða fullbyggt en með einstakri samheldni og samvinnu tókst að vinna þá þrekraun. Árið 1955 giftist Anna Hjartardóttir föðurbróður mín: um Sigurði. Hún bar með sér ferskan blæ í húsið. Hún var bæði röskleg og dugnaðarleg í allri framgöngu, mót- uð af uppeldi sínu í Fagrahvammi í Skutulsfírði þar sem myndarbragur var bæði yfír búi og heimilisfólki. Það var góður fengur að fá Önnu í okkar raðir, einkum þegar kom að heyskap í Fremri-Arnardal. Þar nutu sín starfskraftar Önnu vel. Guð- mundur og Margrét dvöldu þar yfír sumartímann með elstu barnabömin en tengdadætumar komu svo um hádegisbilið með yngstu bömin til að taka þátt í heyskapnum. Síðan tók við sláturtíð og kartöfluupp- skera. Á þessum sviðum kunni Anna sannarlega vel til verka og var þar að auki mikill og góður bflstjóri svo aðdáunarvert var. Anna var ekki bara hamhleypa til vinnu, hún var okkur öllum, einkum og sér í lagi svilkonum sínum, traust vinkona og léttur og kátur félagi. Anna varð ekkja árið 1984. Síðar var gott að sjá hana eign- ast vin í Gunnari Guðbjömssyni, sjá hana njóta lífsins, fara á skíði, ferð- ast, en tíminn var naumt skammt- aður. Það var gott að vita hana eiga stuðning Gunnars og hans fólks í veikindunum. Stolt Önnu vom synimir, Hjörtur, Pétur, Gunnar Þór og tengdadóttirin Kristín en barnabörnin vom gleði hennar og augasteinar. Nú er skammt stórra högga á milli og tómahljóð í stóra húsinu við Aðalstrætið, þegar svilkonurnar Guðrún Ásgeirsdóttir og Anna Hjartardóttir kvöddu lífíð báðar í sömu vikunni. Eftir sitjum við með söknuð í hjarta en góðar minningar um tvær góðar konur. Sigríður Níelsdóttir. Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast. Og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logar skæra sem skamma stund oss gladdi það keikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósiö bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (F.G.Þ.) Eg vil með fáum orðum minnast góðrar vinkonu minnar, Önnu Hjart- ardóttur, er lést á Sjúkrahúsi ísa- fjarðar hinn 8. febrúar sl. eftir erfíð veikindi, sem hún barðist við með miklum viljastyrk og dugnaði en varð að lokum að lúta í lægra haldi. MINNINGAR Ég kynntist Önnu fyrst er við unnum saman á Sjúkrahúsinu á ísafírði og tókst með okkur mikil vinátta. Anna var sannur vinur vina sinna og því fékk ég að kynnast. Það sem einkenndi Önnu helst var hjartahlýja, jákvæðni, bjartsýni og dugnaður, sem gerði það að verkum að fólki fannst gott að vera nálægt henni. Elsku Anna, ég vil þakka þér all- ar góðar stundir, sem við höfum átt saman. Minninguna um þig eigum við öll í hjarta okkar og getum yljað okkur við. Elsku Gunnar, Pétur, Hjörtur, Gunnar Þór, Kristín, Hiddi, Svein- björn og aðrir ástvinir Önnu. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Ágústa. Elskuleg æskuvinkona mín er látin eftir hetjulega baráttu við sjúkdóm sem gerði vart við sig fyrir tæpum tveimur árum. Aldrei heyrði ég hana kvarta og hún bar sig svo vel að hver sem til hennar kom, fór bjartsýnni til baka. Síðasta símtalið sem ég átti við hana var einni og hálfri viku áður en hún dó og þá viðurkenndi hún að ég sækti ekki nógu vel að sér, því að hún væri svo máttlaus og ýmis önn- ur vanlíðan kom í ljós þegar ég spurði hana beint. Að loknu því símtali ótt- aðist ég að nú hefði ég ekki tæki- færi til að tala við hana oftar, þar sem fjarlægðin á milli okkar var of mikil til þess að ég gæti heimsótt hana. Hún gat ekki lengur dulið hversu mikið hún var veik, en bjart- sýni hennar og baráttuþrek var búið að vera svo ótrúlega mikið. Það lýsir henni vel að þó hún væri orðin dauðsjúk, hélt hún áfram að hugsa um að gera öðrum lífið sem léttast, því að nokkrum dögum fyrir andlátið bar hún fram þær óskir að minningarathöfn um hana yrði hald- in í Reykjavík svo að nánir ættingjar hennar og vinir búsettir þar þyrftu ekki að fara í vályndu vetrarveðri til Isafjarðar til að vera við jarðarför hennar. Við Anna kynntumst þegar við vorum átta ára og minnist ég þess ekki að nokkum tíma hafí fallið skuggi á vináttu okkar í þau rúmlega 50 ár sem liðin eru. Við vorum sam- an í bamaskóla og lékum okkur mik- ið saman því stutt var á milli bæja og mikill vinskapur á milli foreldra okkar. Sumarkvöldin frá þeim árum þeg- ar við lékum okkur við að sjóða ra- barbaragraut á hlóðum í búinu okk- ar, sem var miðja vegu milli heimila okkar, alls kyns felu- og hlaupaleikir með fleiri krökkum, hjólreiðatúrar, stjömubjört vetrarsíðdegin á skíðum, allar þessar yndislegu minningar eru tengdar samvistum við mína góðu og tryggu vinkonu. Anna missti móður sína skyndi- lega á milli jóla og nýárs þegar við vorum 12 ára, þá kynntist ég vel kjarki hennar og æðmleysi og hvem- ig hún axlaði ábyrgð með föður sín- um á búsýslu með skólavinnunni. Systir hennar Hjördís var fjórum árum yngri og varð móðurmissirinn til þess að tengja þær þéttum systra- og vináttuböndum, sem alla tíð hafa haldist eins og best er á kosið. Nábýli okkar Önnu lauk þegar við vomm 16 ára því þá flutti ég til Reykjavíkur, en áfram hélst vinskap- urinn og við heimsóttum hvor aðra eftir að við stofnuðum heimili, hún á ísafirði og ég í Reykjavík. Anna giftist Sigurði Guðmunds- syni málarameistara og eignuðust þau þijá syni, Hjört, Pétur og Gunn- ar Þór. Ég minnist þess hve gott var að koma á heimili Önnu og Hidda þar sem ríkti samheldni, góðlátleg kímni og mikil greiðvikni við alla sem einhvers þurftu með hvort sem það var í smáu eða stóm. Það var alla tíð gestkvæmt hjá Önnu, og aldrei vora svo margir gestir að hún fyndi ekki pláss á heimili sínu fyrir fleiri. Hún hafði einstakt lag á því að láta gesti sína fínna að það væri henni engin fyrirhöfn að hýsa fólk í upp- búnum rúmum og dekka veisluborð í marga daga. Synimir em allir bú- settur á ísafirði þar sem Hjörtur og Gunnar nota frístundir sínar til nátt- úmskoðunar upp um fjöll og fímindi um leið og þeir þjálfa sig til starfa með hjálparsveit skáta, en Pétur kynnist ölduhæð sjávarins á meðan eiginkonan, hún Kristín, gætir bús og bama og var tengdamóður sinni sem besta dóttir. Anna bar mikið verðskuldað traust til sonanna sinna og tengdadóttur og litlu sonarsynimir vora sólargeisl- ar á heimili ömmu sinnar, enda nut- um við þess vinkonurnar að hlusta á frásagnir hvor annarrar um barna- bömin okkar. Ekki veit ég betri ferðafélaga en Önnu, hún var mikill náttúmunnandi og hafði glöggt auga fyrir töfmm íslenskrar náttúm við mismunandi veðurfar.. Við hjónin fengum hana með okkur bæði til Aðalvíkur og í Landmannalaugar eftir að hún missti eiginmann sinn, en hann varð bráð- kvaddur rétt fyrir jólin fyrirtíu ámm. Þá eins og fyrr kom fram æðm- leysi, geðprýði og kjarkur minnar góðu vinkonu. Nokkmm ámm síðar hittust ferm- ingarsystkini okkar á ísafirði, og upp frá þeim endurfundum tókst náinn vinskapur milli Önnu og skólabróður okkar, Gunnars Guðbjömssonar, sem orðinn var ekkjumaður. Árin þar á eftir vom góð, Gunnar og Anna fóm saman í skíðaferðir til útlanda, óku saman um landið og ferðir milli ísa- fjarðar og Reykjavíkur öðluðust nýj- an tilgang. En fljótt skipast veður í lofti, Anna greindist með hættulegan sjúkdóm og þá sem endranær var ómetanlegt að eiga góðan vin sem gerði allt sem hægt var til að létta sjúkdómsbyrðina. Húsbíll var útbú- inn því að þannig var auðveldara fyrir kjarkmiklu vinkonuna að ferð- ast um landið þegar hlé vora á lækn- ismeðferð og öll emm við þakklát fyrir utanlandsferðina sem þau fóm saman í september sl. þar sem Anna kom brún og frískleg til baka og hafði orð á því hve vel sér hefði liðið í ferðinni. Bjartsýnin ríkti skamma stund því brátt syrti í álinn, sjúkdóm- urinn ágerðist hratt og ekki varð við neitt ráðið. Við Jón þökkum Önnu fyrir allar samvemstundirnar og vottum öllum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Matthildur Guðmundsdóttir. Hún Anna Hjartar er dáin, farin yfír móðuna miklu. Baráttu hennar við erfiðan sjúk- dóm er lokið. Baráttu sem hún vildi svo gjarnan sigra og fá að vera dálít- ið lengur meðal þeirra er henni þótti vænt um. En tími okkar hér á jörðu er naumt skammtaður. Það er annar okkur æðri sem ákveður hvenær hann rennur út. Hún Anna mín, sem var alltaf svo hraust og dugleg, er farin. Það er erfítt að sætta sig við það og sárt að hugsa til þess að eiga aldrei aftur eftir að hitta hana og eyða með henni dagstund. Við vomm búnar að vera vinir lengi. Hún var frekar seintekin en öllum öðram tryggari og áreiðan- legri. Henni Önnu líkaði enginn los- arabragur á hlutunum. Anna gerði miklar kröfur til sjálfrar sín og hafði góðan sjálfsaga en hún var líka hlý og gat verið bæði kát og skemmti- leg. Engan betri hlustanda þekkti ég en Önnu, sérstaklega þegar á bjátaði. Mig langar að þakka Önnu fyrir langa og trygga vináttu og allar þær fjölmörgu ánægjustundir sem við áttum saman. Bæði sem ungar konur og einnig núna síðustu tvö árin sem hún var veik. Vegna veikinda sinna þurfti hún oft að vera hér sunnan- lands. Því gáfust fleiri tækifæri til samvemstunda, sem flestar vom ánægjulegar, þó líðan hennar væri ekki alltaf sem best. Ég bið Guð að geyma mína elsku- legu vinkonu og gefa sálu hennar frið. Sonum hennar, tengdadóttur, sonarsonum og Gunnari votta ég mína dýpstu samúð og bið Guð að blessa þau öll. Sólveig Sörensen. Okkur langar til að minnast kærr- ar starfssystur okkar á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Isafírði, Önnu Hjart- ardóttur, sem lést langt um aldur fram 8. febrúar sl. eftir erfíð veik- indi. Anna vann á legudeild FSÍ í yfír 20 ár við hjúkran og umönnun sjúkra. Samstarfsfólk hennar og skjólstæðingar minnast ljúfmennsku ANNA HJARTARDÓTTIR hennar með söknuði og þökk. Mannkostir Önnu nýttust henni einstaklega vel í starfí. Hún var lífs- glöð að eðlisfari og mannblendin og skipti sjaldan skapi. Á sinn rólega og yfírvegaða hátt gat hún samt verið föst fyrir og sagt sína meiningu svo eftir var tekið. Hún var lagin við að hjálpa sjúklingunum að sjá hið jákvæða í lífinu og vekja með þeim þá von sem er nauðsynleg í hverri raun. í Önnu birtust fegurstu eigin- leikar þess sem hjúkrar. Það er ekki öllum gefíð. Hún var ósérhlífin við vinnu, verklagin og harðdugleg. Sjúkrahús er vinnustaður sem reynir mjög á þolrif starfsmanna og þjappar þeim saman. Vinnufélagi eins og Ánna verður því fljótt kær vinur, sem gott er að leita til og sækja styrk hjá. Nýliðar í starfí áttu hauk í homi þar sem Anna var. Með léttri lund, þolinmæði og hvatningu hreif hún þá með sér, leiðbeindi og hjálpaði að aðlagast nýjum vinnu- stað. Anna var gift Sigurði Guðmunds- syni, málarameistara. Hann félj frá fyrir allnokkmm áram og var Önnu harmdauði. Þau eignuðust þijá syni, Hjört, Pétur og Gunnar. Á milli Önnu og tengdadóttur hennar, Kristínar Böðvarsdóttur, vom miklir kærleik- ar. Litlu ömmustrákamir, Sigurður og Sveinbjöm Péturssynir, skipuðu stóran sess í lífí Önnu og vom henni ákaflega dýrmætir. Skein stoltið af Önnu þegar á þá var minnst. Var yndislegt að sjá þá koma og hlaupa upp um hálsinn á henni. Fyrir þá er missirinn mikill, minningin um horfn- ar samvemstundir þeim mun fegurri. Fyrir tæpum tveimur ámm greind- ist Ánna með illkynja sjúkdóm. Tók hún því mikla áfalli með stillingu og yfírvegun. Hún glímdi við hann og erfiða læknismeðferð af miklum innri krafti og þrautseigju. Þegar hún var komin i sjúklingshlutverkið reyndi hún eftir megni að gera okkur vinnu- félögunum léttbærara að hjúkra henni með æðruleysi sínu og léttri lund. Við hlið hennar í baráttunni stóð samhent fjölskylda sem umvafði hana ást og hlýju. Þar á meðal var ástkær vinur hennar, Gunnar Guð- bjömsson, sem gerði allt sem í hans valdi stóð til að gera henni lífíð létt- ara. Þau tvö ferðuðust mikið og veitti það þeim mikla ánægju, þann allt of stutta tíma sem þau áttu saman. Um leið og við kveðjum okkar kæru Önnu, þökkum við henni fyrir áratuga samstarf og vináttu og biðj- um henni Guðs blessunar í betri heimi. Við sendum Gunnari og öllum ættingjum Önnu okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Megi minningin um yndislega konu sefa sárasta söknuð- inn. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Starfsfólk FSÍ. Við kveðjum hana Önnu í dag. Eftir hetjulega baráttu beið hún ósig- ur, en lengi vel trúði ég að hún mundi bera sigurorð af veikindum sínum. Ávallt mun ég minnast Önnu með hlýhug, á unglingsárunum var hún mér bæði sem systir og fóstra. Það vom margir sem nutu gest- risni þeirra Önnu og Hidda í Aðal- stræti 19, ýmist sem dvalargestir, leigjendur, eða til þess að þiggja kaffíbolla. Anna tranaði sér ekki fram, en fékk sínu framgengt í orði og verki á mjúkan og ákveðinn hátt, þannig að unglingum var ljúft að hlíta leiðsögn hennar. Það er margs að minnast, t.d. úr sveitinni í gamla daga, þegar Anna kom á Austin-vörubílnum sem þau áttu hjónin, að flytja hey eða annan vaming. Hún hefur sennilega verið eina konan á ísafírði á þeim tíma sem ók vömbfl, en það þótti sjálfsagt að hún gerði það eins og annað. Það sem einkenndi Önnu alla tíð var kjarkur, glettni og umburðar- lyndi, þetta em verðmætir eiginleikar í einni manneskju. Ég þakka fyrir allt. Guðmundur Einarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.