Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Framandi ávextir Mikið ber á svokölluðum framandi áxöxtum í ávaxtahillum verslana. Fáir kaupa þá og er ástæðan vafalaust sú, að fólk þekkir þá ekki og þeir eru mjög dýrir. Kristín Gestsdóttir leiðbeinir okkur um notkun ávaxtanna og segir okkur frá þeim. ARIÐ 1984 barst í hendur mínar dönsk þýskættuð bók, sem ber heitið „Alt om eksotiske frugter og gronsa- ger (Allt um framandi ávexti og grænmeti). Mér fannst mikill fengur í þessari bók og hefi lært mikið af henni. Allir ávextir í henni fást nú hérlendis. Fremst í bókinni er fjallað um kívi, sem varla telst til framandi ávaxta lengur en síðan koma kaflar með 25 tegundum ávaxta sem þó ekki allar teljast til hinna framandi. Hér verður þó stiklað á stóru, aðeins fjallað um þijár, vonandi gefst tækifæri til að líta á hinar síðar. Fyrst á dagskrá er GRANAT- EPLI, sem ég minnist frá Grimms-ævíntýrum bernsku minnar sem eitthvað stórkostlegt, fullt af kærleika og fegurð. Eg hefi mikið dálæti á granateplum og strái fræunum oft út á salatið mitt, en það er einkar ljúffengt. Uppruni granateplis er Afghan- istan og íran, myndir frá því 2.500 árum f.Kr. sýna að Fönikíu- menn, Egyptar og gyðingar töldu það heilagt og blóm þess hafa verið talin tákn ástarinnar, en ávöxturinn og hin fjölmörgu fræ voru talin imynd fijóseminnar. Vandi er að ná fræjunum úr ávextinum. Best er að stinga nokkur göt á hinn harða börk og bijóta síðan granateplið í sundur. Siðan eru ljósu, hörðu himnurnar brotnar hver frá annarri og stein- amir hristir úr. Himnumar em óætar. En það er nauðsynlegt að fara svolítið varlega þar sem litur í safa granateplisins þvæst ekki auðveldlega úr fötum. í Austur- lenskum teppum er safínn notað- ur til litunar af þvi að liturinn er svo fastur. Grenadinesafí, sem er mikið notaður í drykki, er búinn til úr granateplum. Næst á dagskrá er ÁSTRÍÐU- ALDIN eða Grenadil, hið ljóta dökk-brúngræna aldin með grænu aldinkjöti og skorpnum berki, þegar við fáum það. Það er með mörgum steinum eins og granateplið en miklu minna. Það er uppmnnið í Brasilíu, en er nú ræktað víða um suðlæg lönd, svo sem í Asíu og Afríku, Kaliforníu, Hawaii og Nýja-Sjálandi. Yfírleitt er lítið annað gert við ástríðu- ávöxt en að skera hann í tvennt og skafa upp úr honum með te- skeið og borða hann þannig eða setja saman við aðra ávexti í - ábætisrétti og salöt. Hann hefur mjög ljúft bragð og sérstæðan framandi ilm. Hann er mjög góð- ur með ís, ijóma, sýrðum tjóma og jógúrt. Loks er það LYTCHEE, sem ég vil kalla EÐALBER, enda tal- ið hið eðlasta allra ávaxta í Kína, þar sem það hefur verið ræktað um aldaraðir. Nú em eðalber líka ræktuð í öðmm Asíulöndum, Afr- íku og Ástralíu. Ávextirnir vaxa margir saman í knippi, allt að 30 á litlum tijám eða mnnum. Þetta er mjög sérstætt aldin með rauða harða, hmfótta skel og stóran stein. Aldinkjötið er hvítt, gljándi og hálfgegnsætt, mjög ilmmikið og með ljúft kryddbragð, en er þó örlítið væmið. Fersk eðalber em afar dýr, enda langt að kom- in og viðkvæm í flutningi, en þau em mun ljúffengari en hin niður- soðnu, sem fást oftast. Jöklasalat (iceberg) með gúrkum og granateplum ] meðalstór jöklasalatshaus 'Ameðalstór gúrka 2 granatepli ’/idl matarolía safi úr Visítrónu 2 tsk. þunnt hunang salt milli fingurgómanna 1. Setjið matarolíu, sítrónus- afa, hunang og salt í hristiglas og hristið vel saman. Safínn á að þykkna. 2. Þvoið jöklasalatið, rífíð niður í bita, afhýðið gúrkuna og skerið í sneiðar með ostaskera. Setjið í skál. 3. Setjið það sem er í hristiglas- inu yfír og blandið saman við með tveimur göfflum. 4. Takið steinana úr granatepl- unum (sjá hér framar í þættinum) stráið yfir salatið í skálinni. Ástríðualdin og bananar m/rjóma 3 óstríðualdin 3 litlir vel þroskaðir bananar 1 peli rjómi 20 g rjómaostur 3 smókökur eða kex 1. Skerið ástríðualdinin í tvennt, skafíð innan úr þeim og setjið í skál. Meijið tvo banana með gaffli, blandið varlega saman við svo að bananarnir verði ekki seigir. 2. Hitið ijómaostinn örlítið, t.d. í örbylgjuofni. Þeytið ijómann og setjið mjúkan ijómaostinn saman við. Blandið saman við ávaxta- blönduna. Skerið einn banana í tvennt langsum og síðan í snéið- ar. Blandið saman við. Skiptið í 3 skálar eða glös, stingið smá- köku eða kexi í glasið. Eðalber (Lychee) með gráðaosti ______12-I5ferskeóalber_______ ________50 g gróðaostur_______ 20 g rjómaostur nokkur korn rósapipar 1. Afhýðið eðalberin, stingið úr þeim steininn, en gætið þess að skemma ekki aldinkjötið. 2. Setjið gráðaost og ijómaost í hrærivélarskál og hrærið vel saman. Sprautið síðan ostinum inn í eðalberin. Látið þau standa upp á endann og hafið kúf á. Stráið 2-3 kornum af rósapipar í toppinn. Athugið: Nota má niðursoðin eðalber. IDAG BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson JÓNAS P. Erlingsson hélt á ÁDG842 í trompi á eftir sagnhafa, en lét á móti sér að dobla. Það var ekki af kurteisi gagnvart Ritu Shugart, sem hélt um stjómvölinn, heldur vildi hann ekki reka andsæð- ingana í annan og betri tromplit. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ KD95 f K5 ♦ G742 ♦ G73 Vestur 4> 108 f ÁDG842 ♦ KD865 ♦ - Austur ♦ 7643 f ■ ♦ 1093 ♦ KD10942 Suður ♦ ÁG2 f 109763 ♦ Á ♦ Á865 Spilið er frá síðustu umferð Flugleiðamótsisn milli sveita Ritu Shugart og Noregs — íslands. Jón- as og Sverrir Ármannsson voru í AV, en Robson og Shugart í NS. Sagnir gengu: Vestur Norður Austur Suður J.P.R. A.R. S.Á. R.S. 1 hjarta Pass 1 spaði 2 lauf 2 spaðar Pass Pass 3 lauf pass Pass Pass 3 hjörtu Pass Pass Jónas kom út með tígui- kóng og Shugart spilaði strax hjarta á kónginn. Þegar legan kom í ljós, sneri hún sér að spaðan- um. Jónas trompaði þann þriðja, tók öll trompin og spilaði sagnhafa inn á hjartatíu. Þrír niður, eða 300. En hvemig hefðu þrír spaðar farið? Austur kæmi út með laufkóng og vestur myndi trompa ásinn. Síðan kæmi hjartaás og hjarta, sem austur trompaði. Laufdrottning og lauf- stunga væru næst á dag- skrá, en fleiri yrðu slagir vamarinnar ekki, því sagnhafí á nógu góðan spaða til að víxltrompa upp í átta slagi. Niðurstaðan hefði orðið einn niður, eða 200, svo Jónas uppskar 100 af hógværðinni. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Begga og Fúsi giftu sig SOFFÍA Þorvaldsdóttir á Akureyri hringdi og sagðist hafa fengið sent í pósti mynd af brúðhjón- unum Beggu og Fúsa sem líklega hafa gift sig á síðasta ári. Myndin var stfluð á Soffíu Þorvalds- dóttur, Austurbrún 2, en líklega hefur pósturinn Tapað/fundið Lúffur töpuðust GRÆNAR barnalúffur töpuðust á leið frá Grænuhlíð að Drápuhlíð, 14. febrúar. Finnandi vinsamlega hringi í síma 27958. Kross fannst GYLLTUR kross með hamraðri áferð sem á vantar keðjuna fannst í Austurstræti fyrir u.þ.b. ekki fundið neina Soffíu á því heimilisfangi, því þetta bréf er búið að þvælast alla leið til Akur- eyrar á mitt nafn. Þeir sem kannast við þessa mynd og nöfn eru vin- samlega beðnir að hringja í Soffíu í síma 2327. mánuði síðan. Eigandinn fær krossinn afhentan ef hann getur sagt til um áletrun sem á honum er. Upplýsingar í sima 623275. Gæludýr Páfagaukur fannst LÍTILL hvítur og blár páfagaukur fannst í Starrahólum sl. miðviku- dag. Upplýsingar í síma 77643. Meö morgunkaffinu Ást er ... • ■ ■ að fá fimm stjömumeðferð. TM Ftog. U.S. Pat. OH. — all rlghta resorv®d (c) 1996 Loa Angate* Tlmos Syndicato ÉG hlakka til að eiga fund með þessum um- hverfisvæna arkitekt sem hannaði völlinn. ENGIR peningar, engin vinna og engar framtíð- aráætlanir. Hvernig á hún að sjá fyrir þér, drengur minn? skipta um linsu í vélinni? SKAK Umsjón Margelr Pétursson ÞAÐ LEIÐ heil vika af Ólympíumótinu í Moskvu án þess að Gary Kasparov (2.805) tækist að vinna skák. Það var ekki fyrr en í sjöundu umferð að hann hafði hvítt og átti leik gegn Frakkanum Joel Lautier (2.655) í þessari stöðu. Svartur lék síðast 27. - Hf8- g8- Sjá stöðumynd 28. Rg4! og Lautier gafst upp. Eftir 28. - Hxg5 29. Rxe5 - Hxh5 30. Hd8+ - Rg8 31. Rxf7 er hann mát. Eftir þetta gekk Kasparov allt í haginn. Rússar mörðu sigur á mótinu og sömuleiðis óvænt kosningabandalag hans og Campomanesar á FIDE-þinginu. Ótrúleg lágkúra réð ríkj- um í Moskvu. Versta dæm- ið var af úthlutun borða- verðlauna, en útreikningur á árangri einstakra kepp- enda var meira og minna vitlaus. Þannig náði ungi velski skákmaðurinn Leig- hton Wiliiams bestum ár- angri á fímmta borði, en ekkert var minnst á hann við verðlaunaafhendinguna. Það er nógu slæmt út af fyrir sig en það bætist ofan á að Walesbúinn ungi er haldinn ólæknandi sjúk- dómi og á skammt ólifað. Aulaháttur rússnesku skák- stjóranna rændi hann hans stærstu stund og er þetta Alþjóðaskáksambandinu FIDE til ævarandi skamm- ar. Það kom í hlut Skáksam- bandanna á Bretlandseyj- um að bæta úr. Á Hastings- mótinu um áramótin fékk Williams gullverðlaun sín afhent við hátíðlega athöfn. Víkverji skrifar... ORRAÞRÆLL heitir dagur- inn í dag og er það síðasti dagur Þorra. I Sögu daganna seg- ir að þetta sé viss „feginsdagur“, þar sem þá er harðasti mánuðurinn að baki. jafnvel að þá skuli þorri rekinn á dyr. Viss gamansemi var varðandi þorraþræl og virðist þó bundin við austanvert landið frá Jökuldal til Öræfasveitar. Sjö heimildarmenn nefna að þorraþræll sé ýmist til- einkaður piparsveinum, mönnum í óvígðri sambúð, fráskildum mönnum ellegar þeim, sem höfðu átt barn í lausaleik eða tekið fram- hjá konu sinni. XXX GÓA hefst á morgun, sunnu- dag, og nefnist fýrsti dagur þessa næstsíðasta mánuðar vetrar „konudagur". Góa er persónugerð: ur vetrarvættur, dóttir Þorra. í gamalli þjóðtrú skipti góuveðrið nokkru máli, sumarið átti að verða gott, ef fyrstu dagar góu voru stormasamir og veður þá vont. Fram undir miðja öldina komst sá siður á að menn gæfu konum sínum blóm á fyrsta degi góu, konudaginn, en heldur var minna um það að fornu að menn héldu upp á góuna í mat og segir Árni Björnsson í bók sinni, að líklegast valdi þar nokkru að góan gat oft lent í lönguföstu. Hins vegar var góu færður rauður ullarlagður. xxx VÍKVERJI spurðist fyrir um það á miðvikudag, hvort Guð- rún Helgadóttir alþingismaður hugsaði sér framkvæmd ríkisdag- blaðsins, sem hún gerði tillögu um í ræðu á mánudag, í formi skylduá- skriftar, sem öllum yrði gert að kaupa áður en mönnum leyfðist að gerast áskrifendur að blöðum í einkaeign. Engin svör hafa bor- izt frá alþingismanninum, sem sagðist treysta ríkisútvarpinu bezt allra ijölmiðla rétt eins og þar hafi menn ekkert vald til að velja og hafna, ef svo mætti segja. En nú langar Víkveija til þess að spyija alþingismanninn enn frekar út í þetta. Hún segist van- treysta einkareknum fjölmiðlum. Hefði hún þá ekki „skrökvað pínu- lítið“ að Sigurdóri Sigurdórssyni blaðamanni DV á dögunum, hefði hann verið starfsmaður ríkisdag- blaðs? Svo sem menn rekur minni til sagði hún í sjónvarpi, þegar fjallað var um framboðsmál Al- þýðubandalagsins í Reykjavík fyr- ir framan sjónvarpsvélarnar, eitt- hvað á þessa leið: „Sigurdór minn, ég skrökvaði víst pínulítið að þér í morgun.“ Þetta er nefnilega mergur máls- ins. Blaðamenn skýra samvizku- samlega frá samtölum við fólk, þegar þeir leita upplýsinga. Svo segist fólk ekki treysta fjölmiðlun- um, þegar að þeim er „skrökvað pínulítið". Hveijum er þá um að kenna? Og hveijir tala hæst um það að ekki sé unnt að treysta fjölmiðlum? Vantar kannski ríkis- blað í skrökleik stjórnmálanna?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.