Morgunblaðið - 18.02.1995, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KENIMARAVERKFALLIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VERKFALLSSTJÓRN kennara fundaði fyrir há-
degi í gær bak við glerhurðir I húsi Kennarasam-
bands Islands við Hringbraut. Á sama tíma voru
verkfallsverðirnir Helga Konráðsdóttir, Hrefna
Arnaldsdóttir og Pálmi Magnússon að bera saman
bækur sínar utan við húsið áður en þau færu I
Annir í verkfalli
verkfallsvörslu í skólum. Verkfallið lætur skóla-
starf í Tjarnarskóla hins vegar ósnortið og þar
héldu nemendur í 8. ST áfram að lesa Hrafnkels
sögu Freysgoða, undir leiðsögn kennara síns, Sig-
ríðar Thorsteinsson. Nemendur Verslunarskólans
héldu á hinn bóginn áfram starfij»rátt fyrir verk-
fallið og þar sjá Sveinn Kristinn Ogmundsson út-
varpsstjóri, Þórhallur Helgason og Runólfur Þór
Astþórsson um útsendingar Útvarps Verzló.
Mannlausir skól-
ar og kennarar í
verkfallsvörslu
Útifundur vegna verkfalls
VERKFALL kennara hófst
á miðnætti á föstudag
og hefur það áhrif á nám
60 þúsund nemenda, sem
enga kennslu fá. Þegar blaðamaður
og ljósmyndari Morgunblaðsins litu
inn í Verslunarskólann fyrir hádegi
í gær var varla hræðu að sjá. Ein
skýringin á því var sú, að hátt í
150 manna hópur nemenda hafði
lagt af stað í skíðaferð til Akur-
eyrar um morguninn, auk þess sem
ræðulið skólans tók þátt í mælsku-
keppni norðan heiða. Ekki var þó
alveg mannlaust í skólanum, því
auk skólastjóra og starfsliðs á skrif-
stofu voru þar nemendur sem starf-
rækja Útvarp Verzló.
Að sögn útvarpsstjórans, Sveins
Kristins Ogmundssonar, er útvarpið
rekið til að lífga upp á dauflegan
tíma nemenda í verkfalli, auk þess
sem fluttar verða fréttir af samn-
ingamálum. Sent er út á FM 89,3
allan sólarhringinn. Sveinn Kristinn
sagði að einnig væri í undirbúningi
hjá nemendum að koma á fót náms-
hópum, ef verkfallið drægist á lang-
inn, þar sem yngri nemendur nytu
leiðsagnar þeirra eldri. í Verslunar-
skólanum hafa nemendur einnig
skipulagt verkfallsdagskrá, þar sem
meðal annars er boðið upp á eró-
bikk, námskeið í grafískri hönnun,
skyndihjálp, innanhússhönnun og
matreiðslu.
í Tjamarskóla voru nemendur
hins vegar önnum kafnir við námið,
enda skólinn einkarekinn og verk-
fall hefur ekki áhrif á starfið þar.
Krakkamir í 8.ST héldu því fram
að þau væri öfundarefni félaga
sinna í öðrum skólum, en sú yfírlýs-
ing þeirra var að vísu ekki sett fram
á sannfærandi hátt.
Verkfallsvarsla
Verkfallsstjórn kennara er til
húsa í gamla kennaraskólanum við
Laufásveg. Þegar fulltrúa Morgun-
blaðsins bar að garði sat verkfalls-
stjómin á fundi og skipulagði starf-
ið framundan. Sigrún Ágústsdóttir,
formaður verkfallsstjómar, sagði
að verkefni stjórnarinnar væri fyrst
LANDSSAMTÖKIN Heimili og
skóli héldu útifund á Ingólfstorgi
í gær. Að loknu ávarpi Unnar
Halldórsdóttur, formanns sam-
takanna, var gengið að Alþingis-
húsinu, og afhent áskorun til
ENGAR ákvarðanir hafa verið tekn-
ar í menntamálaráðuneyti varðandi
viðbrögð við verkfalli kennara. Hrólf-
ur Kjartansson, deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu, segir ráðu-
neytið vonast til að samningar tak-
ist. Viðbrögð ráðuneytisins ráðist
m.a. af lengd verkfallsins.
1989 fór HÍK í verkfall í 42 daga.
Þar sem verkfallið leystist ekki fyrr
en í lok skólaárs var það lagt skól-
unum í vald hvort samræmd próf
yrðu Iögð fyrir nemendur eða að hve
miklu leyti þau væru notuð við út-
reikning á lokaeinkunn.
í framhaldsskólum voru nemendur
fjármála- og menntamálaráð-
herra. Þar er skorað á stjórnvöld
og kennarasamtök að gera allt
til að ná samningum, svo hægt
verði að hefja kennslu á mánu-
dag.
víða útskrifaðir án þess að próf væru
lögð fyrir í öllum fögum. Í sumum
tilfellum lagði kennari mat á frammi-
stöðu þeirra, en í öðrum tiifellum
fóru nemendur í_próf að undangeng-
inni upprifjun. I Stöku tilviki fóru
próf fram um sumarið.
Hrólfur sagði menntamálaráðu-
neytið ekki geta svarað því nú hvem-
ig brugðist yrði við ef verkfallið dræg-
ist. Ráðuneytið vonaðist enn eftir því
að deilan leystist án verulegrar röskv-
unar á skólastarfi. Viðbrögð ráðu-
neytis, að loknu verkfalli 1989, gæfu
ekki vísbendingar um viðbrögð við
hugsanlegu verkfalli kennara nú.
og fremst að sinna ýmsum fyrir-
spumum kennara og skólastjóra um
hvaða starf megi fara fram í skólun-
um. Hún sagði fjölmargar fyrir-
spurnir hafa borist sem tengdust
þátttöku sveitarstjóma í rekstri
skólanna, því þar gætu myndast
grá svæði. megináhersla væri lögð
á að ekki færi fram kennsla í grunn-
og framhaldsskólum og ekki væri
leyfilegt að færa þær kennslustund-
ir, sem stundakennarar utan kenn-
arafélaganna sinntu.
Hún sagði að verkfallsstjórn
væri nú að kanna fregnir frá Suður-
nesjum, þar sem íþróttahús væm
nýtt á þeim tímum, sem skólarnir
hefðu haft þau til umráða. Verkfall-
stjórnin teldi, að ekki ætti að fara
fram starfsemi í skólunum þegar
skólamir gætu ekki hýtt þau þar
sem íþróttakennsla félli niður.
Gæsla í heilsdagsskóla óbreytt
eða felld niður
Sigrún sagði aðspurð, að sam-
komulag hefði tekist við Skólaskrif-
stofu Reykjavíkur um að böm, sem
vom í gæslu í heilsdagsskóla, verði
það áfram, en aðeins á sama tíma
og áður og ekki hefði verið leyfilegt
að bæta bömum í hópinn eftir að
verkfall var boðað. í Kópavogi
hefðu bæjaryfírvöld hins vegar
ákveðið að fella gæslu í heilsdags-
skóla niður. Sigrún sagði að hluti
þeirra, sem störfuðu við heilsdags-
skólann, væm félagar í kennarafé-
lögunum og mjög hæpið væri ef
gæslan yrði aukin svo hún næði
einnig til skólatíma.
Þrír kennarar voru að búa sig
undir að fara á milli skóla og sinna
verkfallsvörslu, þau Helga Kon-
ráðsdóttir, Hrefna Arnaldsdóttir og
Pálmi Magnússon. Þau höfðu feng-
ið úthlutað verkefnum hjá verkfalls-
stjórn og sögðu að trúnaðarmenn
kennara í hveijum skóla myndu
leiðbeina þeim við verkfallsvörsl-
una. „Við mætum ekkert með box-
hanskana í dag, en það má búast
við að meiri harka færist í verkfalls-
vörsluna ef verkfallið dregst á lang-
inn,“ sögðu þau.
HÍK
stefnir
ráðherra
HÍK hefur ákveðið að stefna
fjármálaráðherra fyrir héraðs-
dóm til þess að fá viðurkenn-
ingu á því, að ákvæði reglu-
gerðar um veikindaforföll opin-
berra starfsmanna gildi meðan
á vinnustöðvun félagsins stend-
ur fyrir þá félagsmenn sem eru
óvinnufærir vegna veikinda og
slysa. Félagið óskar eftir því
að málið fái flýtimeðferð.
Var viðurkennt
Veikindaréttur starfsmanna
ríkisins er ákveðinn með lögum
frá 1954 og nánari útfærslu er
að fínna í reglugerð frá 1989.
í frétt frá HÍK segir að skv.
reglugerðinni eigi starfsmaður
rétt til launa í veikindum án
skilyrða um hvort stéttarfélag
viðkomandi er í verkfalli.
Ágreiningur kom upp um
þetta atriði 1989 og lauk með
yfirlýsingu fjármálaráðuneytis
um að félagsmenn BHMR ættu
rétt til launa í veikindum í verk-
falli. Fjármálaráðuneytið ve-
fengir nú þennan rétt.
Nemar styðja
kennara
NEMAR í KHÍ hafa sent frá
sér stuðningsyfirlýsingu við
verkfall kennara í KÍ og HÍK.
Þar segir að stjórnvöld hafi um
langan tíma skellt skollaeyrum
við kröfum kennara um bætt
kjör að engan undri þótt lang-
lundargeð kennara sé þrotið.
Kröfur kennara séu jafnframt
kröfur um betri aðstæður fyrir
íslenska skólaæsku.
Afdrif skólastarfs í óvissu