Morgunblaðið - 18.02.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 9
SKÍÐASVÆÐIINI
VIÐTAL
BLAFJOLL
Veðurhorfur: Horfur í dag: Austan-
átt, líklega hvassvirði með skafrenn-
ingi og ef til vill snjókomu framan
af degi. Hægari norðaustanátt þeg-
ar líður á daginn og styttir upp.
Frost 2-5 stig.
Skíðafæri: Gott skíðafæri og nægur
snjór.
Opið: Kl. 10-18 mán., fös., laug.
og sunnudag Á þriö., mið. og fim.
er opið kl. 10-22.
Upplýsingar í síma 91-801111 (les-
ið er inn á simsvarann kl. 8 alla
dagana, og síðan eins og þurfa
þykir).
Skíðakennsia er allar helgar og
hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30,
15.00 og 16.30 og stendur í 1 'U
klst. í senn.
Ferðir: Sérleyfisferðir Guðmundar
Jónssonar sjá um daglegar ferðir
þegar skíðasvæðin eru opin sam-
kvæmt ákveðinni áætlun með við-
komustöðum víða í borginni. Uppl.
eru gefnar í síma 683277 eða hjá
BSÍ í sími 22300.
HENGILSSVÆÐI
Veðurhorfur: í dag verður austan-
átt, nokkuð hvöss og líklega skaf-
renningur framan af degi en úr-
komulaust að mestu. Norðaustlæg-
ari þegar líður á daginn. Frost 3-6
stig.
Skfðafæri: Gott skiðafæri.
Opið: Kl. 10-18 mán., fös., laug.
og sunnudag. Á þri., mið. og fim.
er opið kl. 10-21.
Upplýsingar í síma 91-801111.
Ferðir: Sjá Bláfjöll.
SKALAFELL
Veðurhorfur: ( dag er austanátt,
nokkuð hvöss og líklega skafrenn-
ingur framan af degi en úrkomu-
laust að mestu. Norðaustlægari
þegar líður á daginn. Frost 3-6 stig.
Skíðafæri: Nægur snjór og ágætt
færi.
Opið: Kl. 10-18 mán., fös., laug.
og sunnudag. Á þri., mið. og fim.
er opið kl. 10-21.
Upplýsingar: i sima 91-801111.
Skfðakennsla er allar helgar og
hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30,
15.00 og 16.30 og stendur í 1 'U
klst. í senn.
Ferðir: Sjá Bláfjöll.
ISAFJORÐUR
Veðurhorfur: I dag er norðaustan-
kaldi eða stinningskaldi líklega úr-
komulaust og jafnvel nokkuð bjart
veður. Frost 4-7 stig.
Skiðalyftur verða teknar í notkun
um næstu helgi ef aðstæður leyfa.
Ath. gönguskfðabrautir eru troðn-
ar.
AKUREYRI
Veðurhorfur: ( dag er fremur hæg
austlæg eða norðaustlæg átt og
bjart veður að mestu. Heldur vax-
andi austanátt þegar líður á daginn.
Frost 3-6 stig.
Ski'ðafæri: Gott skíðafæri og nægur
snjór.
Opið: Kl. 10-17 laugardag og
sunnudag.
Upplýsingar i síma 96-22930 (sím-
svari), 22280 og 23379.
Ski'ðakennsla: Boðið er upp á skíöa-
kennslu um helgina frá kl. 12 og á
klst. fresti eftir þátttöku.
Ferðir á svæðið á virkum dögum
kl. 13.30, 15.30 og 16.30 og síð-
asta ferð kl. 18.30. í bæinn er síð-
asta ferð kl. 19.
Sendiherra Kanada hjá Atlantshafsbandalaginu
Olíkar skoðanir en
eining um meginatriði
AÐILD ARÞJ ÓÐIR
Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, hafa
ólíkar skoðanir á
ýmsum málum en
það ríkir eining um
grundvallaratriðin,
að veija skuli og
tryggja lýðræði og
frelsi og jafnframt
að samstarfinu skuli
haldið áfram þrátt
fyrir hrun kommún-
ismans, að sögn John
R. Andersons, sendi-
herra Kanada hjá
bandalaginu.
Ágreiningur Vestur-
Evrópuríkja og
Bandaríkjanna í
Bosníumálunum sé
að baki og fulltrúar stjórnvalda í
Washington leggi áherslu á gildi
samstarfsins.
„Það er ljóst að í Washington er
mikið rætt um NATO-samstarfið,
mikilvægi þess fyrir Bandaríkin, en
þegar ég hlýði á bandaríska starfs-
bræður mína í Brussel láta þeir í
ljós mjög öflugan stuðning við
bandalagið. Ég hlýt sem sendiherra
að taka mest mark á því“, sagði
Anderson.
Hann sagðist telja að umræður
af þessu tagi risu og hnigju öðru
hveiju, eftir aðstæðum hveiju sinni.
„Mestu skiptir að við höfum frá
upphafí ávallt getað rætt öll deilu-
mál og náð að lokum samstöðu, það
munum við gera áfram.“
Anderson var spurður
hvort skorturinn á sann-
færandi fjandmanni gæti
ekki valdið vanda. „Það
er fullkomlega eðlilegt að
spyija varnarbandalag,
hveijum það ætli að veij-
ast. Ég vil nálgast málið
frá öðrum sjónarhóli og
kanna hvað NATO hefur
staðið fyrir og gerir enn.
Það voru gildi á borð
við eindrægni og lýðræði,
sannfæring um að rétt
væri að vera ávallt
reiðubúinn að veija sig
ef á þyrfti að halda. Það
var markmið okkar að
breiða út áðumefnd gildi
og treysta þannig öryggi
á álfunni.“
Sendiherrann sagði aðspurður að
hvergi hefði verið útilokað að Rúss-
land gæti einhvern tíma orðið aðild-
arríki NATO en taldi að langur tími
myndi líða þar til málið yrði rætt í
alvöru. Ekki mætti gleyma að þing
allra ríkjanna yrðu að samþykkja
ný aðildarríki.
Islam og NATO
- Framvæmdastjóri NATO,
Willy Claes, hefur hlotið ádrepu
fyrir að segja að öfgafullir múslim-
ar geti ógnað NATO-þjóðum á sama
hátt og kommúnistar áður. Hvers
vegna?
„Framkvæmdastjórinn sagði fyr-
ir nokkrum vikum álit sitt á bók-
stafstrúarhópum islams, þessar
skoðanir voru alls ekki í samræmi
við sameiginlegt viðhorf aðildarríkj-
anna 16. Eg tel reyndar að fjölmiðl-
ar hafi ekki greint nógu vel frá því
hvaða samhengi hann setti þessi
mál í en hann túlkaði ekki álit
bandalagsins.
Það hefur náðst samkomulag um
að bandalagið skuli taka mjög var-
færin skref í átt til viðræðna við sum
ríki á suðurlandamærum NATO, við
Miðjarðarhaf. Þetta hefur á hinn
bóginn aldrei verið tengt hættunni
frá bókstafstrúarmönnum múslima."
Nýtt frá Frakklandi
Tvískiptir og heilir kjólar
Verð frá kr. 17.900,-
TESS
v 1,1
neðst við
Dunhaga,
sími 622230
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugarduga
kl. 10-14.
Morgunblaðið/Þorkell
John R. Anderson,
sendiherra Kanada
hjá NATO.
j áV' 1 ^ '
! ♦* » * i .
’ * t , T
‘ 1 h '>H
Opiö hús hjá SCANIA
í tilefni þess aö Hekla hf. hefur tekiö við umboði fyrir SCANIA bifreiðar á íslandi
verður opið hús helgina 18.-19. febrúar. Opið verður kl. 12:00-16:00 báða dagana.
Verið velkomin og kynnið ykkur þjónustuna.
Véladeild Heklu mun sjá um alla þjónustu við SCANIA eigendur.
Símanúmer véladeildar eru eftirfarandi:
• Söludeild 569 5710 • Verkstæði 569 5740 • Varahlutir 569 5750 • Fax 569 5788
SGANIA
Veitingar í boði Vífílfells.
HEKLA
-////et//ci 6e&t/
Laugavegi 170-174, sími 569 5500