Morgunblaðið - 18.02.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 11
Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
Fjórar milljónir til stuðn-
ings nýjungum í læknisfræði
Styrkjum til grunnrannsókna í læknisfræði var
nýlega úthlutað úr Minningarsjóði Helgu Jóns-
dóttur og Sigurliða Kristjánssonar til stuðnings
nýjungum í læknisfræði. Þetta er í tíunda skipti
sem styrkjum úr minningarsjóðnum er úthlutað,
og að þessu sinni voru veittir 11 styrkir sam-
tals að upphæð fjórar milljónir króna.
Helga Sigurliði Haraldur
Jónsdóttir Kristjánsson Sigurðsson
STYRKIR úr Minningarsjóði
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar til stuðnings nýj-
ungum í læknisfræði eru bundn-
ir við rannsóknir á öldrunarsjúk-
dómum, heila- og taugasjúkdóm-
um, hjarta- og æðasjúkdómum
og augnsjúkdómum. Að sögn
Ellenar Snorrason, sem sæti á í
stjórn minningarsjóðsins, voru
að þessu sinni voru veittir sex
styrkir til rannsókna á öldrunar-
sjúkdómum, þrír til rannsókna á
augnsjúkdómum, einn til rann-
sókna á hjarta- og æðasjúkdóm-
um og einn til rannsókna á heila-
og taugasjúkdómum. Alls hafa
verið veittir 16 styrkir til rann-
sókna á öldrunarsjúkdómum, 10
til rannsókna á heila- og tauga-
sjúkdómum, 12 til rannsókna á
hjarta- og æðasjúkdómum og 11
til rannsókna á augnsjúkdómum.
Þeir sem hlutu styrkina að
þessu sinni voru eftirtaldir:
Ársæll Jónsson öldrunarlækn-
ir, dr. Einar Stefánsson, prófess-
or og yfirlæknir á augndeild
Landakotsspítala, Eiríkur Bene-
dikz, líffræðingur í Bandaríkjun-
um, Eyþór Karlsson, augnlækn-
ir, Garðar Guðmundsson, sér-
fræðingur í heila- og tauga-
skurðlækningum, Helgi Garðar
Garðarsson, læknir, sem starfar
í Danmörku, Ingólfur Johanness-
en, læknir, sem er í doktorsnámi
í Lundúnum, Katrín María Þorm-
ar, læknanemi, dr. Sigríður ÓI-
afsdóttir, líffræðingur, dr. Þuríð-
ur Jónsdóttir, taugasálfræðingur
og Om Sveinsson, augnlæknir.
Minningarsjóður Helgu Jóns-
dóttur og Sigurliða Kristjánsson-
ar til stuðnings nýjungum í
læknisfræði var að sögn Ellenar
stofnaður í samræmi við ákvæði
erfðarskrár þeirra hjóna, en til
sjóðsins rann 1/8 hluti af eigum
Sigurliða í Silla & Valda. Sigur-
liði lést 1972 og Helga 1978.
Stjóm minningarsjóðsins hafa
frá upphafi skipað þau dr. med.
Gunnar Guðmundsson, prófess-
or, sem er formaður stjórnarinn-
ar, Birgir J. Jóhannsson, tann-
læknir og Ellen Snorrason.
Grunnrannsóknir á
augndeild Landakots
Sérfræðingar á augndeild
Landakotsspítala hafa frá upp-
hafi notið styrkja úr Minningar-
sjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurl-
iða Kristjánssonar til stuðnings
nýjungum í læknisfræði, og að
sögn Haraldar Sigurðssonar,
augnlæknis, hefur sjóðurinn gert
deildinni kleift að stunda mikil-
vægar grunnrannsóknir í augn-
lækningum.
í samtali við Morgunblaðið
nefndi Haraldur samvinnuverk-
efni við Þorstein Loftsson, pró-
fessor í lyfjafræði, um cyc-
lodextríndropa, en þær rann-
sóknir hafa vakið athygli alþjóð-
legra lyfjafyrirtækja. í þeirri
rannsókn er verið að kanna
blöndun cyclódextríns og bólgu-
drepandi lyfi til að koma því
betur inn í augað til að vinna á
margskonar sjúkdómum. Annað
verkefni sem Haraldur nefndi er
rannsókn á sykursýkissjúkling-
um þar sem byggt er á gögnum
síðustu 15 ára, en sú rannsókn
hefur leitt í ljós að tíðni sjón-
skaða vegna sykursýki er minni
hér á landi en erlendis. Jóhannes
Kári Kristinsson, deildarlæknir á
augndeildinni, er langt kominn í
doktorsnámi sem tengist þessari
rannsókn, en að sögn Haraldar
eru þessi verkefni unnin undir
styrkri stjórn dr. Einars Stefáns-
sonar, prófessors í augnlækning-
um.
Önnur verkefni sem styrkt
hafa verið af sjóðnum eru kann-
anir Friðberts Jónassonar á ætt-
gengum íslenskum augnbotna-
sjúkdómi, könnun Þórðar Sverr-
issonar á tengslum augnsjúk-
dóma hjá tvíburum, og Haraldur
Sigurðsson hefur stundað rann-
sóknir á augntóftum eftir brott-
nám auga.
Deildin vart til í núverandi
mynd án styrkjanna
„Það er alltaf erfitt að setja
mælistiku á hvað er mikið og
hvað er lítið, en sem dæmi má
nefna að á árunum 1992 til 1994
hafa birst 15 stórar greinar frá
augndeild Landakotsspítala í al-
þjóðlegum læknaritum, einnig
tveir bókarkaflar og milli 50 og
60 úrdrættir sem gefnir hafa
verið út eftir kynningu rann-
sókna á læknaþingum. Á amer-
íska læknaþinginu í fyrra, sem
fjallaði um grunnrannsóknir í
augnlækningum voru níu fyrir-
lestrar eða veggspjöld frá augn-
deild Landakots og trúlega öll
með tengingu við minningarsjóð
Helgu og Sigurliða,“ sagði Har-
aldur.
Hann sagði að ef styrkirnir
úr minningarsjóðnum hefðu ekki
komið til væri augndeild Landa-
kots ekki til staðar í þeirri mynd
sem hún er nú, svo einfalt væri
málið. Peningar til grunnrann-
sókna væru lítið á lausu, en slík-
ar rannsóknir væru það sem
framtíðin byggði á varðandi allar
betrumbætur til lengri tíma litið.
„Ég held að margar af stærstu
augndeildum í Evrópu og Amer-
íku hefðu verið afskaplega sáttar
við að kynna níu grunnrannsókn-
ir á einu ári eins og við gerðum
í fyrra. Við erum að sjálfsögðu
óskaplega þakklátir sjóðnum og
sjóðsstjórninni, en hún hefur
sýnt málum okkar mikinn skiln-
ing. Ég tel að þessi sjóður ætti
að vera mjög hvetjandi fyrir aðra
sem vilja styrkja grunnrann-
sóknir svipaðar þeim sem hægt
hefur verið að vinna að á augn-
deildinni vegna styrkja úr minn-
ingarsjóðnum, en að mínu mati
er fjármunum til slíkra rann-
sókna mjög vel varið,“ sagði
Haraldur Sigurðsson.
Qkuskóli
Islands
MEIRAPRÓF
Qkuskóli
Islands
Aukin ökuréttindi - aukin atvinnutækifæri
Leigubifreið
Höldum meiraprófsnámskeið allstaðar á landinu
þar sem næg þátttaka fæst.
Vörubifreið
Sama verð fyrir allt landið, kr. 77.000, auk
kr. 18.000 prófagjalds til Umferðarráðs.
Hópbifreið
Athugið, ýmis verkalýðsfélög taka þátt
í kostnaði námskeiðs.
Visa - Euro
greiðslusamningar
Fáið nánari upplýsingar á skrifstofu okkar
í síma 68 38 41 og látið innrita ykkur.
MIKIL REYNSLA — FÆRIR KENNARAR
viö útsöluna meb enn meiri
verölækkun
með 4 skúffum úr hvltu melamín.
Breidd 74 cm, hæð 70 cm, dýpt 40 cm.
Verö aöeins 3.500
o
Hvítar hillur
85,5 cm háar, 68 cm breiðar
og 24 cm djúpar.
Verö aöeins 1.990
o
með snúningsskífu úr svörtu
melamín. Breidd 68 cm,
hæð 58 cm, dýpt 40 cm.
Verö aöeins 5.300
með hillum úr hvítu melamín.
Breidd 110 cm, hæð 142 cm,
dýpt 48 cm.
Verö aöeins 5.600
með 2 skúffum úr hvítu melamín.
Breidd 70 cm, lengd 190 cm,
hæð 54 cm.
Verö aöeins 5.700
•o-
Dýna og koddar 3 stk.
Verð aðeins 2.950
Amsterdam sófasett
3+2 sœta leðurlíki.
Fullt verð 55.600
\ Nú aðeitis 45.600
StofuborÖ
53 cm breitt og 106 cm breitt. j
2 stk. homborð 53x53 cm. !
Verd samtals adeitts 12.410
íAlpa leðurstóll m/skemli^
Fullt verð 14.900
'\Nú aðeins 9.998 \
Óll m/skemli^^.1
Mörgfleiri
góð tilboð J y
" ~—.....- eldhus-
miðstöðin
Lágmúla 6, sími 684910, fax 684914.
Ökuskóli íslands hf. - Dugguvogur 2-104 Reykjavík - Sími 68 38 41