Morgunblaðið - 18.02.1995, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.02.1995, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Jónas Rannveig Tónleikar Jónasar og Rann- veigar RANNVEIG Fríða Bragadótt- ir óperusöngkona og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda tvenna tónleika á Norð- urlandi í næstu viku. Fyrri tónleikamir verða í Miðgarði, Varmahlíð, þriðju- dagskvöldið 21. febrúar kl. 21.00 en þeir síðari miðviku- daginn 22. febrúar í Safnað- , arheimili Akureyrarkirkju kl. 20.30. Úr skólanum í fisk- vinnslu í verkfallinu VERULEGUR hópur framhaldsskólanema hef- ur spurst fyrir um vinnu á frystihúsi Utgerðar- félags Akureyringa eftir að verkfall kennara hófst. Félagið hefur keypt flokkaða loðnu frá Austfjörðum og var fyrsti farmurinn væntan- legur í nótt en loðnan verður fryst. Verði fram- hald á loðnukaupum að austan gæti skapast svigrúm til að ráða skólafólk til starfa í frysti- húsinu. Gunnar Aspar yfirverkstjóri í frystihúsi ÚA sagði að margir hefðu látið vitað af sér. „Það er verulega stór hópur tilbúinn að koma í fisk- vinnu í verkfallinu,“ sagði hann. Enn væri ekki ljóst hvort framhaldsskólanemar yrðu ráðnir til starfa, það færi eftir hráefni og aðstæðum næstu daga. Þá sagði hann að aðeins vant fólk fengi vinnu, þeir sem áður hefðu starfað í frystihúsi ÚA eða í öðrum frystihúsum. I næstu viku eru þrír togarar væntanlegir með afla til ÚA, Árbakur kemur á mándag og Kaldbakur á miðvikudag. Næg vinna hefur verið í frystihúsinu að undanfömu og fátítt að falli niður vinna sökum hráefnisskorts. „Við þurfum ekki að kvarta, það hefur verið stöðug vinna hjá okkur. Það fellur í mesta lagi niður vinna í einhveija klukkutíma," sagði Gunnar. Aflinn er blandaður, mest karfi og þá ýsa og eitthvað af þorski. 35-40 tonn af loðnu flutt að austan til frystingar nyrðra Á dögunum fóm starfsmenn ÚA austur á firði þar sem möguleikar vom kannaðir á að kaupa loðnu til frystingar, frá þeim sem flokka hana, en víða væri frystigeta ekki næg. Tveir bílar voru sendir austur í gær og vom væntan- legir til Akureyrar í nótt eða undir morgun. Gera má ráð fyrir að magnið sé á bilinu 35 til 40 tonn. Gefist loðnufrystingin vel, en hún er unnin á öllum tímum sólarhrings, skapast möguleiki á að taka skólanema inn í frystihúsið í stað þess fólks sem ynni að loðnufrysting- unni. „Þetta er nýtt fyrir okkur og við eigum eftir að sjá hvernig þetta kemur út,“ sagði Gunnar. Meðal annars þarf að skoða hvort loðnan þolir flutninginn, en Akureyri er utan hefðbund- innar siglingaleiðar loðnuskipanna, hvað loðnu-- flokkunina varðar, en með bættu vegasam- bandi sagði Gunnar að möguleiki ætti að skap- ast til loðnufrystingar. Ekki væri meira en 6-7 tíma akstur frá flestum Austfjarðahöfnum og til Akureyrar. Það væri ekki lengri tími en ef geyma þyrfti loðnuna í kæli þegar frystirýmið væri búið. „Ef vel er að öllu staðið ætti þetta ekki að koma illa út,“ sagði Gunnar. Morgunblaðið/Rúnar Þór Fara heim í verkfallinu NEMAR í framhaldsskólunum sem búsettir eru í nágrannabyggðarlögum Akureyrar voru á faraldsfæti í gær, eftir að verkfall kennara skall á. Greinilegt var að margir hugsuðu sér gott til glóðarinnar að geta farið til síns heima og eytt helginni í faðmi fjölskyldunnar í stað þess að kúra yfir námsbókunum. Víða mátti sjá nemana á ferð með dótið sitt í gærdag, í veg fyrir rútur eða flugvélar, eins og þessar ungu stúlkur sem urðu á vegi ljósmyndarans í göngugötunni í Hafnarstræti. Messur Tónleikar með nýstárlegu sniði Þau Rannveig og Jónas hafa að undanförnu haldið tónleika með nýstárlegu sniði hér á landi, lögin eru kynnt jafnóðum og spjallar Jónas við tónleikagesti eins og hon- um einum er lagið. Rannveig Fríða er hér á landi um þess- ar mundir til að syngja með Sinfóníuhljómsveit Islands, en hún var ráðin að Ríkisóper- unni í Vínarborg, þar sem hún lauk námi. Hún tekur nú að sér verkefni víðs vegar um Evrópu og hefur haslað sér völl meðal fremstu söngvara vorra tíma. Jónas stundaði einnig nám í Vínarborg og er einn ötul- asti og mikilhæfasti tónlistar- maður Islendinga. AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagakóli á morgun kl. 11.00. Kirkjubílar verða í förum. Allir velkomnir. Messað verður í Akureyrarkirkju kl. 14.00. Biblíudagur- inn. Barnakór Akureyrarkirkju syngur í messunni undirstjórn Hólmfríðar Bene- diktsdóttur. Tekið verður á móti sam- skotum til Hins íslenska biblíufélags. Messað verður á Hlíð kl. 16.00. Barna- kór Akureyrarkirkju syngur. Messað verður á Seli kl. 17.00. Fundur verður í Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju kl. 17.00. Biblíulestur verður í safnaðar- heimilinu mánudagskvöld kl. 20.30. GLERÁRKiRKJA: Biblíulestur og bænastund fellur niður vegna Leik- mannaskóla kirkjunnar. Barnasamkoma verður í kirkjunni kl. 11.00 á morgun. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnum sínum. Messað verður i kirkj- unni kl. 14.00 Karlakór Glerárkirkju syngur. Fundur æskulýðsfélagsins veröur kl. 18.00 og eru fermingarbörn hvött til að mæta. Skráning verður á væntanlegt æskulýðsmót. HJÁLPRÆÐISHERINN: Bibliulestur í dag kl. 14.00 og 17.00 og á morgun kl. 11.00. Sunnudagaskóli kl. 13.30 á sunnudag. Vakningarsamkoma kl. 20.00 á sunnudag. Söngvarinn og predikarinn Jan Öystein Knedal og Daníel Óskarsson tala og stjórna á samkomum helgarinn- ar. Heimilasamband fyrir konur á mánu- dag kl. 16.00. KK krakkaklúbb á miðvikudag. Biblíulestur kl. 20.30 á fimmtudag. Flóamarkaður kl. 10-17 á föstudag og kl. 18.00 11+. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Samkoma í umsjá ungs fólks í kvöld kl. 20.30. Brauðsbrotning kl. 11.00 á morgun, sunnudag. Skírnarsamkoma kl. 15.30. Biblíulestur kl. 20.00 á miðvikudag. KKSH, föstudag kl. 17.15. Bænasam- koma kl. 20.30 á föstudag. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Eyrarlands- vegi 26. Messa í dag, laugardag, kl. 18.00 og á morgun, sunnudag, kl. 11.00 Býrð þú í hurðarlausu? Þýsku Moralt innihurðirnar eru glæsilegar og á góSu verSi. Einfaldar í uppsetningu. HafiS samband og fáiS sendan nýja glæsilega Moralt innihurSabæklinginn okkar. Söluaðili í Reykjavík: Innflytjandi: Harðviðarval, Krókhálsi 4, sími 91-671010. Sími, 96-30320 BYGGINGAVORUR ímyndaðan sjúkling í börum og þá var fagmennskan í fyrirrúmi i handflökun sem var á meðal keppnisgreina. Flakað af fagmennsku ÞAÐ var handagangur í öskjunni þegar háskólanemar á Akurejrri héldu hið árlega íþróttasprellmót í Skemmunni í gærdag. Á meðal keppnisgreina í mótinu sem Fé- lag stúdenta við Háskólann á Akureyri stendur fyrir var Ijós- myndakeppni, limbó, sjógalla- hlaup, reiptog fleira. Nemar spreyttu sig líka á að hlaupa með (0J) Sfjárn GalfRlúbbs Akureyrar auglýsir eftirfarandi störf laus tíl umsnknar: Starf framkvæmdastióra: Ráðningartími frá 1. apríl til 30. sept. 1995. Starfið felst í daglegri stjórnun á skrifstofu og félagsheimili GA. Umsækjandi þarf að geta starfað sjálfstætt. Góð tungumálakunnátta og bókhaldsþekking nauðsynleg. Starf vallarstióra (Head greenkeeper) Ráðningartími frá 1. apríl til 30. sept. 1995. Vallarstjóri skal hafa yfirumsjón með öllum framkvæmdum við völlinn. Hann annast ráðningu starfsfólks við völlinn í samráði við vallarnefnd og formann stjórnar GA. Umsóknum um ofanrituð störf skal skila til Golfklúbbs Akureyrar, Jaðri, 600 Akureyri, eigi síðar en 28. febrúar nk. Allar frekari upplýsingar veitir formaður GA, Friðrik Sigþórsson, í síma GA 22974 eftir kl. 18 og heimasíma 24781.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.