Morgunblaðið - 18.02.1995, Side 16
16 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Sjóvá-Almennar kynna nýtt af-
sláttarfyrirkomulag á tryggingum
Tjónlausir
geta fengið
endurgreitt
SJÓVÁ-Almennar hafa ákveðið að lækka verulega iðgjöld félagsins sam-
kvæmt gjaldskrá sem tekur gildi næstkomandi mánudag og er þar um
að ræða lækkun á iðgjaldaskrám félagsins fyrir fjölskyldur og einstakl-
inga. Einnig hefur félagið kynnt nýtt samheiti vátrygginga, STOFN, sem
veitir viðskiptavinum afslátt sem er mismikill eftir fjölda trygginga og
nýtt afsláttarfyrirkomulag gerir ráð fýrir að hópur viðskiptavina fái endur-
greiðslu eftir tjónlaust ár. Fyrstu endurgreiðslur munu koma til viðskipta-
vina félagsins 1. maí næstkomandi vegna viðskipta á árinu 1994 og er
þá gert ráð fyrir að afslættir og endurgreiðslur nemi á annað hundrað
milljónum króna.
Að sögn Einars Sveinssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjóvá-Almennra, er
með þessu verið að koma til móts
við óskir sem borist hafa frá við-
skiptavinum félagsins og jafnframt
að láta þá njóta batnandi afkomu
félagsins.
Samkvæmt sex mánaða uppgjöri á
síðasta ári nam hagnaður Sjóvá-
Almennra 103 milljónum króna og
segir Einar afkomuna síðari hluta
ársins hafa verið á sömu nótum, en
endanlegt uppgjör ársins liggur enn
ekki fýrir.
100 milljóna króna
iðgjaldalækkun
Að sögn Einars nemur iðgjalda-
lækkunin hjá Sjóvá-Almennum í
heild um 100 milljónum króna, en
lækkunin kemur til góða öllum ein-
staklingum og fjölskyldum sem eru
í viðskiptum við félagið.
Breytingar á iðgjöldum einstakra
trygginga eru þær að í Fjölskyldu-
tryggingfu fellur niður sérstakt 1.000
kr. iðgjald vegna slysatryggingar í
frítíma, iðgjöld fasteignatiygginga
lækka að meðaltali um 10%, iðgjöld
slysatryggingar ökumanns og eig-
anda á einkabílum lækkar um 5%
ef bónus ábyrgðartryggingar er 50%
eða hærri og iðgjald á kaskótrygg-
ingum einkabíla lækkar um 11%, auk
þess sem eigin áhætta er lækkuð.
Til þess að komast í svokallaðan
STOFN-viðskiptamannahóp hjá
Sjóvá-Almennum þarf viðkomandi
að vera með fjölskyldutryggingu og
tvær svokallaðar grunntryggingar,
en þær eru fasteignatrygging, öku-
tækjatrygging einkabifreiða, sumar-
húsatrygging, almenn slysatrygging,
sjúkra- og slysatrygging og líftrygg-
ing. Til þess að öðlast rétt á endur-
greiðslu, sem getur numið allt að 10%
af iðgjöldum síðasta almanaksárs,
þarf viðskiptavinurinn hins vegar að
vera með fjölskyldutryggingu og
þijár grunntryggingar, vera skilvís
viðskiptavinur og tjónlaus eða með
lægra tjón en nemur reiknaðri endur-
greiðslu.
Aðild að STOFNI veitir þó ekki
aðeins aukinn afslátt af iðgjöldum
og möguleika á endurgreiðslu, því
viðskiptavinurinn fær að auki marg-
víslega þjónust, t.d. aukna bónus-
vemd í ábyrgðartryggingum einka-
bifreiða, frían bílaleigubíl vegna ka-
skótjóna og lægri kostnað af bílalán-
um Sjóvá-Almennra.
Tíu þúsund uppfylla
sett skilyrði
Að sögn Einars Sveinssonar eru
þeir viðskiptavinir félagsins sem í
dag uppfylla öll skilyrði til að vera
STOFN-viðskiptavinir tæplega tíu
þúsund talsins, en mörg þúsund til
viðbótar segir hann vera á þröskuld-
inum við að uppfylla sett skilyrði.
„Fyrsta endurgreiðslan kemur til
framkvæmda 1. maí næstkomandi,
en þar sem þessa dagana er verið
að vinna úr upplýsingum fýrir árið
1994 liggur á þessari stundu ekki
fyrir hve margir fá endurgreitt þá.
Hvað varðar iðgjaldalækkunina hjá
þeim viðskiptavinum okkar, sem
fengið hafa senda endurnýjun trygg-
inga miðað við gjalddaga 1. mars
næstkomandi, þá mun félagið leið-
rétta þau iðgjöld sjálfkrafa í sam-
ræmi við þá lækkun sem hefur verið
ákveðin,“ sagði Einar.
VIÐSKIPTI
REKSTRARYFIRLIT 1.253 FYRIRTÆKJA
Upphæðir í milljónum kr. 1993 1994
Rekstrartekjur 293.368,9 308.917,6
Rekstrargjöld 282.977,8 293.293,4
Hagnaður f. vexti og verðbr.færslu 10.391,2 15.624,2
Hagnaður af reglulegri starfsemi -2.998,0 -64,9
Tekju- og eignarskattur 1.957,0 2.151,4
Veltufjármunir 359.239,5 386.061,8
Fastafjármunir 316.771,3 330.718,5
Skuldir 488.043,7 522.807,8
Eigið fé 187.967,0 193.972,4
Veltufjárhlutfall 1,06 1,08
Eiginfjárhlutfall 27,8% 27,1%
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN hefur gefið út ritið Ársreikningar fyrirtækja 1992-
1993. Þar er að finna niðurstöður úr ársreikningum 1.253 fyrirtækja fyrir
þessi tvö ár. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrirtækjanna sem hlutfall
af tekjum hækkaði á árinu 1993 frá árinu áður. Þá er átt við hagnað fyrir
tekju- og eignarskatta og jafnframt eru óreglulegar tekjur og gjöld undan-
skilin. Hagnaðarhlutfallið hækkar úr -1,0% í 0,0%. í skýrslu Þjóðhags-
stofnunar kemur fram að betri afkomu árið 1993 megi rekja til minni
launakostnaðar sem hlutfall af tekjum, en iaun, eigin laun og tengd gjöld
sem hlutfall af tekjum fóru úr 23,1 % í 21,9%. Velta fyrirtækjanna er um
309 milljarðar króna á árinu 1993 og jókst um 5,3% frá fyrra ári. Á sama
tíma hækkaði vísitala vöru og þjónustu um 4,9% og byggingarvísitalan
um 2,2%. Breyting á veltu er því heldur meiri en almennar verðbreytingar.
Á að hætta skrán-
ingu krónunnar?
„ALMENNT má
segja að verðbréfa-
markaður hér á landi
mundi þjóna hlut-
verki sínu betur, ef
við hefðum annan
gjaldmiðil en ís-
lensku krónuna og sá
gjaldmiðill tengdist
öðru stærra mynt-
svæði,“ sagði Guð-
mundur Hauksson,
forstjóri Kaupþings í
ræðu á ráðstefnu
Félags viðskipta- og
hagfræðinga í gær.
Ráðstefnan bar
heitið íslenskur fjár-
málamarkaður árið
2000 og fjallaði ræða Guðmundar
um valkosti á verðbréfamarkaði
árið 2000.
í ræðunni minntist Guðmund-
ur á ástæður þess að erlendir
fjárfestar hefðu lítinn áhuga á
að fjárfesta á íslenskum verð-
bréfamarkaði og sagði m.a. að
íslenska krónan væri þeim erfið-
ur þröskuldur enda væri í þeirra
huga töluverð geng-
isáhætta fólgin í fjár-
festingum á Islandi.
Guðmundur sagði
að við að tengja ís-
lenskan gjaldmiðil
öðru og stærra mynt-
svæði myndu allir
kostir sem stór og
öflugur verðbréfa-
markaður byggi yfir
fljótlega nýtast ís-
lenskum aðilum.
„Að sjálfsögðu
fylgja því ýmsir
ókostir að stjórna
ekki sjálfir skrán-
ingu þeirrar myntar
__ sem efnahagslífið
byggir á. Ég er ekki að leggja
hér til að þetta skref verði stig-
ið nú. En það er full ástæða til
að átta sig á þeim kostum og
göllum sem því fylgir að tilheyra
stærra myntsvæði og ég mundi
ekki hafna þeim möguleika fyr-
irfram að skráningu íslensku
krónunnar yrði hætt,“ sagði
Guðmundur.
Guðmundur
Hauksson
Hrávara
*
Ovissu-
vikaá
málm-
markaði
London. Reuter.
NOKKRAR mikilvægir málmtegund-
ir seldust á lægsta verði það sem af
er árinu í vikunni, en staðan batnaði
í vikulok þegar sala glæddist.
Aðeins kopar hélt velli þegar verð-
ið lækkaði á þriðjudaginn og það
styrkti stöðu annarra málma. Ýmsir
sérfræðingar búast þó við annarri
lækkun.
Óvissan jókst vegna vísbendinga
um minni byggingar í Bandaríkjun-
um en talið hafði verið. Það þykir
renna stoðum undir það álit að vaxta-
hækkanir kunni að hægja á efna-
hagsbatanum í heiminum og draga
úr eftirspurn eftir hráefnum.
Nánar um stöðuna í vikunni:
KOPAR lækkaði um aðeins 0.8% á
þriðjudag í 2,830 dollara tonnið. Það
var um 8% lækkun síðan kopar
hækkaði mest í 3,081 dollar tonnið
um miðjan janúar. Á föstudag hækk-
aði verðið í um 2,875 dollara.
ÁL lækkaði í 1,840 dollara tonnið,
lægsta verð á nýbyijuðu ári. Um 16%
lægra verð en um miðjan janúar
þegar það var 2,195 dollarar, hið
hæsta frá því samdrættinum lauk.
Hækkaði í um 1,910 dollara á föstu-
dag.
NIKKEL lækkaði í 7,950 dollara
tonnið á þriðjudag, lægsta verð á
árinu, úr 10,500 dollurum i janúar.
Sala glæddist síðan og verðið hækk-
aði í um_ 8,550 dollara á föstudag.
HRÁOLÍA Hæsta heimsmarkaðs-
verð 1995. Aprílverð á Norðursjáva-
rolíu í 17.57 dollara, en lækkaði.
GULL seldist á bilinu 374-377 doll-
arar únsan.
KAFFI seldist enn á um 30% lægra
verði en þegar það náði hámarki
1994. Kaffibirgðir minnkuðu í
Bandaríkjunum, en ekki eins mikið
og gert hafði verið ráð fyrir.
KAKÓ seldist á því sem næst hæsta
verði í sex mánuði, 1,043 pund, um
miðja vikuna. Ástæða: uggur um
birgðaskort í marz. Á föstudag hafði
verðð lækkað um hér um bil 20 pund.
SYKUR seldist á svipuðu verði og
fýrr.
HVEITI. Minnstu birgðir síðan 1982
vöktu ugg þar sem uppskeruhorfur
1995 eru misjafnar að sögn FAO.
JURTAOLÍA. Verðið hækkaði í
vikubyijun, en lækkaði þegar fregnir
um góðar söluhorfur í Pakistan og
á Indlandi reyndust orðum auknar.
. v s 1 a tl ú n - b n
Sjúkraþjálfari leiákeinir um val á dýnum í dag
Góð kvílJ er mikilvægari íyrir keilsuna en ílest annað. Gæði
dýnunnar geta kaft úrslitaákrif á kvort svefninn er vær og
endurnærandi. I verslun Lystadúns-Snælands mun sjúkra[)jálfari
leiðkeina og fræða viðskiptavini og segja frá kvaða kostum góð
dýna [>arf aá vera kúin til að svefnsins verði notið sem kest.
Dýnuúrvalið kjá Lystadún-Snæland er fjölkreytt; fjaðradýnur
— kæði einfa ldar og tvöfaldar latexdýnur, svampdýnur, yfirdýnur,
eggjatakkadýnui og heilsukoddar.
$
Opiá í dag kl. 10:00—16:00.
^'SJÚKRAÞJÁLFUN
REYKJAVÍKUR
SNÆLANDhf
SUútuvogi 11 • Sími 581-4655 ogf 568-5588