Morgunblaðið - 18.02.1995, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMIMINGAR
+ Karl Þórólfur
Berndsen var
fæddur í Karlsskála
á Skagaströnd 12.
október 1933. Hann
lést á Akureyri 12.
febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðrún Lauf-
ey Helgadóttir og
Ernst Georg
Berndsen er lengst
af bjuggu á Karls-
skála á Skaga-
strönd. Systkini
Karls eru: Helga
Guðrún, sem búsett
er í Reykjavík, hennar maður
er Gunnlaugur Árnason, og
Adolf Jakob sem búsettur er á
Skagaströnd, eiginkona hans
er Hjördís Sigurðardóttir.
Karl Þórólfur giftist eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Ingi-
björgu Fríðu Hafsteinsdóttur,
25. desember 1957. Þau eignuð-
ust þrjú börn og þau eru: 1)
ÞAÐ TEKUR nokkurn tíma að
átta sig þegar manni berst frétt
eins og sú er mér barst síðastliðinn
sunnudagsmorgun um að Karl
Bemdsen hefði orðið bráðkvaddur
um nóttina. Mér hafði alltaf fund-
ist hann líklegur til að verða allra
karla elstur, reglusamur, grann-
vaxinn, útivistar- og íþróttamaður.
Vegir Guðs eru órannsakanlegir.
Eg kynntist Karli fyrst að ráði
þegar við störfuðum saman í fyrstu
stjóm Skagstrendings hf. Þar
kynntist ég hinum geysilega dugn-
aði og ódrepandi áhuga, sem hann
bjó yfir þegar atvinnu- og hags-
munamál Skagstrendinga vora til
umræðu. Það var mikið happ fyrir
Skagstrendinga að Karl valdist til
forastu fyrir félagið því kappsam-
ari maður eða úrræðabetri fannst
vart. Vakinn og sofinn var hann
sífellt á höttunum eftir nýjum
tækifæram til þess að auka við
starfsemina og bæta reksturinn.
Ég þakka Karli þann tíma sem
við áttum samleið og bið Guð að
blessa eftirlifandi eiginkonu og
börn. Missir þeirra er mikill.
Sveinn S. Ingólfsson.
Kalli frændi er dáinn. Snöggt
og ótímabært fráfall hans kom eins
og reiðarslag. í hugann koma
margar minningar. Efst í huga er
minningin um dugnað og áræði. Í
þessum manni bjó slíkur kraftur
að eftir var tekið. Að hlífa sér var
ekki til í hans huga. í vinnunni
gekk hann ávallt fremstur. Þar
þjónaði hann m.a. skipum okkar
Karl hárgreiðslu-
meistari, búsettur í
Reykjavík. 2) Lauf-
ey, sem gift er Ág-
ústi Jónssyni, þau
eiga þrjú börn:
Mikael Karl, Jón
Ernst og Friðu Món-
iku og eru þau bú-
sett í Reykjavík. 3)
Ernst vélfræðingur,
kona hans er Þór-
unn Óladóttir, þau
eiga einn son, Frið-
vin Inga. Áður átti
Ernst soninn Eyþór
Orn. Ernst og Þór-
unn búa á Skagaströnd. Karl
Þórólfur var lærður vélvirkja-
meistarí og vann alla tið við þá
iðn sína. Hann rak vélaverk-
stæði á Skagaströnd um langt
árabil.
Útför hans fer fram frá Hóla-
neskirkju á Skagaströnd laug-
ardaginn 18. febúar og hefst
athöfnin kl. 14.
af alúð með starfsmönnum sínum.
Áhugi hang á atvinnumálum og
uppbyggingu þorpsins okkar var
mikill. Hann var einn af aðalhvata-
mönnum að stofnun Skagstrend-
ings hf. árið 1968. Gegndi hann
einu af lykilhlutverkum í uppbygg-
ingu félagsins til fjölda ára. Sat
hann í stjórn félagsins frá stofnun
þess til ársins 1989, þar af sem
stjómarformaður í 15 ár.
Á síðustu áram fór stór hluti
frítíma Kalla og Fríðu í uppbygg-
ingu golfvallar á Skagaströnd. Þar
nýttust hæfileikar Kalla vel, dugn-
aður og útsjónarsemi hans leystu
mörg vandamálin. Það er ekki of
mikið sagt að segja að starf þeirra
hjóna fyrir Golfklúbbinn hafi lagt
granninn að þeim góða velli og
aðstöðu sem nú er orðin til. Oft á
tíðum þótti okkur yngra fólkinu
Kalli vilja fara of geyst í fram-
kvæmdum við völlinn. Þá var svar-
ið oftar en ekki „hvaða væl er
þetta, við drífum í þessu“. Þessi
orð lýsa Kalla vel.
Það að fá að kynnast og læra
af Kalla hefur gefið mér mikið.
Minninguna mun ég varðveita vel.
Kalli og Fríða vora alla tíð ein-
staklega samrýnd hjón. Missir
Fríðu og fjölskyldunnar er mikill.
Bið ég Guð að styrkja þau og
hugga á erfiðum tímum.
Adolf H. Berndsen.
Að kveðja þá lífsdansinn stendur
sem hæst, er mjög, mjög erfitt.
Þá spyr maður: Af hveiju svona
fljótt? Mátti ekki ljúka við dansinn?
Það var nóg þrek til þess og jafn-
vel fyrir þann næsta. En minning-
in lifir fersk, falleg og góð um all-
ar ánægjulegu stundimar sem
fengu svo skjótan endi.
Þannig er minningin um Karl
Þórólf Berndsen, eiginmann Fríðu
systur minnar, en Karl lést 12.
febrúar sl. á dansleik á Akureyri
í hópi góðra kunningja.
Fréttin sló mann sem elding.
Þetta gat ekki verið rétt, Kalli
dáinn. Jú, eldingunni verður ekki
snúið af leið.
Kalli Berndsen, eins og hann var
yfirleitt kallaður, var sérlega ljúf
og lifandi persóna sem mátti ekk-
ert aumt sjá. Hann var svo bóngóð-
ur að enginn fann fyrir því að leita
til hans, enda var það óspart gert.
Það var sama hvort einhver átti í
basli við veður, færð, bilanir af
ýmsu tagi, eða ferðir til læknis,
þá kom Kalli alltaf fyrstur upp í
huga fólks. Hann var verklaginn
og svo fljótur að bregðast við ósk-
um þeirra sem leituðu til hans, að
yfírleitt var hann lagður af stað
áður en síðasta orðið var sagt.
Eins og oft vill verða með slíka
menn, fékk hann yfirleitt lítið
þakklæti og enga greiðslu fyrir,
þótt hann hætti bæði heilsu og
tækjum í slík hjálparstörf, enda
heyrðist aldrei á honum að slíkt
skipti máli. Heimili Kalla og Fríðu
hefur ætíð verið mannmargt af
gestum og gangandi. Gestrisni og
glaðværð þeirra beggja laðaði að
fólk og margt barnið, frá nokkurra
vikna aldri til nokkurra ára var
fóstrað hjá þeim, á meðan foreldr-
ar fóru til höfuðborgarinnar eða
til útlanda. Þá sá maður Kalla oft
með fósturbörnin á hnjám sér,
þegar hann var ekki að vinna, og
þá mataði hann þau í matartímun-
um. Hann var mjög barngóður og
fátt sem hann hefði neitað sér um
að gera fyrir barnabömin sín fimm.
Allt lífsgæðakapphlaup var langt
frá því að vera kappsmál hans, en
hann bjó vel að fjölskyldu sinni,
eiginkonunni og bömunum þremur.
Kalli átti mörg áhugamál. Ollum
þeim sinnti hann af svo mikilli
glaðværð og ferskleika að oft var
líf hans ævintýri líkast. Hann
stundaði íþróttir á yngri áram og
hafði mikla ánægju af dansi, veiði-
ferðum og skemmtiferðum. Hann
bjó yfir það mikilli lífsgleði að hann
þurfti aldrei að nota örvandi efni
til að vera hrókur alls fagnaðar.
Allt sem hann tók sér fyrir hend-
ur, vann hann af svo brennandi
áhuga að þreyta náði sjaldan tök-
um á honum. Var þá sama hvort
um var að ræða atvinnurekstur
hans, vélaverkstæðið, eða störf
hans að félagsmálum.
Hann var einn af stofnendum
Skagstrendings hf. og í stjórn þess
fyrirtækis í tugi ára. Hann var auk
þess einn af stofnendum Golf-
KARL ÞÓRÓLFUR
BERNDSEN
KARIG UNNARSSON
+ Kári Gunnars-
son fæddist á
ísafirði 9. mars
1921. Hann lést á
Landspítalanum 8.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Dómkirkj-
unni 17. febrúar.
ÉG KVEÐ tengdaföður
minn, Kára Gunnars-
son, með söknuði.
í tuttugu ár hef ég
notið félagsskapar
Kára. Daglega leit hann
inn eða hringdi. Staldr-
starfið
einfalt í hans augum.
Ef eitthvað var bilað þá
varð að laga það og ef
eitthvað vantaði á varð
að útvega það. Hann
var praktískt þenkjandi
bjartsýnismaður og
ávallt til þjónustu reiðu-
búinn.
Kári var eirðarlaus
maður og það var eins
og hann væri alltaf að
leita að einhverju sem
hann vissi kannski ekki
sjálfur hvað var og án
þess að vænta neinnar
útkomu. Hann fann
sinn lífsstíl í gegnum
sem bílstjóri. Á sífelldri hreyf-
aði oftast stutt við og
sagði sjaldan margt. Drakk bolla af
kaffi og farinn og ekki var þörf á
hátíðlegum kveðjum því hans var að
vænta aftur von bráðar og þá eins
og hann hefði ekkert farið.
Fjölskyldan var honum allt og
hann fór á milli heimila bama sinna
og athugaði hvort að allir hlutir
væru ekki í lagi og hvort einhvem
vantaði eitthvað. Allt var þetta svo
ingu frá morgni til kvölds, eigandi
samskipti við ólíklegasta fólk við all-
ar mögulegar aðstæður. En öryggi
og hvíld sótti hann til sinnar fjöl-
skyldu sem hann helst vildi hafa alla,
eiginkonu, böm, tengdaböm og
bamaböm, undir einu og sama þaki.
Þar sem allir nytu lífsins í sátt og
samlyndi.
Nú kveður fjölskyldan góðan
mann sem skiiur eftir skarð sem
enginn fyllir.
Eg kveð þig sem vin, því vinur
varst þú í raun. Ég hefði viljað kynn-
ast þér enn betur. Ég hefði líka vilj-
að reynast þér betur. En ég fæ engu
breytt nú, en vona að ég geti orðið
öðrum það sem þú varst mér og
mínu fólki.
Martin.
Elsku afi minn er dáinn. Ég veit
að honum líður vel hjá Guði því hann
var hjartahlýr og góður við alla.
Minningar mínar um afa Kára eru
allar yndislegar og ég mun geyma
þær í hjarta mlnu.
Af hjartans rót ég þakka þér
hið þunga strið til frelsis mér
og dapran krossins dauða þinn
þú dýrsti’ og besti vinur minn.
Þín heilög elska höndli mig
og haldi mér svo fast við sig
svo eigi ég um eilífð þig.
(B.H.)
Ég kveð elsku afa minn með söknuði.
Linda Camilla.
klúbbs Skagastrandar og vann
ómælt að uppbyggingu þar ásamt
konu sinni, en þau hafa bæði verið
miklir áhugamenn um golf. Að sjá
verk sín blómstra var honum meira
virði en auður.
Það var aðeins eitt sem mér
fannst hrjá hann. Hann unni sjón-
um, en gat aldrei yfírannið þá
vondu grýlu, sjóveikina.
Ég og fjölskylda mín þökkum
það ríkidæmi að hafa átt þau Karl
og Fríðu að nánum vinum.
Guð blessi sál hans, elsku Fríðu
mína, bömin þeirra og bamabömin.
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Vinur og mágur er genginn.
Elskulegur ljúfur í alla staði. Ég
er búin að þekkja hann frá því ég
man eftir mér fyrir um það bil
fimmtíu árum. Hann varð strax
áberandi á staðnum og ég var ekki
gömul þegar ég söng fyrir hann
og fékk greitt fyrir það fimm aura,
ofar en einu sinni. Svo komst hann
á fermingaraldur, fallegur, ljós-
hærður, með miklar dökkar auga-
brúnir, svo dökkar að við héldum
að þær væra litaðar. En ég átti
líka fallega systur sem átti hug
hans. Og þau liðu saman hægt í
dansinn og létust falla arm í arm,
alveg eins og þegar kallið kom,
að þau skyldu einmitt vera að
dansa. Það var þá upphafíð og
endirinn. Fyrir utan dansinn áttu
þau annað sameiginlegt áhugamál,
en það var golf, og þar vora þau
hjón einnig samtaka. Þau vora ein-
mitt stödd á ráðstefnu um golf
þegar kallið kom.
Elsku Fríða systir mín, þú sem
varst svo dugleg og vannst ferð
til Potúgals og þið ætluðuð að fara
eftir mánuð. Þetta finnst mér
ósanngjamt, en það er ekki spurt
að því.
Karl mágur minn var einstakur,
hann vildi allt fyrir alla gera og
taldi ekkert eftir sér. Hann var
hrókur alls fagnaðar. Allt hjá Kalla
var ekkert mál.
Þau eignuðust þijú yndisleg
böm, hvemig á annað að vera eins
og þau vora hjónin. Elst er Laufey
sem á Adda sinn og þijú börn,
Mikael Karl, Jón Emst og litlu
Fríðu Moniku. Ernst á Tótu sína
og tvo syni, Eyþór og Friðvin,
Karl er yngstur og kemur frá
Þýskalandi til að fylgja elskulegum
föður. Guð styrki þau í þeirra miklu
sorg.
Fríða mín, Guð á himnum geymi
Kalla þinn þar til þið líðið saman
í dans á ný.
Áslaug Hafsteinsdóttir.
Með örfáum orðum vil ég minn-
ast Karls Þ. Berndsens fomvinar
míns og vinnustaðarins þar sem
leiðir okkar lágu saman fyrir lið-
lega 42 áram. Það var í Landsmiðj-
unni á áranum 1953-57, en þar
voram við báðir lærlingar í vél-
virkjun. Þetta var á þeim árum
þegar Landsmiðjan var í tölu
stærstu og öflugustu vélsmiðja á
landinu; starfsmenn hátt í 200 tals-
ins, þar af á vélvirkjadeildinni milli
30 og 40 manns. Verkefni vél-
virkjadeildarinnar vora íjölþætt.
Þar má nefna viðgerðir skipa í eigu
ríkisins, viðgerðir véla og búnaðar
í fiskiskipum og viðhald á vélum
og tækjum sem fyrirtækið hafði
umboð fyrir. Einnig var talsvert
um nýsmíði.
Á þessum tíma höfðu Fríða og
Kalli, eins og við vinnufélagamir
kölluðum hann alltaf, tekið saman
og bjuggu í leiguíbúð á Öldugötu
54. Hún vann í Nýju skóverksmiðj-
unni og var í rauninni fyrirvinna
heimilisins því lærlingskaupið
hrökk skammt til framfærslu á
þessum tíma. Fyrir mig einhleypan
sveitamanninn var ekki amalegt
að geta á þessum áram litið inn
hjá þeim Kalla og Fríðu á Öldugöt-
unni. Sem aðkomufólk í Reykjavík
höfðum við að mörgu leyti svipuð
viðhorf til lífsins og tilverannar og
í vinnunni voram við Kalli eins og
samgrónir. Þetta skynjaði verk-
stjóri okkar fljótt og lét okkur
gjarnan vera í sama vinnuflokki.
Það er ekki ofmælt að segja að
Kalli hafi verið frábær starfsmað-
ur. Hann var allt í senn, laginn,
útsjónarsamur og afkastamikill.
Og ég held að það gildi um okkur
alla, fyrrverandi vinnufélaga hans
í Landsmiðjunni, að við minnumst
hans fyrst og fremst sem góðs og
skemmtilegs vinnufélaga.
Með veganesti sitt og þekkingu
frá störfunum í Landsmiðjunni
hélt Kalli ásamt Fríðu til starfa
heima í Höfðakaupstað strax að
loknu sveinsprófí. Ég hygg að það
hafi verið snemmsumars 1957. Á
Skagaströnd hóf hann fyrst störf
hjá Síldarverksmiðjum ríkisins en
seinna stofnaði hann vélaverkstæði
sem hann, framan af, rak ásamt
Þórarni Bjömssyni. Hér var byijað
smátt en umsvifin aukin eftir því
sem fjárhagsleg geta leyfði. Áður
en leið á löngu hafði hann komið
upp eigin verkstæðishúsi. En Kalli
lét sig meira varða en rekstur eig-
in verkstæðis. Sem dæmi má nefna
að hann var einn af stofnendum
hlutafélagsins Skagstrendings og
átti sæti í stjórn þess fyrirtækis í
tvo áratugi.
Eftir að leiðir skildu hér syðra
og fjölga tók í heimili hjá báðum
var gaman að renna við á Skaga-
strönd hjá Kalla og Fríðu þegar
við hjónin fóram norðurleiðina
austur á Hérað. Við eigum góðar
minningar frá þeim heimsóknum
og hlýjum móttökum á Strandgötu
10.
Nú að leiðarlokum sendum við
hjónin Fríðu, bömunum og að-
standendum öllum hlýjar samúðar-
kveðjur.
Gunnar Guttormsson.
Elsku pabbi minn, að kveðja þig
er erfiðara en orð fá lýst. Tárin
hrynja niður kinnarnar. Minning-
amar koma og koma.
Það var alltaf svo gott að vera
litla stelpan hans pabba. Ég var
ekki há í loftinu þegar ég ákvað,
að þegar ég yrði stór, ætlaði ég
að eignast mann sem væri eins og
pabbi, blíður og góður.
Það er svo stutt síðan þú og
mamma voruð hjá okkur um jólin,
geislandi af lífi og kátínu - þú að
dansa við smáfuglana þína og leika
við Fríðu litlu.
Elsku pabbi minn, öll skiptin
sem þú hringdir til að spyija hvern-
ig litlu smáfuglamir þínir hefðu
það geymi ég í hjarta mínu. Betri
afa gat ekkert bam átt.
„Sæl, hjartað mitt,“ vora orð
sem þú sagðir svo oft og það er
svo sárt að heyra þau ekki oftar
frá þér. Litlu strákamir okkar og
Fríða litla Mónika eiga eftir að
sakna þín mikið. Þau geta ekki
skilið af hveiju Guð tók afa frá
þeim og þau hafa áhyggjur af því
að nú verði amma ein. Það er skrýt-
ið hvernig lífíð getur verið gott,
en samt svo miskunnarlaust.
Elsku pabbi, ég veit að amma
Guðrún og Ensi afi hafa tekið vel
á móti þér. Ég veit að fyrir mömmu
mun minningin um yndislegan eig-
inmann og góðan vin hjálpa henni
að halda áfram. Minningarnar um
þig munum við Addi geyma og
varðveita með bömunum okkar.
Guð geymi þig, pabbi minn.
Góða nótt, elskan.
Þín,
Laufey.
Kveðja frá barnabörnum
Elsku afí okkar,
Fái ég ekki að faðma þig,
fógnuð þann ég missi.
Frelsarinn Jesú fyrir mig
faðmi þig og kyssi.
(SI)
Góði Jesú fylgi þér, með öllum
sínum englaher.
Mikael Karl, Jón Ernst,
Fríða Mónika.