Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Kannski ekki lygi - en blekking Samsýning 12 mynd- listar- manna SÝNINGARSALURINN Við Hamarinn hefur starfsemi sína að Strandgötu 50, Hafnarfirði, þar sem áður var sýningarsalur- inn Portið, laugardaginn 4. mars kl. 16. Salurinn er rekinn af Listaskólanum við Hamarinn sem er til húsa á sama stað. Opnunarsýning salarins er samsýning 12 ungra myndlist- armanna sem flestir útskrifuð- ust frá Myndlista- og handíða- skóla ísiands á árunum 1989-91 en hafa nýlega verið að tínast heim úr framhalds- námi erlendis og eru að hasla sér völl. Listamennirnir eru Birgir S. Birgisson, Sigtryggur Baldvins- son, Jóhann Torfason, Bva Sig- urðardóttir, Erna Sigurðardótt- ir, Sigríður Ólafsdóttir, Ingimar Ólafsson Waage, Karl Jónsson, Freydís Kristjánsdóttir, Þorri Hringsson, Pétur Örn Friðriks- son og Halldór Baldursson. Sýningarsalurinn Við Ham- arinn er opinn alla daga, nema mánudaga, kl. 14-18. Gríma Eik og öskjurnar. Síðasta sýn- ingarhelgi Grímu Eikar í GALLERÍI Úmbru sýnir Gríma Eik öskjur í mismunandi stærðum, hannaðar og málaðar af listakonunni. Sýningin er opin þriðjudaga til laugardaga kl. 13-18 og sunnudaga kl. 14-18. Henni lýkur miðvikudaginn 8. mars. Bamaskemmt- un í Norræna húsinu BARNASKEMMTUN í tengsl- um við öskudaginn/„fastelavn“ verður haldin í Norræna húsinu sunnudaginn 5. mars kl. 14. Dagskráin hefst með litlu ævintýri, „Prinsessan og Polli“, sem Augnablik: Ásta Arnar- dóttir og Anna Elísabet Borg, flytja. Verður brugðið á leik með börnunum og dansað. Síð- an mun kötturinn verða sleginn úr tunnunni. Skemmtunin er haldin í samvinnu Norræna hússins og Dans-íslenska fé- lagsins. Allir velkomnir og að- gangur er ókeypis. LEIKLIST Ka f f i leikhú s i ð Hlaðvarpa SÁPA II. 1. mars. Höfundar: Ingibjörg Hjartardóttir og Sigrún Óskarsdóttir. Leikstjóri: Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Höfundur söngtexta og tónlistar: Valgeir Skagfjörð. SEX VIÐ sama borð - og enginn lýgur er heitið á þessari 2. sápu vetrarins í Kaffileikhúsinu. En það sem er kannski öllu athyglisverð- ara er að við borðið eru aðeins tveir stólar. Þrenn hjón koma við sögu í sýn- ingunni og er óhætt að segja að eitthvað pínulítið sé að í þeim öll- um. Þetta pínulitla getur verið að hjón tali ekki sama tungumál, skilji ekki hvort annað, hafi ekki áhuga á hvort öðru og eigi hreint enga samleið. En það eru nú bara smá- ERLA Berglind hóf nám í Söngskóla Reykjavíkur árið 1987 og var þar nemandi Valgerðar Gunnarsdóttur. Síðan gerðist hún nemandi Sieglinde Kahmann og hefur verið hjá henni allar götur þar til hún er nú að ljúka einsöngv- araprófi. „Ég er „lýrískur sópr- an“,“ segir Erla Berglind. „Verk- efni mín á tónleikunum í Lang- munir sem eins má segja að haldi hjónaböndunum lafandi. Eins og svo oft vill verða í lífinu eru allir á leiðinni út úr hjónabönd- unum. Það er að segja, segjast vera það. Hitt er svo annað mál hvort þeir standa við það þegar á hólminn er komið, jafnvel þótt all- ir eigi meiri samleið með einhveij- um allt öðrum. Og vissulega má segja að enginn ljúgi neinu - en hitt er annað mál að allir eru í einhverjum blekkingaleik. Leikritið gerist í Hlaðvarpanum og þangað rangla inn einstakling- amir í pörum. Þó ekki hjónapörum - enda reyna allir að fara huldu höfði eða í nettu dulargervi. Halda að þeir þekkist ekki. Sápa II er mikið flækjuverk - en þó er „system í galskabet“, eins og sagt er. Það er vel byggt og textinn alveg bráðskemmtileg- ur með góðum orðaleikjum til skrauts. Þetta er tvímælalaust fyndnasta og skemmtilegasta verkið sem hefur verið á íjölum holtskirkju eru Ljóðaljóð Páls ísólfssonar og Kantata eftir Hayd- en. Loks syng ég Konsertaríu eftir Mozart.“ Erla Berglind kvað þessa tón- leika vera í samvinnu við Skóla- hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík. „Þessi Haydenkantata fannst árið 1957 og hefur ekki áður verið flutt á íslandi. Konsert- aría Mozarts hefur heldur ekki Kaffileikhússins í vetur. Og auðvitað er leikurinn hreint kostulegur - enda einvalalið sem fer með hlutverkin í sýningunni; Bessi Bjarnason, Margrét Guð- mundsdóttir, Margrét Ákadóttir, Eggert Þorleifsson, Edda Björg- vinsdóttir og Valgeir Skagfjörð. Það er í rauninni ekki hægt að lýsa persónunum án þess að upp- lýsa flækjurnar og eyðileggj a gam- anið fyrir þeim sem ekki hafa séð sýninguna - og því skal það látið ógert. En það er óhætt að treysta því að þetta er vel skrifað verk og frábærlega leikið. áður verið flutt á íslandi. Svo skemmtilega vill til að Ljóðaljóð Páls ísólfssonar vom frumflutt á sínum tíma í hljómsveitarútgáfu með Sieglinde Kahmann sem ein- söngvara árið 1980. Það var Sin- fóníuhljómsveit íslands sem lék með henni.“ Syngur í kór íslensku óperunnar Erla Berglind kvaðst hafa hug á að fara til framhaldsnáms í söng til útlanda. „Ég er svona að líta í kringum mig, en hef ekki afráðið neitt ennþá. Ég hef fyrst og fremst hugsað mér að leggja fyrir mig óperusöng. Ég syng í kór íslensku óperunnar. Fyrsta verkefnið sem ég tók þátt í þar var Töfraflautan eftir Mozart," sagði Erla Berglind. Seinni hluti einsöngvaraprófs Erlu Berglindar er einnig í tón- leikaformi. „Þeir tónleikar verða haldnir í Norræna húsinu 20. apríl nk., þar verð ég aftur á móti ein- göngu með ljóðasöng. Þar verður undirleikari Anna Guðný Guð- mundsdóttir, hún hefur verið und- irleikari minn í skólanum síðasta ár, en áður var Lára Rafnsdóttir undirleikari minn.“ Söngtextar Valgeirs Skagfjörð eru bráðskemmtilegir og tónlistin grípandi. Leikstjórnin er mjög góð, ber vott um gott næmi fyrir kómískum hreyfingum og svip- brigðum - og ekki síst texta. Það tókst ótrúlega vel að koma sýning- unni fyrir í yfirfullu leikhúsinu á frumsýningarkvöld og ég verð að segja eins og er að mér finnst Sigríður Margrét og Ingibjörg Hjartardóttir vera einhveijir at- hyglisverðustu leikstjórar og leik- ritahöfundar sem fram hafa 'kom- ið hér um árabil. Súsanna Svavarsdóttir Karnival dýranna sýnt í Stapa i Njarðvík Keflavík. Morgunblaðið. „ÞETTA er ákaflega viðamikil sýning, undirbúningur hófst strax í haust og þátttakendur eru á annað hundrað," sagði Kjartan Már Kjartansson skóla- stjóri Tónlistaskólans í Keflavík í tilefni af sýningu á Kamivali dýranna eftir franska tónskáldið Saint Saens. Að sýningunni standa Tónlistaskólinn í Kefla- vík og Jassdansskóli Emilíu í Keflavík. Kjartan sagði að Kamival dýranna væri bæði sívinsælt og þekkt verk. Það samanstæði af 14 skemmtilegum lögum þar sem fylgst væri með dýmnum og ýmsum kynjaverum undirbúa sig fyrir mikla hátíð Höfundur dansanna em Emil- ía Dröfn Jónsdóttir danskennari og Sigríður Kr. Halldórsdóttir, forskólakennari. Stjómandi kórsins er Gróa Hreinsdóttir, hljómsveitarstjóri er Karen Stur- laugsson, yfirkennari Tónlista- skólans í Keflavík, sviðsmynd gerði Sigmar VilhelmsSon og gerð búninga annaðist Hanna Halldórsdóttir. Sýningar verða í Stapa á morgun, laugardag, kl 15:00 og á sunnudag á sama tíma. Vill leggja fyrir sig óperusöng Erla Berglind Einarsdóttir kemur fram á tónleikum í Langholtskirkju á sunnudag klukkan 17.00. Tónleikarnir eru fyrri hluti af einsöngvara- prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Guðrún Guðlaugs- dóttir ræddi við hana um nám hennar, efnisskrá tónleikanna og framtíðarhorfur í söngnum. Erla Berglind Einarsdóttir DX4/I00 er QX4/IQ9MHS mmmur Viimw’ 4 4 r<ffh!44(im med DX2/66 ngin venjuleg fartölva ! Ótrúlega öflug - 6 klst. rafhlöður - Hljóðkerfi - Tengikví - o.fl. o.fl. SétrSfiaM tílbþo4sv€r<$ f mjkktfm daga \ Verslunin er opin laugardaga frá kl. 10:00 - / 4:00 [j I fivíO NÝHERJI SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 569 7700 Alltuf skrefl á undan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.