Morgunblaðið - 03.03.1995, Side 31

Morgunblaðið - 03.03.1995, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ELÍAS JÓN DA GBJARTSSON + Elías Jón Dag- bjartsson var fæddur 12.12. 1925 í Hvestu í Ketildöl- um í Arnarfirði og þar ólst hann upp. Hann lést á St. Jós- efsspitala í Hafnar- firði 22. febrúar 1995. Hann var sjö- undi í röðinni af tólf börnum hjón- anna Þórunnar Bogadóttur, 27.2. 1894, d. 5.3. 1944, frá Hringsdal í Ket- ildölum og Dag- bjartar Eliassonar, f.27.7. 1890, d. 31.8. 1978, frá Uppsölum í Selárdal í sömu sveit. Systkini hans eru: Lára, Bogey Kristín, Halla (látin), Guðrún Jóna, Guð- munda Jóhanna, Kristín, María, Ragnhildur Hólmfríður (látin), Oddur Kristinn, Þóra Rúna (lát- in), Gísli Einar, og hálfsystir Laufey. Elías Jón kvæntist 17.4. 1954 eftirlifandi eiginkonu sinni Jónu Kristínu Jón- asdóttur, f. 19.7. 1929, dóttir hjón- anna Sigriðar Magnúsdóttur og Jónasar Þórðarson- ar frá Hnífsdal. Þau bjuggu á Brúarfllöt 7, Garðabæ. Börn þeirra eru: 1) Dag- bjartur, f. 21.10. 1954, d. 24.4. 1958, 2) Sigurður, f. 5.6. 1956, kvæntur Guð- björgu Guðmunds- dóttur. Þeirra synir eru Anton Örn og Elías Viljar. 3) Kristinn Þór, f. 18.6. 1962, ókvæntur og barnlaus. 4) Elín Dóra, f. 17.12. 1963, í sambúð með Karli Gissurarsyni. Sonur þeirra er Arnar Freyr. 5) Linda Björk, f. 9.4. 1967, gift Hauki Valdimarssyni. Þau eiga tvær dætur, Jónu Kristínu og Huldu Sif. Útför Elíasar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. KÆR vinur og mágur, Elías Dag- bjartsson, hefur kvatt þennan heim. Hann andaðist miðvikudag- inn 22. febrúar eftir stutta en þunga legu. Vinir lúta höfði í þögulli virðingu og eftirsjá því hann var góður drengur, orðvar og alls staðar til góðs. Hann ólst upp í stórum systk- inahóp því systkinin voru 12. Móð- ir hans Þórunn var mjög söngelsk og því liðu mörg kvöldin í ljúfum söng og ljóðalestri. Elías var tón- listarunnandi og spilaði bæði á munnhörpu og harmoniku. Elías var einnig mikill íþróttaunnandi og var margt til lista lagt sem hús hans á Brúarflöt 7 ber vitni og sem hann smíðaði að miklu leyti sjálfur. Nú þegar leiðir skilja um stund og hann flyst á annað tilverustig biðjum við honum Guðs blessunar á þeim leiðum sem hann hefur nú lagt út á. Jónu, eftirlifandi konu hans, börnum og öðru skyldfólki vottum Bróðir okkar, + BJÖRN PÉTURSSON, Víðinesi, andaðist hinn 1. mars í Borgarspítalanum. María Pétursdóttir, Ásthildur Pétursdóttir, Jón Birgir Pétursson, Stefanfa Pétursdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR HILDIBRANDSDÓTTIR, áðurtil heimilis á Selvogsgötu 15, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðviku- daginn 1. mars. Gunnhildur G. Smithson, Clyde S. Smithson jr., Ásgeir B. Guðlaugsson, Arndís L. Nielsdóttir, Sævar Guðlaugsson, Karen Ólafsdóttir, Gísli Hildibrandur Guðlaugsson, Jóna V. Höskuldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur faðir okkar og afi, FRÓÐI BJÖRNSSON fyrrverandi f lugstjóri, Bugðutanga 28, Mosfellsbæ, lést þann 27. febrúar. Útförin fer fram' frá Langholtskirkju mánudaginn 6. mars kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Hallveig Fróðadóttir, Ragna Fróðadóttir, Björn Fróðason, Hólmfríður Fróðadóttir, Hulda Rún Jóhannesdóttir, Fróði Jóhannesson. .. mWírtMTOOT- (M? FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 31 • MINNINGAR við samúð og óskum þeim styrks í söknuði þeirra minnug þess að: Senn dvínar nóttin og diraman flýr og dagur ljómar í austri nýr. Pétur Magnússon. Úr furutré, sem fann ég út við sjó ég fugla skar og líka úr smiðjumó. í huganun til himins oft ég svif og hlýt að geta sungið í þá líf. (Davíð Stefánsson) Mér er ljúft að minnast elskulegs móðurbróður míns, Elíasar Jóns Dagbjartssonar, sem er horfinn yfir móðuna miklu. Elías var fyrsti drengurinn, sem fæddist inn í hóp systra, sem voru tilbúnar að aðstoða við umönnun kærkomins bróður, en seinna bættust tveir við hópinn. Þar að auki voru á heimilinu ömm- urnar, sem báðar hétu Kristín og ömmusystirin Guðrún Jóna. Þetta var því stórfjölskylda í orðsins fyllstu merkingu. íslenskt máltæki segir: Margar hendur vinna létt verk. En það lærði snemma þessi stóri barnahópur, að leggja hönd á plóginn og aðstoða við rekstur bú- jarðarinnar. Elías var kominn af sterkum stofnum. í móðurætt af Einari presti Gíslasyni presti Einarssyni, en þeir feðgar voru prestar í Selár- dal samtals um 80 ár. Séra Gísli var sonur Einars Jónssonar rektors í Skálholti, en sú ætt er austan úr Öræfum. í föðurætt er hann afkom- andi Eggerts Ólafssonar í Hergils- ey-. I Elíasi var auðvelt að koma auga á eiginleika forfeðranna. Hann var hlýr, stöðuglyndur og orðvar. Hand- tak hans var þétt og milt, víðsýnn var hann og hjálpsamur. Tónlist var honum í blóð borin. Á harmoniku spilaði hann vel. Hann hafði yndi af íþróttum, skíða- og skautaferð- um, en til þessara tómstunda hafði hann meiri tíma á sínum yngri árum. Náttúruunnandi var hann mikill, enda alinn upp í stórbrotinni náttúru, mikilfenglegri sem fagurri, sem mótar skapgerð og dirfsku ekki síður en innræti foreldranna. Hvestuströndin breiðir úr sér með gulum suðrænum sandi, gott var því að gleyma sér þar stund og stund við leik og drauma um hvað handan hafsins býr. Foreldrarnir lögðu mikla áherslu á sálma, ljóð, vísur og sögur, sem börnin kunnu mikið af einnig snyrtimennsku og verklagni. Þessa eiginleika sé ég í öllum systkinunum og hljóta þeir því að vera sterkir. Eftir skyldunám í sveitinni lauk Elías prófi frá héraðsskólanum á Reykjanesi við ísafjarðardjúp, en þar kynntist hann eftirlifandi eigin- konu sinni, Jónu Kristínu Jónas- dóttur frá Hnífsdal. Þau bjuggu meðal annarra staða á Skipasundi 66, þar sem faðir Elíasar, Dagbjart- ur reisti myndarlegt hús, eftir að hann seldi jörðina fyrir vestan. Fljótlega keyptu þau sér sína eigin íbúð á Háaleitisbraut 44 og síðan einbýlishús á Brúarflöt 7 í Garðabæ, þar sem verkvit og smekkvísi húsráðanda komu vel fram. Elías átti mörg handtökin í húsinu, t.d. var öll trévinna í íoftum frá honum komin, gert af hagleik og kunnáttusemi. Jóna saumaði t.d. mikið út og hafði unun af blóma- rækt. Elías smíðaði því gróðurhús og skjólvegg, svo gróðurinn dafnaði sem best. Elías kynntist mörgum störfum, fýrst er hann kom suður starfaði hann hjá hinum þekkta frumkvöðli Skúla Pálssyni í Laxalóni, en sem lífsstarf kaus hann sér starf bílstjór- ans. Elías var mikill heimilisfaðir og vildi börnum sínum allt hið besta. Til þeirra hefur hann nú flutt arf sinn, kærleika og visku móður sinn- ar og gleðina, sem fylgir því að gefa og frá föður sínum styrk, stöð- uglyndi og vinnusemi. Megi guð styrkja þau öll, eiginkonu, börn, tengdabörn, barnaböm, systkini, ættingja og vini. Far þú í friði. Friður guðs þig blessi. Hafðu þökkk fyrir allt. Jóhanna S. Pétursdóttir. mitMwwnaNm INDESÍT I ■ « 4^índesíl- Kæliskápur GR 1400 HæS: 85 cm Breidd: 51 cm Dýpt: 56 cm kælir: 140 I. 0,9 kwt/24 tímum. Ver& kr. 29.350,- #índesíK Kæliskápur GR 2600 HæS: 152 cm Breidd: 55 cm Dýpt: 60 cm kælir: 187 l./frystir: 67 I. 1.25 kwst/24 tímum. Verð kr.49.664,- 4^índesrt ► Uppþvottavél D 3020 7 kerfa vél, tekur 12 manna matarstell 6 falt vatnsöryggiskerfi mjög hljóSlát og fullkomin. HæS: 85 cm Breidd: 60 cm Dýpt: 60 cm Verb kr.47.263,- ^►índesíU Þvottavél IW 860 Vindur 800 sn.14 þvottakerfi. Stialaus hitastillir. Orkunotkun 2,3 kwst. HæS 85 cm Breidd 60 cm Dýpt 60 cm Verfc kr. 52.527,- ^indesít a #índesíl- Þurrkari SD 510 vtv bél I Tromlan snýst í báSar áttir, vfpríjyb K©® i \ tvö hitastig. Kaldur blástur stöÖ*$a° ! Klukkurofi.Barki fylgir Ver& kr. 37.517,- B_R Æ Ð U R N I R =)] ORMSSQN HF Lágmúla 8, Sími 38820 a> E | w ■3 3 O o -Q E D ▲ #índesít Eldavél KN 6043 Undir og yfirhiti.Grill, geymsluskúffa. HæS: 85 cm Breidd: 60 cm Dýpt: 60 cm Ver& kr.54.251,- Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundartiröi. Ásubúö.Búöardal Vestfirölr: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvlk.Straumur.lsafiröi. Noröurland: Kf. Steingrlmsfjaröar.Hólmavik. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Daivlk. Kf. Þingeyinga, Húsavik. UrÖ, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnatiröi. Stál, SeyÖisfirÖi. Verslunin Vik, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn Suöurland: Kf» Rangœinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubœjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg. Grindavik. FIT, Hafnarfiröi SINDE!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.