Morgunblaðið - 03.03.1995, Side 34

Morgunblaðið - 03.03.1995, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LA UFEY HELGADÓTTIR * + Laufey Helga- dóttir var fædd í Vík í Mýrdal hinn 15. júní 1914 og ólst þar upp. Hún lést í Hafnarbúðum 22. febrúar sl. For- eldrar hennar voru Agústa Guðmunds- dóttir og Helgi Dagbjartsson. Systkini Laufeyjar eru: Frímann, Jó- hannes, Axel, Dagmar tvíbura- systir Laufeyjar, Anna Guðbjörg og Kristinn. Laufey giftist eftir- lifandi eiginmanni sínum Her- manni Guðjónssyni stjórnar- ráðsfulltrúa frá Asi í Asa- hreppi. Böm þeirra eru: Gú- staf Helgi, kvæntur Ólöfu S. Baldursdóttur og eiga þau þrjú böm; og Guðríður Sigrún, gift Þránni Ingólfssyni og eiga þau tvo syni. Útför Laufeyjar fer fram frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. í DAG er jarðsungin frá Neskirkju Laufey Helgadóttir tengdamóðir mín óg vinkona eftir erfið veikindi til margra ára. Hún ólst upp í Vík í Mýrdal og þeim stað unni hún ætíð mjög. Þar upplifði hún ljúfa æsku í faðmi ástríkra foreldra ásamt sex systkinum og eru nú tveir bræður á lífi, Jóhannes og Kristinn. Laufey var smávaxin og fínleg með tindrandi dökk augu og brúnt hár, vinamörg og gjaf- mild af kærleika, þolinmæði og skilningi. Fyrsta minning mín um hana var á þá leið að ég kom í heimsókn með syni hennar. Þá voru þau hjón að koma af balli. Dagga tvíbura- systir hennar og Haukur maður Döggu komu með þeim heim. Voru þær systur í dansstuði og héldu áfram að dansa eftir að heim var komið en þá man ég að Hermann tengdafaðir minn varð hálf feiminn að láta ókunna stúlkuna sjá til þeirra. Þá voru þær systur 59 ára en litu út fyrir að vera miklu yngri. Mér fannst táknrænt fyrir tengda- móður mína að á þessu kvöldi var hún í hvítum kjól með stórum fal- legum rósum sem mér fannst seinna, eftir að ég kynntist henni nán- ar, aðalsmerki fyrir þessa miklu blóma- og náttúrukonu. Áhuga- mál Laufeyjar voru margvísleg, á sumrin var garðurinn með þeim fallegri í Vestur- bænum og fólk stopp- aði til að sjá dalíumar sem voru hennar stolt. Veiðiskapur og ferða- lög komu þar næst. Á vetrum hlustaði hún mikið á Rás 1 og upp- fræddi okkur oft um ganga mála innanlands og utan. Eins reyndi hún ávallt að missa ekki af þáttum Jónasar, Á síðkvöldi. Klassísk hljómlist, ættfræði og almenn mannrækt var henni mjög að skaj)i. Eg” gleymi ekki gleði hennar þegar hún vissi að bamabam var á leiðinni þá 61 árs. Laufey kunni svo sannarlega til bamauppeldis. Tvö elstu börn okkar Baldur Freyr og nafna hennar Laufey Helga fengu að njóta hennar mest því þá var hún frískust og minnast þau allra ferðanna í hlýju „holuna“ hjá ömmu í stóra hjónarúminu. Eins allra skáldsagnanna sem amma þeirra bjó til jafnóðum og hún sagði þeim og eins minninga frá æsku sinni sem hún var óspör að segja þeim frá því hún hafði einstaklega skapandi og skemmtilega frá- sagnarhæfileika. Fyrir dæpum fimmtán ámm lést Dagga tvíbura- systir hennar og dó þá eitthvað innra með Laufeyju, líkt því að hún hefði misst hluta af sjálfri sér því tengsl eineggja tvíbura geta verið ofvaxin venjulegu fólki að skilja. Síðustu tíu árin voru Laufeyju á margan hátt mjög erfið. Margar ferðir á sjúkrahús, hún þjáðist af lungnaþembu, astma og endur- teknum lungnabólgum. Alltaf reis mín upp aftur enn ákveðnari í því að á næstu mánuðum myndi hún ná sér. 1990 dettur hún, lærbrotn- ,ar og handleggsbrotnar. Eftir það áfall kom hún aðeins heim sem gestur. Hafnarbúðir í Tryggvagötu voru hennar heimili síðustu fimm árin og vil ég fyrir hönd fjölskyldu Laufeyjar færa öllum sem hjúkr- uðu henni þar okkar innilegustu t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir og afi, RAGNAR STEINBERGSSON hæstaréttarlögmaður, Espilundi 2, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. mars kl. 13.30. Sigurlaug Ingólfsdóttir, Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir, Kristinn Tómasson, Soffía Guðrún Ragnarsdóttir, Steindór Haukur Sigurðsson, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Axel Bragi Bragason, Ragna Sigurlaug Ragnarsdóttir, Guðfinnur Þór Pálsson og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, áður Hólagötu 29, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju mánudaginn 6.. mars kl. 13.30. Gréta Guðjónsdóttir, Haukur Þorkelsson, Friðrik Guðjónsson, Sigrún Birgit Sigurðardóttir, Guðjón Siaurbjörnsson, Björg Bjarnadóttir, Guðbjörg Osk Friðriksdóttir, Domenico Alex Gala, Árelius Gala, Marfa Birgit Gala. MINIMINGAR þakkir og megi guð blessa störf þeirra. í þessi fimm ár leið ekki sá dagur að hún fengi ekki heim- sókn og komust stundum færri að en vildu inn í litla herbergið henn- ar þar því hún átti vini á öllum aldri, ekki síst ungt fólk sem sótti til hennar kraft og ráðleggingar. Laufey hafði sinn síma í Hafnar- búðum sem stytti henni stundir og var það venja hennar meðan hún hafði styrk til að hringja að kvöldi á heimili barna sinna og biðja öllum góðrar nætur. Blessuð veri minning þín, elsku- lega tengdamóðir. Ólöf S. Baldursdóttir. Eins langt og eg man eftir mér, hefur Laufey Helgadóttir verið tengd fjölskyldu minni á einhvern hátt. Ef hún bjó ekki í sama húsi og við, þá var hún aldrei langt undan og sambandið slitnaði aldrei alveg. Við erum skyld í gegn um móðurættir okkar, en ættfræðilega get eg ekki rakið það, er enginn ættfræðingur í mér. En upphaf kynna okkar Laufeyj- ar er að rekja til fæðingar minnar 1927 í Vestmannaeyjum, en þá fluttist hún til okkar um tíma frá Vík í Mýrdal, en þar er hún fædd og uppalin. Fékk hún það hlutverk að gæta mín í æsku og hjálpa mér við mín fyrstu spor í þessum heimi. Ekki veit eg hver laun hennar voru fyrir þetta ábyrgðarmikla starf annað en það, að fá tilsögn móður minnar í hannyrðum og öðrum dyggðum er prýða mætti unga, efnilega stúlku á þeim árum. Varð okkur vel til vina þá þegar á þessum fyrstu árum mínum og átti sú vinátta eftir að endast út líf hennar þó nokkuð stopul hafi kynnin verið síðustu árin. Hún nefndi mig sérstöku gælu- nafni, sem enginn annar notaði. Fram eftir öllum aldrei átti hún til með að nota það upp úr þurru, t.d. er hún svaraði mér í síma: „Nei, er þetta Bússi,“ sagði hún þá, og hló við. „Bússa“ nafnið átti hún ein, og svo eg. Er fjölskylda mín flosnaði upp í Vestmannaeyjum 1934 og fluttist upp á meginlandið var eins og Laufey fylgdi í kjölfarið, allavega var hún aldrei langt undan, hvort sem við bjuggum í Hafnarfírði eða Reykjavík. Unglingsstúlkan Laufey hafði nú þroskast og vaxið í unga, fal- lega konu og samband hennar við fjölskylduna orðið að einlægri vin- áttu. Á þeim erfiðu tímum er fóru í hönd eftir að við fluttum til Reykja- víkur átti hún eftir að verða móður minni mikil hjálparhella, en hún átti við mikil veikindi að stríða um langan tíma. Hún bjó af og til með okkur, en ekki alltaf - því títt var skipt um húsnæði á þeim erfiðu tímum atvinnuleysis og báginda. En í ömurleika hversdagslífsins bar Laufey birtu og léttleika inn á heimili okkar. Ófáar voru stundirnar er hún sat með litla drengnum, Baldri, og byggði með honum hina ótrúleg- ustu loftkastala í söguformi sem hleyptu andanum á flug og gerði hversdagsleikann að ævintýra- landi. Þannig man eg hana best. En árin liðu og miklar breyting- ar urðu á högum okkar og henn- ar, en aldrei slitnuðu vináttubönd- in, þó af og til tognaði aðeins á þeim. Laufey giftist Hermanni Guð- jónssyni og eignaðist með honum sína eigin fjölskyldu. Hafði hún því meir og meir sínum eigin hnöppum að hneppa. En er móðir mín dó, var Laufey fljót að koma til aðstoðar og það var hún, er gekk frá móður minni í kistuna á þann hátt, er þeim hafði komið saman um löngu áður. Þá skildu góðar vinkonur. Síðan eru liðin mörg ár og mik- ið vatn runnið til sjávar. Eg hefi notið þeirrar ánægju að sjá börn Laufeyjar og Hermanns vaxa úr grasi og verða fullorðin. En ekki á sama hátt og Laufey fylgdist með mér. Hún gaf svo miklu meira en eg hefi getað gef- ið. Enda kannske ekki þörf á. Þessar fáar línur eiga að túlka þakklæti mitt og systur minnar Ethelar, fyrir kynni okkar af Lauf- eyju Helgadóttur og hennar þraut- seigu vináttu gegnum árin. Vottum við Hermanni, svo og börnum hennar og barnabörnum, dýpstu samúð. Kveðjum við svo Laufeyju, frænku og góða vinkonu. Blessuð sé minning hennar. Baldur Bjarnasen. Elskuleg föðursystir mín, Lauf- ey Helgadóttir, er látin eftir lang- varandi veikindi. Hún tók veikind- um sínum með æðruleysi, kvartaði ekki og talaði gjarnan um að það væri nú ekkert að sér. Mér er efst I huga á þessari stundu þakklæti fyrir að fá enn sem fyrr að læra af hennar orðum. Hugurinn reikar austur að Ási á erfiðum dögum í lífi mínu. Hún frænka mín kenndi mér svo margt sem hjálpaði svo undurvel. Á kvöldstundunum í litla herberginu undir súð kenndi hún mér fallegar bænir til styrktar og setti upp svo undurfagrar myndir í hugann sem sefuðu barnssálina. Hún talaði um blómagarðinn hjá Guði þar sem faðir minn hafði verið svo skyndi- lega kallaður til hjálpar. Hún sagði bjartar sögur frá bernsku sinni og systkinunum austur í Vík. Hún svaraði erfíðum spurningum sem leituðu á barnshugann, dró fram maltbijóstsykur og gaf okkur börnunum, allt var svo hlýtt og gott. Enn sem fyrr gaf hún af sér, hún hafði líka átt um sárt að binda að hafa misst bróður sinn en það var ekki talað um það. Eg þakka frænku minni bænirn- ar sem hún kenndi mér og hafa verið mitt leiðarljós allt frá þessum tíma. Sagan um blómagarð Drott- ins var svo góð. Megi elskuleg frænka mín hjálpa þar til og eiga góða endurfundi með sínu fólki. Eg þakka þær stundir sem hún og fjölskylda hennar opnuðu heim- ili sitt á Fornhaganum. Jólakaka og mjólkurglas í eldhúsinu, spjall um lífið og tilveruna og svo var fengið að gista. Innilegusta samúðarkveðju sendi ég og fyölskylda mín Her- manni, Gústafi, Guðríði og fjöl- skyldum þeirra. Eg kveð ástkæru frænku mína, Laufeyju Helgadótt- ur, með söknuði og bæn sem hún kenndi mér: Kristur minn ég kalla á þig komdu að rúmi mínu gerðu svo vel og geymdu mig Guð í faðmi þínum. (höfundur ókunnur) Erla B. Axelsdóttir. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er guðs að vilja, og gott er allt, sem guði’ er frá. (V. Briem) Móðursystir okkar Laufey Helgadóttir er látin. Fyrir okkur var Laufey mikið meira en venjuleg móðursystir. Bæði var að hún var eineggja tvíburi mömmu, og svo voru þær nær alveg eins í útliti. Samband þeirra var mjög svo náið og kært. Fyrir utan mörg símtöl dag hvem, áttu þær líka sömu áhugamál hvort sem var blóma- rækt, þar sem garðarnir á Forn- haganum eða í Hamrahlíðinni báru fagurt vitni um, eða veiðimennsk- an, en þær voru ófáar veiðiferðirn- ar sem þær fóru í saman, oftast í Ási, auk annarra staða. Þegar móðir okkar háði sitt dauðastríð fyrir 15 árum, var Lauf- ey henni ómetanleg stoð og stytta, hún kom til hennar nær hvern ein- asta dag og hjúkraði af einstakri alúð. Eftir fráfall mömmu var Laufey ekki söm, það var eins og einhver lífsneisti hyrfi. Laufey reyndist okkur alltaf eins og önnur móðir, ávallt var hægt að leita til hennar og fyrirfinna hlýju og kærleika. Hennar létta lund og mikill lífs- vilji kom best í ljós í veikindum hennar síðustu árin. Sálarþrekið var með ólíkindum. Það eru eflaust miklir fagnaðar- fundir þegar þær systur hittast aftur hinum megin eftir langan aðskilnað. Við vottum hinum nánustu inni- lega samúð okkar. Blessuð sé minning hennar. Helgi og Guðjón Ingi. t Eiginmaður minn og faðir okkar, SÆMUNDUR JÓNSSON garðyrkjubóndi, Friðarstöðum, Hveragerði, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 4. mars kl. 14.00. Álfheiður Jóhannsdóttir, Jónina Sæmundsdóttir, Diðrik Sæmundsson. t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför GESTS HJÖRLEIFSSONAR fyrrverandi söngstjóra á Dalvík. Sérstakar þakkir til Karlakórs Dalvíkur og starfsfólksins í Dalbæ. Guð blessi ykkur öll. Guðrún A. Kristinsdóttir og börn. Lokað Afreiðsla Nýju sendibílastöðvarinnar hf. verður lokuð í dag, föstudaginn 3. mars, frá kl. 13.00-15.00 vegna jarðarfarar ELÍASAR DAGBJARTSSONAR. Nýja sendibílastöðin hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.