Morgunblaðið - 03.03.1995, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 03.03.1995, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 41 Þraut- seigja Frá Stanislas Bohic: SEM VIRKUR meðlimur í Amn- esty International les ég frétta- greinar um ástand heimsins og framtíðarhorfur. Því meira sem ég les því meira efast ég og skil sífellt minna og minna. Hvernig getur maður samþykkt dauðarefsingu, sem er andstyggi- leg fjarstæða, villimennska, nið- urlægjandi og hreinn óþarfi? Hvernig getur mað- ur togað í gikkinn eða ýtt á hnapp? Hvernig geta menn leyft sér það? Og kynþáttafordómarnir eru gjörsneiddir allri röksemd... svartur, gulur eða hvítur, hver er munurinn? Kaþólskur, gyðingur, shíti, getur ekki hver og einn feng- ið að hafa sína trú í friði? Þurfum við alltaf að vera með samanburð, sýna öðrum yfirgang, þykjast meiri. Upp á hverju eigum við að finna til að réttlæta það að telja okkur æðri? Það er erfitt að skilja pyntingar, sadisma í nafni ríkisins, sem sum stjórnvöld löggilda opinberlega. Maður hefur á tilfinningunni að vera kominn 500 ár aftur í tím- ann. Sums staðar nær maður botni í miðaldamyrkri. Það verður sífellt erfiðara að skilja .. . Af hveiju er allur þessi fjöldi í útlegð fjarri heimkynnum sínum? Af hveiju þessir einstakl- ingar sem hverfa sporlaust sem síðan spyrst ekkert til? Af hveiju þessar blóðsugur sem braska í löndum þar sem hungursneyð rík- ir? Af hveiju þessi yfirgefnu börn sem eiga sér hvergi húsaskjól en reika um tröllvaxnar borgir þar sem menn sitja um þau til að not- færa sér umkomuleysi þeirra óáreittir á svívirðilegasta hátt? Víða er ekkert nema volæði, himin- háar öldur pyntinga, lík og stríð. • Stundum sameinast þjóðin í átaki: „Það verður að gera eitthvað í málinu . .. en það er sjálfsagt þegar of seint.“ Þótt efinn grípi mann held ég samt sem áður í vonina um leið og ég tek undir orð svissneska rit- höfundarins Charles Ferdinands Ramuz: „Ég finn að mér fer fram í því að botna hvorki upp né nið- ur.“ Þetta veitir mér kjark til þess að þijóskast við og taka þátt í starfi Amnesty International í bar- áttunni fyrir mannúðarmálum. STANISLAS BOCHIC, garðarkitekt. Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu -kjarni málsins! BRÉF TIL BLAÐSINS Verð á póst- kortum Frá Birgi Þórhallssyni: HINN 23. f.m. er því haldið fram í Viðskiptablaðinu að verð á póstkort- um hafi hækkað vegna samstarfs Sólarfilmu við Pennann. Það sam- starf hefir bókstaflega engin áhrif á póstkortaverð Sólarfiimu enda eru póstkort óverulegur þáttur í sam- starfi Sólarfilmu og Pennans. Árið 1989 var smásöluverð póstkorta hér á landi 30 kr. = 0,51 ecu. Nú er algengasta smásöluverð póstkorta 45 kr. eða 0,54 ecu. Ef þetta verð er skoðað t.d. í þýskum mörkum kemur í ljós að árið 1989 var það 1,06 en hefir nú lækkað í 1,00 mark. Eins og alkunna er hefir gengi dollar- ans verið óstöðugt á því tímabili, sem hér er til umfjöllunar og því erfitt að bera breytilegt doilaraverð póst- korta saman svo að fullt vit sé í. Samt má nefna að árið 1989 var útsöluverð póstkorta hér á landi í dollurum reiknað 58 sent en t.d. 1991 var það 72 sent, en nú er þetta verð 68 sent. Þess er ekki getið í framangreindum skrifum Viðskipta- blaðsins, hvenær póstkort hafi kostað 33 sent, en það er að minnsta kosti löngu áður en samstarf Pennans og Sólarfilmu hófst á sviði kortadreif- ingarinnar. Þeir sem til þekkja vita að það er gríðarlegt átak að gefa út 50-60 ný póstkort á hveiju ári, en það hef- ir Sólarfilma gert árum saman og reyndar nokkru meira en það í ár. Sé það ennfremur haft í huga að við leggjum áherslu á að gefa út póst- kort með myndum hvaðanæva af landinu verður það vafalaust skiljan- legt að birgðahaid og útgáfa póst- korta með þeim markmiðum sem Sólarfilma hefir sett sér er ákaflega kostnaðarsamur þáttur í starfsemi fyrirtækisins. Verð póstkortanna verður að endurspegla ailan kostnað- inn við útgáfuna og raunar meira en það, enda fylgir kortum mikil þjónusta þ.m.t. ókeypis sölugrindur. Póstkort eins og allar aðrar vörur eru misjöfn að gæðum. Ef verið er að bera póstkortaverð hér á landi saman við slíkt verð erlendis er að ýmsu að hyggja. Launakostnaður er t.d. allt annar hér á landi en á Spáni og í Portúgal. Svo er og um marga aðra þætti rekstrarkostnaðar, auk þess sem virðisaukaskatturinn er miklu hærri hér en gerist og gengur í nærliggjandi löndum. Loks er mikil- vægt að hafa hugfast, að prentup- plög póstkorta eru allt önnur og margfalt stærri víðast hvar en á dvergmarkaði okkar. Samstarfið við Pennann Þegar Penninn hafði gert samn- inga við nokkur fyrirtæki um dreif-' ingu ritfanga og allra korta leitaði fyrirtækið til Sólarfilmu viðvíkjandi samstarfi um kortaþáttinn. Eitt af þeim atriðum sem bæði Penninn og samstarfsaðilar hans sóttust eftir var að fækka birgjum eins mikið og kost- ur væri. Sólarfilma hefir árum saman látið teikna þjóðleg íslensk jólakort og prenta hér á landi þ. á m. íslenska jólasveinana og auk þess látum við á hveiju ári prenta fjölda jólakorta sem byggjast bæði á íslenskum vetr- armyndum og aðkeyptum höfundar- réttindum erlendis frá. Svipað má segja um tækifæris- og fermingar- kort. Við höfum fyrir mörgum árum komið okkur upp umfangsmiklu úr- vali slíkra korta, sem er í stöðugri endurnýjun og endurskoðun. Hér eru auðvitað rnargir ljómandi kortaútgefendur auk Sólarfilmu. En enginn einn getur boðið sambærilega þjónustu í þessum greinum hvað úr- valið snertir. Það er megur málsins. Offramboð á vörum og þjónustu Þegar efnahagslífið sem heild hægir ferð sína eins og hefir verið að gerast hér á landi undanfarin ár verður offrambpð á ýmsum vörum og þjónustum. í sumum þáttum at- vinnulífsins leiðir þessi þróun beinlín- is til atvinnuleysis. Eftirspurn miðað við framboð er ónóg. Þessar mark- aðsaðstæður valda mikilli samkeppni á næstum öllum sviðum efnahagslífs- ins. Fyrirtæki og stofnanir hafa und- anfarin ár leitað leiða til hagræðing- ar og satt að segja hafa ýmis fyrir- tæki önnur en Penninn stofnað til viðskipta við Sólarfilmu með svipuð viðhorf að leiðarljósi, þ.e.a.s. menn leitast við að fækka birgjum sé þess kostur, enda fylgir mörgum birgjum sömu varanna yfirleitt nokkuð óhag- ræði, fyrirhöfn og kostnaður. Hvað Sólarfílmu snertir tekur þessi þróun ekki eingöngu til korta. Söinu sögu væri hægt að segja um minja- gripi fyrir erlenda ferðamenn. Mikið úrval Sólarfilmu af minjagripum og póstkortum hefir líka leitt til þess að nokkur stór fyrirtæki hafa lagt mesta áherslu á þessar vörur frá Sólarfilmu, og dæmi eru um að menn selji ekk- ert annað en Sólarfilmu póstkort og minjagripi án þess að sú þróun sé með nokkru móti tengd samstarfí fyrirtækisins við Pennann. BIRGIR ÞÓRHALLSSON, framkvæmdastjóri Sólarfilmu. VIKAN 3 T I L T O . M A R S Norden i ísland Sirkusinn guðdómlegi_________________________________ I Borgarleikhúsinu 9. og 10. mars kl. 20:00 verður ópera hins þekkta danska tónskálds Per Ndrgárd frumflutt á íslandi í nýrri uppfærslu Norsku óperunnar í leikstjórn Per Fosser. Óperan segirfrá hinu undarlega og sorglega lífshlaupi Adolfs Wölfli, sem eftir ömurlega barnæsku var greindur sem geðklofi og lagður inn á geðveikraspítala þar sem hann dvaldisttil dauðadags. Sirkusinn guðdómlegi er í tveimur þáttum og lýsir með stórkostlegri gamansemi og grípandi alvöru ytri og innri heimi Wölfli. 'X „Þótt hundrctð þursar... “___________________________ Þjóðleikhús Sama sýnir í íþróttaskemmunni á Akureyri, 4. mars kl. 20:00, þessa einstæðu sýningu, sem samin er af leikurum Beaivvás Sámi Teáhter í samvinnu við leikstjórann Knut Walle. „Þótt hundrað þursar..." verður best lýst sem samtímaþjóðkvæði og hefur sýningin vakið mikla athygli hvarvetna, en hún var meðal annars flutt á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Lillehammer í Noregi. JCvartettJens Winther og -Tómcisar f{. Jens Winther trompetleikari og Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari munu ásamt Eyþóri Gunnarssyni, píanóleikara og Sören Christiansen, trommuleikara halda tónleika á Hótel fsáTirði í kvöld og á laugardagskvöld í Norræna húsinu í Reykjavík. Á efnisskrá kvartettsins er tónlist eftir þá Jens Winther og Tómas R. auk þekktra djasslaga eftir aðra höfunda. Ijstdans frá íslandi, Danmörku og Svíþjóð I Þjóðleikhúsinu 7. og 8. mars kl. 20:00 verðurfyrri listdanssýning Sólstafa. Á efnisskrá eru; tvö verk frá Granhpj Danseteater í Danmörku, HHH og Sallinen, verk Nönnu Ólafsdóttur Evrridís í flutningi íslenska dansflokksins, ásamt nýju verki eftir Svíann Per Jonsson sem tileinkað er Láru Stefánsdóttur. í)ökkufiðrildin ____________________________________ 4. mars kl. 20:00 verður leikritið Dökku fiðrildin sem samið er við sögu Leenu Landers frumflutt í Borgarleikhúsinu. Saga Leenu Landers „De mörka fjárilarnas hem" sem kom út árið 1992 hlaut mikið hrós og var meðal annars tilnefnd til Finlandia- og bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 1993. JJóðatónleikarfrá.jílandseyjum Björn Blomqvist bassasöngvari og Marcus Boman píanóleikari halda þrenna Ijóðatónleika sem verða í Safnaðarheimili Glerárkirkju 6, mars kl. 20:30, í Norræna húsinu 7. mars kl. 20:30 og í sal Frímúrara á (safirði 9. mars kl. 20:30. fiörn og unglingar__________________________• Karlinn í tunnunni - Eldfjörug trúðasýning, full af gleði og gamni. Möguieikhúsinu við Hlemm, föstudag og laugardag. Eins og tungl í fyllingu - Nýstárlegur látbragðsleikur um þróunarsögu mannsins. fsafirði, 3. mars, Akureyri, 6.-8. mars. t ÍMkmenntir___________________________________________ Torgeir Schjerven, rithöfundur og listmálari, Inger E. Hansen, rithöfundur og Óystein Rottem, gagnrýnandi verða með umfjöllun um norskar bókmenntir í Norræna húsinu 4. mars kl. 16:00. Jliriiiestrar og málþing____________________________ Nýlistasafnið 5. mars kl. 16:00. Halldór B. Runólfsson, listfræðingur fjallar um sýninguna Sólgin sem nú stendur yfir í Nýlistasafninu í erindi sínu „Jaðarinn og miðjan". Tónlistarskólinn í Reykjavik, Stekkur, Laugarvegi 178, 10. mars kl. 17:00 Per Nprgárd tónskáld fjallar um óperu sína Sirkusinn guðdómlega. x”'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.