Morgunblaðið - 03.03.1995, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
★★★ A.l Mbl
★★★ Þ.Ó. Dagsljós
★★★ Ó.M. TÍMINN
Leikstjóri
Friðrik Þór Friðriksson
Aðalhiutverk fVlddCUUMil
Lili Taylor Fisher Stevens Císli Halldi
Rúrik Haraldsson Flosi Óiafsson
Á KÖLDUM KLAKA
Hann ætlaði í sólina á Hawaii, en hafnaði í
ísköldum faðmi drauga og furðufugla.
Gamansöm ferðasaga með ívafi spennu og
dularfullra atburða. Nýjasta kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar um ævintýri
ungs Japana á íslandi.
Stuttmynd Ingu Lísu
Middleton,
„I draumi sérhvers
manns", eftir sögu
Þórarins Eldjárns sýnd
á undan „ Á KÖLDUM KLAKA".
Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson.
★★★ Ó.H.T. Rás 2.
ÍSLENSKUR BÍÓPAKKI
TVÆR MYNDIR - EINN MIÐI
Miðaverð 700 kr.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
200 kr. afsláttarmiði á
pizzum frá HRÓA HETTI
fylgir hverjum bíómiða á
myndina Á KÖLDUM KLAKA.
FRANKENSTEIN
TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
★ ★★ G.B. DV
„Kenneth Branagh og leikarar hans
fara á kostum í þessari nýju og
stórbrotnu útgáfu hinnar sígildu
sögu um doktor Frankenstein og
tilraunir hans til að taka að sér
hlutverk skaparans."
KENNETH BRANAGH
Sýnd kl. 4.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára.
AÐEINS ÞU
Svnd kl. 7.10
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi
kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiðará
myndir í STJÖRNUBÍÓI.
Verð kr. 39,90 min.
Tónleikar
Innersphere á leið
til landsins
MAÐURINN á bak við Innersphere; David Hedger.
margar tónlistarstefn-
ur. Mín hljómsveit leik-
ur harða tecno-tónlist.
Allar hafa danssveit-
irnar ákveðna leyni-
formúlu sem þær
styðjast við þegar þær
semja tónlist. Við höf-
um okkar lag á því að
hlaða hljómunum
hverjum ofan á aðra
og samfara því er mik-
il tæknivinna, en það
væri of lahgt mál og
flókið að fara út í það
hér. Enda er þetta
leyniformúla.“
Undir áhrifum frá
Pink Floyd
niimiLiiiíiini
ii i ii i »a
Breska danssveitin Inn-
ersphere heldur tón-
leika hér á landi um
helgina. í samtali við
Pétur Blöndal, segir
leiðtoffl sveitarinnar,
Dave Hedger, hana
leika harða techno-tón-
list og leggja mikið upp
úr áhrifshljóðum og
mjög kraftmiklum
trommuleik.
DANSHUÓMSVEITIN Inn-
ersphere kemur hingað til
lands um næstu helgi og
heldur þrenna tónleika. Inner-
sphere er afar vinsæl í Bretlandi
og í lok síðasta árs gaf sveitin út
sína fyrstu stóru plötu „Outer
Works“ sem fékk góðar viðtökur
hjá gagnrýnendum.
Hljómsveitina skipa David Hedg-
er, gítarleikarinn Les Bell og tölvu-
vélamaðurinn Lol Hammond.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hringdi út og náði tali af David
Hedger, lagahöfundi sveitarinnar,
en segja má að hljómsveitin sé
búin til í kringum hann.
Danstónlist kemur
þér á hreyfingu
Hvers vegna tókstu þá ákvörðun
að koma til íslands?
„Kiddi fí Hljómalind] hafði sam-
band við mig. Ég var nýbúinn að
senda frá mér plötu og hann sagði
mér að hún fengi góðar viðtökur
á Islandi. Síðan bauð hann mér
að koma þangað og spila. Ég hugs-
aði mig ekki tvisvar um, enda hef
ég aldrei áður komið til Islands.“
Geturðu gefið mér stutt svar við
spurningunni: Hvað er danstónlist?
„Danstónlist er það sem fær þig
til að hreyfa þig,“ segir Hedger
og hlær. „Þú getur varla fengið
skýrara svar en það.“
Hvað gerir þig frábrugðinn öðrum
listamönnum sem fást við danstón-
list?
„Ég held að ég sé ekki frábrugðinn
þeim persónulega. Hinsvegar eru
hljómarnir sem ég bý til öðruvísi.
Danstónlist er mjög stórt hugtak,
sérstaklega í Englandi, og rúmar
Þekkirðu til einhverra íslenskra
tónlistarmanna, fyrir utan Björk?
„Ekki svo ég viti til. Ég fylgist
þó mjög vel með tónlist og ekki
aðeins danstónlist, heldur öllum
tónlistarstefnum. “
Já, það kom mér á óvart þegar
ég las í nýlegu viðtali við þig að
þú værir undir áhrifum frá Pink
Floyd. Hvernig má það vera?
„Ég ólst upp í hálfgerðum flýti í
vesturhluta Lundúna. Við vorum
margir saman, fjórtán eða fimmt-
án ára unglingar og hlustuðum
mikið á tónlist. Þá var eina tónlist
sem spilakassar á börum buðu upp
á með Led Zeppelin, Cat Stevens
og Doors.
Það hafði því mikil á hrif á mig
þegar ég heyrði fyrst „The Wall“
með Pink Floyd. Það veitti mér
innsýn í allt annan heim. Það sem
er svo mikilvægt við tónlist Pink
Floyd er að þeir studdust við nýj-
ustu tækni í tónsmíðum sínum.
Það má segja að þeir hafi verið
brautryðjendur í þeim efnum. Það
hvernig gítarleikur Gilmores
hljómar er afrakstur mikillar vinnu
í hljóðveri og margir hljómar koma
fram í gítarleiknum sem ómögu-
legt er að ná annars.
Mér þykir öll tæknivinna mjög
skemmtileg. Ég eyði stundum
fleiri klukkutímum í að ná einum
hljómi. Áhrifshljóð eru stór hluti
af því sem ég geri. Ég legg mikið
upp úr áhrifshljóðum og mjög
kraftmiklum trommuleik.“
... þannig að tónlist Pink Floyd
hefur hjálpað þér í tónsmíðum þín-
um.
„Alveg tvímælalaust. Reyndar
finn ég innblástur hvar sem ég
kem. Eg fæ til dæmis mikinn inn-
biástur af því að horfa á tónlistar-
myndbönd og kvikmyndir."
Frekari ævintýri ijkenningunni
um eggjakökuna
Það kom mér á óvart að þú ert
ekki einungis undir áhrifum frá
Pink Floyd heldur líka frá Quientin
Tarantino. Þú samdir lagið „Let’s
go to Work“ undir áhrifum frá
myndinni Reservoir Dogs, ekki
satt?
„Jú, ég notast mikið við hljóð
sem finna má í kvikmyndum og
hef gaman af að vinna þannig."
Hvar fékkst þú hugmyndina að
titlinum Frekari ævintýri íkenning-
unni um eggjakökuna eða „Further
Adventures In The Theory of Ome-
lette"?
„Þetta var einn af þessum létt-
geggjuðu dögum sem ég gekk í
gegnum. Eitthvað sem skaut upp
í huga mér. Það kemur fólki oftast
í opna skjöldu hvernig hugur minn
starfar.“
Kanntu að búa til eggjaköku?
„Já, það er einmitt málið. Hug-
takið að búa til eggjaköku. Það er
ekkert mál. Ekki frekar en að búa
til lag.“
Er auðvelt fyrirþig að semja lög?
„Ég myndi kannski ekki orða
það þannig. Það er auðvelt að
kveikja á græjunum. Það sem
skiptir síðan máli er það sem þú
hefur fram að færa hverju sinni.“
Lítur út eins og fótboltabulla
Það er örar breytingar í heimi
danstónlistar. Heldurðu að þú kom-
ir til með að festa þig í sessi?
„Alveg tvímælalaust. Ástæðan
er sú að ég hef sjálfstraust í því
sem ég tek mér fyrir hendur. Ég
þekki inn á hljóðverin og er tækni-
lega sinnaður. Ég þarf því ekki að
setjast í helgan stein þótt lögin
mín njóti ekki lengur vinsælda. Eg
get þá bara snúið mér að því að
vinna fyrir aðra listamenn og hjálp-
að þeim. Ég kem alltaf til með að
tengjast danstónlistinni á einn eða
annan hátt.“
/ nýlegu viðtali var haft eftir þér
orðrétt: „Ég er ekki geðþekk mann-
eskja, heldur kem ég til með að
skjóta þér skelk í bringu." Hvað
áttirðu við með þessu?
í fyrstu hlær Hedger og segir
svo: „Sjáðu til, ég er mjög hávax-
inn og beinastór og lít eiginlega
út eins og fótboltabulla. Sú sem tók
viðtalið við mig gerði athugasemd
við þetta útlit mitt og ég svaraði
henni út í hött. Hún studdist síðan
við það í viðtalinu. í raun og veru
er ég mjög viðkunnanlegur ná-
ungi.“
Ég skal koma því að í viðtalinu.
„Eg yrði þér mjög þakklátur,“
segir Hedger og hlær. Við svo búist
kveður hann og ekkert annað hægt
að gera en að hlakka til komu hans
hingað til lands um næstu helgi.
Þá mun hann leika með félögum
sínum í Innersphere á þremur tón-
leikum; í Tunglinu, á Villta tryllta
Villa og á sérstökum tónleikum
fyrir yngri kynslóðina í íþróttahús-
inu Strandgötu, en þeir tónleikar
eru á vegum Samfés, eða Samtaka
félagsmiðstöðva um allt land.
OLIVIA D’Abo lék áður í
myndinni Greedy.
Fellnr fyrir
höfundi
furðusagna
★ LEIKARARNIR Vincent
D’Onofrio og Olivia D’Abo
verða í aðalhlutverkum mynd-
arinnar „The Whole Wide
World“, en framleiðandi er Dan
Ireland. Myndin fjallar um
kennara sem verður ástfanginn
af höfundi furðusagna. Hún er
byggð á minningum Novalyne
Price Ellis um kynni sín og rit-
höfundarins Robert E. Howard,
en hann skrifaði meðal annars
um villimanninn Conan.
Lyle Lovett
beinbrotinn
► KÁNTRÝSÖNGVARINN
Lyle Lovett viðbeinsbrotnaði á
mótorhjóli í Mexíkó nýlega.
Lovett, sem er giftur leikkon-
unni Juliu Roberts, var í mótor-
hjólaferð með föður sínum og
vinum þegar slysið átti sér stað
og var að undirbúa sig fyrir að
koma fram á kapalsjónvarps-
stöðinni ESPN í þættinum „Mot-
or World“. Vegna slyssins gat
Lovett ekki verið viðstaddur
afhendingu Grammy-verðlaun-
anna í gær og hann hefur líka
frestað tíu daga tónleikaferða-
lagi um Kanada fram í apríllok.