Morgunblaðið - 03.03.1995, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 03.03.1995, Qupperneq 52
Handtekin í Leifsstöð vegna gruns um aðild að Skeljungsráninu Gæsluvarðhalds kraf- "ist yfir manni o g konu RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis- ins krafðist seint í gærkvöldi gæslu- varðhalds yfir 31 árs gömlum manni og konu á þrítugsaldri í tengslum við rannsókn á ráninu á 5,2 milljónum króna frá Olíufélag- inu Skeljungi sl. mánudag. Maður- inn var fyrst samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins, jafnframt grunaður um að hafa hringt sprengjuhótun til Flugleiða á Kefla- víkurflugvelli í gærmorgun, en við rannsókn lögreglunnar á Keflavík- Urflugvelli beindist grunur að öðr- um manni. Fólkið var handtekið á Keflavík- urflugvelli í gærmorgun og var það þá með hundruð þúsunda króna í reiðufé í fórum sínum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafði lögreglu áður borist vísbending um ferðir þeirra og hafði gert ráðstaf- anir til að þau yrðu handtekin á flugvellinum vegna gruns um aðild að ráninu. Engar játningar liggja fyrir í málinu, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Fólkið átti pantað far með flug- vél Flugleiða til Amsterdam sem átti að fara úr landi klukkan hálf- níu í gærmorgun og var handtekið í Leifsstöð um morguninn. Sprengjuhótun í Leifsstöð í þann mund sem flugvélin sem þau áttu far með var að fara til Amsterdam á áætlun var hringt í afgreiðslu Flugleiða og tilkynnt að sprengja væri um borð í vélinni. Tvisvar áður um morguninn hafði verið hringt til starfsmanna Flug- leiða og beðið um að brottför vélar- innar til Amsterdam yrði frestað þar til viðkomandi kæmi til Kefla- víkur. Eftir að sprengjuhótunin barst var hætt við brottför vélarinnar og farþegar kallaðir inn. Þeir voru síð- an látnir bera kennsl á farangur sinn og gaumgæfilega var leitað í vélinni. Flugleiðavélin fór á loft til Amst- erdam um hádegi um þremur klukkustundum á eftir áætlun. Rannsókn lögreglunnar á Kefla- víkurflugvelli á sprengjuhótununum hefur leitt til þess að ákveðinn maður liggur nú undir grun vegna þeirra. KONAN sem krafist var gæsluvarðhalds yfir vegna rannsóknar á ráninu á peningum Skeljungs var færð fyrir dómara í Héraðs- dómi Reykjavíkur á ellefta tímanum í gærkvöldi. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson SNJÓFLÓÐIÐ á Seyðisfirði stöðvaðist skammt ofan við geymslu- og verkstæðishús án þess að valda tjóni. Mikil snjóþyngsli víða á landinu Snjóflóð falla og þök sligast Flateyringar frá heimilum sínum langtímum saman SNJÓFLÓÐ féll á Seyðisfírði um hádegisbilið í gær án þess að valda skaða. Flóðið var um 60 metra breitt og um l-V/i metra þykkt. Það fór yfir Vestdalseyrarveg rétt innan við farfuglaheimilið Haföld- una og stöðvaðist skammt ofan við geymslu- og verkstæðishús sem þar er. Upptök snjóflóðsins virðast hafa verið nokkuð ofarlega í fjallinu Bjólfi. Veður fór versnandi á Seyðisfirði í gærmorgun og þegar snjóflóðið hafði fallið í hádeginu var hættu- ástandi lýst yfir að nýju og veginum út með firðinum að norðanverðu lokað. Hætt við löndun Þegar þetta gerðist var' löndun úr loðnuskipinu Bjarna Ólafssyni að heíjast hjá Vestdalsmjöli, en henni var hætt strax og fóru allir starfsmenn verksmiðjunnar með skipinu yfir fjörðinn. Bjami ÓlafsT son beið eftir löndun enn í gær- kvöldi og ætlaði almannavarna- nefnd þá að hittast og ákveða hvort óhætt yrði talið að leyfa fólki að fara út í verksmiðjuna. Annað snjóflóð var fyrr í vikunni á skíðasvæði Seyðfirðinga í Stafdal og missti maður af sér skíðin, en sakaði ekki sjálfan. Þök sligast á Siglufirði Hagnaður Eimskips 557 milljónir í fyrra Mælt með Magnúsi STJÓRN fulltrúa ráðs sjálfstæðisfé- laganna í Reykja- vík samþykkti samhljóða á fundi í gær að leggja til að Magnús L. Sveinsson, formað- ur Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, skipi 10. sætið á lista sjálfstæðisflokks- ins við alþingiskosningamar í næsta mánuði. Baldur Guðlaugsson, formaður stjórnar fulltrúaráðsins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að Magnús hefði fallizt á að þessi tillaga yrði gerð og myndi hún verða tekin til afgreiðslu á fulltrúaráðs- fundi á miðvikudagskvöldið. AFKOMA Eimskips á síðasta ári er sú besta frá árinu 1986 og nam hagnaðurinn alls um 557 milljónum króna, en árið 1993 nam hagnaður- inn 368 milljónum króna. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, segir að afkoman í fyrra teljist vel viðunandi, og íjármagnið verði not- að til að skapa fýrirtækinu styrkari stöðu áfram í framtíðinni til að geta veitt viðskiptavinum þess betri þjónustu. Rekstrartekjur Eimskips og dótt- urfélaga námu alls 9.558 milljónum króna á síðasta ári, sem er um 11% hækkun frá fyrra ári, og nemur Hagnaður 6% af veltu hagnaðurinn því tæplega 6% af veltu. Eigið fé félagsins var alls um 5.161 milljón krónur í árslok og eiginfjárhlutfall 48%. Um 3% aukning á heildarflutningum Jákvæð afkoma Eimskips er einkum rakin til þriggja þátta í rekstrinum. í fyrsta lagi varð um 3% aukning á heildarflutningum með skipum félagsins í fyrra. Um 15% aukning varð á flutningum með áætlunarskipum til og frá ís- landi, en þeir flutningar eru mikil- vægustu þættirnir í starfsemi fé- lagsins. í öðru lagi var góð nýting á flutningakerfi félagsins samfara auknu flutningsmagni, og í þriðja lagi hefur hagnaður af starfsemi félagsins erlendis aukist verulega. Nema tekjur af starfseminni utan íslands nú alls um 1.534,milljónum króna, og hafa þær aukist um 22% frá fyrra ári. ■ Hagnaðurinn nam/14 Gríðarmikill snjór er nú á Siglu- firði eins og annars staðar á norðan- verðu landinu, og er jafnvel talað um að annað eins hafi ekki sést í bænum síðan 1949. Þök á tveimur gömlum húsum í eigu SR-mjöls hafa hrunið og bílskúrsþak gaf sig í fyrradag. Að sögn Guðna Sölvasonar bæj- arverkstjóra hafa bæjarstarfsmenn aðstoðað fólk við að hreinsa snjó af þökum og ýta frá húsum. Ófært hefur verið til bæjarins, á landi og loftleiðina um tíma, og götur bæjar- ins vart ökufærar. íbúar í Ólafstúni á Flateyri hafa nú verið fjarri heimilum sínum í samtals 28 daga frá áramótum vegna snjóflóðahættu. Þreifandi bylur var í bænum í gær að sögn Kristjáns J. Jóhannessonar sveitar- stjóra og er þetta lengsti samfelldi óveðurskafli í bænum sem menn muna að hans sögn. Ségir Kristján fjölda húsa við ðlafstún á kafi í snjó og þurfi íbúar þeirra að grafa sig út á hveijum morgni, þá sjaldan þeim er kleift að dvelja heima. Magnús L. Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.